Fréttablaðið - 07.12.2003, Blaðsíða 2
2 7. desember 2003 SUNNUDAGUR
„Já, prýðilega. Mér finnst alveg
sjálfsagt að stjórnmálaflokkar fái
opinberan stuðning í stað þess að
þeir lifi á sníkjum frá fyrirtækjum.
Það er ósiður sem ber að leggja af.“
Alþingi samþykkti í fyrradag breytingartillögu við
fjárlögin upp á 30 milljóna króna hækkun á styrk
til stjórnmálaflokkanna. Fimm þingmenn úr öllum
flokkum stóðu að tillögunum, meðal annars
Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður VG.
Spurningdagsins
Ögmundur, ertu með góða samvisku?
Fullar efndir hefðu
kostað milljarð
Auknar bótagreiðslur til öryrkja koma að fullu til skatts og því hefðu tæp
40% aldurstengdra örorkubóta skilað sér til baka í ríkissjóð í formi skatta.
Það hefði því kostað tæpan milljarð að efna samkomulagið að fullu.
ÖRORKULÍFEYRIR „Ríkisstjórnin
hefði getað staðið að fullu við sam-
komulagið sem gert var við Ör-
yrkjabandalagið um tvöföldun
grunnlífeyris, með þeim milljarði
króna sem um er
rætt. Allar þess-
ar viðbótar-
greiðslur til ör-
yrkja samkvæmt
samkomulaginu,
koma að fullu til
skatts, öryrkjar
greiða tæplega
40% bótaupp-
hæðarinnar til
baka með tekju-
skatti. Þannig að
raunútgjöld rík-
issjóðs eru ekki
nema brot af
þessari upphæð sem talað er um,
kannski 600 milljónir króna af
þeim milljarði sem alltaf er talað
um,“ segir Ásta R. Jóhannesdóttir,
þingmaður Samfylkingarinnar.
Samkvæmt frumvarpi heil-
brigðisráðherra, sem mælt var
fyrir á Alþingi í gær, fá öryrkjar
aldurstengda örorkuuppbót frá og
með 1. janúar næstkomandi. Upp-
bótin miðast við þann aldur sem
einstaklingur er í fyrsta sinn met-
inn 75% öryrki.
Yngstu öryrkjarnir, 18 og 19
ára, fá 100% örorkuuppbót en hún
lækkar svo eftir því sem einstak-
lingur eldist og fellur alveg niður
við 67 ára aldur. Þessi útfærsla
kostar ríkissjóð um einn milljarð
króna á ári. Af því fær ríkissjóður,
eins og áður segir, tæpar 400 millj-
ónir króna til baka í formi skatta.
Leið Öryrkjabandalagsins, það
er að segja tvöföldun grunnlífeyr-
is allra öryrkja, hefði kostað
1.528,8 milljónir króna. Af því
hefðu tæpar 590 milljónir skilað
sér til baka í formi skatta. Raun-
útgjöld hefðu því verið tæpar 940
milljónir króna.
„Það lítur þannig út að viljinn
hafi einfaldlega ekki verið fyrir
hendi til að standa að fullu við
samkomulagið við Öryrkjabanda-
lagið, hver sem hefur svo ráðið
því,“ segir Ásta R. Jóhannesdóttir.
Hún segist líka velta því fyrir
sér hvar 16 og 17 ára öryrkjar
standi í þessu máli, þeir fái engar
uppbætur á grunnlífeyri.
„Samkvæmt almannatrygg-
ingalögunum geta menn fengið ör-
orkulífeyri frá 16 ára aldri. Fólk
sem missir starfsorkuna svo
snemma á lífsleiðinni, hefur ekki
áunnið sér réttindi í lífeyrissjóði
og hefur engin tök á að auka tekj-
ur sínar á nokkurn hátt í gegnum
allt lífið. Þetta er greinilega
gleymdur hópur og ég spyr ráð-
herra hvað veldur.“
Samkvæmt útreikningum
Tryggingastofnunar kostar um
120 milljónir króna á ári að tvö-
falda grunnlífeyri 16 og 17 ára
öryrkja með sama hætti og þeirra
sem eldri eru.
