Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.09.2003, Qupperneq 38

Fréttablaðið - 06.09.2003, Qupperneq 38
Augun 38 6. september 2003 LAUGARDAGUR ■ Hugleiðingin Vikan hófst með fundahöldumog undirbúningi vegna sjón- varpsþáttarins míns sem er að hefja göngu sína fimmta árið í röð,“ segir Valgerður Matthías- dóttir, arkitekt og sjónvarps- kona. „Svo tóku við tökur og inn- lit í fjölda húsa sem við síðar notum í þættina. Til dæmis leit ég við hjá Björgvini Halldórs- syni söngvara sem er að flytja í Hafnarfirði og við ætlum að fylgjast með því hvernig það gengur hjá honum. Í Hafnarfirð- inum fórum við líka til Bjarkar Jakobsdóttur leikkonu sem er að gera skemmtilega hluti í eldhús- inu sínu,“ segir Valgerður, sem ætlar að bæta enn einu andlitinu við í þættinum sínum í vetur. „Ég hef það fyrir sið að vera alltaf með eitt nýtt karlmanns- andlit í þættinum mínum á hverju hausti og núna er það Helgi Pé. Við höfum unnið sam- an áður, byrjuðum með 19:19 á Stöð 2 þannig að við þekkjumst. Helgi er frábær sjónvarpsmað- ur. Einn okkar besti,“ segir Vala Matt, sem getur svo sem verið ánægð með sjálfa sig í sjónvarp- inu því á síðasta ári mældist enginn innlendur þáttur með meira áhorf en Innlit/útlit. Ekki einu sinni fréttatími Stöðvar 2: „Það hefur verið svo mikið að gera í vikunni að ég hef ekki haft neinn tíma fyrir sjálfa mig eða heimsmálin. Það allt verður að bíða betri tíma.“ Vikan sem var VALGERÐUR MATTHÍASDÓTTIR ■ hefur í nógu að snúast á haustin. Síð- asta vika bar keim af því að verið er að undirbúa nýja þáttaröð af Innlit/útlit. Á meðan hefur hún engan tíma fyrir sjálfa sig eða heimsmálin. Imbakassinn Stingandi en líka hlý. Einn af valdamestu mönnum Evrópu sem oftar en ekki hefur gefið öðrum langt nef. Og hefur efni á því. Drekkur rauðvín, hefur borðað osta úr æsku og talar ekki ensku ótilneyddur. Hver á augun? Flytur með Bo ■ Veistu svarið? Svör við spurningum á bls. 6 1. 2. 3. 665 milljónum. Dómari en ekki kviðdómur kvað upp dauðadóm. Ásgeir Sigurvinsson. VALA MATT Leit inn í fjölda húsa í vik- unni enda sjónvarpsþáttur- inn hennar að renna af stað í fimmta sinn.           !" #  $  %$#& ' ()*+ #,-# , ... #  /0- (Jacques Chirac Frakklandsfor- seti.) HUNDABÚIÐ DALSMYNNI Þeir sem ætla að mótmæla hundafram- leiðslu ætla að hittast klukkan þrjú við KFC í Mosfellsbæ. Dalsmynni: Þögul mótmæli Í dag klukkan þrjú ætla þau semstanda fyrir mótmælum við hundabúið Dalsmynni á Kjalar- nesi að mæta við KFC í Mosfells- bæ. Vigdís Pálsdóttir, ein þeirra sem standa fyrir mótmælastöð- unni, segir mikinn áhuga ríkja og fólk ætli að koma víða að af land- inu. „Við höfum útbúið mótmæla- spjöld og borða, sett okkur í sam- band við lögregluna og fengið leyfi. Við ætlum okkur að standa fyrir utan Dalsmynni og mótmæla í hljóði með sorgarborða. Við lýsum okkur fús til að taka að okk- ur hundana sem þarna eru. Það er tími til kominn að farið verði að lögum og þessari framleiðslu hætt. Okkur finnst skelfileg með- ferðin á þessum dýrum sem aldrei fá að fara út og hlaupa um í nátt- úrunni eins og aðrir hundar,“ seg- ir Vigdís. ■ Sannleikurinn er eins og ástríðufull- ur