Fréttablaðið - 06.09.2003, Side 31

Fréttablaðið - 06.09.2003, Side 31
31LAUGARDAGUR 6. september 2003 Ingvar Helgason F í t o n F I 0 0 7 7 1 9 Ingvar Helgason hf. · Sævarhöfða 2 · Sími 525 8000 · ih@ih.is · www.ih.is frá 3.289.000 kr. TERRANO frá 4.590.000 kr. PATROL frá 2.490.000 kr. DOUBLE CAB frá 2.760.000 kr. X-TRAIL frá 3.860.000 kr. MAXIMA frá 2.260.000 kr. PRIMERA frá 1.650.000 kr. ALMERA frá 1.390.000 kr. MICRA Hann er japanskur og var valinn áreiðanlegasti bíll í sínum flokki af bresku neytendasamtökunum. Könnunin tók til bilanatíðni og gangsetningar og það var okkar bíll, Nissan Almera sem náði hæstu einkunn, einfaldlega 100% áreiðanlegur bíll. Nissan Almera er á einstöku verði miðað við búnað, þægindi og aksturseiginleika. Komdu í reynsluakstur, 100% bíllinn stendur þér til boða fyrir aðeins 29.929 kr. á mánuði. ÞETTA ER BÍLLINN NISSAN ALMERA frá 29.929 á rekstrarleigu í 3 ár. kr./mán. Innifalið: Leiga til 36 mánaða, akstur allt að 20.000 km á ári, smur- og þjónustueftirlit samkvæmt þjónustubók. Consumers’ Association 100% Var valinn áreiðanlegastibíll í sínum flokki af breskuneytendasamtökunum áreiðanlegur FÓTBOLTI Landsliðsþjálfararnir Ás- geir Sigurvinsson og Rudi Völler mættust sex sinnum í leikjum Stuttgart og Werder Bremen í Bundesligunni á níunda áratug síð- ustu aldar. Ásgeir lék með Stutt- gart á árunum 1982 til 1990 og Völler með Werder Bremen frá 1982 til 1987. Þeir léku báðir í sex af tíu viðureignum félaganna á árunum 1982 til 1987. Stuttgart sigraði í fjórum leikjanna en Bremen í tveimur. Leikur Bremen og Stuttgart í næstsíðustu umferð leiktíðarinnar 1983-84 stendur upp úr. Ásgeir Sig- urvinsson skoraði fyrra mark Stuttgart í 2-1 útisigri sem nánast færði félaginu meistaratilinn í fyrsta sinn í 32 ár. Stuttgart tryggði sér sigur í deildinni í síð- ustu umferð eftir leik gegn Ham- borg á heimavelli. Ásgeir skoraði líka í 4-1 sigri árið 1982 en eina mark Völlers í innbyrðis viðureign landsliðsþjálf- aranna kom í 1-0 sigri vorið 1987. ■ Landsliðsþjálfararnir: Ásgeir hefur vinninginnFÓTBOLTI Það verður væntanleganóg að gera hjá Árna Gauti Ara- syni, landsliðsmarkverði í knatt- spyrnu, þegar Ísland mætir Þjóð- verjum á Laugardalsvelli í dag. Í liði Þjóðverja eru markaskorarar á borð við Fredi Bobic og Miroslav Klose að ógleymdum Michael Ballack, einum besta miðvallarleikmanni heims. „Leikurinn leggst mjög vel í mig og það er ljóst að þetta verð- ur mjög erfitt,“ segir Árni Gautur. „Við stefnum að því að ná góðum úrslitum og ef við eigum toppleik held ég að við getum það.“ Íslenska liðið leikur væntan- lega með þriggja manna vörn í dag. Landsliðsmarkvörðurinn segist ekki óttast neinn ákveðinn leikmann úr þýska liðinu. „Það er fullt af góðum leikmönnum í þessu liði og það er erfitt að benda á einn,“ segir Árni Gautur. „Við verðum bara að leika skynsam- lega og nýta þessi færi sem við fáum.