Fréttablaðið - 07.12.2003, Blaðsíða 21
21SUNNUDAGUR 7. desember 2003
Fagni› n‡ju ári í dásamlegum hl‡indum og hla›i› batteríin. Kanaríeyjar
eru lífsins lystisemdir, stórbroti› landslag og endalaust gó›vi›ri.
Sta›greitt á mann m.v. tvo í íbú› á Teneguia í 4 nætur.
49.900 kr.*Ver›:
Sta›greitt á mann m.v. tvo í íbú› m/morgunver›i á Barbacan Sol í 4 nætur.
69.900 kr.*Ver›:
Sta›greitt á mann í tvíb‡li me› 1/2 fæ›i á Hótel Las Margaritas í 4 nætur.
69.900 kr.*Ver›:
Sta›greitt á mann í m.v. tvo í íbú› á Teneguia
í 18 nætur.
79.830 kr.*Ver› frá:
* Innifali›: Flug, flugvallarskattar, gisting skv. ofangreindu,
akstur til og frá flugvelli erlendis og íslensk fararstjórn.
Lágmúla 4: 585 4000 • Hlí›asmára: 585 4100
Keflavík: 420 6000 • Akureyri: 460 0600
Selfossi: 482 1666 www.urvalutsyn.is
Úrval-Úts‡n
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
2
29
90
11
/2
00
3
Slúðrað ásunnudegi
Hver er maðurinn?
„NÖRDARNIR“ KEPPA Í POPP-
PUNKTI Popppunktur er einn vin-
sælasti þáttur í íslensku sjónvarpi
og í gærkvöldi áttust við hljóm-
sveitirnar Ensími og Papar. Ensími
hafði Papa naumlega sem kom
nokkuð á óvart því Paparnir þóttu
sigurstranglegir. Þeir geta þó
huggað sig við
góða plötusölu nú
um stundir. Þá hef-
ur verið tekinn
upp þáttur sem dr.
Gunni, spyrillinn
ógurlegi, hefur
kosið að kalla
„Nördaþáttinn“.
Þar eigast við fag-
menn og svo popp-
spekingar af göt-
unni. Lið fagmannanna er allt ann-
að en árennilegt, því þar er að
finna Óla Palla af Rás 2, Arnar
Eggert Thoroddsen á Mogganum
og svo sjálft tæknitröllið Þráinn
Steinsson, sem er yfir öllum tækni-
málum á Norðurljósum og er jafn-
framt með sinn þátt á útvarpsstöð-
inni Skonrokk - Fm 90,9. Mun þetta
hafa verið hörð viðureign en
Fréttablaðið ætlar sér ekki að
skemma fyrir með að upplýsa um
úrslitin.
PÁLL ÁSGEIR ÁVARPAR ÞJÓÐINA
Blaðamaðurinn og rithöfundurinn
Páll Ásgeir Ásgeirsson er farinn að
láta til sín taka í bloggheimum en
slóðin á vefsvæði hans er pallas-
geir.blogspot.com. Þar viðrar hann
skoðanir sínar á mönnum og mál-
efnum sem og dýrum. Heimilis-
kötturinn heitir Raggi og er
heimskur að mati
Páls Ásgeirs en
Raggi stendur í
þeirri meiningu að
allir menn séu góð-
ir. Fyrsta færsla
Páls Ásgeirs er
svohljóðandi: „Mig
langar til þess að
ávarpa þjóð mína
og aðdáendur.
