Fréttablaðið - 07.12.2003, Page 39
HANDBOLTI Haukar hirtu annað
sæti Remax-deildar kvenna úr
höndum Valsstúlkna með góðum
sigri að Hlíðarenda í gær, 19-18.
Þessi tvö lið hafa ásamt ÍBV
skipað sér í sérflokk í deildinni
og virðast ætla að gera út um
deildarbaráttuna sín á milli og
sigur Haukastúlkna í gær var
því afar mikilvægur. Hafnar-
fjarðarliðið hóf leikinn af mikl-
um krafti og hafði yfirhöndina
lengstum í fyrri hálfleik, þær
létu það ekki slá sig alfarið út af
laginu að Valsstúlkur tóku tvær
þeirra úr umferð og Valur náði
aðeins einu sinni að jafna metin,
6-6. Þegar flautað var til leik-
hlés var munurinn tvö mörk, 10-
8, fyrir Hauka. Stuðningsmenn
Vals hafa væntanlega reiknað
með að þeirra lið mætti einbeitt
til síðari hálfleiks, en það voru
Haukar sem hófu síðari hálfleik-
inn betur og náðu fljótlega fjög-
urra marka forystu. Valsstúlkur
voru ekki á því að gefa sitt eftir
baráttulaust og þeim tókst hægt
og bítandi að saxa á þetta for-
skot Haukanna. Þetta bauð upp á
ansi spennuþrungnar lokamín-
útur; Valsstúlkum tókst að
minnka muninn í eitt mark und-
ir lokin en nær komust þær ekki
þrátt fyrir nokkur ágæt tæki-
færi og Haukar fögnuðu ákaft í
leikslok. Ramune Pekarskyte
var einu sinni sem fyrr marka-
hæst hjá Haukunum með sjö
mörk, en hefur reyndar oftast
náð betri skotnýtingu, og Ragn-
hildur Guðmundsdóttir átti
ágætan leik og skoraði sex
mörk. Þá varði Kristina
Matuzeviciute vel í markinu,
alls 20 skot, og var að öðrum
ólöstuðum besti maður Hauka.
Gerður Beta Jóhannsdóttir,
Hafrún Kristjánsdóttir og Sig-
urlaug Rúnarsdóttir skoruðu
fjögur mörk hver fyrir Val og
Berglind Hansdóttir varði 19
skot í markinu. ■
39SUNNUDAGUR 7. desember 2003
HANDBOLTI Valsmenn tryggðu sér í
gær sæti í úrvalsdeildinni í hand-
knattleik eftir áramót, en sætið þar
tryggðu þeir endanlega með sigri á
Fram í Safamýrinni, 27-21. Vals-
menn fara ásamt KA, Fram og
Gróttu/KR upp í úrvalsdeildina úr
norðurriðli Remax-deildar karla, en
Víkingur verður í 1. deild rétt eins
og Afturelding og Þór. Sigur Vals-
manna á Frömurum var nokkuð
sannfærandi og í raun aldrei í hætt.
Markús Máni Michaelsson var
markahæstur Valsmanna með sjö
mörk og þeir Hjalti Pálmason og
Hjalti Gylfason gerðu sex mörk
hvor, en hjá Fram skoraði Valdimar
Þórsson sjö mörk og Jón Björgvin
Pétursson skoraði sex mörk. ■
MARKÚS LÉT TIL SÍN TAKA
Markús Máni Michaelsson skoraði sjö
mörk þegar Valsmenn unnu Framara og
tryggðu sér þar með sæti í úrvalsdeildinni í
handknattleik eftir áramót.
