Fréttablaðið - 07.12.2003, Síða 14
14 7. desember 2003 SUNNUDAGUR
■ Afmæli
■ Andlát
Japanskar orustuþotur gerðuárás á bandarísku flotastöðina
Pearl Harbor á Hawai þennan dag
árið 1941.
Hátt í 400 japanskar flugvélar
tóku þátt í árásinni og ollu miklum
skaða hjá bandaríska flotanum.
Fyrir vikið drógust Bandaríkin inn
í stríðsátök seinni heimsstyrjaldar-
innar. Bandarískir ráðamenn vissu
af hættunni af japanskri árás en
efldu samt ekki varnir sínar. Árás-
in átti sér stað á sunnudagsmorgni
þegar íbúar eyjarinnar höfðu
margir hverjir fengið frí frá
skyldustörfum.
Um 2.400 manns létu lífið í árás-
unum og um 1.200 slösuðust. Floti
Bandaríkjamanna skemmdist mik-
ið í árásunum; fimm af átta orustu-
skipum, þrír tundurspillar og sjö
önnur skip sukku. Rúmlega 200
flugvélar hersins eyðilögðust. Um
hundrað Japanir létust í árásunum,
Þar að auki misstu þeir þrjátíu
flugvélar og nokkra kafbáta.
Roosevelt forseti talaði á þing-
inu daginn eftir og þar var sam-
þykkt að lýsa stríði á hendur
Japönum. Þremur dögum síðar
lýstu Þjóðverjar og Ítalir stríði á
hendur Bandaríkjamönnum.
Bandaríkin tóku eftir þetta full-
an þátt í seinni heimsstyrjöldinni.
Á þeim fjórum árum sem liðu þar
til friði var komið á létust um 400
þúsund Bandaríkjamenn. ■
Ég varð fertug í fyrra og héltsvaka veislu þannig að ég ætl-
aði nú ekki að gera neitt fyrir af-
mælið mitt í ár,“ segir Ólafía
Hrönn Jónsdóttir leikkona sem er
41 árs í dag. „En vinir mínir skipu-
lögðu bara alla helgina fyrir mig.“
Í hádeginu í gær var farið í jóla-
hlaðborð með saumaklúbbnum, svo
var ferðinni heitið á baðstofu í
nudd og dúllerí. Seinni part dags
var ekkert slakað á í vinahópnum,
enda rauðvín og sjálfsportrettmál-
un á dagskrá. Eftir matarboð sem
ein vinkona hennar bauð til hitti
hún svo stúlkurnar í hljómsveitinni
Heimilistónar, en Ólafía Hrönn
spilar á trommur í þeirri hljóm-
sveit. Að lokum var svo samfagnað
með Baltasar Kormáki en Kaffi-
barinn, sem hann á hluti í, var að
halda upp á tíu ára afmælið sitt.
Ólafía Hrönn er einmitt þessa
dagana á æfingum undir leik-
stjórn Baltasar í Þjóðleikhúsinu á
leikritinu Þetta er allt að koma
sem er byggt á samnefndri bók
Hallgríms Helgasonar. Þar fer
Ólafía Hrönn með annað hlutverk
Ragnheiðar Birnu. „Það er rosa-
lega gaman á æfingum. Handritið
er ekki alveg tilbúið þannig að við
erum saman að velta bókinni fyr-
ir okkur, svona þreifa fyrir okk-
ur,“ útskýrir Ólafía.
„Það er heilmikið að gera í dag
líka. Vinkona mín ætlar að bjóða
fjölskyldunni í mat og svo fer ég á
jólaball í dag með fjögurra ára
dóttur minni. Hún myndi kvarta
mikið ef við misstum af því.“ Sú
stutta er yngsta barn Ólafíu af
þremur en eldri börnin tvö eru
þrettán og átján ára.
„Það er mjög heppilegt að eiga
vini sem eru tilbúnir til að halda
veislur mér til heiðurs heima hjá
sér, því eins og alþjóð veit er bað-
herbergið mitt í rúst og því íbúðin
öll og ég get því ekki tekið á móti
fólki.“ Hún reiknar þó ekki með
að þetta afmæli slái út fertugs-
afmælinu. „Það var veislan mín
og ég þarf ekki að halda slíka
veislu aftur. Fólk fór út öskrandi
af gleði og það var svo mikil ást í
loftinu. Þetta var alveg ótrúlega
skemmtilegt afmæli.“ ■
Afmæli
ÓLAFÍA HRÖNN JÓNSDÓTTIR
■ leikkona er 41 árs í dag. Það er ýmis-
legt planað en hún reiknar ekki með að
þetta afmæli slái veislunni í fyrra við.