Þetta er að mestu leyti sami mark-
hópurinn svo með þessu netvædda
dagbókarformi slæ ég tvær ef ekki
þrjár flugur í sama höfuðið.“
GUÐBERGUR Á RANNSÓKNAR-
ÆFINGU Í gærkvöldi var haldin
svokölluð rannsóknaræfing í Há-
skóla Íslands. Þetta fyrirbæri gerði
Þórarinn Eldjárn ódauðlegt í snill-
arlegri smásögu sinni sem heitir
„Síðasta rannsóknaræfingin“. Þá
koma fræðimenn saman, lyfta glös-
um og fá sér í svanginn, spá og
spekúlera. Reyndar fór það svo að
hin akademíska elíta nánast þurrk-
aðist út vegna matareitrunar sem
upp kom. Vonandi hefur ekkert
slíkt hent í gær-
kvöldi. Að þessu
sinni var Guðberg-
ur Bergsson feng-
inn til að flytja
fyrirlestur. Þegar
leitað var til Guð-
bergs tók hann vel
í erindið en vildi
hins vegar ekkert
gefa upp um efni
ræðu sinnar utan
að hún bæri yfir-
skriftina „Buxur“. Ríkti því nokkur
spenna fyrir æfinguna meðal
fræðimannanna.
HÖFUNDUR UNDIRBÝR BLOGG-
FÆRSLU Ríkey Ingimundardóttir
sendi dóttur sinni Ruth Reginalds
tóninn í síðasta helgarblaði og vakti
það mikla athygli. Þar sakar hún
Ruth um miklar rangfærslur. Út-
gefandi Ruthar, Kristján B. Jónas-
son fær einnig á baukinn sem og
Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir
sem skrásetti. Kristján virðist ekki
ætla að svara Ríkey og ekki hefur
neitt heyrst frá Þórunni Hrefnu
sem kemur mörg-
um á óvart því hún
liggur sjaldnast á
skoðunum sínum.
Á því kann að
verða breyting en
á bloggsíðu sinni
segir Þórunn
Hrefna: „... er þó
að undirbúa
allsvakalega blogg-
færslu sem ég
vona að ég þori að birta einhvern
tíma á næstu dögum.“
ÞRÁINN
KEPPIR Í POPP-
PUNKTI
PÁLL ÁSGEIR
BLOGGAR
GUÐBERGUR
FLYTUR
FYRIRLESTUR
ÞÓRUNN
HREFNA UND-
IRBÝR BLOGG
Grjótharður nagli og
viðkvæmur drengur
Hann er furðulegt sambland afgrjóthörðum nagla og alveg
ofboðslega viðkvæmum dreng.
Hann er fagurkeri en hræðist
ekki ruslið. Býr yfir Husler-elem-
ent að geta farið í gegnum hvaða
rugl sem er, tekið þátt í hvaða vit-
leysu sem er, en samt komið út úr
því sem ósnertur. Svoldið líkt og
að stökkva vatni á gæs. Tekst að
snúa vonlausri aðstöð sér í vil,“
segir Kristján B. Jónasson for-
leggjari um manninn sem um er
spurt. Kristján vann með um-
ræddum á árum áður og segir það
hafa við ævintýralegt á margan
hátt.
Annar sem hefur haft talsvert
af viðkomandi að segja er Eiríkur
Jónsson blaðamaður, einkum á
árum áður. Hann notar þessi orð
um manninn: „Hann er gáfaður og
útsjónarsamur. Virðist hafa feng-
ið viðskiptaáráttu í vöggugjöf.
Viðkvæm sál og ekki allra. Gat
verið stórbrotið að drekka með
honum og yfirleitt var það með
óvæntum afleiðingum.“
Hann er óþrjótandi hug-
myndabrunnur og orkubolti sem
virðist vaxa ásmegin með aldrin-
um. Hann er örugglega einn
snjallasti sölumaður sem Ísland
hefur alið og færi létt með að
selja ömmu sína biði honum svo
við að horfa. Hann er líka við-
kvæm tilfinningavera sem vill
láta gott af sér leiða í þessum
heimi,“ segir Hrafn Jökulsson,
forseti Hróksins, um þennan lit-
ríka mann. Og hver skyldi hann
nú vera? Svar á blaðsíðu 30. ■
FAGURKERI
Hann er sagður hafa fengið viðskipaáráttu
í vöggugjöf, talinn gáfaður orkubolti og
hugmyndabrunnur. Hverjum er lýst svo?