Fréttablaðið - 07.12.2003, Síða 26
26 7. desember 2003 SUNNUDAGUR
Styrkirnir verða veittir tónlistarfólki, 30 ára eða yngri, sem er að ljúka framhaldsnámi
eða hefur nýlega lokið því. Styrkirnir eru ætlaðir til þess að auðvelda umsækjendum að
hasla sér völl í listgrein sinni. Veittir verða allt að fjórir styrkir að fjárhæð 500 þúsund
krónur hver.
Upplýsingar um umsóknargögn og reglur má nálgast í afgreiðslu Íslandsbanka á Kirkju-
sandi eða á vef Íslandsbanka á slóðinni www.isb.is/menningarsjodur.
Umsóknarfrestur er til 15. janúar nk. og skal senda umsóknir á eftirfarandi heimilisfang:
Menningarsjóður Íslandsbanka – Ungir tónlistarmenn, Kirkjusandi, 155 Reykjavík.
MENNINGARSJÓÐUR ÍSLANDSBANKA FAGNAR 15 ÁRA AFMÆLI Á ÞESSU ÁRI. HANN ER EINN ÖFLUGASTI SJÓÐUR SINNAR
TEGUNDAR HÉR Á LANDI OG ÁRLEGA NÝTUR FJÖLDI LISTAMANNA OG MENNINGARSTOFNANA STUÐNINGS HANS.
MENNINGARSJÓÐUR
ÍSLANDSBANKA
AUGLÝSIR TIL UMSÓKNAR
STYRKI TIL UNGRA
HLJÓÐFÆRALEIKARA
OG SÖNGVARA
Styrkir fyrir efnilegt tónlistarfólk
F
í
t
o
n
F
I
0
0
7
8
1
9
Bíómyndin Maður eins og ég er komin á DVD:
Áður ósýnt
áheyrnarpróf
Nei, þetta er nú ekki nýtt fyrirokkur. Árið 2001 gáfum við Ís-
lenska drauminn út á DVD,“ segir
Júlíus Kemp, framleiðandi og
kvikmyndagerðarmaður. Útgáfu-
félagið Kisi hefur sent frá sér
kvikmynd Róberts Douglas, Mað-
ur eins og ég, á DVD-diski. Maður
eins og ég fékk frábærar viðtökur
á sínum tíma, tæplega 20 þúsund
áhorfendur komu til að sjá mynd-
ina en hún hefði reyndar þurft 25
þúsund til að sleppa á sléttu.
Myndin er nú á flakki um Suður
Asíu á ýmsum kvikmyndahátíð-
um. „Hún hefur fengið þokkaleg-
ar viðtökur þar,“ segir Júlíus.
„Annars hef ég ekki farið á þessar
hátíðir sjálfur en Róbert var boð-
ið á Bankok-hátíðina. Svo vildi
hann ekki fara, hætti við á síðustu
stundu. Það hefði verið gaman að
hafa einhvern fulltrúa þarna til
frásagnar.“
En nú geta sem sagt kvik-
myndaáhugamenn endurnýjað
kynni sín af myndinni sem og nýj-
ir áhorfendur komið að verkinu.
Diskurinn inniheldur 75 mínútur
af aukaefni. Þar má finna ýmsar
fróðlegar senur sem klipptar voru
út úr myndinni þegar frá henni
var gengið til sýninga.
„Þetta eru óborganlegar senur,
Siggi Sigurjóns syngur Júró-
visjónlag, lag með Sálinni er
þarna að finna og svo er áheyrnar-
próf en þar koma ýmsir leikarar
og prufa sig í hlutverk,“ segir Júl-
íus. Auk þess eru fastir liðir,
treilerar, sjónvarpsauglýsingar
og ýmis viðtöl bæði við leikstjór-
ann Róbert sem og leikarana Jón
Gnarr og Stephanie Che auk þess
sem kvikmyndatökumaðurinn
Pawel Gula er tekinn tali.
