Fréttablaðið - 07.12.2003, Side 40
40 7. desember 2003 SUNNUDAGUR
ALMENNILEG „SNJÓÞOTA“
Heimsbikarmót í bobsleðum stendur nú
yfir í Lake Placid í Bandaríkjunum.
Bobsleðar
FÓTBOLTI David Beckham, fyrirliði
enska landsliðsins í knattspyrnu
og leikmaður Real Madrid á Spáni,
hefur blásið á sögusagnir um að
hann og Victoria spúsa hans eigi
erfitt með að höndla lífið í Madrid
og að hann sé farinn að hugsa sér
til hreyfings. Meint óhamingja á
að vera farin að hafa áhrif á leik
Beckhams með Real Madrid, en
þeir sem til þekkja þurfa ekki ann-
að en að líta á frammistöðu hans
með spænska risanum til að sjá að
svo er alls ekki. „Ég verð hjá Real
Madrid eins lengi og forráðamenn
liðsins vilja hafa mig,“ sagði Beck-
ham, „og ég er alls ekki farinn að
hugsa mér til hreyfings“. Bolta-
spekúlantar hafa farið mikinn í því
að reyna að spá fyrir um hvaða
stjörnu Real Madrid kaupir í janú-
ar og þótt varnarleikurinn sé
kannski stærsti höfuðverkur liðs-
ins veðja flestir á framherja.
Thierry Henry og Michael Owen
hafa oftast verið nefndir til sög-
unnar og Beckham bætti fyrrver-
andi félaga sínum Ruud Van Ni-
stelrooy í þennan hóp. „Það er ekki
mitt að segja hvort ég vil leika með
Henry, Owen eða Van Nistelrooy.
Þessir leikmenn eru allir samn-
ingsbundnir, þannig að það er best
að ég segi sem minnst fyrr en mál-
in eru í höfn,“ sagði Beckham. ■
Óbreytt staða efstu liðanna í þýska boltanum:
Stuttgart er taplaust
eftir fimmtán leiki
FÓTBOLTI Stuttgart er enn ósigrað í
þýsku Bundesligunni í knatt-
spyrnu eftir 15 umferðir, en í gær
mátti Stuttgart þó sætta sig við
markalaust jafntefli gegn HSV á
heimavelli. Stuttgart sótti linnu-
lítið í leiknum, en það var nokk
sama hvað þeir buðu upp á, inn
vildi boltinn ekki. Werder Bremen
er sem fyrr í öðru sæti eftir jafn-
tefli gegn Bayern München á
heimavelli, 1-1. Ailton kom heima-
mönnum yfir með marki úr víta-
spyrnu, en Claudio Pizarro jafnaði
metin fyrir Bayern þegar 11 mín-
útur voru til leiksloka og Bayern
situr sem fastast í fjórða sæti
deildarinnar. Bayer Leverkusen
er í þriðja sæti og á leik til góða;
leik Leverkusen og Kölnar var
frestað og með sigri þar getur
Leverkusen skotist upp í annað
sæti deildarinnar. Dortmund og
Hertha Berlin skildu jöfn, 1-1, þar
sem Leandro kom Dortmund yfir
en Alexander Madlung jafnaði
metin fyrir Berlínarliðið og Boch-
um fékk skell gegn Freiburg. Eft-
ir 23 mínútna leik var staðan orð-
in 3-2 fyrir Freiburg, Roda Antar
var þá búinn að skora tvívegis
fyrir heimamenn og Wilfried
Sanou einu sinni, en Vahid Has-
hemian og Peter Madsen fyrir
Bochum. Roda Antar fullkomnaði
svo þrennuna þegar skammt var
til leiksloka og Freiburg vann 4-2.
