Fréttablaðið - 07.12.2003, Blaðsíða 20
20 7. desember 2003 SUNNUDAGUR
Neðanmáls
KRIMMAFÉLAGIÐ FUNDAR Í
REYKJAVÍK Arnaldur Indriðason
er hinn ókrýndi konungur glæpa-
sögunnar á Íslandi og hefur með-
al annars náð þeim undraverða
árangri að hreppa Glerlykilinn,
Norrænu glæpasagnaverðlaunin,
tvö ár í röð. Fyrst fyrir Mýrina
árið 2002 og
Grafar-
þögn
2003.
Það er
Skandin-
aviska
Krim-
inalselskapet
sem stendur
fyrir verðlaun-
unum og af-
hendir þau á
árlegri ráð-
stefnu sinni.
Arnaldur sótti
Glerlykilinn fyrst
til Finnlands en til
Noregs árið eftir.
Viktor Arnar Ing-
ólfsson er fulltrúi
Íslands í keppninni
að þessu sinni en
hann er tilnefndur
fyrir Flateyjargátu.
Feti Viktor Arnar í
fótspor Arnalds
þarf hann þó ekki
að fara langt til að
sækja lykilinn sinn þar sem ráð-
stefna Skandinavíska krimma-
félagsins verður haldið í Reykja-
vík í maí 2004. Þetta verður í
fyrsta sinn sem Glerlykillinn
verður afhentur á Íslandi og það
má því búast við óvenjumiklum
fjölda skuggalegra náunga á göt-
um borgarinnar þegar meinlausir
glæponar frá öllum Norðurlönd-
unum mæta á staðinn.
FLATEYJAR-
GÁTA
Gæti hreppt
Glerlykilinn í
Reykjavík 2004.
ARNALDAR INDRIÐASON
Hefur hlotið Glerlykilinn tvö ár í röð.
Mér finnst miklu skemmtilegraað vinna með börnum en full-
orðnum,“ segir Regína Pokorna,
stórmeistari í skák. „Ég elska að
vinna með börnum. Ég þjálfaði
nokkur börn heima í Slóvakíu og
hafði mjög gaman að því.“ Regína
kemur frá Slóvakíu og er í hópi öfl-
ugustu skákkvenna heims þrátt fyr-
ir ungan aldur en hún er aðeins 21
árs. Regína er einn af ötulustu liðs-
mönnum Hróksins og hefur látið
hressilega til sín taka í barnastarfi
félagsins á síðustu mánuðum. Hún
hefur meðal annars heimsótt fjölda
grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu
og á Suðurlandi og hefur gert
stormandi lukku hjá skólabörnum
sem hafa notið leiðsagnar hennar og
fengið tækifæri til að tefla við hana
fjöltefli.
Lengi býr að fyrstu gerð
Sjálf var Regína ung að árum
þegar hún settist fyrst að tafli.
„Pabbi byrjaði að kenna mér að
tefla þegar ég var á fimmta ári. Ég
gekk í skákklúbb fljótlega eftir það
og byrjaði að keppa á mótum þegar
ég var sex ára. Þegar ég var 9 ára
sigraði ég á móti í Tékkóslóvakíu og
eftir það var ég send í heimsmeist-
arakeppni og varð í öðru sæti þar.
Síðan þá hef ég keppt á fjölmörgum
Evrópu- og heimsmeistaramótum
og tel mig geta verið mjög sátta við
árangurinn. Ég hef oftast verið í
einhverjum af efstu sætunum og
hef þrisvar orðið Evrópumeistari
kvenna.“
Regína segir að það sé engin
spurning að það sé best fyrir börn
að byrja að æfa sig í skákinni sem
fyrst. „Þegar krakkar eru fimm til
sex ára eru þau á mjög góðum aldri
og taka framförum mjög hratt. Þau
þurfa bara að mæta í skólann og
sinna áhugamálum sínum og hafa
því mikinn tíma aflögu og geta ein-
beitt sér að taflinu. Þegar þau eldast
fjölgar áhugamálunum og það eru
fleiri hlutir sem toga í þau og þá fer
það oft þannig að þau nenna ekki að
eyða miklum tíma í skákina.
