Fréttablaðið - 07.12.2003, Síða 10
10 7. desember 2003 SUNNUDAGUR
UNGFRÚ HEIMUR
Ungfrú Írland, hin nítján ára gamla Ros-
anna Davison, var kjörinn Ungfrú heimur
2003, í gærkvöldi. Á annað hundrað konur
tóku þátt í keppninni sem fram fór í Sanya
í Kína. Regína Diljá Jónsdóttir, fulltrúi Ís-
lands í keppninni, komst ekki í úrslit.
Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna:
Dagsheimsókn til Íraks
ÍRAK, AP Donald H. Rumsfeld,
varnarmálaráðherra Bandaríkj-
anna, kom í eins dags heimsókn
til Íraks í gær. Miklar öryggis-
ráðstafanir voru vegna heim-
sóknar ráðherrans þar sem
óttast var að hann yrði skot-
mark íraskra uppreisnarmanna.
Rumsfeld byrjaði á því að
heimsækja olíuborgina Kirkuk í
norðurhluta landsins þar sem
hann snæddi morgunverð með
hermönnum og átti fund með
bandarískum herforingjum og
íröskum embættismönnum. Frá
Kirkuk flaug Rumsfeld til
höfuðborgarinnar Bagdad þar
sem hann fundaði meðal annars
með L. Paul Bremer, landstjóra
Bandaríkjanna í Írak.
Rumsfeld var að koma frá
Tblisi, höfuðborg Georgíu, þar
sem hann lýsti yfir stuðningi við
sjálfstæði landsins og hvatti
Rússa til að kalla heim hersveit-
ir sínar. ■
Skynsamlegar
en hófstilltar kröfur
Flóabandalagið krefst styttingar vinnutíma, nýs launakerfis og öruggra tryggingarákvæða í kom-
andi kjaraviðræðum. Bandalagið kynnti atvinnurekendum kröfugerð sína í vikunni. Gert er ráð
fyrir að nýr samningur verði gerður til allt að fjögurra ára.
KJARASAMNINGAR „Ég tel að kröf-
urnar séu skynsamlegar en ein-
hverjum kann eflaust að þykja
þær hófstilltar,“ segir Sigurður
Bessason, formaður Eflingar-
stéttarfélags.
Flóabandalagið svokallaða,
bandalag Eflingar,
Hlífar í Hafnar-
firði og Verkalýðs-
og sjómannafélags
Keflavíkur, afhenti
Samtökum atvinnu-
lífsins í vikunni,
kröfugerð sína fyr-
ir komandi kjara-
viðræður. Kröfu-
gerðin er keimlík
þeirri sem Starfs-
greinasambandið lagði fram í síð-
ustu viku.
Flóabandalagið gerir ráð fyrir
að nýr kjarasamningur gildi í 24
til 48 mánuði, að því tilskildu að
takist að semja um nýtt launa-
kerfi og örugg tryggingar-
ákvæði.
Bandalagið miðar við að allir
launataxtar undir 93.000 krónum
verði felldir út við upphaf nýs
kjarasamnings og að nýtt taxta-
kerfi byggi á þeim grunni. Launa-
taflan byggi á sex þrepum og 25
launaflokkum með 1,5% bili á
milli þrepa og flokka. Gert er ráð
fyrir að neðsti launaflokkur verði
felldur út á milli ára.
Flóabandalagð krefst stytting-
ar vinnutíma úr 40 stundum á
viku í 39 stundir á samningstím-
anum. Í kröfugerðinni segir að
mjög langur vinnutími hafi við-
gengist hér alltof lengi. Með
styttingu megi efla vinnuvernd
og auka tíma fólks til samveru
með fjölskyldu og stuðla að heil-
brigðari lífsháttum.
Flóabandalagið telur ósann-
gjarnt að orlofsrétturinn sé
bundinn við vinnuveitanda og
krefst þess að rétturinn verði
tengdur starfsgrein og kjara-
samningi en ekki fyrirtæki.
Meginmarkmiðið er að gera
kjarasamning sem færir launa-
fólki tryggan kaupmáttarauka á
samningstímanum, án þess að
hætta sé á aukinni verðbólgu.
Almennar launahækkanir
launþega í Flóabandalaginu yrðu
samkvæmt kröfugerðinni 19,25%
á samningstímanum en innröðun
í nýtt launakerfi skili 2,5%. Mið-
að er við að lægstu laun hækki
um 30% á samningstímanum.
Fyrsti samningafundur Flóa-
bandalagsins og atvinnurekenda
verður næstkomandi þriðjudag.
the@frettabladid.is
Dómsmálaráðuneytið:
Móti reglur
fyrir börn
FLÓTTAMENN Björn Bjarnason
dómsmálaráðherra hyggst setja
upp starfshóp sem á að móta til-
lögur um hvernig skuli tekið á
málum þegar börn og unglingar
koma hingað án forráðamanns og
leita hælis. Starfshópurinn á að
móta málsmeðferðarreglur og að-
gerðaáætlun sem unnið verði eftir
þegar erlend börn koma hingað
ein síns liðs.
Óskað hefur verið eftir tilnefn-
ingum frá félagsmálaráðuneyt-
inu, sýslumanninum á Keflavíkur-
flugvelli, Útlendingastofnun, Rík-
islögreglustjóra, Barnaverndar-
stofu og Rauða krossi Íslands. ■
■
Almennar
launahækkanir
launþega í
Flóabanda
laginu yrðu
samkvæmt
kröfugerðinni
19,25% á
samnings
tímanum.
