Fréttablaðið - 07.12.2003, Qupperneq 33
Í dag klukkan 16 verða jólaljósintendruð á Óslóartrénu á Austur-
velli. Hálf öld er liðin síðan Norð-
menn færðu Íslendingum í fyrsta
sinn grenitré að gjöf til að skreyta
Reykjavík og í ár eins og undan-
farin ár verða ljósin tendruð á
trénu við hátíðlega athöfn.
Dagskráin hefst klukkan 15.30
með að því að Lúðrasveit Reykja-
víkur spilar jólalög. Þá syngur
Dómkórinn tvö lög en að því búnu-
mun Kari Pahle, borgarfulltrúi og
formaður menningar- og mennta-
málanefndar Óslóar, færa borgar-
stjóra, Þórólfi Árnasyni, og öðrum
Reykvíkingum tréð að gjöf. Alex-
ander Örn Númason, 10 ára,
kveikir ljósin á trénu, en fyrir ná-
kvæmlega 20 árum kveikti móðir
hans, Carolin Guðbjartsdóttir,
ljósið á trénu á Austurvelli.
Þá hefst dagskrá á sviði við
hlið Alþingishússins. Felix Bergs-
son leikari skemmtir og Lilli klif-
urmús heilsar upp á viðstadda, en
að lokum koma þrammandi í mið-
bæinn nokkrir kátir jólasveinar
sem brenna af löngun að fá að
hitta reykvísk börn. Kynnir er
Gerður G. Bjarklind. ■
33SUNNUDAGUR 7. desember 2003
Ford Focus C-Max, sjálfskiptur.
Verðmæti 2.370.000 kr.
Bifreið eða greiðsla upp í íbúð.
Verðmæti 1.000.000 kr.
Úttekt hjá ferðaskrifstofu
eða verslun.
Hver að verðmæti 100.000 kr.
www.krabb.is
Vertu með og styrktu gott málefni
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
|
Y
D
D
A
/
s
ia
.i
s
N
M
1
0
8
1
7
Glæsilegir
Aðventudagatal kirkjunnar:
Ber með sér fagran boðskap
Jólalög heyrðust sungin og veriðvar að koma músastiga fyrir í
ganginum á leikskólanum Hlíða-
borg í Eskihlíð þegar blaðmaður
og ljósmyndari smeygðu sér þar
inn. Aðalerindið var að fylgjast
með upplestri úr aðventudagatali
sem Skálholtsútgáfan hefur gefið
út og starfsfólk kirkjunnar hefur
dreift á allar deildir leikskóla.
Börnin á deildinni Drekahlíð
voru að koma sér fyrir í leshorn-
inu. Þau voru prúð og settust þétt
saman. Guðrún Jóna Pálsdóttir
sýndi þeim mynd dagsins á daga-
talinu og svo setti hún upp fingur-
brúðuna Stjörnu og leyfði öllum
börnunum að strjúka henni létt.
Stjarna var að heilsa. Lesningin á
dagatalinu snýst nefnilega um
litlu gimbrina Stjörnu sem kemur
í heimsókn á hverjum degi og tal-
ar til barnanna og kennaranna.
Efnið hefur bæði skemmti- og
fræðigildi og sagan hefur sterkan
siðferðislegan boðskap. Inn í sög-
una fléttaðist vers og Guðbjörg
Jóna og börnin rauluðu þýtt Við
kveikjum einu kerti á. ■
Ljósin tendruð á Óslóartrénu:
Fjölbreytt dagskrá á Austurvelli
JÓLATRÉ Á AUSTURVELLI
Jólasveinar, kórar og lúðrasveitir verða í
miðbæ Reykjavíkur í dag þegar kveikt
verður á jólatrénu á Austurvelli.
Í DREKAHLÍÐ
Börnin sátu þétt saman og hlustuðu með athygli á söguna hennar Stjörnu.