the@frettabladid.is
Tveir starfsmenn undirverktaka við Kárahnjúka:
Teknir fullir á
jarðýtu og veghefli
KÁRAHNJÚKAR Tveir starfsmenn
undirverktaka Impregilo við Kára-
hnjúka voru teknir af lögreglunni
á Egilsstöðum í gær grunaðir um
ölvun við akstur á jarðýtu og veg-
hefli. Lögreglan kom á svæðið til
að sinna hefðbundnu eftirliti og við
athugun á réttindum og ástandi
ökumanna var ákveðið að láta tvo
starfsmenn blása í mæli. Málið er
enn í rannsókn og verið er að bíða
eftir niðurstöðum úr blóðrann-
sókn.
Ómar R. Valdimarsson, upplýs-
ingafulltrúi Impregilo, segir fyrir-
tækið líta málið alvarlegum aug-
um. „Okkur þykir þetta ákaflega
miður en eins og annars staðar er
hér misjafn sauðurinn. Ef niður-
stöður sína að starfsmennirnir eru
sekir verður þessum mönnum um-
svifalaust vísað úr starfi og þeir
sendir til sinna heima.“
Ómar segir að fyrirtækið komi
til með að herða eftirlit til muna á
svæðinu í kjölfar atviksins. „Við
höfum þegar brugðist við þessu og
í gær var farið í að kaupa áfengis-
prufur í apóteki sem munu verða
notaðar sem stykkprufur á starfs-
menn en auk þess sér lögregla um
hefðbundið eftirlit á svæðinu.“ ■
ELSTI KARLSTEINGERVINGURINN
Það sem er óvenjulegt við steingervinginn
er að mjúkir vefir hans hafa varðveist jafnt
sem hörð skelin.
Elsti limur heims:
425 milljón
ára gamall
BRETLAND Breskir vísindamenn
hafa uppgötvað elsta steingerving
af karldýri sem vitað er um í
heiminum. Um er að ræða stein-
gerving af sjávarskeldýri sem
uppgötvaðist í 425 milljón ára
gamalli klettamyndun í Hereford-
sýslu í Englandi. Það sem er
óvenjulegt við steingervinginn er
að mjúkir vefir hans hafa varð-
veist jafnt sem hörð skelin.
Þessi óþekkta dýrategund hef-
ur haft limi sem hún hefur notað
til þess að synda með og afla sér
fæðu. Að sögn vísindamannanna
uppgötvuðu þeir einnig getnaðar-
lim dýrsins sem mun sá elsti sem
sögur fara af í heiminum. ■
Vanefndir samkomulags:
Gróf brot á
samningi
ÖRORKULÍFEYRIR „Það er ömurleg
tilhugsun að hægt sé að safna
saman 32 fullveðja og lögráða Ís-
lendingum til þess að brjóta svo
gróflega kjarasamning sem gerð-
ur var við öryrkja. Sérstaklega á
það við um þing-
menn Framsókn-
arflokksins, sem
héldu að þeir
gætu falið sig bak-
við persónu Jóns
Kristjánssonar,“
segir Garðar
sverrisson, for-
maður Öryrkja-
bandalagsins.
Þá var nýlokið
atkvæðagreiðslu
um fjárlagafrum-
varp næsta árs og
tillögur stjórnarandstöðunnar um
viðbótarframlag til að standa að
fullu við samkomulag um tvöföld-
un grunnlífeyris öryrkja.
Flokkslínur réðu afstöðu þing-
manna. 28 þingmenn stjórnarand-
stöðu sögðu já, en 32 þingmenn
stjórnarflokkanna sögðu nei. ■
edda.is
Nau›synlegt hjálpartæki
vi› leik og störf
Loksins er komin n‡
útgáfa ensk-íslensku
íslensk-ensku
tölvuor›abókarinnar sem
hefur noti› mikilla
vinsælda undanfarin ár.
Miklir uppflettimögu-
leikar og ómissandi vi›
villuleit. Bók sem be›i›
hefur veri› eftir.
Komin í ver
slaniri í l i
GLEYMDUST 16 OG 17 ÁRA ÖRYRKJAR?
