Fréttablaðið - 07.12.2003, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 42
Leikhús 42
Myndlist 42
Íþróttir 39
Sjónvarp 44
SUNNUDAGUR
LJÓSIN TENDRUÐ Á ÓSLÓAR-
TRÉNU Ljósin verða tengdruð á greni-
trénu á Austurvelli klukkan 16. Lúðrasveit
Reykjavíkur hefur dagskrána kl. 15.30
með því að leika falleg jólalög. Rúm hálf
öld er síðan Norðmenn færðu Íslending-
um í fyrsta sinn grenitré að gjöf til að
skreyta Reykjavík.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
KÓLNAR Í DAG Líklega verður slydda
norðanlands seinnipartinn. Kólnar áfram
þegar líður á vikuna. Sjá síðu 6
7. desember 2003 – 305. tölublað – 3. árgangur
SKATTUR AF BÓTA-
GREIÐSLUM Auknar
bótagreiðslur til öryrkja
koma að fullu til skatts
og því hefðu tæp 40%
aldurstengdra örorkubóta
skilað sér til baka í ríkis-
sjóð. Það hefði því kost-
að tæpan milljarð að efna samkomualagið
við öryrkja að fullu. Sjá síðu 2
STANGAST Á VIÐ STJÓRNARSÁTT-
MÁLANN Í frumvarpi sjávarútvegsráð-
herra eru líka lagðar til breytingar á úthlut-
un byggðakvóta og verða svonefndir
byggðapottar lagðir af í. Skerðing byggða-
kvóta stangast á við stjórnarsáttmálann,
samkvæmt orðum formanns Framsóknar-
flokksins frá í sumar. Sjá síðu 4
FULLIR Á JARÐÝTU OG VEGHEFLI
Tveir starfsmenn undirverktaka Impregilo
við Kárahnjúka voru teknir af lögreglunni á
Egilsstöðum í gær grunaðir um meinta ölv-
un við akstur á jarðýtu og veghefli. Líklegt
er að þeir verði reknir. Sjá síðu 2
GYÐINGAHATUR Í EVRÓPU Margt
bendir til þess að hatur og fordómar í garð
gyðinga hafi vaxið verulega á undanförnum
árum í Evrópu. Árásum gegn gyðingum
hefur fjölgað og margir finna til öryggis-
leysis. Sjá síðu 8
JÓLASKEMMTUN Í HÖLL SADDAMS Bandarísku hermennirnir Salvador Martinez og Steve Russell syngja jólalög í höll Saddams
Hussein, fyrrum einræðisherra Íraks. Kveikt á var á jólatré í höllinni, sem er í Tíkrit, heimabæ Husseins, við hátíðlega athöfn í gær.
Setur spurningarmerki
við uppeldi ráðherra
Garðar Sverrisson, formaður Öryrkjabandalagsins, vandar ríkisstjórninni ekki kveðjurnar.
Hann er einkum harðorður í garð Framsóknarflokksins og segir ekki útilokað að höfðað verði
dómsmál til að fullnusta gerða samninga milli ríkisvaldsins og öryrkja.
ÖRYRKJAR Þessi svik eru svo ljótur
leikur að það getur bara ekki verið
að þessir menn geri sér grein fyrir
því hvernig ástandið er í raun og
veru,“ segir Garðar Sverrisson, for-
maður Öryrkjabandalagsins. „Menn
sem ala manninn á lúxushótelum úti
í heimi eru ekki í sterkri aðstöðu til
að átta sig á þeim lífskjörum sem
þeir hafa ákvarðað öryrkjum. Væri
svo, hvers konar uppeldi hefur það
fólk þá fengið sem ákveður að ör-
yrkjar skuli vera á svona lágum líf-
eyri og ákveður síðan að svíkja gef-
in loforð? Ég vona allavega að mér
takist að ala mín eigin börn þannig
upp að þau komi aldrei til með að
gera neitt í líkingu við þetta.“
Garðar segir ekki útilokað að
höfðað verði dómsmál. „Það liggur
ljóst fyrir að samningur af þessu
tagi, með öllum þeim gögnum, yfir-
lýsingum og staðfestingum sem
fyrir liggja í málinu er miklu meira
en nægur til að hægt sé að draga
ríkisstjórnina fyrir dóm. Dómsalir
eru ekki skemmtilegur samráðs-
vettvangur. Það er ansi hart ef við
þurfum eina ferðina enn að stefna
ríkisstjórninni fyrir dómstóla. En
eftir alla þá gagnrýni sem ég fékk
fyrir trúgirni mína get ég ekki
lagst gegn því að samningurinn
verði fullnustaður með tilstyrk
dómstóla.“
Nánar á síðum 22 og 23.
Aðalhagfræðingur
Seðlabankans:
Gósentíðin
ekki sjálfsögð
EFNAHAGSMÁL Már Guðmundsson,
aðalhagfræðingur Seðlabanka Ís-
lands, segir aukningu á einka-
neyslu á vormán-
uðum, með aukn-
um viðskiptahalla,
benda til þess að
Íslendingar hafi
farið fram úr sér í
væntingum um
góðæri. „Það
mátti merkja
aukna bjartsýni í
væntingavísitölu
Gallups sem náði
hámarki á þessum
tíma. Hvort sem
það var vegna kosninganna eða
einhvers annars. Ég held að þarna
höfum við verið að fara fram úr
okkur,“ segir Már. „Þrátt fyrir
stóriðjuframkvæmdir fyrir aust-
an, þá er ekki þar með sagt að hér
verði einhver gósentíð. Hún er
heldur ekkert komin.“
Már segir Seðlabankann helst
hafa áhyggjur af árinu 2006 í lang-
tímaáætlunum ríkisins, þegar ann-
ar áfangi í skattalækkunum kem-
ur til framkvæmda. Í áætlunum
skorti viðbótaraðhald á móti og
því geti sigið á ógæfuhliðina þá.
Nánar á síðum 16 og 17.
Mikilmennin snúa aftur
Alexander mikli, Akkiles og Jesús Kristur eru á meðal þeirra mikilmenna sem munu dúkka upp á
hvíta tjaldinu á næstunni, í nýrri bylgju kvikmynda um stórmenni sögunnar. Svo virðist sem grískar
hetjur og áhrifamenn í mannkynssögunni séu komnir í tísku í kvikmyndaheiminum. SÍÐUR 28 og 29
▲
Það sem
Guardian
sagði um
Kárahnjúka
Breska blaðið The Guardian birti
langa grein um síðustu helgi þar
sem farið var gagnrýnum orðum
um Kárahnjúkavirkjun. En hvað
stóð í greininni? Hvað var The
Guardian að segja?
Svindlbréf sem upprunnin eru í Níger-
íu hafa verið í gangi um árabil. Mark-
mið þeirra er að hafa af fólki fé. Hóp-
ur fólks skemmtir sér við það að skrif-
ast á við svindlarana, eyða tíma þeirra
og breyta þeim sjálfum í fórnarlömb.
SÍÐUR 24 og 25
▲
SÍÐA 18
▲
Svindlarar
gabbaðir
MÁR GUÐ-
MUNDSSON
Ekkert sjálfsagt
að hér verði
gósentíð.
M
YN
D
/A
P