Fréttablaðið - 07.12.2003, Qupperneq 8
8 7. desember 2003 SUNNUDAGUR
FOKIÐ Í FLEST SKJÓL
Smekkleysa hefur of
góðan smekk til að
gefa mig út og
litlu útgáfurnar
hafa bara áhuga á
trendum. Það væri
kannski helst
að Árnastofn-
un gæfi þetta
út.
Megas um útgáfu
nýrrar plötu í DV 6.
desember.
Ó JÁ!!
En það er ekki ósanngjarnt að
ætlast til þess að við séum dá-
lítið meðvituð; það er til dæmis
mjög góð regla að hugsa áður en
maður talar, eða að minnsta
kosti meðan maður talar.
Guðrún Eva Mínervudóttir í DV 6. desember.
Orðrétt
Vondur aðbúnaður í Kárahnjúkum:
Á ekki við nein rök að styðjast
KÁRAHNJÚKAR Ómar Þ.
Valdimarsson, upplýs-
ingafulltrúi Impregilo
hjá Kárahnjúkum, segir
staðhæfingar Steindórs
Guðmundssonar í Frétta-
blaðinu um slæman að-
búnað á svæðinu, ekki
eiga við nein rök að styðj-
ast.“
„Steindór var hér í
þrjá daga í október og
það er auðvitað vont að
gera sér grein fyrir
hvernig ástandið er í 1000
manna hópi á þremur
dögum.“ Ómar segir alla
starfsmenn Impregilo
sem vinna á hættusvæð-
um við Kárahnjúka fá
afhentan öryggisbúnað
áður en þeir hefja störf.
„Það á jafnt við um öku-
menn, vélamenn og aðra
starfsmenn. Þetta fæst
staðfest af bæði Vinnu-
eftirliti ríkisins og stað-
bundnum eftirlitsaðilum
á Kárahnjúkasvæðinu.
Þá hafa öll tæki og tól
Impregilo við Kára-
hnjúka, sem krefjast
sérstakrar skráningar,
yfir slíkum skráningum
ráða.“
Ómar kveður
Impregilo krefjast þess af öllum
sínum starfsmönnum að þeir gæti
ýtrustu varúðar við störf sín og
noti ávallt tilskilinn öryggisbúnað.
Hvað varðar aðbúnað utan vinnu-
tíma segir Ómar það á ábyrgð
hvers og eins að hafa ofan af fyrir
sér. „Impregilo getur ekki ábyrgst
að allir sem ráða sig til starfa við
Kárahnjúka falli vel að þeim hópi
sem þar er fyrir. Flestum gengur
vel, þó sumir mæti auðvitað nei-
kvæðir á svæðið og gangi illa að
aðlagast.“ ■
Gyðingahatur skýtur
rótum í Evrópu
Margt bendir til þess að hatur og fordómar í garð gyðinga hafi vaxið verulega á undanförnum
árum í Evrópu. Árásum gegn gyðingum hefur fjölgað og margir finna til öryggisleysis.
Ofsóknirnar eru að hluta til raktar til fjölgunar innflytjenda frá arabalöndum.
ÞÝSKALAND, AP Ariel Sharon, for-
sætisráðherra Ísraels, sagði á
dögunum að gyðingahatur væri að
skjóta rótum í Evrópu að nýju.
Ráðherrann vitnaði í nýja könnun
Evrópusambandsins sem sýnir að
stór hluti Evrópubúa telur að
Ísraelsríki sé helsta ógnin við
heimsfrið. Þó margir telji að um-
mæli Sharons eigi ekki við rök að
styðjast er ekki hægt að horfa
fram hjá þeirri staðreynd að gyð-
ingar víðs vegar í Evrópu eru
teknir að óttast um öryggi sitt.
Á undanförnum mánuðum hafa
fordómar og andúð á gyðingum
komið upp á yfirborðið í formi
niðrandi ummæla, hótana og
ofbeldisverka. Þykir þetta endur-
spegla spennuna í samskiptum
Ísraela og Palestínumanna en
margir eru á þeirri skoðun að sam-
úð Evrópubúa með málstað Palest-
ínumanna kyndi undir fordómum í
garð gyðinga. Einnig hefur verið
bent á að gyðingum sé kennt um
bágan efnahag Evrópulanda.
Þýskur þingmaður var nýlega
rekinn úr flokki Kristilegra
demókrata fyrir særandi ummæli
um gyðinga. Nýjar kannanir sýna
að skemmdarverk og árásir gegn
gyðingum í Þýskalandi hafa ekki
verið jafntíðar síðan nasistar voru
þar við völd. Vandamálið virðist
þó vera enn stærra í Frakklandi
þar sem það hefur færst í vöxt að
ungir innflytjendur frá araba-
löndum ógni gyðingunum. For-
dómarnir hafa einnig gert vart við
sig austar í Evrópu. Gríska tón-
skáldið Mikis Þeoðorakis vakti
reiði margra þegar hann lét þau
orð falla á dögunum að gyðingar
væru rót alls ills.
Kunnugir segja að erfitt sé að
hafa yfirsýn yfir þær árásir og að-
kast sem gyðingar verða fyrir þar
sem flest atvikin séu aldrei til-
kynnt til yfirvalda. Lögreglan hef-
ur einnig verið sökuð um að taka
ofsóknir af þessu tagi sem sjálf-
sögðum hlut.
Þýski blaðamaðurinn Henryk
Broder, sem ritað hefur bók um
þetta mál, segir að margir gyðing-
ar neiti að horfast í augu við veru-
leikann þar sem þeir telji það
óhugsandi að ofsóknir gegn þeim
hefjist að nýju. Broder er sann-
færður um að gyðingafordómar
séu til staðar í Evrópu og fari vax-
andi. „Margir segja að ég sé móð-
ursjúkur en ég hef það á tilfinn-
ingunni að Evrópubúar séu að
vonast til þess að arabar ljúki því
verki sem Þjóðverjar hófu árið
1938,“ segir Border. ■
Tekinn með tvö
kíló af hassi:
Sex mánaða
fangelsi
HASS Íslendingur búsettur í Dan-
mörku sem var tekinn með tvö
kíló af hassi á Keflavíkurflugvelli
á fimmtudaginn var ákærður og
dæmdur í sex mánaða fangelsi í
Héraðsdómi Reykjaness á föstu-
dag.
Maðurinn játaði að eiga hassið
og að það hafi verið ætlað til sölu
hér á landi. Hann ákvað að taka
sér frest til að ákveða hvort hann
myndi áfrýja dómnum. ■
...núna á þremur stöðum
Símaband og hólkur
1.490 kr.
...vertu í bandi
Smáralind
Sími 545 1550
Glæsibæ
Sími 545 1500
Kringlunni
Sími 575 5100
www.utilif.is
jólagjöf
Hugmynd aðÍ
SL
EN
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
TI
2
28
82
11
/2
00
3
BÆNAHÚS GYÐINGA Í BÚDAPEST
Fordómar í garð gyðinga hafa verið að koma upp á yfirborðið með ýmsum hætti
í Evrópu að undanförnu.
ÓMAR R.
VALDIMARSSON
Segir yfirlýsingar Stein-
dórs Guðmundssonar
um aðbúnað í Kára-
hnjúkum út í hött.
STEINDÓR GUÐMUNDSSON
Fékk nóg af Impregilo.