Fréttablaðið - 07.12.2003, Síða 28
Skylmingaþrælamyndin Gladi-ator sló hressilega í gegn árið
2000 og kvikmyndargerðarmenn
sækja nú viðfangsefni sín í aukn-
um mæli til gullaldar Grikkja og
rómverska heimsveldisins. Mikil-
menni virðast vera komin í tísku,
sem viðfangsefni í kvikmyndum.
Oliver Stone er að ganga frá
myndinni Alexander með Colin
Farrell í hlutverki Makedóníu-
mannsins unga sem tók við veldi
föður síns og lagði heiminn undir
sig. Þetta gerði drengurinn á met-
tíma á unga aldri og hlaut viður-
nefnið „mikli“ fyrir vikið.
Hollywood-maskínan virðist
hafa tröllatrú á að Alexander búi
enn yfir þeim krafti sem þarf til
að sigra heiminn en Ástralinn Baz
Luhrman, sem gerði meðal annars
Romeo+Juliet og Moulin Rouge,
hefur uppi áform um að gera aðra
mynd um hetjuna. Stone hefur þó
fengið gott forskot þar sem pen-
ingavandræði hafa tafið Luhrman
sem hyggst tefla Leonardo
DiCaprio fram í aðalhlutverkinu á
móti Colin Farrell.
Alexander, Akkiles og Jesú
Það er ekki nóg með að Alex-
ander sé að mæta tvíefldur til
leiks þar sem Wolfgang Petersen
er að gera mynd um Trójustríðið
og byggir vitaskuld á Illionskviðu
Hómers. Þar er ekkert til sparað
og margar af skærustu kvik-
myndastjörnum samtímans
bregða sér í sandalana til þess að
berjast um Trójuborg. Brad Pitt
leikur Akkiles, Eric Bana fer með
hlutverk Hektors, Orlando Bloom
leikur París og Sean Bean leikur
hinn ráðagóða Odysseif.
Á meðan Akkiles situr um
Tróju og Alexander leggur undir
sig heiminn er harðjaxlinn Mel
Gibson svo búinn að gera um-
deilda mynd um ævi Jesú Krists
þannig að Grikkland hið forna og
Róm verða áberandi sögusvið í
bíó á næsta ári en reynslan verður
að skera úr um hvort Hollywood
ráði við þessi risavöxnu verkefni
og geri þessum stórbrotnu sögum
almennileg skil.
Alexander í þremur bindum
Klassíska vakningin nær ein-
nig til bókmenntanna en forngrís-
ka morðgátan Skuggaleikir eftir
José Carlos Somoza og DaVinci
lykillinn eftir Dan Brown hafa
vakið verðskuldaða athygli. Da-
Vinci lykillinn gerist að vísu í
samtímanum en vísbendingar um
umdeild leyndarmál úr ævisögu
Jesú Krists knýja spennandi at-
burðarásina áfram. Þá hefur Ítalinn Mario
Massimo Manfredi náð miklum
vinsældum með þriggja binda
sögulegri skáldsögu um Alexand-
er og teiknimyndasöguhöfundur-
inn Frank Miller gerði myndasög-
una 300 fyrir nokkrum árum og
byggði hana á stríði Persa og
Grikkja sem átti sér stað um 150
árum áður en Alexander kom til
sögunnar og hefndi harma
Grikkja í þeirri viðureign. Sagan
segir að Miller sé með myndasögu
um Jesú í vinnslu núna og hún
verður að öllum líkindum teiknuð
í sama stíl og 300 þannig að þeir
sem vilja flýja brjálaðan nútím-
ann aftur til fornaldar þegar
mannsandinn reis sem hæst eiga
eftir að hafa í mörg hús að venda
á næstunni.
thorarinn@frettabladid.is
Maður hefur nú svo sannarlegaáhyggjur af því hvernig það
verður unnið úr þessu efni. Það er
satt að segja kvíðaefni,“ segir Sig-
urður A. Magnússon rithöfundur
um þá flóðbylgju kvikmynda sem
byggja á efni aftur úr fortíð Grikk-
lands en tvær kvikmyndir um
Alexander mikla eru í vinnslu og
verið er að leggja lokahönd á frá-
gang stórmyndar sem byggir á
Illionskviðu Hómers.