Ásta R. Jóhannesdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, spyr hverju það sæti að 16 og 17
ára öryrkjar fái ekki uppbætur, líkt og aðrir öryrkjar. Það hefði kostað 120 milljónir króna
á ári að greiða þeim uppbætur líka.
„Það lítur
þannig út að
viljinn hafi
einfaldlega
ekki verið fyrir
hendi til að
standa að
fullu við sam-
komulagið.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
ÖLVUNARAKSTUR VIÐ KÁRAHNJÚKA
Impreglio lítur atvikið alvarlegum augum og mönnunum tveimur verður umsvifalaust vikið
úr starfi ef niðurstaða rannsókna leiða sekt starfsmanna í ljós.
Nefnd á leið til Íslands:
Fundað um
varnarmál
UTANRÍKISMÁL Bandarísk nefnd um
endurskipulagninu heraflans er
væntanleg til Íslands á fimmtu-
dag.
Nefndin mun eiga viðræður við
íslenska ráðamenn um varnar-
samstarf ríkjanna. Sendinefndin,
sem er undir forystu
aðstoðarutanríkisráðherrans
Marc Grossman, mun eiga við-
ræður við Íslendinga á föstudags-
morgun, en ekki er frekar reiknað
með sérstökum skilaboðum varð-
andi tvíhliða samkomulag Íslands
og Bandaríkjamanna um varnar-
mál í þessum viðræðum. ■
GARÐAR
SVERRISSON
Telur stjórnvöld
hafa brotið gróf-
lega kjarasamn-
ing.
Hjördís Torfadóttir í Svíþjóð:
Jólatréð stóð
af sér óveðrið
NORÐURLÖND Sænskur ökumaður
lést skammt frá bænum Jönköp-
ing eftir að tré féll á bíl hans.
Mikið óveður gekk yfir Svíþjóð í
fyrrinótt og fór rafmagn af fjöl-
da heimila.
Talið er að um sextíu þúsund
manns hafi verið án rafmagns til
afnota. Veðrið var verst í mið- og
suðurhluta Svíþjóðar. Þrátt fyrir
að fjölmargir starfsmenn hafi
verið kallaðir út til að gera við
raflínur var ekki talið að raf-
magn kæmist aftur á fyrr en í
dag. Veður var einnig slæmt í
suðurhluta Noregs. Þar fór raf-
magn af og skapaði það ýmis
vandræði.
Hjördís Torfadóttir býr í
Helsingborg í Svíþjóð og náði
Fréttablaðið tali af henni í gær.
„Ég svaf af mér óveðrið. Íslend-
ingar eru vanir því þegar það
blæs,“ sagði Hjördís. „Það er ró-
legt og fínt í dag. Þeir sögðu í
gærkvöldi að þetta gengi snöggt
yfir og í morgun þegar ég vakn-
aði var fallegt veður.“
Hjördís segir að ekkert raf-
magnsleysi hafi verið í Helsing-
borg en víða annars staðar, þar á
meðal í Gautalandi, hafi fólk
verið án rafmagns. „Ég var svo-
lítið áhyggjufull út af jólatrénu
sem stendur hérna í miðborg-
inni. Það fauk um koll í fyrra en
það stóð af sér óveðrið,“ sagði
Hjördís. ■
NORSKT JÓLATRÉ
Kveikt var á þessu fallega norska jólatré á
Trafalgar-torgi í Lundúnum á dögunum.
Jólatréð í miðborg Helsingborgar fauk um
koll í óveðri í fyrra en slapp fyrir horn í
fyrrinótt.
BELTIN BJÖRGUÐU Bílvelta varð í
Biskupshálsi á Jökuldalsheiði í
gær. Ökumaður var ekki á mikilli
ferð en hálka var á veginum og
ökumaður missti stjórn á bílnum.
Mildi var að ekki fór verr. Einn
farþegi var í bílnum auk öku-
manns en báðir voru í beltum og
báðir sluppu ómeiddir.
INNBROT Í VESTURBÆNUM Um
miðjan daginn í gær var brotist
inn í íbúð í vesturbænumm, síma,
skartgripum og fleiri smáhlutum
var stolið á meðan eigandi íbúð-
arinnar var staddur í sameign-
inni. Málið er í rannsókn.
■ Lögreglufréttir