Fréttablaðið - 07.12.2003, Qupperneq 18
18 7. desember 2003 SUNNUDAGUR
■ Viðskipti
Þeir eru ófáir sem hafa fengiðbréf með lokkandi tilboðum um
verulegan ábata fyrir litla fyrir-
höfn. Bréfritari er venjulega frá
Afríku og af góðu fólki kominn,
gjarnan með æruverðugan titil svo
sem doktorsnafnbót eða jafnvel
ráðherratign. Fjölskyldan hefur
gjarnan fallið af æðsta stalli og
hörmungar lífsins valdið því að
sendandinn situr fastur með um-
talsverða fjármuni sem þarf að
koma úr landi. Til þess að svo megi
verða þarf aðstoð. Móttakandi
bréfsins er beðinn um að stofna
reikning til þess að hægt sé að
flytja á hann milljónir dollara.
Áður en að því kemur fellur til
ýmis kostnaður vegna banka, lög-
fræðinga og fleiri liða sem viðkom-
andi er beðinn um að greiða svo
hægt verði að flytja peningana.
Þessir menn eru svindlarar.
Slík bréf hafa verið kölluð
Nígeríubréf hér á landi, en ganga
undir nafninu „419 svindl“ annars
staðar eftir lagagrein nígerískra
hegningarlaga sem fjallar um
fjársvik.
Flestir sjá í gegnum þetta, en
ef að líkum lætur falla einhverjir
í gildruna. Annars héldu svindlar-
arnir vart áfram. Ruslakarfan er
algengasti áfangastaður þessara
bréfa. Þó eru til þeir sem taka upp
pennavinskap við svindlarana sér
til skemmtunar. Og skemmta sér
konunglega.
Grátt gaman
Þeir sem telja sig geta haft
ánægju af því að skrifast á við
nígeríska svindlara geta leitað sér
upplýsinga á heimasíðum á Net-
inu. Þeir kalla sig 419 veiðimenn-
ina. Ein slík er www.419eat-
er.com. 419 æturnar leiðbeina um
hvað beri að gera leggi menn út á
braut þessarar sérkennilegu
skemmtunar. Á síðunni eru grein-
argóðar leiðbeiningar um hvernig
eigi að bera sig að í pennavin-
skapnum.
Þessir menn eru glæpamenn
og ber að umgangast þá með það í
huga. Ráðlegging númer eitt er að
gefa þeim aldrei neinar persónu-
upplýsingar. Notast á við fölsk
nöfn og órekjanleg tölvupóstföng.
Þegar þetta er tryggt geta hin
kostulegu bréfaskipti hafist.
Veiðimenn 419 svindlaranna
skemmta sér konunglega við ýmis
uppátæki. Þeir stinga upp á lykil-
orðum til þess að tryggja að sam-
skiptin séu við réttan aðila. Lykil-
orðin eru gjarnan slangurorð fyr-
ir fyrirbæri neðan mittis og hefj-
ast þá bréfin með setningum eins
og „I love hairy pie,“ en hairy pie
mun vera slangur fyrir píku.
Tikynnt um heyrnarleysi
Á ákveðnu stigi samskiptanna
biður svindlarinn um símanúmer
til þess að hægt sé að ræða málin
frekar. Veiðimönnum þeirra er ráð-
lagt í slíku tilvikum að greina frá
þeirri sorglegu staðreynd að vegna
slyss, fæðingargalla eða sjúkdóms
hafi þeir misst heyrn. Því harm-
rænni sem sagan er því betra. Sam-
skiptin verði því að halda áfram
með tölvupósti.
Til að gera allt sennilegra senda
báðir aðilar myndir af sér og jafn-
vel fjölskyldunni. Úrklippur úr
glanstímaritum geta þá komið að
góðu gagni. Aldrei má senda neitt
sem hægt er að tengja manni sjálf-
um. Svindlararnir eru líklegast illa
upplýstir þjófar, en sumir eru
morðingjar og mannræningjar.