Níðsterkir og liprir
KULDAGALLAR
stærðir 4-12
Alvöru
gallar
KJARAMÁL „Ef það verða ekki sett-
ar neinar leikreglur hér á vinnu-
markaði og menn geta fengið
erlent vinnuafl hér inn á lág-
markskjörum, þá erum við
hræddir um að verði flóð af fé-
lagslegum undirboðum,“ segir
Finnbjörn Hermannsson, formað-
ur Trésmiðafélags Reykjavíkur.
Félagið krefst tveggja ára að-
lögunar áður en opnað verður fyr-
ir erlent vinnuafl frá nýjum aðild-
arríkjum Evrópusambandsins.
Þá krefst félagið þess að ís-
lensk stjórnvöld undirbúi eftir-
litsstofnanir sínar til að koma í
veg fyrir félagsleg undirboð,
svarta atvinnustarfsemi og mis-
notkun á erlendu vinnuafli. Það
verði gert í samvinnu við Alþýðu-
samband Íslands og Samtök
atvinnulífsins.
„Við erum síður en svo að
reyna að stöðva innflutning er-
lends vinnuafls. Það eina sem fyr-
ir okkur vakir er að allir sitji við
sama borð, erlent vinnuafl sem
hingað kemur fái mannsæmandi
laun og aðbúnað. Í dag er langt frá
að um jafna stöðu sé að ræða.,“
segir Finnbjörn.
Hann telur að verkalýðshreyf-
ingin komi til með að láta meira í
sér heyra um þetta mál á næst-
unni.
„Þetta er ósköp einfaldlega
eitt af stóru málunum sem við
komum til með að takast á um í
komandi kjaraviðræðum,“ segir
Finnbjörn. ■
Keflvíkingur:
Borgi hálft
lán tengdó
DÓMSMÁL Tæplega sextugur Kefl-
víkingur hefur verið dæmdur til
að greiða fyrrum eiginkonu sinni
og systur hennar 415.000 krónur.
Systurnar höfðu krafist þess að
hann greiddi 830.000 krónur sem
þær töldu að maðurinn skuldaði
dánarbúi móður þeirra.
Móðir systranna hafði lánað fé
til kaupa leigubifreiðar sem varð
eina atvinnutæki fjölskyldunnar
áður en hann og kona hans skildu.
Maðurinn hélt því fram að fyrrum
tengdamóðir hans hefði gefið
skuldina eftir áður en hún lést en
því höfnuðu fyrrum kona hans og
börn fólksins.
Dómurinn komst að þeirri nið-
urstöðu að hjónin fyrrverandi
hefðu átt að standa sameiginlega
skil á láninu og dæmdu manninn
því til að greiða hálfa upphæðina,
415.000 krónur. ■
Reglur á ensku:
Of mikið
að þýða
REGLUGERÐIR Ítarlegar útlistanir á
reglugerðum um siglingamál
verða birtar á ensku á heimasíðu
Siglingamálastofnunar ef frum-
varp samgönguráðuneytis verð-
ur að lögum. Um er að ræða kóða
Alþjóðasiglingamálastofnunar-
innar en reglugerðir og lög
verða eftir sem áður þýdd á ís-
lensku.
Ástæðan fyrir þessu er sú helst
að þýðingarkostnaður væri mjög
mikill ef þýða þyrfti allt efnið,
enda um þúsundir blaðsíðna að
ræða. Sævar Gunnarsson, for-
maður Sjómannasambands
Íslands, gerir ekki athugasemdir
við þetta og telur ekki vandamál
að fá þau atriði þýdd sem menn
óska eftir. ■
KEIMLÍKAR KRÖFUR
Starfsgreinasambandið afhenti Samtökum atvinnulífsins sína kröfugerð í síðustu viku. Kröfugerðin sem Flóabandalagið afhenti í vikunni
er keimlík henni. Þar er þó að finna kröfur um styttingu vinnuviku og tengingu orlofsréttar við starfsgrein en ekki fyrirtæki.
KRÖFUGERÐ FLÓABANDA-
LAGSINS
Almenn launahækkun 19,25%
- 2004 5%
- 2005 5%
- 2006 4%
- 2007 4%
Innröðun í nýtt launakerfi 2,5%
Hækkun lægstu launa 30,00%
Orlofsréttur tengdur starfsgrein / kjara
samningi en ekki fyrirtæki
Yfirvinna tekin út í fríi, 1 klst. í yfirvinnu =
1,8 klst. í dagvinnu
VILJUM AÐ ALLIR
SITJI VIÐ SAMA BORÐ
Finnbjörn Hermannsson, formaður
Trésmiðafélags Reykjavíkur.
Trésmiðafélag Reykjavíkur:
Vill hert eftirlit með
erlendu vinnuafli
DONALD RUMSFELD
Heimsókn bandaríska varnarmálaráðherr-
ans til olíuborgarinnar Kirkuk í norðurhluta
Íraks hafði verið haldið leyndri af öryggis-
ástæðum. Hann ávarpði blaðamenn fyrir
utan forsetahöllina í Kabúl ásamt
Hamid Karzai, forseta Afganistan.