Fréttablaðið - 07.12.2003, Page 23
23SUNNUDAGUR 7. desember 2003
s í m i 5 5 3 8 0 5 0 • w w w . e c c o . c o m
F R Á B Æ R T I L F I N N I N G !
Receptor Rugged II
26334
Receptor Rugged II
26324
Fornbóka-
markaður
Opnum í dag
Ekki missa af þessu!
Halldór Kiljan Laxness á 100 kr. stk.
Fullt af bókum og tímaritum frá kr. 50
Ennfremur lagaersala á: Húfum 100 kr. stk -
Treflum 100 kr. stk - Sokkum 100 kr. stk.
Opið frá kl. 11-19 laugard./sunnud.
og frá kl. 14-19 virka daga
til 12. desember
LANGHOLTSVEGUR 42
Foreldrar
Verjum tíma með börnunum okkar
Hver stund er dýrmæt
um þá hefðu þeir að minnsta kosti
getað lesið um það. Maður skyldi
ætla að einhver í öðrum hvorum
þessara stóru flokka fylgdist með
fjölmiðlum. Halldór og Davíð
höfðu nægan tíma til að koma á
framfæri athugasemdum ef kynn-
ingin á samkomulaginu var ekki í
samræmi við samþykkt þeirra. En
auðvitað létu þeir sér vel líka og
notuðu sér óspart.
Framsóknarflokkurinn var
kominn með 8-9 prósent í skoð-
anakönnunum í febrúar síða-
stliðnum og stjórnin kolfallin. Þá
var farið að vinna mjög hratt í
þessu máli. Ég sagðist ítrekað
treysta því að staðið yrði við sam-
komulagið. Það voru margir sem
vantreystu því og töldu mig vera
of bláeygan, sögðu að það væri
barnaskapur að trúa því að loforð-
in yrðu efnd þegar búið væri að
telja upp úr kössunum. Ég svaraði
því til að það gæti ekki hvarflað
að nokkrum manni að svíkja sam-
komulag sem kynnt hefði verið
svo rækilega á opinberum vett-
vangi. Við fundum það í kringum
okkur hvað þessi samningur hafði
gríðarlega jákvæð áhrif á fylgi
við ríkisstjórnina, sérstaklega
fylgi Framsóknarflokksins. Fólk
sem var búið að gefast upp á þess-
ari ríkisstjórn taldi að nú væri
kominn á friður. Framsóknar-
flokkurinn nýtti sér þetta sam-
komulag í kosningabaráttu sinni
og segja má að við höfum þannig
óbeint lagt flokknum lið í kosn-
ingabaráttunni. Við berum því
okkar ábyrgð á því að ríkisstjórn-
in náði þeim meirihluta sem hún
náði. Þetta segi ég með fullri virð-
ingu fyrir auglýsingastofu þeirra
og því uppátæki formanns flokks-
ins að fara allt í einu að birtast
gleiðbrosandi á skjánum á hverju
einasta kvöldi.“
Ekki teppalagt fyrir Halldór
Heldurðu að staða skjólstæð-
inga þinna myndi þá ekki lagast
yrði Halldór Ásgrímsson forsætis-
ráðherra?
„Ég hef ekki orðið var við það
að Halldór Ásgrímsson standi fyr-
ir félagslegri sjónarmið en Sjálf-
stæðisflokkurinn. Ég er ekkert
viss um að draumur hans um að
verða forsætisráðherra verði að
veruleika 15. september. Ég get
ekki séð að Sjálfstæðisflokkurinn
sé beinlínis að teppaleggja fyrir
hann.“
Í gegnum tíðina hefur andað
köldu milli þín og Davíðs Odds-
sonar. Hvert er álit þitt á honum?