Ólíklegt að þeir leggi á sig langa
ferð til að leita hefnda. Engin
ástæða er til þess að taka slíka
áhættu. Höfuðpaur vefsins 419ea-
ters.com segir að alvarlegasta hót-
unin sem hann hafi fengið eftir að
svindlarinn komst að því að hann
hafði verið hafður að fífli, hafi ver-
ið að voodoogaldur yrði notaður til
að svipta hann typpinu innan sólar-
hrings. Veiðimaðurinn fullyrðir
hins vegar á síðu sinni að það hafi
ekki gerst og tólið virki ágætlega
enn sem komið er.
Annað sem ber að varast er að
fyrir kemur að svindlararnir biðja
um hjálp og segjast vera í lífs-
hættu. Þeir geta verið verulega
sannfærandi. Leggi menn út í
þennan hráslagalega leik er vert að
hafa í huga að viðskiptin eru við
þjófa og svindlara og ekki orð að
marka sem þeir segja.
Samskiptin teygð
Tilgangurinn með leiknum er
að halda svikurunum uppteknum
við það sem þeir halda að sé væn-
legt fórnarlamb. Markmiðið er að
halda þeim inni í leiknum eins
lengi og auðið er, en fara eins
langt í fíflagangnum og hægt er.
Síðan eru samskiptin sett út á
Netið öðrum áhugamönnum um
þennan leik til skemmtunar. Hug-
kvæmninni við það eru fá tak-
mörk sett. Veiðimennirnir senda
nöfn bankastofnana sem bera
heiti eins og „Plunder & Flee“
sem útleggst rænt og flúið. Þrátt
fyrir ólíkindaleg lykilorð og
bankaheiti, sem ættu að vekja
grunsemdir svindlaranna, þá
halda þeir áfram að reyna að ná
peningum út úr fórnarlambinu.
Að því er virðist án minnsta
gruns um að þeir sjálfir séu fórn-
arlömbin. Veiðimaðurinn teygir
sig eins langt í háðinu, án þess að
upp úr samskiptunum slitni.
Reynt er að draga þau á langinn
og láta svindlarana hafa sem
mest fyrir lífinu. Fýluferð svindl-
ara út á flugvöll er til dæmis eitt-
hvað sem allir alvöru veiðimenn
419 svindlara ættu að reyna að
koma í kring. Best er náttúrlega
að vera búinn að láta hann send-
ast svolítið fyrir sig áður. Eftir
mikið klúður með peningasend-
ingar og endalausan misskilning
er best að stinga upp á því að
maður komi með peningana sjálf-
ur. Í framhaldinu skemmta veiði-
mennirnir sér við það að láta við-
komandi bóka hótel. Fjögurra eða
fimm stjörnu og ekki hreyfa sig
fyrr en komin er staðfesting á
bókuninni. Eftir fýluferð
svindlarans út á flugvöll er leikn-
um lokið. Þá er sent bréf sem
gengur út á það að segja honum
hvað hann sé vitlaus að láta plata
sig. Útskýra dónalegt lykilorð og
skemmta sér á hans kostnað.
Svarbréfið, ef það berst er venju-
lega fúkyrðaflaumur og hótanir.
haflidi@frettabladid.is
Geymdu það ekki til morguns
sem við getum gert í dag.
Eins
og
skot
Sími: 505 0400
Fax: 505 0630
www.icelandaircargo.is
Ný
sending!
100 ferðir á viku til 13
áfangastaða í USA og Evrópu
tryggja þér stysta mögulega
flutningstíma með
hagkvæmasta hætti
sem völ er á.
Hér fyrir neðan sérðu dæmi
um verð frá USA og Evrópu
og upptalningu á þeirri
þjónustu sem innifalin er
í verðinu. Við veitum þér
alhliða þjónustu í öllum
þáttum, s.s. gerð tollskjala
og við færum þér vöruna
beint upp að dyrum.
Geymdu það ekki til
morguns sem við getum
gert í dag.
