Fréttablaðið - 07.12.2003, Page 29
29SUNNUDAGUR 7. desember 2003
Ég er nú bara búinn að lesafyrstu bókina og það er mjög
gaman að þessu,“ segir Óttarr
Proppé í deild erlendra bóka hjá
Máli og menningu um þríleik
Valerio Massimo Manfredi um
Alexander mikla. „Það hefur ver-
ið dálítið um afturhvarf til gamal-
dags sögulegra skáldsagna undan-
farið og þessar bækur um
Alexander eru sem betur fer
nokkuð vinsælar og hafa selst
ágætlega hjá okkur.“
Fleiri hetjur fornaldar hafa lát-
ið til sín taka að undanförnu og
Óttarr nefnir sérstaklega bóka-
flokkinn um Ramses eftir
Christian Jacq en þar fjallar höf-
undurinn um ævi þessa konungs
hins forna Egyptalands og býður
upp á rómantík, svik og flækjur
sem hafa heillað lesendur og kom-
ið Ramsesi ofarlega á metsölu-
lista í Evrópu. Þar fyrir utan hef-
ur forngríska morðgátan Skugga-
leikir eftir José Carlos Somoza
notið mikilla vinsælda og DaVinci
Lykilinn hefur heldur betur slegið
í gegn en þar er á ferðinni
æsispennandi nútímasakamála-
saga sem hverfist utan um frá-
sagnir af ævi Jesú Krists.
„Það er mjög skemmtilegt að
sjá hvernig þetta er að koma til
baka,“ segir Óttarr, „en bækur af
þessu tagi voru mjög vinsælar
fyrir svona 30 til 50 árum og Ben
Húr var til dæmis mest selda bók
allra tíma hér áður fyrr. Það er
eins og þetta sé að koma aftur og
sjálfsagt hefur bíóið eitthvað með
það að gera.“ ■
ÓTTARR PROPPÉ
„Ég hef bara ekki komist til þess að lesa
nema fyrstu bókina um Alexander og á
eftir að koma mér til þess að klára þetta.
Annars er það spurning hvort maður bíði
bara ekki eftir þessum bíómyndum og láti
þær kveikja í sér.“
Það hefur verið
dálítið um afturhvarf
til gamaldags sögulegra
skáldsagna undanfarið.
,,
Bíð bara eftir
myndunum F
RÉ
TT
AB
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
HUGLEIKUR DAGSSON
„Ef ég á að segja alveg eins og er held
ég að Colin Farrell verði betri Alexander
en Leonardo DiCaprio.“
Skylmingar
eru málið
Teiknimyndasöguhöfundur-inn Frank Miller er þunga-
viktarmaður í sínum bransa og
blés meðal annars eftirminni-
lega lífi í Daredevil-myndasög-
urnar og fór á kostum í hráum
og ruddalegum glæpasögum
kenndum við Sin City. Eitt
magnaðasta verk hans á síðustu
árum er myndasagan 300 sem
greinir frá frækilegustu vörn
mannkynssögunnar þegar
Leonídas Spartverjakonungur
mætti ofurefli Persa ásamt 300
manna úrvalsliði sínu í Lauga-
skörðum árið 480 fyrir Krist.
„Frank Miller er að gera
Jesúsögu núna og ég bíð
spenntur en ég held að hún sé í
sama stíl og 300,“ segir Hug-
leikur Dagsson, kvikmynda-
gagnrýnandi og myndasögu-
spekingur. „Mér finnst Miller
vera svolítið mikill Grikki.
Hann var alltaf að láta alla vera
allsbera í Sin City, til dæmis,
þannig að hann er alltaf með
þessa líkama. Líka í ofurhetju-
myndasögunum.“
Hugleikur segist ekki vita til
þess að mönnum hafi látið sér
detta til hugar að kvikmynda
300 en það kæmi honum ekki á
óvart þar sem hún sé mjög vel
til þess fallin og myndi falla vel
að þeim fornaldarmyndum sem
eru væntanlegar.
„Ég held að Gladiator hafi
komið þessari bylgju af stað
enda er hægt að láta þennan
forna heim líta svo rosalega vel
út í dag. Annars eru einhvers
konar períóður vinsælar núna
ef maður fer að spá í þessu sér-
staklega. Þegar farið er svona
langt aftur í tímann er hægt að
nálgast þetta eins og fantasíu
og Trója er til dæmis bara fan-
tasía. Lord of the Rings á því
líka örugglega einhvern þátt í
þessari vakningu með alla sína
rosalegu heri og skylmingar.
Ég held bara að þetta sé málið
núna.“ ■
MYNDASAGAN 300
Orustan við Laugarskörð árið 480 f.kr
hentaði Miller fullkomlega og hann fer
hamförum þegar hann teflir berrössuð-
um vöðvatröllum fram á síðum bókar-
innar.