Fréttablaðið - 07.12.2003, Blaðsíða 6
6 7. desember 2003 SUNNUDAGURVeistusvarið?
1Líklegt er að glasafrjóvgunardeildLandspítala - háskólasjúkrahúss verði
lokað vegna niðurskurðar. Til eru samtök
gegn ófrjósemi. Hvað heita þau?
2Tíu manna hópur var stöðvaður íLeifsstöð í fyrradag. Hvaða hópur var
þetta?
3Stephen King hlaut nýlega virtustubókmenntaverðlaun Bandaríkjanna,
National Book Award. Fyrir hvað bók
hlaut hann verðlaunin?
Svörin eru á bls. 46
Gagnrýnir styrki til stjórnmálaflokka:
Mislukkuð tímasetning
STJÓRNMÁL Aðalsteinn Árni Bald-
ursson, formaður Verkalýðsfélags
Húsavíkur, er undrandi á þeirri
ákvörðun þingmanna að sam-
þykkja breytingartillögu við fjár-
lögin sem felur í sér 30 milljóna
króna hækkun á styrk til stjórn-
málaflokkanna. Flokkarnir fá nú
295 milljóna styrk frá ríkinu.
„Það vantar ekki að það er
rosaleg sátt um þetta, meðan
menn hafa verið með niðurskurð-
arhnífinn á lofti í öðrum málum,“
segir Aðalsteinn. „Þegar boðuð er
skerðing á flestum sviðum vel-
ferðarmála, vekur það óneitan-
lega athygli að á sama tíma skuli
allt í einu vera til peningar til að
setja í stjórnmálaflokkana.“
Aðalsteinn segir hefð fyrir því
að læða svona viðkvæmum lögum
í gegn á síðustu sekúndum fjár-
lagaafgreiðslunnar.
„Ef ríkissjóður stendur eins
illa og þeir hafa viljað vera láta
undanfarið, þá hefði átt að sleppa
þessu þar til betur áraði. Mér
finnst þetta afskaplega einkenni-
leg ákvörðun og mislukkuð tíma-
setning.“ ■
FÆREYJAR Anfinn Kallsberg, leið-
togi Fólkaflokksins, hefur sagt af
sér sem lögmaður Færeyinga og
boðað til lögþingskosninga 20.
janúar næstkomandi. Samstarfs-
flokkar Fólkaflokksins í land-
stjórninni eru ekki tilbúnir til að
starfa áfram undir forystu Kalls-
bergs og telja að það muni skaða
Færeyjar ef hann verði aftur kos-
inn í embætti lögmanns. Ástæðan
er útkoma nýrrar bókar þar sem
flett er ofan fjármálamisferli
Kallsbergs.
Í bókinni er Kallsberg sakaður
um bókhaldssvindl þegar hann
var eigandi tveggja útgerðarfyr-
irtækja fyrir tuttugu árum. Þjóð-
veldisflokkurinn, sem sat í land-
stjórninni með Fólkaflokknum,
fór fram á það að Kallsberg
hreinsaði sig af þessum ásökun-
um eða bæði þjóðina afsökunar.
Þegar Kallsberg neitaði að verða
við þessum óskum lýsti flokkur-
inn vantrausti á lögmanninn og
hvatti hann til að láta af embætti.
Kallsberg hefur leyst fjóra
landstjórnarmenn Þjóðveldis-
flokksins frá störfum, þeirra á
meðal varalögmanninn Högna
Hoydal. Hann hefur lýst því yfir
að landstjórnin muni starfa áfram
fram að kosningum, án þátttöku
Þjóðveldisflokksins. Í stjórninni
sitja tveir smáflokkar, Miðflokk-
urinn og Sjálfstjórnarflokkurinn,
auk Fólkaflokksins.
Hoydal, sem er formaður Þjóð-
veldisflokksins, segist ekki hafa
neitt á móti því að taka upp sam-
starf að nýju við Fólkaflokkinn en
hafnar því alfarið að starfa í land-
stjórn undir forystu Kallsbergs.
Hoydal er á þeirri skoðun að það
muni skaða lögmannsembættið ef
Kallsberg snýr aftur að afstöðn-
um kosningum, að því er fram
kemur á færeyska fréttavefnum
Olivant. Leiðtogar Miðflokksins
og Sjálfstjórnarflokksins taka í
sama streng.
Stjórnarslitin munu að öllum
líkindum verða til þess að seinka
framkvæmd nýrrar áætlunar sem
færa á Færeyingum aukna sjálf-
stjórn. Danska ríkisstjórnin hefur
lagt blessun sína yfir þessa áætl-
un. ■
Handrit Beethovens:
Selt fyrir 150
milljónir
LUNDÚNIR, AP Áritað handrit af tón-
verki Ludwigs van Beethoven var
selt fyrir sem svarar rúmum 150
milljónum íslenskra króna á upp-
boði hjá Sotheby’s í Lundúnum.