Júlíus telur líklegt að þessi
háttur verði hafður á í framtíðinni
hér á landi sem víðar, að myndir
komi jafnframt út á DVD. „Al-
gengt er meira að segja í Asíu og
Bandaríkjunum að þar fari kvik-
myndir beint á DVD.“ Hann segir
að enn sem komið er sé þessi
framleiðsla nokkuð dýr, til dæmis
kostar framleiðsla 1000 eintaka
500 þúsund.
jakob@frettabladid.is
Ég rak augun í smáauglýsingu íMogganum fyrir um það bil
hálfu ári þar sem auglýst var eft-
ir merki fyrir Vestnorrænu
barnabókaverðlaunin,“ segir graf-
íkerinn Halldór Einarsson sem
hlaut fyrstu verðlaun í samkeppni
Vestnorrænaráðsins um merki
barnabókaverðlauna ráðsins.
Verðlaunin voru fyrst veitt í
fyrra og þá hlaut Andri Snær
Magnason þau fyrir Söguna af
Bláa hnettinum. Verðlaunin eru
veitt á tveggja ára fresti þannig
að merki Halldórs mun prýða þá
verðlaunabók sem verður valin á
næsta ári.
„Það pirraði mig svolítið að það
kom hvergi fram í auglýsingunni
á hvaða formi ætti að skila tillög-
unni. Í hrokakasti gerði ég þeim
erfitt fyrir með því að prenta
merkið út og sendi þeim það inn-
rammað í stað þess að láta það
fara á tölvutæku formi.“
Prakkaraskapurinn kom Hall-
dóri þó ekki í koll þar sem dóm-
nefnd frá þeim þremur löndum,
Færeyjum, Íslandi og Grænlandi,
sem standa að ráðinu, taldi merk-
ið hans best. Halldór segir verð-
launaafhendinguna í Kaupmanna-
höfn hafa verið fína, eins og við
var að búast. „Nema hvað að ég
upplifði mína verstu martröð sem
mig dreymdi í dönskutímum í
gagnfræðaskóla þegar ég þurfti
að babla eitthvað á dönsku fyrir
framan menntamálaráðherra
landanna þriggja og fleiri fyrir-
menni. Þetta tókst samt einhvern
veginn og alveg eins og í dönsku-
prófunum hér áður fyrr þá skreið
ég í gegnum þetta.“
Halldór telur fullvíst að hann
muni hanna fleiri lógó í framtíð-
inni en annars er hann á kafi í
teiknimyndagerð. „Ég rek Teikni-
myndasmiðjuna, ásamt Brynjari
Elí félaga mínum. Þar erum við að
vinna teiknimyndir með klassísk-
um aðferðum og mikilli handa-
vinnu. Við erum meðal annars að
vinna að eigin seríu auk þess sem
við framleiðum sjónvarpsauglýs-
ingar.“
thorarinn@frettabladid.is
HALLDÓR EINARSSON
„Ég á nú orðið nokkur góð lógó og á vonandi eftir að gera færri og betri í framtíðinni. Ef einhvern vantar útlit eða lógó fyrir fyrirtæki er
velkomið að hafa samband við mig.“
Merki eftir Halldór Einarsson hönnuð hefur verið valið sem merki Vestnorrænu barnabókaverðlaunanna.
Halldór fór til Kaupmannahafnar til að taka á móti viðurkenningu:
Bablaði eitthvað á dönsku
STEPHANIE CHE OG JÓN GNARR
Mynd Róberts Douglas er nú komin á DVD og er þar að finna ýmsar senur sem ekki hafa
litið dagsins ljós.
MERKI VERÐLAUNANNA
„Það er mjög skemmtilegt við þetta lógó
að fullorðnir sjá þrjú höfuð fyrir aftan stóra
bók sem er alveg rétt. En börn eru fljót að
sjá uglu út úr bókinni.“
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T