„Af einhverjum ástæðum hef-
ur mannréttindabarátta okkar
skapraunað honum. Hann tók upp
á því á sínum tíma að vera með að-
dróttanir og ásakanir í okkar garð
sem við urðum að svara af fullum
þunga. Hann er ekki vanur því að
honum sé svarað í sömu mynt. Það
er eitthvað í mínu fari sem virðist
skaprauna honum mikið. Ég kann
enga skýringu á því. Mér finnst
hann á vissan hátt skemmtileg
týpa, svona sem náungi úti í bæ,
en ekki sem forsætisráðherra.“
Það er staðreynd að í þessu
þjóðfélagi horfum við upp á auð-
söfnun fárra. Hvað finnst þér um
þessa þróun?
„Misskipting er að aukast gríð-
arlega hratt. Ríkisstjórnin hefur
verið að færa góðvinum sínum
eignir þjóðarinnar á silfurfati og
menn gera sér mat úr því og gera
góða samninga við sjálfa sig.
Þetta er rökrétt afleiðing þeirra
ákvarðana sem ríkisstjórnin hef-
ur tekið á valdatíma sínum. Menn
ættu því ekki að vera hissa og
andvaka í stjórnaráðinu yfir því.
Í skólum er himinn og haf milli
þess veruleika sem fátækustu
börnin í bekknum búa við og síðan
börn nýríka fólksins. Þetta á eftir
að skapa okkur vandamál sem
eiga eftir að kosta sitt. Við erum
að búa til þjóðfélagshóp sem get-
ur ekki notað heilsugæslu að
fullu, ekki keypt sér næringarrík-
an mat og börnin taka ekki þátt í
íþróttum og tónlistarnámi. Það
þarf ekkert að botna þá vísu til
hvers svona ástand leiðir.“
Bakhliðin á velmeguninni
Forseti Íslands talaði á dögun-
um um eymd í Reykjavík. Tekurðu
undir það?
„Þetta er ekki ofmælt. Það er
virðingarvert að við skulum hafa í
embætti forseta Íslands mann
sem lætur sig varða það sem
mestu skiptir í samfélagi siðaðra
manna. Þegar öllu er á botninn
hvolft er maðurinn hinn endanlegi
mælikvarði í samfélaginu. Það er
ljóst að Ólafur Ragnar fylgist með
því sem er að gerast. Við sem
erum úti á akrinum komumst ekki
hjá því að sjá bakhliðina á þeirri
velmegun sem við teljum okkur
búa við. Í ljósi þeirrar hrikalegu
fátæktar sem hluti fólks býr við
og staðfest er í margvíslegum op-
inberum gögnum þá svíður manni
að þessir ráðamenn skuli voga sér
að ganga svo langt að skera af
þessari hækkun, vegna þess að
hún var sérstaklega til þess hugs-
uð að vera hagkvæm og skilvirk
fyrir ríkisvaldið. Það átti að koma
til móts við sem flesta með sem
minnstum tilkostnaði. Þessi svik
eru svo ljótur leikur að það getur
bara ekki verið að þessir menn
geri sér grein fyrir því hvernig
ástandið er í raun og veru. Menn
sem ala manninn á lúxushótelum
úti í heimi eru ekki í sterkri að-
stöðu til að átta sig á þeim lífs-
kjörum sem þeir hafa ákvarðað
öryrkjum. Væri svo, hvers konar
uppeldi hefur það fólk þá fengið
sem ákveður að öryrkjar skuli
vera á svona lágum lífeyri og
ákveður síðan að svíkja gefin lof-
orð? Ég vona allavega að mér tak-
ist að ala mín eigin börn þannig
upp að þau komi aldrei til með að
gera neitt í líkingu við þetta. Við
kennum börnum okkar að standa
við gefin loforð, en svo horfa þau
upp á æðstu ráðamenn þjóðarinn-
ar hegða sér allt öðruvísi. Venju-
legir hrossaprangarar myndu
aldrei komast upp með svona.“
Ríkisstjórn fyrir dóm?
Er hugsanlegt að Öryrkja-
bandalagið muni höfða mál gegn
ríkisstjórninni?