Áhyggjunum fer líka fjölgandi með
aldrinum og þá minnkar einbeiting-
in.“
Efnilegar stelpur á Íslandi
Regína segist hafa rekist á mjög
efnilega krakka í Íslandsheimsókn-
um sínum en bendir á að það sé ekki
nóg að vera efnilegur þegar maður
er ungur og þeir sem vilji ná virki-
lega langt verði að taka skákina
alvarlega og stunda æfingar og
þjálfun eins og í hverri annarri
íþrótt. „Það er til dæmis mjög
ánægjulegt að segja frá því að ég
hef hitt nokkrar stelpur sem gætu
náð langt en það er gaman að sjá
hversu áhugasamar stelpurnar eru.
Heima í Slóvakíu eru frekar fáar
stelpur í skákinni og það er algengt
að þegar ég keppi á stórum mótum
þar þá eru yfirleitt um 50 stelpur að
keppa innan um 500 stráka. Það er
mjög gaman að sjá hversu mikill
skákáhuginn er hérna. Hann er
þokkalegur heima en aðalíþróttirn-
ar eru fótbolti og íshokkí og annað
fellur í skuggann.“
Skákin gengur fyrir
Regína hefur komið til Íslands
fjórum sinnum síðastliðið ár og
heldur heimleiðis í dag eftir að hafa
dvalið hér í tvo mánuði. „Þetta er
búið að vera alveg frábært. Ég er
bæði búin að vera að tefla fyrir
Hrókinn á ýmsum mótum, til dæm-
is á Selfossi, og svo fór ég með
Hróknum til Grænlands í sumar.
Það var alveg æðislegt. Maður steig
inn í einhvern allt annan heim á
Grænlandi sem er engu líkt. Annars
er ég mest búin að vera í skóla- og
kynningastarfi Hróksins og hef haft
gaman af.“
Regína fer beint heim til Slóvak-
íu frá Íslandi en gerir ráð fyrir að
koma aftur fljótlega á næsta ári.
„Nú fer ég heim til að æfa mig. Ég
tók mér árs frí frá skóla til að æfa
mig og taka þátt í skákstarfinu
hérna á Íslandi. Nú hefst þjálfunin
aftur á fullu en maður teflir svolítið
öðruvísi eftir að hafa eytt svona
miklum tíma með óreyndu skák-
fólki. Ég þarf því að herða mig þar
sem ég er alls ekki sátt við hvernig
ég hef verið að tefla undanfarið.“
Dansar í Reykjavík
Regína sér þó síður en svo eftir
þeim tíma sem hún hefur eytt á Ís-
landi. „Ég er búin skemmta mér al-
veg rosalega vel. Vinir mínir hafa
komið hingað og verið með mér og
þetta er búið að vera æðislegt.“
Regína gerði vitaskuld úttekt á hinu
margrómaða næturlífi Reykjavíkur
og lætur vel að. „Það er mjög gam-
an að dansa og skemmta sér hér.
Staðirnir eru fínir og tónlistin er
mjög góð. Slóvakar þykja drekka
mjög mikið en jafnast samt ekkert á
við Íslendinga. Ég held að það sé
ekki hægt að segja annað en Íslend-
ingar drekki alltof mikið,“ segir
skákdrottningin sem ætlar að
skerpa sóknarleiki sína milli jóla og
nýárs og mun svo mæta tvíefld til
Íslands árið 2004.
thorarinn@frettabladid.is
Ég er búin
skemmta mér alveg
rosalega vel. Vinir mínir
hafa komið hingað og verið
með mér og þetta er búið
að vera æðislegt.“
,,
Regína Pokorna er 21 árs stórmeistari í skák. Hún er einn líflegasti meðlimur Hróksins og hefur tekið virkan þátt í uppbyggingu barna-
starfs félagsins enda þykir henni fátt skemmtilegra en að vinna með börnum.
Skákdrottning skemmtir
sér á Íslandi
REGÍNA POKORNA
„Tékkneski stórmeistarinn Tomas Oral er mjög góður vinur
minn. Hann hefur teflt fyrir Hrókinn og þegar þeir byrjuðu
að leita að kvenstórmeistara benti hann þeim á mig,“ segir
Regína þegar hún útskýrir hvað varð til þess að ungur stór-
meistari frá Slóvakíu gekk til liðs við skákfélag á Íslandi.
Hún er yfirleitt alltaf kölluð skákdrottning Hróksins enda
heillar hún alla, unga sem aldna, hvar sem hún kemur
með heillandi nærveru sinni.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M