Verðdæmi
Baltimore/
Washington
17.000 kr./100 kg
m.v. flug frá Baltimore
Washington International til
Keflavíkur. Afgreiðslugjald á
báðum flugvöllum innifalið.
Tökum einnig að okkur
tollskýrslugerð og heimakstur
gegn vægu gjaldi.
CARGO
Pennavinir svindlaranna
Svindl sem upprunnið er í Nígeríu hefur verið í gangi um árabil. Margir hafa fengið
slík bréf þar sem þeir eru beðnir um að stofna bankareikning til þess að koma milljónum
dollara úr heimalandi svindlarans. Hópur fólks skemmtir sér við það að skrifast á við
svindlarana, eyða tíma þeirra og breyta þeim í fórnarlömb.
440kr.
Eitt verð fyrir
alla jólapakka!
Hámarksþyngd 20 kg,
hámarksstærð 0,06 m3
(t.d. 30x40x50 sm)
03
-5
11
ATHUGIÐ!!!
Þessir menn eru glæpamenn.
• Ekki leggja út í samskipti við þá nema
þið séuð algjörlega tilbúin í þau.
• Ekki gefa neinar upplýsingar sem gera
þeim fært að finna ykkur.
• Ef einhverjar vöfflur koma á ykkur
hættið strax og tilkynnið að ekki geti
orðið af viðskiptum.
Launa- og mannauðskerfi:
Skilvirk
starfsmanna-
stjórn
Kaupþing Búnaðarbanki ogNýherji undirrituðu samning
um innleiðingu SAP launa- og
mannauðslausnar hjá bankanum.
Um er að ræða SAP X-press lausn
sem Nýherji hefur hannað fyrir ís-
lenskar aðstæður en hún felur í sér
starfsmannalausn, skipulagsheild,
ráðningarlausn, stimpilklukku,
starfsþróunarlausn og síðast en ekki
síst fullkomið, samþætt launakerfi.
Að sögn Svala Björgvinssonar,
starfsmannastjóra Kaupþings Bún-
aðarbanka, er markmið bankans að
einfalda launavinnslu og uppgjör
sameinaðs banka og gera alla þætti
mannauðsstjórnunar sem skil-
virkasta.
Í dag heldur mannauðslausn SAP
utan um meira en 54 milljónir
starfsmanna í um 9000 fyrirtækjum
í yfir 50 löndum. ■
Mikið að gerast:
Pharmaco í kastljósi
Gengi bréfa Pharmaco hækkaðium rúm 12% í vikunni. Félagið
tilkynnti um kaup á tyrknesku
lyfjafyrirtæki. Kaupverðið er 4,5
milljarðar auk árangurstengdra
greiðslna. Á tyrkneska fyrirtækinu
hvíla óhagstæð lán og er ætlunin að
endurfjármagna fyrirtækið.
Pharmaco steig einnig fyrsta
skrefið í átt að skráningu í kaup-
höll í London. Félagið tilkynnti um
val á samstarfsaðila til að hefja
undirbúning skráningarinnar.
ABN AMRO Rothschild og Merill
Lynch International munu verða
ráðgjafar við skráninguna. Stefnt
er að skráningu félagsins í
London á næsta ári. ■
TÍÐINDAMIKIL VIKA
Róbert Wessman, forstjóri Pharmaco, hafði í
nógu að snúast í vikunni. Pharmaco keypti
tyrkneskt fyrirtæki og steig fyrstu skrefin í átt
að skráningu félagsins í erlendri kauphöll.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Leggi menn út í
þennan hráslagalega leik er
vert að hafa í huga að við-
skiptin eru við þjófa og
svindlara og ekki orð að
marka sem þeir segja.
,,
PENNAVINIRNIR
Nokkrar þeirra mynda sem gengið hafa á milli svindlaranna og veiðimanna þeirra. Bréfa-
skipti við fjársvikamenn eru leikur sem nýtur sífellt meiri vinsælda.