NICOLE APPLETON
Söngkonan sæta úr All Saint
er 28 ára í dag.
7. desember
■ Þetta gerðist
1431 Henry VI konungur Englands
tekur við konungsembætti Frakk-
lands.
1796 John Adams er kjörinn annar for-
seti Bandaríkjanna.
1836 Martin Van Buren er kjörinn átt-
undi forseti Bandaríkjanna.
1945 Örbylgjuofninn er kynntur til sög-
unnar.
1972 Imelda Marcos, eiginkona Ferdin-
and E. Marcos forseta Filipseyja,
er stungin lífshættulegu sári.
Gerandinn var síðar skotinn til
bana af lífvörðum forsetafrúar-
innar.
1974 Makarios forseti snýr aftur til Kýp-
ur efti fimm mánaða útlegð.
1987 Mikhail S. Gorbatsjev stígur í fyrs-
ta sinn fæti á ameríska jörðu í
heimsókn sinni til Ronalds Reag-
an Bandaríkjaforseta.
Árásin á Pearl Harbor
ÁRÁSIN Á PEARL HARBOR
■ Um 400 japanskar orustuflugvélar
gerðu árás á bandaríska flotastöð sem
varð til þess að Bandaríkin drógust inn í
seinni heimsstyrjöldina.
7. desember
2003
Góðir vinir
halda veislu
??? Hver?
Verkefnastjóri í hagnýtri fjölmiðlun í
Háskóla Íslands.
??? Hvar?
Er staddur í hótelherbergi mínu í
Novokuznetsk í köldustu Síberíu í 20
stiga frosti.
??? Hvaðan?
Fæddur og uppalin í Reykjavík en hálfur
Vestfirðingur.
??? Hvað?
Er eftirlistmaður þingkosninga í
Rússlandi.
??? Hvernig?
Ég var beðinn um þetta af hálfu
Íslensku friðargæslunnar.
??? Hvers vegna?
Ég er að starfa fyrir Öryggis og Sam-
vinnustofnun Evrópu í fjölmennasta
kosningaeftirliti sem ÖSE hefur tekið að
sér. Sjálfur er ég að vinna með þýskri
konu í þessari borg. Á kjördag förum við
á milli kjörstaða frá því áður en þeir
opna og verðum á þeytingi á milli kjör-
staða allan daginn. Svo fylgjumst við
með talningu á einum stað þangað til
talningu er lokið, þannig að þetta verð-
ur tveggja sólarhringa törn.
??? Hvenær?
Að staðartíma hefst vinnan klukkan átta
að morgni sunnudags, hér heima verð-
ur klukkan þá eitt eftir miðnætti.
■ Persónan
ÞORFINNUR ÓMARSSON
Fylgist með þingkosningum í Rússlandi.
Guðmundur Hallvarðsson þingmaður,
61 árs.
Jóhann Ársælsson þingmaður, 60 ára.
Pálína Hildur Ísaksdóttir, Mýrargötu
18, Neskaupstað, lést þriðjudaginn 2.
desember.
Guðmundur Jónsson, fyrrverandi sjó-
maður, Laufengi 23, lést fimmtudaginn
4. desember.
Steinn G. Hólm, fyrrverandi kaupmaður
í Ólafsfirði, lést þriðjudaginn 25. nóvem-
ber. Útförin fór fram í kyrrþey.
Ásdís M. Þórðardóttir, er látin.
Þorbjörg Magnúsdóttir, Seljahlíð, áður
Freyjugötu 1, lést fimmtudaginn 4. des-
ember.
Þórunn Marta Tómasdóttir, frá Bakka-
stöðum í Fljótshlíð, Snælandi 8, lést
föstudaginn 5. desember.
Auðun Eyþórsson, Þórólfsgötu 9, Borg-
arnesi, lést mánudaginn 1. desember.
ÓLAFÍA HRÖNN
JÓNSDÓTTIR
Baðherbergið er í rúst og
veisluhöldin því bara
annars staðar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M