Fréttablaðið - 07.12.2003, Page 32
Auðvitað er annríki hjá okkurklerkum á þessum árstíma en
það er líka hjá mörgum öðrum,“
segir Jón Helgi Þórarinsson,
prestur í Langholtskirkju. Við
hittum á sr. Jón Helga heima við
því yngsti sonurinn var lasinn en
sr. Jón á þrjá syni, 8, 16 og 20 ára,
sem allir eru í foreldrahúsum.
Eins og aðrir þarf því sr. Jón að
hugsa fyrir samverustundum með
fjölskyldunni og kveðst reyna að
fylgjast með því sem tengist skól-
anum hjá yngsta syninum, steikja
laufabrauð og taka þátt í jóla-
gjafakaupum og jólakortaskrif-
um. Nú orðið byrji hann að huga
að skipulagningu starfsins í kirkj-
unni á aðventu og jólum, strax um
miðjan nóvember. Athuga hvaða
viðburðum honum beri að taka
þátt í og hvaða athafnir séu
framundan. „Þetta skiptir miklu
máli því með þessu næ ég betri
yfirsýn. Margir þurfa líka á við-
tölum að halda því jólin eru erfið
þeim sem eiga erfitt,“ segir hann.
Jón gerir meira en vera í hlut-
verki prestsins í kirkjunni sinni
því hann syngur líka í Lang-
holtskórnum og eiginkona hans,
Margrét Einarsdóttir, einnig.
„Kórinn heldur þrenna tónleika
síðustu helgina fyrir jól þannig að
því fylgir talsverður undirbúning-
ur en hann er líka gefandi og kem-
ur manni í hátíðaskap. „Þarna
andar maður að sér boðskapnum
sem nýtist manni svo í öðrum
verkum,“ segir hann. En er ekki
erfitt fyrir presta að finna alltaf
eitthvað nýtt að segja um það sem
gerðist á jólum? „Jú, það má
kannski segja það, en ég safna að
mér efni í hugvekjur og ræður í
aðdraganda jólanna. Það hjálpar
líka að messurnar um hátíðarnar
eru hver með sínu móti. Á að-
fangadagskvöld er fjölskyldan öll
í kirkjunni og ræðan miðuð við
það. Í messunni á jólanótt er
kyrrðin komin á og á margan hátt
finnst mér sú stund hápunktur
hátíðarinnar - og predikunin á
jóladag er oft sterk hugvekja fyr-
ir fullorðna, þar sem jólaboðskap-
urinn er tengdur samtíðinni. En
ég vil líka geta þess að fleiri
prestar koma til með að predika í
messum hjá mér en ég sjálfur.“
Eina ofurveraldlega spurningu
fær sr. Jón að lokum. Hvað ætlar
hann að snæða á aðfangadags-
kvöld? „Við höfum yfirleitt haft
hamborgarhrygg og drengirnir
eru mjög hrifnir af honum en nú
verður samt breytt til og borðað
hreindýr.“
gun@frettabladid.is
Blaðauki Fréttablaðsins um undirbúning jólanna
jólin koma
á Sony
You make it a Sony
Kaup
nglu 88 7669 info
17A
nnar sunnudagur í aðventu. Í dag er
gott að gleyma veraldlegum undirbún-
ingi jólanna og snúa sér að hinum and-
lega. Fara til dæmis í kirkju með fjöl-
skylduna. Börnin hafa nefnilega gaman af því þeg-
ar kveikt er á kertunum í aðventukransinum. Auk
þess eru aðventukvöld í vel flestum kirkjum þan-
nig að úr mörgu er að velja.
Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: jol@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is.
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
'
20
03
Fæst um land allt
Dreifingara›ili:
Tákn heilagrar
flrenningar
Til styrktar
blindum
Tilvalinjólagjöf
NÚ ER LÍKA OPIÐ Í
HÁDEGINU!
Réttur dagsins í dag er ristaður
karfi með bönunum og kókos á
670 kr. og stór bjór er á tilboði
í hádeginu á aðeins 350 kr.
SUÐRÆNT ELDHÚS
– á suðrænu verði –
Turnhúsinu Tryggvagötu
sími 511 1314 - www.casagrande.is
h
a
u
s
v
e
r
k
Desember hjá sr. Jóni Helga Þórarinssyni:
Messan á jólanótt há-
punktur hátíðarinnar
Digraneskirkja: Aðventuhátíð
verður í kvöld og hefst kl. 20.30.
Stjórnun og undirbúningur er í
höndum KFUM&K. Ræðumaður
er Leifur Sigurðsson. Málefni
kvöldsins er Kristniboðs-
sambandið.
Dómkirkjan: Í tilefni þess að ljós-
in verða tendruð á jólatrénu á
Austurvelli kl. 15.30 verður kirkj-
an opin og foreldrafélag barna-
kórsins verður með kakósölu í
kirkjuanddyrinu. Í kvöld kl. 20 er
svo ljóðakvöld í Safnaðarheimil-
inu. Þar munu Ísak H. Harðarson
og Ágústína Jónsdóttir flytja ljóð
sín. Umsjón er í höndum sr.
Hjálmars.
Hjallakirkja: Aðventutónleikar
Kórs Hjallakirkju eru kl. 20 í
kvöld. Kórinn flytur aðventu- og
jólalög frá ýmsum tímum og
löndum, m.a. allt tónverkið Að-
fangadagskvöld jóla eða Kirkjan
ómar öll eftir Kaldalóns. Ein-
söngvari með kórnum er Garðar
Thor Cortes, óperusöngvari, og
Lenka Mátéová leikur undir á
orgel. Söngstjóri er Jón Ólafur
Sigurðsson. Aðgangur er ókeypis
og allir velkomnir.
Jólakaffi Hringsins:
Fjölbreytt
dagskrá
Ídag, sunnudaginn 7. desember,er hið árlega jólakaffi kven-
félagsins Hringsins haldið á
Broadway klukkan 13.30. Að
vanda verður fjölbreytt skemmti-
dagskrá en meðal þeirra sem
fram koma eru Sigríður Bein-
teinsdóttir, Solla stirða, nemendur
úr Dansskóla Auðar Haralds og
Páll Rósinkrans. Þá verður happ-
drætti með góðum vinningum frá
ýmsum fyrirtækjum sem hafa
gefið af miklum rausnarskap.
Nýr barnaspítali var vígður á
þessu ári en þá var langþráðu
markmiði Hringskvenna náð. Enn
eru þó verkefnin óþrjótandi við að
bæta hag veikra barna á Íslandi og
aðstandanda þeirra. Það er tilvalin
skemmtun fyrir alla fjölskylduna
að mæta í jólakaffið og um leið er
verið að styrkja gott málefni. Allur
ágóði rennur til styrktar veikum
börnum á Íslandi og eru allir vel-
unnarar Barnaspítala Hringsins
hvattir til að mæta. ■
■ Í aðdraganda jóla
SR. JÓN HELGI ÞÓRARINSSON
Byrjar að skipuleggja starfið í kirkjunni á aðventu og jólum strax um miðjan nóvember.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T