Um var að ræða scherzo-kafla úr
strengjakvartett Opus 127 sem
saminn var að beiðni Gallitzins
prins í Rússlandi árið 1825. Í
handritinu eru handskrifaðar leið-
réttingar og athugasemdir frá
höfundinum.
Handritið var í eigu sjóðs sem
stofnaður var í nafni sænsks tón-
listaráhugamanns. Ágóðinn af söl-
unni verður notaður til að efla tón-
listarlíf í Stokkhólmi.
Fyrr á þessu ári voru drög að
Níundu sinfóníu Beethovens seld
fyrir sem nemur rúmum 270
milljónum króna hjá Sotheby’s. ■
PRODI FARI Ráðherra Evrópu-
mála í bresku ríkisstjórninni hef-
ur hvatt Ítalann Romano Prodi til
að segja af sér sem forseti fram-
kvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins. Denis MacShane heldur
því fram að Prodi sé með hugann
heima við á Ítalíu þar sem litið sé
á hann sem útlægan leiðtoga
stjórnarandstöðunnar.
ÓHÆTT AÐ FERÐAST TIL TYRK-
LANDS Breska utanríkisráðuneyt-
ið hefur aftur-
kallað viðvörun
þar sem Bretum
er ráðið frá því
að ferðast til Ist-
anbul og annarra
stórborga í Tyrk-
landi nema þeir
eigi þangað brýnt
erindi. Viðvörunin var gefin út í
kjölfar sprengjuárásanna og
bresku ræðismannsskrifstofuna
og höfuðstöðvar HSBC bankans í
Istanbul.
STRÍÐSGLÆPAMAÐUR DÆMDUR
Stríðsglæpadómstóll Sameinuðu
þjóðanna í Haag í Hollandi
dæmdi Bosníu-Serba í 20 ára
fangelsi fyrir glæpi gegn mann-
kyni. Herforinginn Stanislav
Galic var fundinn sekur um að
hafa haldið íbúum Sarajevo í
heljargreipum í tvö ár með því að
skipa undirmönnum sínum að
skjóta á múslima í borginni þegar
þeir voru að sinna daglegum
störfum sínum. Hundruð manna
féllu í þessum árásum og þúsund-
ir særðust.
GEORG LÁRUSSON
Vonast til að gengið verði frá samningum
á næstu dögum.
Umönnun hælisleitenda:
Liggur ekki
enn fyrir
FLÓTTAMENN Samningar um vistun
og umönnun hælisleitenda hafa
ekki náðst enn. „Við erum í við-
ræðum við þrjá aðila,“ segir
Georg Lárusson, forstjóri Útlend-
ingastofnunar, sem fundaði með
dómsmálaráðuneytinu um málið í
fyrradag. Hann vonast til að geng-
ið verði frá samningum ekki síðar
en í næstu viku.
Rauði krossinn hefur séð
flóttamönnum fyrir fæði, hús-
næði og annarri aðstoð en hættir
því starfi um áramót. Sú aðstoð
byggði á samningi sem gerður var
þegar innan við tíu leituðu hælis
árlega en þeir fóru yfir hundraðið
á síðasta ári. ■
AÐALSTEINN ÁRNI BALDURSSON
Undrast framlög ríkisstjórnarinnar til
stjórnmálaflokkanna þegar niðurskurðar-
hnífurinn er á lofti í velferðarmálum.
Landspítalinn:
Áratuga-
vandi
HEILBRIGÐISMÁL Sigurður Guð-
mundsson landlæknir segir það
ekkert nýtt að Landspítalinn - há-
skólasjúkrahús sé í fjárþröng.
Þannig hafi það verið lengi, „við
teljum það ekki í árum heldur ára-
tugum, því miður“.
„Við vitum að heilbrigðisþjón-
usta kostar fé. Hún er góð og það
höfum við fengið staðfest. Það er
með öðrum orðum ekki verið að
eyða peningum heldur nota pen-
inga. Það mun alltaf kosta fé að
halda úti góðu heilbrigðiskerfi,“
segir Sigurður. „Það er alltaf vont
þegar mönnum finnst niðurskurð-
ur kominn að sársaukamörkum.“ ■
■ Evrópa
■ Evrópa
FÆREYJAR
Ljóst er að framkvæmd nýrrar áætlunar sem færa á Færeyingum aukna sjálfstjórn mun
frestast þar til ný landstjórn tekur til starfa á næsta ári.
ANFINN KALLSBERG
Anfinn Kallsberg sagði af sér sem lögmað-
ur Færeyinga eftir að Þjóðveldisflokkurinn
lýsti vantrausti á hann.
Kallsberg verður
ekki aftur lögmaður
Kallsberg sagði af sér sem lögmaður Færeyja eftir að Þjóðveldisflokkur-
inn lýsti vantrausti. Boðað til lögþingskosninga í byrjun næsta árs. Leið-
togar annarra flokka vilja ekki sjá Kallsberg aftur í embætti lögmanns.