Fréttablaðið - 07.12.2003, Side 17
um. Maður veit hins vegar ekki
hver þróunin verður, en dragi
ekki úr þessum vexti þá siglum
við hraðar inn í ójafnvægi en
áður var talið.“ Ríkisfjármálin
skipta miklu þegar hætta er á of-
þenslu. Már segir ekki hægt að
kvarta undan því að skortur sé á
aðhaldi ríkisins á næsta ári, mið-
að við áætlanir. „Afkomubati rík-
isins milli áranna 2003 og 2004
miðað við fjárlagafrumvarp er
verulegur. Stóra spurningin er
hvort þetta komist í framkvæmd.
Í ljósi reynslu síðustu ára er það
auðvitað töluverð spurning. Ef
þetta gengur ekki eftir, þá reynir
meira á peningastefnunna og
meiri hætta er á að illa fari.“
Hann segir að það veki vissar
vonir að dæmi séu um að slíkt að-
hald hafi tekist. Bæði árið 1992 og
1996 sem voru fyrstu fjárlagaár
eftir kosningar. Hins vegar hafi
aðhaldið ekki aukist 2000. „Því
miður, því við hefðum þurft á því
að halda og uppsveiflan hefði þá
ekki orðið eins erfið.“
Hætta 2006
Már segir aukna meðvitund
um nauðsyn slíks aðhalds og það
veki vissar vonir. Már segir mjög
jákvætt að unnið sé eftir lang-
tímaáætlunum í ríkisfjármálum.
„Við höfum helst áhyggjur af ár-
inu 2006 í langtímaáætlunum rík-
isins. Það er verið að tala um
skattalækkanir upp á 20 milljarða
á árunum 2005-2007. Á móti kem-
ur aðhald og niðurskurður í fjár-
festingu sem nægir til að halda í
horfinu 2005. Það sígur hins veg-
ar á ógæfuhliðina 2006. Þá kemur
næsti áfangi í skattalækkuninni,
en ekki viðbótaraðhald á móti og
reyndar eykst opinber fjárfesting
eitthvað. Það getur reynst hættu-
legt á hápunkti framkvæmdanna.
Reynslan sýnir að hápunkturinn
og síðasta ár uppsveiflunnar er
hættulegasti tíminn. Þess vegna
höfum við lagt áherslu á að þess-
ar áætlanir verði endurskoðaðar.“
Lok síðustu uppsveiflu eru dæmi
um þetta, þar sem verðbólgan fór
upp í 9%. Verðbólgumarkmið
Seðlabankans eru 2,5% hækkun
vísitölu neysluverðs á ári. Ís-
landsbanki hefur nýverið bent á
það að verðbólguálag skuldabréfa
sýni að markaðurinn vænti meiri
verðbólgu en Seðlabankinn. Inni í
verðbólguspá bankans sé heldur
ekki gert ráð fyrir stækkun Norð-
uráls. Már segir Norðurál inni í
áhættumati bankans, enda talið
mjög líklegt að af því verði. Hag-
vöxtur verði hálfu prósenti meiri
hvort árið 2004 og 2005 verði af
stækkuninni. Hann segir gæta
ákveðins misskilnings varðandi
verðbólguálag skuldabréfa. Þar
sé um að ræða sambland af verð-
bólguvæntingum og áhættuálagi,
þar sem það síðarnefnda sé
óþekkt stærð. Verðbólguálag til
allt að þriggja ára er undir mark-
miði bankans og horfa verður því
lengra til að verðbólguálagið fari
uppfyrir og ætla má að áhættuá-
lagið vegi því þyngra sem lengra
er horft. „Verðbólgan hefur verið
undir verðbólgumarkmiði bank-
ans allt þar til nú. Ég man ekki
betur, en að menn hafi verið farn-
ir í sumar að kvarta undan því að
verðbólgan væri of lág og Seðla-
bankinn hefði verið of aðhalds-
samur. Mér fannst það hálf kjána-
leg umræða. Seðlabankanum er
gert í ákvörðunum sínum að stef-
na að því á hverjum tíma að verð-
bólgan verði sem næst markmið-
inu. Það er alveg ljóst vegna þess
að samband stjórntækjanna og
markmiðsins er breytilegt og háð
óvissu að það mun aldrei takast
nákvæmlega og engin ástæða til
þess að fara á taugum yfir því.
Við fórum ekki á taugum yfir
þessari umræðu, enda hefur kom-
ið í ljós að skjótt skipast veður í
lofti. Nokkrum mánuðum seinna
eru menn farnir að tala um að
verðbólgan sé að fara úr böndum.
Ég held að menn séu að fara að-
eins fram úr sér í þessari gagn-
rýni.“
Góðkynja spenna
Már segir á vissan hátt eðli-
legt að markaðurinn hafi ekki
trú á því að verðbólgan hitti ná-
kvæmlega á verðbólgumark-
miðið og fari kannski tímabund-
ið uppfyrir þegar mest lætur.
„Ef hún fer hæst í 3% tímabund-
ið, þá er það stórfínt.“ Spenna
ríkir ævinlega um hvenær
breytingar verða á stýrivöxtum
bankans. Flest bendir til þess að
hækkun þeirra sé framundan.