„Ég kann nú enga einhlíta skýr-
ingu á þessari vakningu aðra en
kannski þá að menn séu orðnir
þreyttir á þessum ofurhetjum
samtímans sem hafa drottnað yfir
öllum hasarmyndum frá
Hollywood og vilji fara að leita í
eitthvað manneskjulegra. Annars
er mjög erfitt að skýra þetta en
þetta hefur verið lifandi hefð og
lifandi bókmenntir í 2.800 ár og
það er náttúrlega búið að gera alls
konar myndir, heimildarmyndir og
skrifa heil ósköp um þetta.
Kannski er þetta merki um það að
þeir séu að verða menningarlegri í
Hollywood og vakna til vitundar
um menningarlegt hlutverk sitt og
það væri mjög gleðilegt ef það
væri málið.“
Sigurður segir að það sé engin
spurning að kappar á borð við Al-
exander og Akkiles beri höfuð og
herðar yfir hasarhetjur nútímans.
„Þeir eru miklu stórbrotnari per-
sónur, alveg hiklaust. Alexander
er náttúrlega svo margbrotinn og
sérkennilegur persónuleiki að
hann er endalaust efni í umfjöllun.
Akkiles hefur alltaf legið óbættur
hjá garði en hann er samkvæmt
kenningum mjög klárra manna
einn mesti friðarpostuli heimsbók-
menntanna. Því allt hans líf í öllu
þessu samhengi gengur út á það
að reyna að stilla til friðar og
komast hjá því að berjast og hann
situr grenjandi og grátandi. Þetta
hefur aldrei verið sett á oddinn
og hann hefur aldrei verið túlkað-
ur í þessa veru og það verður
gaman að sjá hvort þeir leggi
þetta þannig út í Hollywood.“ ■
28 7. desember 2003 SUNNUDAGUR
Vinsældir bíómyndarinnar Gladiator virðast hafa vakið upp klassíska bylgju í Hollywood en tvær myndir um Alexander mikla eru
væntanlegar, auk stórmyndar um Trójustríðið og annarrar um ævi Jesú Krists. Þá hafa bókmenntirnar ekki farið varhluta af sveifl-
unni og rithöfundar eru farnir að sækja stíft í fortíðina.
Mikilmenni aftur í tísku
ALEXANDER MIKLI
Colin Farrell er hér í hlutverki hernaðarsnillingsins unga í mynd Olivers Stone. Angelina Jolie leikur móður hans og Val Kilmer fer með
hlutverk föður hans, Filippusar Makedóníukonungs. Leondardo DiCaprio hefur einnig verið ráðinn til að leika kappann en í þeirri mynd
mun Nicole Kidman leika móður Alexanders.
Alvöru töffarar
í sandölum
AKKILES
Þokkatröllið Brad Pitt leikur þennan
fræknasta kappa fornaldar í nýrri stórmynd
Wolfangs Petersen um Trójustríðið. Grikk-
landsvinurinn Sigurður A. Magnússon segir
engum blöðum um það að fletta að hetjur
á borð við Akkiles og Alexander séu miklu
magnaðri persónur en hasarhetjur
samtímans.
Alexander er
náttúrlega svo marg-
brotinn og sérkennilegur
persónuleiki að hann er
endalaust efni í umfjöllun.
,,
COLIN FARRELL
Leggur heiminn að fótum sér í mynd
Alexanders mikla í nýrri mynd Olivers Sto-
ne en áætlanir um að láta Leonardo
DiCaprio gerir slíkt hið sama með stuðn-
ingi leikstjórans Baz Luhrman eru í upp-
námi vegna fjármögnunarerfiðleika.
SKYLMINGAÞRÆLLINN
Velgengni Maximusar í hringleikahúsinu, miðasölunni og á Óskarsverðlaunahátíðinni hef-
ur hrint af stað bylgju kvikmynda sem sækja efni við sinn aftur til klassískrar fortíðar.
Ástralinn Russell Crowe lék Maximus sem hvatti menn sína áfram með þeim orðum að
það afrek þeirra í lífinu myndi bergmála í eilífðinni. Það var nokkuð til í þessu hjá hetj-
unni en á næsta ári munu sigrar Alexanders mikla, Jesú Krists, Akkilesar og Odysseifs
verða að veruleika á hvíta tjaldinu.
SIGURÐUR A. MAGNÚSSON
„Það er merkilegt hvernig þetta smitast út og hversu mörg verk steypast yfir mann á sama
tíma og ég vona að þetta sé til marks um að það sé loksins að koma einhver menningar-
sveifla frá Hollywood.“