Fréttablaðið - 07.12.2003, Side 4
4 7. desember 2003 SUNNUDAGUR
Á Ísland möguleika á komast upp
úr 8. riðli í undankeppni HM í
knattspyrnu?
Spurning dagsins í dag:
Á að lækka veggjald í
Hvalfjarðargöngum?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
50%
50%
Nei
Já
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
Íslendingur átti 500 milljónasta atkvæðið:
Idolæði á Íslandi
Löng biðröð myndaðist í Smára-
lind í gær þegar keppendur úr ís-
lenska Idolinu voru samankomnir
til að árita geisladiska með lögum
úr keppninni. Fyrsta undanúrslita-
keppnin fór fram í beinni útsend-
ingu á föstudaginn, 700 áhorfendur
voru mættir í Smáralindina til að
fylgjast með útsendingunni og
64.000 atkvæði voru send inn í
keppnina.
„Það voru Idol-keppnir um allan
heim í gær og atkvæðin frá því að
Idol fór í loftið eru rúmur hálfur
milljarður,“ segir Pálmi Guð-
mundsson, markaðsstjóri hjá
Norðurljósum. „Það skemmtilega
var að það var Íslendingur sem átti
500 milljónasta atkvæðið og það
var greitt í gær.“
Pálmi segir að íslensku kepp-
endurnir hafi fengið spennufall
eftir keppnina. „Sterk vinátta hef-
ur myndast milli krakkanna í
hópnum og dramatíkin baksviðs
eftir keppnina var mjög mikil. Svo
tók það keppendur rúman klukku-
tíma að komast út úr Smáralind-
inni þar sem ágangur aðdáenda
var svo mikill.“
Bubbi var eini dómarinn í
keppninni í gær sem var sannspár
um úrslitin. „Annaðhvort tekur
fólk mark á honum eða hann hefur
svona góða tilfinningu fyrir þjóð-
arsálinni,“ segir Sigmar Vilhjálms-
son, eða Simmi, annar aðalkynna
Idolsins sem dauðsér eftir Sessý
og Jóhönnu Völu úr keppninni. „Ég
sagði reyndar fyrir keppnina að
það væri sama hvaða tveir færu
það væri eftirsjá að öllum.“ ■
LÍNUÍVILNUN „Þetta er sigur að því
leyti að málið er komið fram og
svarar, að hluta til, þeim kröfum
sem ég hef sett fram. Ég get alveg
sæst á þessa niðurstöðu, 16%
ívilnun á allar tegundir, með þeim
skilningi sem fram hefur komið
að þetta geti aukist upp í 20%,“
segir Kristinn H. Gunnarsson,
þ i n g m a ð u r
F r a m s ó k n a r -
flokks.
S j á v a r ú t -
v e g s r á ð h e r r a
lagði í gær fram
á Alþingi frum-
varp um línu-
ívilnun til handa
dagróðrarbát-
um. Samkvæmt
því fá dagróðrabátar, sem landa
afla innan 24 tíma frá því þeir
fóru frá landi, að landa 16% um-
fram aflamark í þorski, ýsu og
steinbít.
Línuívilnun í þorski tak-
markast þó við 3.375 tonn á ári en
ekkert hámark er sett á ýsu og
steinbít að sinni. Ráðherra hefur
þó heimild samkvæmt frumvarp-
inu, til að setja hámark á þær teg-
undir.
Línuívilnun til veiða á þorski
tekur gildi í upphafi næsta fisk-
veiðiárs, 1. september 2004, en
ívilnun vegna steinbíts og ýsu tek-
ur gildi hinn 1. febrúar næstkom-
andi.
„Ég hefði viljað og tel að við
eigum að ræða það, hvort ekki sé
rétt að þetta taki gildi strax, sér-
staklega hvað þorskinn varðar.
Það eru í mínum huga engar
tæknilegar hindranir í veginum.
Frumvarp ráðherra staðfestir að
hægt er að láta svona breytingar
taka gildi hvenær sem er á fisk-
veiðiárinu,“ segir Kristinn.