Efnahagsumræðan fer víðar
fram í samfélaginu og spenna
ríkir um hver þróunin verði í
uppsveiflunni. Már segir spenn-
una nú góðkynja. „Það sem er að
gerast núna er í engri líkingu
við það sem var að gerast árið
2000 þegar enginn vissi hvernig
þetta myndi enda. Þá var ekki
ljóst hvort tækist að koma bank-
anum á verðbólgumarkmið og
fleyta genginu, án þess að tapa
trúverðugleika.“ Hann bætir því
við að skilningur á eðli verð-
bólgumarkmiðsins sé mun
meira nú en í upphafi. Framan
af hafi menn verið svolítið fast-
ir í hugsunarhætti fastgengis-
stefnunnar. Það hafi hins vegar
bjargað miklu að gengisfallið
var skammvinnt. Framkvæmd-
irnar fyrir austan þýða mikið
innstreymi gjaldeyris. Már seg-
ir óhjákvæmilegt að slíkt hafi
áhrif á gengi krónunnar. „Það er
hins vegar ekkert víst að gengið
hækki umtalsvert frá því sem
nú er. Kannski erum við þegar
búin að taka styrkinguna út með
væntingum.“ Hátt gengi krón-
unnar bitnar á útflutningsgrein-
um. Mótvægisaðgerðir við inn-
streyminu eru aðhald í ríkisfjár-
málum og hækkandi stýrivextir.
„Best er náttúrlega að aðhaldið
komi sem mest frá fjármálum
ríkisins. Háir vextir hafa þann
ókost að styrkja frekar gengi
krónunnar og veikja útflutn-
ingsgreinarnar.“ Vindi fram
sem horfir þarf að hækka vexti
hér á næstu árum, með tilheyr-
andi þrýstingi á styrkingu krón-
unnar. Það styttist í aðgerðir til
að mæta komandi uppsveiflu
„Það er langbest að það gerist
mjúkt. Til þess að það gerist
mjúkt þá verður að grípa til að-
gerða í tíma,“ segir Már Guð-
mundsson, aðalhagfræðingur
Seðlabankans. Hvenær sé von á
næstu vaxtahækkun vill hann
ekki segja. „Enda veit ég það
ekki.“
haflidi@frettabladid.is
17SUNNUDAGUR 7. desember 2003
Komdu
suður!
Upplifðu
jólastemningu
í borginni.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
-F
LU
1
96
63
12
/2
00
2
HVAÐ ER AÐ GERAST FYRIR SUNNAN?
Meðal spennandi tónleika fram að jólum eru:
Tíbrá - ýmsir jólatónleikar í Salnum Kópavogi
Karlakór Reykjavíkur - jólatónleikar í Hallgrímskirkju 13. og 14. des.
Sinfóníuhljómsveit Íslands - jólatónleikar fyrir alla fjölskylduna 20.des.
Jólatónleikar í Borgarleikhúsinu - fjöldi þekktra listamanna 20. des.
Íslensku Dívurnar í Grafarvogskirkju
Auk þess lifandi tónlist allar helgar á fjölmörgum veitingastöðum.
Leikhúsin fram að jólum:
Ævintýrið um Augastein e. Felix Bergson, Tjarnarbíó, sun. fram að jólum
Dýrin í Hálsaskógi, Þjóðleikhúsinu, lau. og sun. fram að jólum
Lína Langsokkur, Borgarleikhúsinu, lau. og sun. fram að jólum
Jólarósir Snuðru og Tuðru og Hvar er Stekkjarstaur? í Möguleikhúsinu
Meðal margra annarra eru þessar sýningar:
Myndir úr Kjarvalssafni á Kjarvalsstöðum
Erró - stríð í Listasafni Reykjavíkur
Barnadagar í Gerðubergi
Ljósmyndasýning Magnúsar Ólafssonar í Ljósmyndasafni Reykjavíkur
Ólafur Magnússon, konunglegur hirðljósmyndari, í Listasafni Reykjavíkur
Jólasýning Árbæjarsafns á Árbæjarsafni
Auk þessara sýninga eru fjölmargar aðrar sýningar í boði - flettið
síðum dagblaðanna og kannið hvað fellur best að ykkar smekk.
Borgin iðar af lífi á aðventunni og hvort sem þú vilt eiga hátíðlega
stund, fara út að borða með elskunni þinni eða skella þér út á lífið,
geturðu verið viss um að finna það sem þú leitar að.
Taktu flugið suður!
frá AKUREYRI
Verð frá : 5.400 kr. *
frá ÍSAFIRÐI
Verð frá: 5.300 kr. *
frá EGILSSTÖÐUM
Verð frá: 6.200 kr. *
* Innifalið: Flug til Reykjavíkur, flugvallarskattur og tryggingargjald. Eingöngu bókanlegt á flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð
Ertu í Netklúbbnum?
Ný tilboð á hverjum mánudegi.
Njóttu jólastemningar í borginni, skelltu þér á tónleika, í leikhús, farðu út að
borða, út á næturlífið eða gerðu hagstæð innkaup fyrir jólin. Það er líf og fjör
í verslanamiðstöðvunum, heimsókn í Jólalandið í Hafnarfirði er skemmtileg
og eins er líka góð hugmynd að rölta niður ljósum prýddan Laugaveginn,
skoða í búðarglugga eða tylla sér inn á kaffihús og fylgjast með mannlífinu.
MÝKTIN MIKILVÆG
Best er náttúrlega að aðhaldið komi sem mest frá fjármálum ríkisins. Háir vextir hafa
þann ókost að styrkja frekar gengi krónunnar og veikja útflutningsgreinarnar,“ segir Már
Guðmundsson. Hann leggur áherslu á að hagsveiflan verði mjúk og til þess að svo megi
verða þurfi að grípa tímanlega til nauðsynlegra ráðstafana.