koss. Johann Wolfgang von Goethe. Þetta er hrein list og ekkert ann-að,“ segir Rúnar Júlíusson tón- listarmaður, sem verið hefur með sömu konunni í 40 ár án þess að ganga í hjónaband. Samt lifir ástin. Hann og María Baldursdóttir kynntust ung og ganga enn lífsveg- inn saman, hönd í hönd sem forð- um. „Það getur svo sem vel verið að við giftum okkur einn daginn. Það á bara eftir að finna kirkjuna, dagsetninguna og prestinn. Flókn- ara er það ekki,“ segir Rúnar og leggur áherslu á að ástin sem slík sé ekki orð. Ástin sé verk: „Í raun er þetta galdur; litríkur galdur. Hann hefst snemma á morgnana og endar seint á nóttunni. Maður verður að vera vakandi í þeirri list að elska konuna sína. Vinna í því allan sólarhringinn,“ segir Rúnar, sem nýtur þess enn að sofna við hlið elskunnar sinnar og ekki síður hitt að vakna við hlið hennar að morgni: „Þess á milli dreymir mig hana,“ segir hann. Um ósætti í sambandi kynjanna hefur Rúnar þetta að segja: „Maður verður að halda jafn- vægi í ósættinu þegar það kemur upp. Það er leikur einn að rjúka út og henda lyklinum. Um freistingarnar segir hann: „Freistingarnar hafa verið margar á 40 árum. Það var helst þegar einhverjar Hollywood-bomb- ur urðu á vegi manns en það varði alltaf mjög stutt. Konan mín hafði alltaf vinninginn. Það var helst fyrstu árin en svo dró úr því og nú er þetta í sögulegu lágmarki.“ Og um rómantíkina: „Rómantíkin blundar en ég verð var við hana á hverjum degi. Ég krydda daginn með rósum sem ég gef henni. Ég vil halda ástinni í lífsverkinu. Án hennar væri allt snautt,“ segir Rúnar Júlíusson eftir 40 ár með Maríu Baldurs- dóttur. Þau láta verkin tala. ■ RÚNAR OG MARÍA Sofna saman, vakna saman og dreymir hvort annað þess á milli. Karl og kona RÚNAR JÚLÍUSSON ■ hefur verið með sömu konunni í 40 ár án þess að kvænast henni. Hann fann ungur lykilinn að ástinni og hefur geymt hann vel. Ást er verk - ekki orð M YN D /O D D G EI R Hún er besti vinur minn og ég ámeð henni mjög góð börn,“ segir Þórarinn Tyrfingsson, yfir- læknir á Vogi, um eiginkonu sína, Hildi Guðnýju Björnsdóttur kenn- ara. „Ég veit ekki hvernig lífið væri án hennar – búinn að vera svo lengi með henni.“ Þórarinn og Hildur eiga fimm börn saman. ■ Konan mín 1Fara með krakkana í Hval-fjarðargöngin. Bara eins og að vera í tívolí. 2Danshátíð Ís-lenska dans- flokksins. Sjón er sögu ríkari. 3KillingJoke platan er geðveik. 4Seldu miðann þinn á landsleik-inn á okurverði, horfðu á sjón- varpið og farðu á Holtið eftir leikinn. 5Sálin er áBroad- way í kvöld. Sveitaball í borginni. ráð5fyrir helgina Vandamálið er fyrst og fremst það að ég kem engu í verk...ég ligg bara í sófanum allan daginn! Lausn. Lárétt: 1fastur, 6aftan,7glaðar, 9linaði,10glas,13túr, 14ró,15fót. Lóðrétt: 1 faglegt, 2afli,3stangar, 4 taða,5unaðs,8ri11lúr, 12nót,14ró. Lárétt: 1 innilokaður, 6 að baki, 7 kátar, 9 mildaði, 10 drykkjarílát, 13 ferðalag, 14 kyrrð, 15 útlim. Lóðrétt: 1 sérfræðilegt, 2 veiði, 3 rekur hausinn í, 4 hey, 5 yndis, 8 sk.st. 11 svefn, 12 veiðarfæri, 14 kyrrð. 1 6 7 9 10 2 3 4 5 8 15 13 14 11 12

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.