„Það liggur ljóst fyrir að samn-
ingur af þessu tagi, með öllum
þeim gögnum, yfirlýsingum og
staðfestingum sem fyrir liggja í
málinu er miklu meira en nægur
til að hægt sé að draga ríkisstjórn-
ina fyrir dóm. Dómsalir eru ekki
skemmtilegur samráðsvettvang-
ur. Það er ansi hart ef við þurfum
eina ferðina enn að stefna ríkis-
stjórninni fyrir dómstóla. En eftir
alla þá gagnrýni sem ég fékk fyr-
ir trúgirni mína get ég ekki lagst
gegn því að samningurinn verði
fullnustaður með tilstyrk dóm-
stóla. Fjölmargt fólk í okkar röð-
um var orðið langþreytt á marg-
víslegu óréttlæti ríkisstjórnarinn-
ar og vildi að við tækjum virkan
þátt í síðustu kosningum, eða
efndum að minnsta kosti til mjög
öflugrar herferðar til að kynna
stöðu og lífskjör öryrkja. Öll sú
áætlun var tilbúin, og um það var
forystumönnum Framsóknar-
flokksins fullkunnugt. En þegar
samkomulagið loks tókst, beitti ég
mér eindregið gegn því að við
blönduðum okkur í kosningabar-
áttuna og kunnu ýmsir mér litlar
þakkir fyrir, sökuðu mig um að
hindra eðlilega umræðu um svar-
tasta blettinn á íslensku samfélagi
og ganga þannig erinda þeirra
sem mesta ábyrgð bæru í þessum
málaflokki.
Svo koma þeir nú, þessir kjark-
menn, og reyna að skýla sér bak
við persónu Jóns Kristjánssonar,
eina mannsins sem hefur ítrekað
viðurkennt að það vanti litlar
fimm hundruð milljónir til að
standa við samninginn. Halda að
þjóðin sjái ekki hverjir eru hinir
raunverulegu vesalingar í þessu
máli, þingmennirnir ellefu sem
fóru með fagurgala um landið í
vor en eru nú forherðingin ein,
með stjórnvitringinn Guðna
Ágústsson í broddi fylkingar á
meðan formaðurinn flækist um
heiminn í þeirri von að fá alræmd-
ustu mannréttindabrjóta sem
uppi eru til að mynda með okkur
kosningabandalag í því þjóðþrifa-
máli að koma litla Íslandi í örygg-
isráð Sameinuðu þjóðanna.
Þarna austurfrá eru menn
þrátt fyrir allt mjög prinsipfastir
og ólíklegir til að binda trúss sitt
við hvern sem er þegar öryggis-
mál eru annars vegar. Ég held að
klerkastjórnin í Íran ætti að
minnsta kosti að hugsa sig vel um
áður en hún handsalar einhvers
konar samkomulag við ríkisstjórn
á borð við þá íslensku.“
kolla@frettabladid.is
UM FRAMSÓKNARFLOKKINN
„Framsóknarflokkurinn nýtti sér þetta samkomulag í kosningabaráttu sinni og segja má að við höfum þannig óbeint lagt flokknum lið í
kosningabaráttunni. Við berum því okkar ábyrgð á því að ríkisstjórnin náði þeim meirihluta sem hún náði. Þetta segi ég með fullri virð-
ingu fyrir auglýsingastofu þeirra og því uppátæki formanns flokksins að fara allt í einu að birtast gleiðbrosandi á skjánum á hverju ein-
asta kvöldi.“
Menn sem ala
manninn á lúxus-
hótelum úti í heimi eru ekki
í sterkri aðstöðu til að átta
sig á þeim lífskjörum sem
þeir hafa ákvarðað öryrkjum.
Væri svo, hvers konar upp-
eldi hefur það fólk þá fengið
sem ákveður að öryrkjar
skuli vera á svona lágum líf-
eyri og ákveður síðan að
svíkja gefin loforð? Ég vona
allavega að mér takist að ala
mín eigin börn þannig upp
að þau komi aldrei til með
að gera neitt í líkingu við
þetta. Við kennum börnum
okkar að standa við gefin
loforð, en svo horfa þau upp
á æðstu ráðamenn þjóðar-
innar hegða sér allt öðruvísi.
Venjulegir hrossaprangarar
myndu aldrei komast upp
með svona.
,,
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T