Í frumvarpi sjávarútvegsráð-
herra eru líka lagðar til breyting-
ar á úthlutun byggðakvóta og
verða svonefndir byggðapottar
lagðir af í áföngum. Kristinn seg-
ir að þar sé verið að blanda saman
alls óskyldum hlutum og því hafi
Framsóknarflokkurinn gert fyrir-
vara við þann þátt frumvarpsins.
Skerðing byggðakvóta stang-
ast á við stjórnarsáttmálann, sam-
kvæmt orðum formanns Fram-
sóknarflokksins frá í sumar.
„Það stendur skýrt í stjórnar-
sáttmálanum að athuga eigi að
taka upp álag vegna línuveiða
minni báta og það stendur líka að
það eigi að athuga mögulega
aukningu á byggðakvóta. En það
stendur ekkert í stjórnarsátt-
mála að það eigi að leggja hann
niður,“ sagði Halldór Ásgríms-
son í Fréttablaðinu 10. júlí síðast-
liðinn.
Kristinn H. Gunnarsson segir
að skerðing byggðakvóta kunni að
vega upp ávinninginn af línuíviln-
uninni. En framsóknarmenn séu
tilbúnir að fara yfir það sjálf-
stætt, hversu miklir byggðakvót-
arnir eiga að vera og hvernig
skuli úthluta þeim.
the@frettabladid.is
HOWARD OG BLAIR
Michael Howard segir að stjórn Tony Blair
sé á rangri leið í menntamálum.
Leiðtogi Íhaldsflokksins:
Stúdentar
í „Mikka
mús“ fögum
MENNTUN Michael Howard, leið-
togi breska Íhaldsflokksins, segir
að of margir stúdentar stundi nám
við háskóla í landinu. Margir þeir-
ra sæki „Mikka mús“ fög.
Tony Blair forsætisráðherra
vill hækka skólagjöld í landinu til
að stjórnvöld nái takmarki sínu
um að fá 50% ungs fólks til að
stunda háskólanám. Howard telur
enga þörf fyrir þessar aðgerðir.
Hann segir að fjölmargir stúdent-
ar ljúki ekki þeim fögum sem þeir
byrja á. Ættu þeir frekar að
stunda einhvers konar starfsnám
til að átta sig á hlutunum í stað
þess að skrá sig í „Mikka mús“
fög sem geri þeim lítið gagn. ■
NOREGSKONUNGUR
Haraldur þakkaði norsku þjóðinni þann
stuðning og hlýhug sem honum hefur ver-
ið sýndur á undanförnum vikum.
Noregskonungur:
Í aðgerð
á morgun
ÓSLÓ, AP „Ég vona að allt gangi vel
og ég verði komin á fætur á ný
áður en langt um líður,“ sagði
Haraldur Noregskonungur þegar
hann var lagður inn á sjúkrahús í
Ósló. Á morgun gengst Haraldur
undir skurðaðgerð vegna krabba-
meins í þvagblöðru.
Læknar eru bjartsýnir á að
konungurinn muni ná sér að fullu
eftir aðgerðina þar sem ekkert
bendir til þess að krabbameinið
hafi dreift sér um líkamann. Búist
er við því að Haraldur verði á
sjúkrahúsi í tvær til þrjár vikur
eftir aðgerðina og síðan í veik-
indaleyfi í allt að þrjá mánuði. Á
meðan mun Hákon krónprins
gegna skyldum föður síns. ■
JÓLATRÉ FAUK UM KOLL Fjórir
slösuðust þegar snörp vindhviða
felldi 30 metra hátt jólatré á
torgi í miðborg Prag í Tékklandi.
Þúsundir manna voru á torginu
þegar atvikið átti sér stað enda
nýbúið að opna þar vinsælan jóla-
markað. Þrír fullorðnir og eitt
barn voru flutt á sjúkrahús með
minniháttar áverka.