Valsmenn komnir í úrvalsdeildina
REMAX-DEILD KARLA
NORÐURRIÐILL
Föstudagur
Grótta/KR - Afturelding 24-23
Víkingur - KA 31-29
Laugardagur
Fram - Valur 21-27
Staðan
1. Valur 11 7-2-2 16
2. KA 11 6-2-3 14
3. Grótta/KR 11 6-2-3 14
4. Fram 11 6-2-3 14
5. Víkingur 12 6-2-4 14
6. Afturelding 11 2-1-8 5
7. Þór 11 0-1-10 1
REMAX-DEILD KARLA
SUÐURRIÐILL:
Föstudagur
ÍR - Stjarnan 28-26
Selfoss - Haukar 29-42
Staðan
1. ÍR 14 11-2-1 24
2. Haukar 13 9-1-3 19
3. HK 12 8-1-3 17
4. Stjarnan 13 7-1-5 15
5. FH 11 6-0-5 12
6. ÍBV 12 3-1-8 7
7. Breiðablik 12 2-0-10 4
8. Selfoss 13 1-0-12 2
STÓÐ FYRIR SÍNU
Kristina Matuzeviciute lagði grunninn að góðum sigri Hauka á Val með því að verja 20
skot í markinu.
Remax-deild kvenna í handknattleik:
Haukar
höfðu betur
í slagnum
REMAX-DEILD KVENNA
Úrslit föstudag
Fram - Víkingur 19-25
Úrslit laugardag
Valur - Haukar 18-19
Grótta/KR - Stjarnan 23-18
KA/Þór - Fylkir/ÍR 31-28
Staðan
1. ÍBV 12 11-0-1 22
2. Haukar 13 10-1-2 21
3. Valur 12 9-1-2 19
4. FH 13 7-0-6 14
5. Stjarnan 12 7-0-5 14
6. Grótta/KR 12 4-2-6 10
7. Víkingur 12 4-1-7 9
8. KA/Þór 13 4-1-8 9
9. Fylkir/ÍR 12 1-0-11 2
10. Fram 11 1-0-10 2
JASON KIDD
Kidd var mjög ósáttur við frammistöðu
dómaranna í leiknum gegn Memphis.
Kidd sektaður:
Blótaði
dómurum
NBA Jason Kidd, leikmaður New
Jersey Nets, hefur verið sektaður
um 800 þúsund krónur fyrir að
blóta dómurum og gagnrýna þá í
leik gegn Memphis Grizzlies.
Kidd missti boltann tvisvar og
mistókst að hitta úr tveimur víta-
skotum á lokamínútum leiksins,
sem Nets tapaði með þremur stig-
um. Kidd var mjög ósáttur við
frammistöðu dómaranna í leikn-
um og fannst að brotið hefði verið
á sér þegar hann missti boltann.
Ólíklegt verður að teljast að
sektin muni hafa veruleg áhrif á
fjárhag leikmannsins sem er með
tugi milljóna í árslaun. ■
Á FLEYGIFERÐ
Hermann Maier hafði ekki sigrað í bruni
síðan í mars árið 2001.
Heimsbikarinn í bruni:
Óvæntur
sigur Maier
SKÍÐI Austurríski skíðamaðurinn
Hermann Maier kom geysilega á
óvart í gær þegar hann sigraði í
bruni á heimsbikarmótinu í Bever
Creek í Colorado í Bandaríkjun-
um.
Þetta var fyrsti sigur Maier í
bruni síðan í mars árið 2001, en í
ágúst það ár lenti hann í alvarlegu
mótorhjólaslysi. Maier bar meðal
annars sigurorð af samlöndum
sínum Hans Knauss og Andreas
Schifferer, sem lentu í öðru og
þriðja sæti. Maier er greinilega
kominn aftur í sitt góða form, því
fyrir viku sigraði hann í risastór-
svigi í Lake Louise í Kanada. ■
Hungurverkfall í
Hondúras:
Fá ekki
borguð laun
FÓTBOLTI Átján knattspyrnumenn sem
leika með Patepluma í fyrstu deild-
inni í Hondúras eru í hungurverkfall
til að mótmæla bágum kjörum.
Leikmennirnir hafa ekki fengið
greidd laun í fjóra mánuði og segja
félagið skulda sér samtals þrjár
milljónir króna. Þeir hafa verið án
matar í sex daga. Forsvarsmenn
liðsins segjast hafa reynt allt til að
stöðva hungurverkfallið, meðal ann-
ars hafi þeir selt bifreið í eigu fé-
lagsins á rúmar 800 þúsund til að
greiða upp í launaskuldina. Leik-
mennirnir hafi neitað að taka við
peningunum. ■