Fréttablaðið - 07.12.2003, Blaðsíða 11
■ Kosningaeftirlit
SUNNUDAGUR 7. desember 2003
SCHWARZENEGGER
Fékk ekki stuðning frá löggjafarvaldi
Kaliforníu.
Fjárlagafrumvarp
Schwarzeneggers:
Hlaut ekki
hljómgrunn
STJÓRNMÁL Nýtt fjármálafrumvarp
Arnolds Schwarzenegger, ríkis-
stjóra Kaliforníu, hlaut ekki
hljómgrunn hjá löggjafarvaldi
ríkisins. Fyrir vikið er talin hætta
á því að fjármál Kaliforníu verði í
slæmum málum í júní þegar
borga þarf himinhátt lán sem var
tekið áður en Schwarzenegger
gerðist ríkisstjóri.
Schwarzenegger hefur heitið
því að bæta fjárhag ríkisins án
þess að hækka skatta. Fjármála-
frumvarpið hans fól í sér að draga
úr útgjöldum og taka nýtt lán sem
yrði borgað upp á þrjátíu árum. ■
Peningaskortur í Brasilíu:
Rafmagn
tekið af
ráðuneyti
STJÓRNMÁL Rafmagn var tekið af
byggingu brasilíska utanríkis-
ráðuneytisins á föstudag vegna
þess að ráðuneytið hafði ekki
borgað rafmagnsreikninginn.
Samkvæmt útreikningum
stjórnar orkumála í Brasilíu nem-
ur rafmangsreikningur ráðu-
neytisins um 45 milljónum króna.
Fyrir vikið var rafmagnið tekið
af. Eftir um eina og hálfa klukku-
stund var rafmagnið aftur sett á
eftir að talsmenn ráðuneytisins
lofuðu því að borga hluta skuldar-
innar innan tíu daga. Að sögn
stjórnar orkumála borgaði ráðu-
neytið rafmagnsreikninginn síð-
ast í janúar. ■
ÞRÍR TIL RÚSSLANDS Þrír Íslend-
ingar fylgjast með þingkosning-
unum í Rússlandi sem fara fram í
dag. Það eru Steingrímur J. Sig-
fússon þingmaður, Þorfinnur
Ómarsson, deildarstjóri hjá
Háskóla Íslands, og Estrid
Brekkan sendiráðunautur. Þau
verða í hópu 450 manna hóps á
vegum Öryggis- og samvinnu-
stofnunar Evrópu (ÖSE).
BRETLAND Læknaritið Lancet
hvetur bresk stjórnvöld til setja
lög sem banna reykingar. Lancet
heldur því fram að hægt væri að
bjarga tugum þúsunda mannslífa
á ári ef tóbak yrði flokkað með
ólöglegum fíkniefnum.
Í læknaritinu er vakin athygli á
skaðsemi óbeinna reykinga og bent
á að þau áttatíu prósent Breta sem
ekki reyki eigi rétt á því að anda að
sér ómenguðu lofti. Áætlað er að
um 1000 Bretar deyi árlega af völd-
um óbeinna reykinga.
Lancet vitnar í nýlega rann-
sókn Konunglega læknaháskólans
sem bendir til þess að ef reyking-
ar yrðu bannaðar á öllum vinnu-
stöðum í Bretlandi myndu 300.000
manns hætta að reykja. Astrid
James, aðstoðarritsjóri Lancet,
segir að reykingar kosti 120.000
manns lífið í Bretlandi og 4,2
milljónir í heiminum öllum á ári
hverju. James segir að með því að
banna reykingar væri hægt að
fækka dauðsföllum af völdum
krabbameins um þriðjung í Bret-
landi og draga verulega úr tíðni
hjarta- og lungasjúkdóma. ■
REYKINGAR
Áætlað er að um 1000 Bretar deyi árlega
af völdum óbeinna reykinga.
Læknaritið Lancet vekur athygli á skaðsemi tóbaks:
Reykingar verði
bannaðar með lögum
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T