Fréttablaðið - 07.12.2003, Side 24
Hvers vegna að sprengja
svona snemma?
„Við skoðuðum meðal annars
hin frægu Dimmugljúfur, sem
eru Grand Canyon Íslendinga,
en þau verða
eyðilögð að
hluta til af
s t í f l u n n i .
Syðri hlutinn
hefur þegar
verið sprengd-
ur upp og
norðurhlutinn,
sem mótast
hefur af ánni í
þúsundir ára,
þurrkast upp.
Sprengingar í
g l j ú f r i n u
hófust í mars,
nokkrum mán-
uðum áður en
framkvæmdirnar höfðu endan-
lega verið fjármagnaðar, og
þeim var sjónvarpað í ríkissjón-
varpinu. „Þetta var áróðurs-
bragð,“ segir [Guðmundur Páll]
Ólafsson. „Alþingiskosningar
fóru fram þann 10. maí og ríkis-
stjórnin vildi ekki að Kára-
hnjúkar yrðu kosningamál.
Skilaboðin til kjósenda voru, að
þessar framkvæmdir yrðu ekki
stöðvaðar úr þessu.“
Sandfok og gruggugt
Lagarfljót
„Umhverfisáhrifin af fram-
kvæmdinni eru engan veginn
bundin við framtíðarlegu Háls-
lóns, eða við óbyggð svæði ein-
göngu. Á sumrin, þegar vatns-
yfirborðið verður lágt, munu
sterkir vindar blása upp þornað-
an aurinn á bökkum lónsins sem
mun leiða til sandfoks yfir
byggðina í austri. Virkjunin mun
einnig beina Jökulsá á Dal úr far-
vegi sínum, við aðalstífluna, og
niður í göng þar sem hún endar í
hinni hægfljótandi Jökulsá í
Fljótsdal, sem rennur í lengsta
vatn Íslands, Lagarfljót. Spegil-
slétt og silfurlitað yfirborð þess-
arar náttúruperlu verður grug-
gugt, ókyrrt og illt yfirferðar.“
Efast um hæfni ráðherranna
„Virkjunarframkvæmdir eru
formlega á könnu iðnaðarráð-
herra og umhverfisráðherra, sem
skipaðar voru 1999, en margir Ís-
lendingar efast um hæfni þeirra
til þess að taka
þátt í upplýst-
um rökræðum
um efnisatriði
málsins. Ferill
þeirra er vissu-
lega ekki til
þess fallinn að
auka trú á þeim:
sú sem ber
ábyrgð á iðnað-
ar- og viðskipta-
r á ð u n e y t i n u
heitir Valgerður
Sverrisdóttir ,
en hún virðist
einungis skarta
námsskírteini í
ensku frá árinu
1972. Siv Frið-
leifsdóttir um-
h v e r f i s r á ð -
herra er sjúkra-
þjálfari. Hvor-
ug þeirra til-
greinir nokkra
þingreynslu eða
aðra reynslu,
sem viðkemur
viðfangsefnum
ráðuneytanna.
Þegar ég fór
fram á viðtal við Siv Friðleifsdótt-
ur, þá var mér vísað á Sigurð Arn-
alds, sem var sagður vera
„fremsti sérfræðingur ríkis-
stjórnarinnar um Kárahnjúka-
framkvæmdina“. Sigurður er yf-
irmaður almannatengsla hjá
Landsvirkjun. (Þetta er svipað og
ef manni yrði vísað á Alastair
Campbell, sem fremsta sérfræð-
ing bresku ríkisstjórnarinnar um
stríðið við Írak.)“
Friðrik talar um rómantík
„Friðrik Sophusson, fyrrum
fjármálaráðherra í ríkisstjórn
[Davíðs] Oddssonar og núverandi
forstjóri Landsvirkjunar, deilir
áhuga á stórframkvæmdum með
stjórnarelítunni. Nú þegar hann
er sextugur, rifjar hann upp þá tíð
þegar Ísland var fátækt land og
var þekkt um öll Norðurlönd sem
Um síðustu helgi birti breskablaðið The Guardian langa og
yfirgripsmikla grein um fram-
kvæmdirnar við Kárahnjúka.
Greinin er skrifuð af blaðakonunni
Susan De Muth og prýdd fjölda
mynda. Blaðakonan fer mjög gagn-
rýnum orðum um framkvæmdirnar
og á forsíðutilvísun blaðsins, þar
sem vísað er í greinina, er talað um
„skömm Íslands“ í þessu samhengi.
Rakin eru náttúruspjöll sem af
framkvæmdinni hljótast og er vitn-
að í íslenska náttúruverndarsinna.
Þá er einnig talað við íslenska ráða-
menn og þeim ekki borin sérstak-
lega vel sagan, og er látið að því
liggja að framkvæmdin sé ólýðræð-
isleg. Friðrik Sophusson er jafn-
framt einn viðmælenda blaðsins og
Guðbergur Bergsson rithöfundur.
Viðtalið endar á orðum hans, þar
sem hann segir meðal annars að það
eina sem geti fengið Íslendinga til
þess að hugsa sig tvisvar um væri
ef útlendingar sýndu að þeir hefðu
andúð á framkvæmdinni.
Fréttablaðið hafði samband við
Siv Friðleifsdóttur umhverfisráð-
herra í því augnamiði að gefa henni
kost á að svara þeim fjölmörgu
gagnrýnispunktum sem fram koma
í greininni. Siv sagðist hins vegar
ekki sjá ástæðu til þess. Margt er
hins vegar athyglisvert í efnistök-
um The Guardian og nú birtir
Fréttablaðið nokkrar valdar tilvitn-
anir, lesendum til upplýsingar og
umhugsunar.
gs@frettabladid.is
24 7. desember 2003 SUNNUDAGUR
Kynningar
Ráðgjafi veitir ráðleggingar um val á PTP
hársnyrtivörum sem henta þínu hári.
Austurstræti mánudaginn 8. desember
Kringlunni þriðjudaginn 9. desember
Mjódd miðvikudaginn 10. desember
Domus fimmtudaginn 11. desember
Austurveri föstudaginn 12. desember
kl. 15-18
kl. 15-18
kl. 15-18
kl. 15-18
kl. 15-18
Kynningar í verslunum Lyf & heilsu:
Frábærar jólagjafir
Opið í dag
sunnudag kl. 13–17
Mörkinni 3, sími 588 0640
Sykurkarl
kr. 1690
Upptakari
kr. 1360
Skóhorn
kr. 1700
Naglaklippur
kr. 1580
frá
Um síðustu helgi birti breska dagblaðið The Guardian langa grein um Kárahnjúkavirkjun eftir blaðakonuna Susan De Muth. Þar
er vægast sagt farið gagnrýnum orðum um framkvæmdina og talað um „skömm Íslands“ í forsíðutilvísun blaðsins:
Hvað var The Guardian að
skrifa um Kárahnjúka?
DIMMUGLJÚFUR
Guardian kallar Dimmugljúfur „Grand Canyon“ Íslendinga, og vísar þar með til náttúruperlunnar í Bandaríkjunum.
GUÐMUNDUR
PÁLL ÓLAFSSON
Segir að sprengingar
í Dimmugljúfrum hafi
hafist fyrr en þörf var
á, í áróðursskyni.
VALGERÐUR
SVERRISDÓTTIR
Lýst er yfir efa-
semdum um hæfni
hennar til þess að
fara fyrir mála-
flokknum.
SIV FRIÐLEIFS-
DÓTTIR
Þegar blaðamaður
Guardian vildi ná tali
af henni, var vísað á
almannatengslafull-
trúa Landsvirkjunar.