Fréttablaðið - 06.09.2003, Side 6

Fréttablaðið - 06.09.2003, Side 6
6 6. september 2003 LAUGARDAGUR GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 80,92 -0,74% Sterlingspund 128,07 -0,09% Dönsk króna 11,91 0,19% Evra 88,46 0,20% Gengisvístala krónu 126,86 0,86% KAUPHÖLL ÍSLANDS Fjöldi viðskipta 520 Velta 8.610 milljónir ICEX-15 1.739 0,72% Mestu viðskiptin Fjárfest. Straumur hf. 615.364.950 Bakkavör Group hf. 149.492.850 Eimskipafélag Íslands hf. 140.912.857 Mesta hækkun Flugleiðir hf. 6,19% Jarðboranir hf. 3,43% Bakkavör Group hf. 3,33% Mesta lækkun Tryggingamiðstöðin hf. -1,60% Nýherji hf. -1,18% Sölum. Hraðfrystihúsanna hf. -0,91% ERLENDAR VÍSITÖLUR DJ*: 9.545,5 -0,4% Nasdaq*: 1.875,7 0,4% FTSE: 4.257,2 0,2% DAX: 3.574,7 0,1% NK50: 1.413,9 0,0% S&P*: 1.027,9 0,0% *Bandarískar vísitölur kl. 17.00 Veistusvarið? 1Hversu mikið hefur Landspítali - Há-skólasjúkrahús farið fram úr fjárheim- ildum sínum það sem af er ári? 2Á annað hundrað dauðadómum hefurverið hnekkt í Bandaríkjunum. Hvers vegna? 3Hvern útnefndi KSÍ sem þann ís-lenska knattspyrnumann sem hefði skarað mest fram úr síðustu 50 árin? Svörin eru á bls. 38 Ísbirnir á Svalbarða skipta litum: Birnirnir verða hvítir á ný NOREGUR, AP Hvergi nema á Sval- barða í Barentshafi er að finna svarta ísbirni. En nú verður breyting á. Ákveðið hefur verið að breyta til og hafa alla birni á eyjunni hvíta. Raunar eru ísbirn- irnir sjálfir sem valsa um eyjuna hvítir en á skiltum meðfram veg- um, sem varað hafa bílstjóra við dýrunum, eru svartir birnir á hvítum grunni. Mikið hefur verið kvartað undan þessu, enda á bangsinn að vera hvítur. Yfirvöld hafa því ákveðið að verða við óskum gagn- rýnenda. Norska vegagerðin hefur látið hanna ný viðvörunarskilti vegna ísbjarna og verða þeir eftirleiðis hvítir á svörtum grunni. Verða þau senn sett upp við Longyearbyen og nágrenni. Talið er að 2.000 til 3.000 ís- birnir eigi heimkynni á Sval- barða. Af og til villast birnirnir til byggða og reyna að komast inn í húsakynni fólks í leit að æti og eru dæmi um að þeir hafi banað mönnum. HVALVEIÐAR „Okkar loforð er það að biðla til okkar félagsmanna um víðan heim að hafa Ísland í huga þegar farið er í ferðalög,“ sagði Lennart Dalian, framkvæmda- stjóri Grænfriðunga á Norður- löndum, um tilboð það sem þeir hafa lagt fram til íslenskra stjórn- valda, hætti Íslendingar hvalveið- um hið snarasta. Á fundinum kom fram vilji samtakanna að starfa með Íslend- ingum og að ekki stæði til undir nokkrum kringumstæðum að hvetja til refsiaðgerða gagnvart Íslendingum. „Við viljum taka höndum saman við þá Íslendinga sem er annt um náttúruauðlindir sínar. Með stuðningi okkar félags- manna, sem skipta milljónum, geta landsmenn haft góðan hagnað af því að hætta nú þegar veiðunum.“ Lennart sagði samtökin ekki hafa farið þessa leið áður og því væri rennt blint í sjóinn með ár- angur. „Það er hins vegar stað- reynd að stuðningur Íslendinga sjálfra við veiðarnar fer minnk- andi, vísindagildi þessara veiða er ákaflega takmarkað, ef nokkuð, og með því að fara þessa leið eru miklar líkur á að gjaldeyristekjur landsins geti aukist mikið. Hér vinna allir.“ Bent var á að Grænfriðungar nytu mikils stuðnings meðal þeirra þjóða sem mest heimsæktu Ísland. Samtökin hafa nú þegar sent tölvupóst til félagsmanna sinna þar sem spurt er hvort við- komandi hafi áhuga á að fá upp- lýsingar um landið. Frode Pleym, annar talsmaður samtakanna, sagði að þegar hefðu yfir þúsund manns óskað frekari upplýsinga. „Það steðjar mikil ógn að náttúru- tengdum ferðaiðnaði hér á landi ef veiðarnar halda áfram. Við vilj- um gjarna hjálpa Íslendingum að verða vist og náttúruvænt þjóðfé- lag í framtíðinni.