“ ■ Árni Gautur Arason: Verður mjög erfitt ÁRNI GAUTUR ARASON Mikið mun mæða á markverðinum í dag þegar íslenska landsliðið leikur á móti því þýska. Þýskir fjölmiðlar: Fótboltafár á Íslandi FÓTBOLTI „Eftirvæntingin hér heima er mjög mikil og við erum allir ákaflega spenntir. Fyrir mér er landsleikurinn gegn Þjóðverj- um sá mikilvægast á mínum ferli,“ sagði Þórður Guðjónsson, leikmað- ur VfL Bochum, við vefútgáfu Rheinische Post. Hann segir að Ís- land hafi enn ekki keppt á stórmóti og það væri draumur allra ef það tækist. Vefurinn heldur því fram að á Íslandi ríki fótboltafár fyrir leikinn gegn Þjóðverjum. Þórður sagði við Rheinische Post að Íslendingar hafi engar tál- sýnir um sigur og sæti í úrslita- keppni Evrópumeistarakeppninn- ar í Portúgal á næsta ári. „Við verðum að eiga mjög góðan dag og Þjóðverjar mjög slæman dag. Undir eðlilegum kringumstæðum eigum við enga möguleika.“ „Þjálfarinn okkar þekkir þýska liðið og þýskan hugsunarhátt og þess vegna verðum við vel undir- búnir. Með baráttu og réttum und- irbúningi reynum við að láta það ómögulega gerast.“ ÞÓRÐUR GUÐJÓNSSON „Með baráttu og réttum undirbúningi reyn- um við að láta það ómögulega gerast.“ Evrópukeppni U-21 liða: Tap fyrir Þjóðverjum FÓTBOLTI Íslendingar töpupu 1-3 fyrir Þjóðverjum í undankeppni Evrópukeppni U-21 liða á Akra- nesi í gær. Benjamin Auer skor- aði fyrsta mark leiksins á 25. mínútu en Sigmundur Kristjáns- son jafnaði skömmu fyrir leik- hlé. Auer skoraði öðru sinni á 63. mínútu, nú úr vítaspyrnu, og Mike Hanke bætti þriðja mark- inu við skömmu síðar. Með sigrinum höfðu Þjóð- verjar efsta sæti riðilsins af Lit- háum en Íslendingar eru enn neðstir og án stiga eftir fimm leiki. Skotar eru í þriðja sæti riðilsins en þeir leika við Þjóðverja í næstu viku. Síðasti leikur Íslendinga í keppninni verður gegn Þjóð- verjum í Lübeck 10. október. ■ Evrópumeistarakeppnin 2004: Þjóðverjar ekki slakir FÓTBOLTI Þjóðverjar hafa leikið sjö leiki á þessu ári, unnið Serba og Svartfellinga, Kanadamenn og Færeyinga, gert jafntefli við Lit- háa og Skota en tapað fyrir Spán- verjum og Skotum. Þjóðverjar hafa skorað tíu mörk í leikjunum sex. Gengið eftir heimsmeistara- keppnina í fyrra var lítið betra og hefur árangur liðsins orðið tilefni yfirlýsinga heima fyrir um slakara lið en Þjóðverjar hafi áður átt. Ásgeir Sigurvinsson gefur lítið fyrir þessar yfirlýsingar. „Þjóð- verjar urðu í öðru sæti í síðustu heimsmeistarakeppni. Þeir spila alltaf vel þegar þeir þurfa á því að halda.“ Eiður Smári Guðjohnsen tók undir það og sagði að Þjóð- verjar væru alltaf sagðir vera með slakasta liðið frá upphafi þegar mikið væri í húfi. Alltaf kæmi fram einhver fyrrum lands- liðsmaður Þýskalands og lýsti þessu yfir þegar illa gengi. ■ ÞÝSKA LANDSLIÐIÐ „Þjóðverjar spila alltaf vel þegar þeir þurfa á því að halda,“ segir Ásgeir Sigurvinsson

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.