Fréttablaðið - 07.12.2003, Qupperneq 41
41SUNNUDAGUR 7. desember 2003
hvað?hvar?hvenær?
4 5 6 7 8 9 10
DESEMBER
Föstudagur
Opið:
Laug. 11 - 18
Sun. 13 - 18
Glæsilegir ítalskir leðurhornsófar
Sprengitilboð 70.000,- kr. afsláttur
Model IS 26.
Hornsófi
2 sæti+horn+2 sæti
Verð áður 239.000,- stgr.
Sprengitilboð
aðeins 169.000,-
Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-17 og sunnudaga 13-17
gæða húsgögn
Bæjarhrauni 12, Hf.,
sími 565-1234
Toppliðin töpuðu stigum
Manchester United sækir að Chelsea og Arsenal.
FÓTBOLTI Toppliðin í ensku úrvals-
deildinni í knattspyrnu, Chelsea
og Arsenal, töpuðu óvænt stigum
um helgina. Chelsea heimsótti
Leeds United, sem í margar vik-
ur hefur minnt meira á þokka-
lega sterkt firmalið en lið í efstu
deild á Englandi, og milljónaliðið
frá London mátti sætta sig við
jafntefli, 1-1. Arsenal-sveinninn
Jermaine Pennant kom Leeds
yfir í fyrri hálfleik og Damien
Duff jafnaði metin fyrir Chelsea
20 mínútum fyrir leikslok.
Arsenal heimsótti Leicester City
og þar kom Gilberto Silva gest-
unum yfir eftir klukkustundar
leik. Ashley Cole, bakvörður
Arsenal, fékk svo að líta rauða
spjaldið tólf mínútum síðar og
Leicester-menn nýttu sér það til
fullnustu; gamla brýnið Craig
Hignett jafnaði metin í blálokin,
1-1. Manchester United tók á
móti Aston Villa og lenti í raun
ekki í miklum vandræðum. Ruud
Van Nistelrooy skoraði tvívegis í
fyrri hálfleik og Diego Forlan
bætti við tveimur mörkum á
lokamínútum leiksins og
Manchester-sveinar unnu örugg-
an sigur, 4-0. Fulham skaust upp í
fjórða sæti úrvalsdeildarinnar
með 2-1 sigri á Bolton og greini-
legt er að Chris Coleman er að
gera eitthvað rétt. Kevin Davies
kom Bolton yfir á Loftus Road, en
Sean Davis og Facundo Sava
tryggðu Fulham öll stigin þrjú.
Liverpool er í fimmta sæti eftir,
1-1, jafntefli gegn Newcastle á St.
James Park, þar sem Danny
Murphy kom gestunum yfir
snemma leiks en Alan Shearer
jafnaði með marki úr vítaspyrnu.
Tottenham valtaði yfir Úlfana, 5-
2, þar sem Robbie Keane skoraði
þrennu og þeir Freddie Kanoute
og Stephane Dalmat sitt markið
hvor fyrir Spurs, en Paul Ince og
Alex Rae skoruðu mörk Úlfanna,
og Blackburn vaknaði hressilega
til lífsins með, 4-0, sigri á
Birmingham á útivelli. Barry
Ferguson, Lucas Neill, Tugay og
Paul Gallagher skoruðu mörkin
fyrir Rovers í leiknum. Middles-
boro og Portsmouth gerðu svo
jafntefli í eina markalausa leik
dagsins í ensku úrvalsdeildinni. ■
■ ■ LEIKIR
14.00 FH-ÍBV Remax-deild karla.
19.15 Breiðablik-HK Remax-deild
karla.
16.00 Valur-Þór Ak. 1. deild karla í
körfuknattleik.
19.15 Þór Þ.-Keflavík Intersport-
deildin í körfuknattleik.
■ ■ SJÓNVARP
12.30 Boltinn með Guðna Bergs á
Sýn.
12.40 Heimsmeistaramót ís-
lenska hestsins á RÚV.
13.45 Enski boltinn á Sýn. Bein
útsending frá leik Everton og
Man.City í ensku úrvalsdeildinni.
15.50 Enski boltinn á Sýn. Bein út-
sending frá leik Southampton og
Charlton í ensku úrvalsdeildinni.
17.05 Markaregn á RÚV.
17.50 Evrópumótaröðin í golfi á
Sýn. Sýnt frá Telefonica Open de
Madrid
21.00 Boltinn með Guðna Bergs
á Sýn.
21.50 Helgarsportið á RÚV. Fjallað
um það merkasta á sviði íþrótta,
bæði hér heima og erlendis.
22.30 Fréttaþáttur meistaradeild-
arinnar á Sýn.
VAN NISTELROOY REIMAÐI Á SIG SKOTSKÓNA
Leikmann Manchester United fagna hér markahróki
sínum, Ruud Van Nistaelrooy, sem skoraði tvö mörk í
sigrinum á Aston Villa í gær.
FÓTBOLTI Sven-Göran Eriksson,
landsliðsþjálfari Englendinga í
knattspyrnu, hefur hingað til verið
þögull sem gröfin þegar framtíð
hans sem landsliðsþjálfara og
tengsl við Chelsea hafa borið á
góma. Forráðamenn enska knatt-
spyrnusambandsins hafa sem
kunnugt er boðið Eriksson að fram-
lengja samning sinn við landsliðs-
þjálfarann til ársins 2008 og þetta
tilboð er ekki síst tilkomið vegna
látlausra sögusagna um það að Sví-
inn knái taki áður en langt um líður
við stjórastöðunni hjá Chelsea.
Eriksson tjáði sig loksins um þetta
mál um helgina og sagðist í stuttu
máli ætla að stýra enska landslið-
inu til ársins 2006 í það minnsta.
Þetta verða að teljast dapurleg tíð-
indi fyrir Roman Abramovich,
Chelsea-eiganda, en Eriksson sagð-
ist einfaldlega ekki sjá verðugra
verkefni í boltanum í dag. ■
VILL STÝRA ENSKU SKÚTUNNI TIL ÁRSINS 2006
Sven-Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englendinga, segist ekki að svo komnu máli hafa
áhuga á að taka við stjórastarfinu hjá Chelsea.
Sven-Göran og enska landsliðið:
Verður hann
áfram?