Formaðir LÍÚ um línuívilnun:
Misráðið inngrip
LÍNUÍVILNUN „Vitaskuld eru menn
býsna svartir yfir þessu. Það eru
alvarlegt þegar gripið er með
þessum hætti inn í stjórnkerfi
sem hefur skilað þeirri hagsæld
sem raun ber vitni. Nú á enn einu
sinni að færa heimildir milli út-
gerðaflokka, taka frá því sem
menn kalla stórútgerðir, og færa
þær yfir til smærri útgerða. Mér
finnst þetta afskaplega misráðið,“
segir Björgólfur Jóhannsson, for-
maður Landssambands íslenskra
útvegsmanna, um 16% línuívilnun
til handa dagróðrabátum.
Hann segir að inngripið veiki
stjórnkerfi fiskveiða og gæti fært
greinina áratugi aftur í tímann.
„Það er vonandi ekki tilgangur
stjórnvalda að sjávarútvegur
byggist upp á dagróðrabátum sem
beita línu í landi, að allar byggðir
landsins fyllist af beitningar-
mönnum. Mér óar við þeirri fram-
tíðarsýn,“ segir formaður LÍÚ. ■
Sprenging í Kandahar:
Tuttugu
særðust
AFGANISTAN,AP Um tuttugu manns
særðust, þar af að minnsta kosti
þrír alvarlega, þegar sprengja
sprakk á útimarkaði í borginni
Kandahar í Afganistan.
Að sögn lögreglunnar í borginni
stóðu talibanar og liðsmenn al-
Kaída samtakanna að verknaðin-
um. Leit stendur yfir að þeim seku.
Svo virðist sem sprengjunni hafi
verið komið fyrir á mótorhjóli sem
hafði verið lagt á milli tveggja bíla
skömmu fyrir sprenginguna.
Á miðvikudag særðust tveir
bandarískir hermenn þegar fleygt
var handsprengju að bíl þeirra á
fjölförnu torgi í Kandahar. ■
FJÖLMENNI Í SMÁRALINDINNI
Geisladiskurinn með lögum úr keppninni hefur rokselst eftir undanúrslitin. Um 700
manns mættu í Smáralindina á föstudaginn til að fylgjast með keppninni.
EKKERT HINDRAR ÍVILNUN STRAX
Kristinn H. Gunarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir línuívilnunarfrumvarp
sjávarútvegsráðherra svara sínum kröfum í málinu. Hann gerir athugasemdir við gildistöku
ívilnunar og skerðingu byggðakvóta, samfara ívilnuninni.
„Ég get
alveg sæst á
þessa niður-
stöðu, 16%
ívilnun á allar
tegundir.
Fyrirvari við skerð-
ingu byggðakvóta
Dagróðrabátar fá 16% línuívilnun í þorsku, ýsu og steinbít á næsta ári,
samkvæmt frumvarpi sem sjávarútvegsráðherra lagði fram í gær.
Svarar að hluta til mínum kröfum, segir Kristinn H. Gunnarsson.
ERU HUNDÓÁNÆGÐIR
Formaður LÍÚ segir línuívilnun stjórnvalda
misráðið inngrip í stjórnkerfi fiskveiða.
■ Evrópa
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Eldur í húsi á Akureyri:
Kviknaði í
pitsukassa
ELDSVOÐI Kona og tvö börn þurftu að
yfirgefa heimili sitt á Akureyri í
gær eftir að kviknaði í pitsukassa í
eldhúsinu. Pitsukassinn lá ofan á
eldavélinni en annað barnið hafði
sett straum á eina hellu eldavél-
arinnar með þeim afleiðingum að
eldur kom upp.
Þegar slökkviliðið mætti á svæð-
ið var lögreglan búin að slökkva
mestallan eldinn með duftslökkvi-
tæki. Töluvert tjón varð á eldhúsinu
en reykurinn barst um alla íbúð.
Íbúðin var reykræst og engin slys
urðu á fólki. ■