Hansa Rostock gerði góða ferð til
München og hafði þar sigur á 1860
München, 4-1, og Wolfsburg vann
Kaiserslautern sömuleiðis 4-1 þar
sem Ítalinn Francesco Baiano
skoraði þrennu. ■
Björgvin í 3.
sæti
í Noregi
SKÍÐI Björgvin Björgvinsson,
skíðamaður frá Dalvík, varð í
þriðja sæti á alþjóðlegu svigmóti í
Rjukan í Noregi í gær. Björgvin
gerði smávægileg mistök í fyrri
ferðinni og þau kostuðu
dýrmættar sekúndur, en hins
vegar skíðaði hann vel í síðari
ferðinni og náði þá næstbesta
tímanum. Þetta dugði til að ná
þriðja sætinu sem Björgvin var að
sögn mjög sáttur við. Fyrsta sæt-
ið féll í skaut japansks skíða-
manns og Rússi varð í öðru sæti.
Keppendur voru alls 86 og um 50
þeirra luku keppni. ■
LEIKIR HELGARINNAR
1860 Munich - Hansa Rostock 1-4
Weissenberger 3 - Rydlewicz 8,
Max 17 (vsp), 80 Lantz 67
Bor. Dortmund - Hertha Berlin 1-1
Leandro 69 - Madlung 80
Eintr.Frankfurt - Hannover 96 2-2
Schur 17, Skela 64 (vsp) - Stendel 18,
Christiansen 87 (vsp)
SC Freiburg - VFL Bochum 4-2
Antar 2, 11, 79, Sanou 23
- Hashemian 12, Madsen 24
VfB Stuttgart - Hamburg 0-0
Werder Bremen - Bayern Munich 1-1
Ailton 58 (vsp) - Pizarro 79
Wolfsburg - FC Kaiserslautern 4-1
Baiano 23, 54, 55, Schnoor 90 (vsp)
- Knavs 13
STAÐAN:
Stuttgart 15 35
Werder Bremen 15 33
Bayer Leverkusen 14 31
Bayern München 15 29
Borussia Dortmund 15 24
VFL Bochum 15 22
Wolfsburg 15 21
SC Freiburg 15 21
Hannover 96 15 19
Hansa Rostock 15 18
1860 München 15 18
Schalke 14 17
Hamburg 15 17
FC Kaiserslautern 15 14
Borussia M’gladbach 14 13
Eintracht Frankfurt 15 12
Hertha Berlin 15 12
Köln 14 8
FJÖLÞJÓÐABARÁTTA
Í ÞÝSKA BOLTANUM
Portúgalinn Fernando Meira, sem leikur
með Stuttgart, á hér í höggi við Japanann
Naohiro Takahara, leikmann HSV, í leik
liðanna um helgina.
Mót þeirra bestu á Hawai:
Furyk með
örugga forystu
GOLF Jim Furyk er kominn langt
með að tryggja sér sigurinn á
„Grand Slam“ mótinu sem fer
fram á Poipu Bayvellinum á
Hawai, en mótinu lýkur í dag.
Aðeins fjórir keppendur taka
þátt í mótinu, en einungis sigur-
vegarar í fjórum stærstu mótum
ársins fá að taka þátt. Furyk, sem
sigraði á Opna bandaríska, lék á
67 höggum í gær og hefur fimm
höggu forystu á Mike Weir, sigur-
vegara á Masters, sem er í öðru
sæti. Ben Curtis, sem sigraði á
Opna breska, er sex höggum á
eftir Furyk og Shaun Micheel, sig-
urvegari á USPGA-mótinu, er átta
höggum á eftir Furyk. ■
FJÓRIR BESTU
Furyk hefur fimm högga forystu á „Grand Slam“ mótinu. Sigurvegarinn fær litlar milljón
dollara í sinn hlut.
BROSIR SÍNU BLÍÐASTA
David Beckham segist harla ánægður með
lífið og tilveruna í Madrid og þvertekur fyrir
að hann vilji yfirgefa herbúðir Real Madrid.
Beckham blæs á fréttir af óánægju