“ Á fundinum kom fram að skip samtakanna, Rainbow Warrior, sigli kringum landið á næstu dög- um og þar verði öllum sem áhuga hafa kynnt tilboðið og starfsemi Grænfriðunga. Stefán Ásmundsson hjá Sjávar- útvegsráðuneytinu sagði að tilboð Grænfriðunga væri til skoðunar eins og önnur mál. albert@frettablaðið.is Miltisbrandur: Pósthús loks hreinsað NEW JERSEY, AP Póstþjónustan í Bandaríkjunum hefur hafist handa við að sótthreinsa pósthús- ið í Trenton í New Jersey sem lok- að var vegna miltisbrands. Þetta er síðasta byggingin sem hreinsuð er af eitrinu. Pósthúsinu var lokað fyrir tæpum tveimur árum þegar í ljós kom að að minnsta kosti fjögur bréf með miltisbrandi höfðu farið þar í gegn. Sautján manns smituðust af miltisbrandi í Bandaríkjunum árið 2001. Fimm þeirra létust. Yf- irvöld hafa heitið sem svarar rúmum 200 milljónum íslenskra króna í verðlaun fyrir upplýsing- ar sem gætu leitt lögregluna á spor þeirra sem dreifðu eitrinu en enn hefur enginn verið handtek- inn í tengslum við málið. ■ Umhverfisstofnun: Hunang innkallað NEYTENDUR Umhverfisstofnun hefur stöðvað dreifingu á hunangstegund- inni Hornbeck Akasíu- honning frá Ungverja- landi og beinir því til neytenda sem hafa keypt hunangið að skila því til verslunarinnar þar sem það var keypt. Upplýsingar um að leif- ar af sýklalyfi hafi fundist í akasíuhunangi frá Ungverja- landi bárust í gegnum alþjóð- legt viðvörunar- kerfi um matvæli. Sýklalyfið er talið hafa borist með kínversku hun- angi sem bætt var í það ungverska. Hunangið fékkst í 340 gramma gler- krukkum og er framleiðandi Scand- ic food. ■ Bygging álvers: Samningar undirritaðir FRAMKVÆMDIR Bernt Reitan, fram- kvæmdastjóri frummálmvinnslu hjá Alcoa, og Andrew Greig, hjá Bechtel, undirrituðu í gær 80 milljarða króna samning um byggingu álvers á Reyðarfirði. Talið er að alls muni 2.300 manns starfa við bygginguna á fram- kvæmdatímanum og mest 1.500 á sama tíma. Gangi áætlanir eftir hefur ál- verið framleiðslu í apríl árið 2007 og verður farið að skila fullum af- köstum síðar sama ár. Það á að framleiða 322.000 tonn af áli ár hvert. ■ RÉTTUR LITUR Svartir ísbirnir á hvítum grunni víkja nú á Svalbarða fyrir hvítum björn- um. Íbúar eyjarinnar voru ósáttir við svarta litinn á björnunum og urðu yfirvöld við óskum um litaskipti. Skattalækkanir: Ekki á næstunni SKATTAR Þess er ekki að vænta að skattar verði lækkaðir á næstunni. Halldór Ásgrímsson utanríkisráð- herra sagði í samtali við Stöð 2 að skattar verði ekki lækkaðir að ráði á næsta ári og komi ekki til fram- kvæmda fyrr en á síðari hluta kjör- tímabilsins. Fjármálaráðherra segir í viðtali við DV í gær að fyrstu skrefin verði tekin í tengslum við kjarasamninga í vetur og skattalækkanir því í ákveðinni biðstöðu. Óvíst sé hvort skattalækkanir verði tilkynntar í haust, vetur eða næsta haust. Hvorki náðist í fjármálaráðherra né utanríkisráðherra í gær. ■ AKASÍUHONN- ING Leifar af sýklalyfi fundust í akasíu- hunangi frá Ung- verjalandi. FRÁ BLAÐAMANNAFUNDINUM Þar kynntu Grænfriðungar tilboð sitt til Íslendinga hætti þeir öllum hvalveiðum. VIÐKOMUSTAÐIR RAINBOW WARRIOR 4-8. sept. Reykjavík 9-10. sept. Ísafjörður 11-12. sept. Akureyri 12-14. sept. Húsavík 15-16. sept. Seyðisfjörður 16-17. sept. Höfn 19-21. sept. Reykjavík Boða mikinn hagnað Grænfriðungar hafa gert stjórnvöldum tilboð um að auka ferðamanna- straum til landsins gegn því að Íslendingar hætti öllum hvalveiðum. Gangi spár þeirra eftir aukast gjaldeyristekjur um milljarða. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.