Fréttablaðið - 07.12.2003, Page 42
■ ■ KVIKMYNDIR
15.00 Kvikmyndin „Maður með
kvikmyndatökuvél“ frá árinu 1929 eftir
einn af frumherjum kvikmyndalistarinn-
ar, Rússann Dziga Vértov, verður sýnd í
bíósal MÍR, Vatnsstíg 10. Þetta er fræg-
asta verk Vértovs, einstakt og nýstárlegt
enn í dag.
■ ■ TÓNLEIKAR
15.00 Harmonikufélag Reykjavík-
ur heldur létta harmonikutónleika í
Ráðhúsi Reykjavíkur.
17.00 Kvennakór Reykjavíkur flyt-
ur ásamt Diddú jólaperlur í Langholts-
kirkju.
17.00 Jólatónleikar Kvennakórs
Hafnarfjarðar verða í Víðistaðakirkju.
17.00 Árleg Jólagleði Söngseturs
Estherar Helgu verður haldin í Karla-
kórshúsinu Ými við Skógarhlíð. Dagskrá-
in samanstendur af jólagospel og jóla-
lögum frá ýmsum áttum.
18.00 Saxófónleikararnir Jóel Páls-
son og Sigurður Flosason standa fyrir
útgáfutónleikum í Nýlistasafninu, Vatns-
stíg 3b. Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill á meðan húsrúm leyfir.
20.00 Jólatónleikar Mótettukórs
Hallgrímskirkju verða í Hallgrímskirkju.
Með kórnum syngur Elín Ósk Óskars-
dóttir sópran. Björn Steinar Sólbergsson
leikur á orgel og Hörður Áskelsson
stjórnar.
20.00 Kvennakór Reykjavíkur flyt-
ur ásamt Diddú jólaperlur í Langholts-
kirkju.
20.00 Kirkjukór Grensáskirkju
heldur tónleika í Grensáskirkju. flutt
verða aðventu- og jólalög frá ýmsum
tímum og þættir úr verkum eftir Vivaldi
og Bach.
20.00 Kór Lindakirkju í Kópavogi
heldur aðventukvöldvöku í Glersalnum
í Salahverfi.
20.00 Hörður Torfa heldur kerta-
ljósatónleika í Iðnó.
20.00 Aðventutónleikar Kórs
Hjallakirkju verða í Hjallakirkju, Kópa-
vogi. Einsöngvari Garðar Thor Cortes.
Orgelleikari Lenka Mátéová. Söngstjóri
er Jón Ólafur Sigurðsson.
21.00 Paul Lydon heldur útgáfu-
tónleika í Norræna húsinu. Tilefnið er
ný plata hans, Vitlaust hús.
■ ■ LEIKLIST
10.00 Hvar er Stekkjarstaur? eftir
Pétur Eggerz í Möguleikhúsinu við
Hlemm.
14.00 Lína Langsokkur eftir Astrid
Lindgren á stóra sviði Borgarleikhúss-
ins.
14.00 Dýrin í Hálsaskógi eftir
Thorbjörn Egner á stóra sviði Þjóðleik-
hússins.
14.00 Ævintýrið um Augastein
eftir Felix Bergsson í Tjarnarbíói.
14.00 Jólarósir Snuðru og Tuðru
eftir Iðunni Steinsdóttur, í leikgerð Pét-
urs Eggerz, verður sýnt í Möguleikhús-
inu við Hlemm.
16.00 Hvar er Stekkjarstaur eftir
Pétur Eggerz verður sýnt í Möguleik-
húsinu við Hlemm.
17.00 Dýrin í Hálsaskógi eftir
Thorbjörn Egner á stóra sviði Þjóðleik-
hússins.
20.00 Kvetch eftir Steven Berkoff í
Borgarleikhúsinu.
Jólarósir Snuðru og Tuðru eftir
Iðunni Steinsdóttur í Möguleikhúsinu
við Hlemm.
■ ■ SKEMMTANIR
21.00 Hera syngur í Húsi Silla og
Valda í Aðalstræti.
Eyfi og Stebbi með ljúfa og góða
tóna á Gauknum.
■ ■ FUNDIR
21.00 Upplestrarkvöld verður í
Alþjóðahúsinu við Hverfisgötu í tilefni
þess að í þessari viku eru liðin tvö ár frá
því starfsemi hófst í Alþjóðahúsinu. Gísli
Pálsson, Ólafur Gunnarsson, Ævar Örn
Jósepsson og Sölvi Björn Sigurðsson
lesa úr nýútkomnum bókum.
■ ■ SAMKOMUR
11.00 Listahátíð lesblindra verður
haldin í Háskólabíói.
13.00 Jólasýning Árbæjarsafns er
fastur liður í aðventunni hjá mörgum.
Þá gefst tækifæri til að fylgjast með
undirbúningi jólanna eins og hann var í
gamla daga: Kertagerð, laufabrauðs-
skurður, föndur, sögustund, gengið
kringum jólatré, jólasveinar, þessir
gömlu hrekkjóttu og margt fleira.
14.00 Jólaskemmtun MS félags
Íslands verður haldið í húsi MS félags-
ins, Sléttuvegi 5. Jólahappdrætti, jóla-
sveinn og góðar veitingar.
14.00 Bubbi Morthens mætir í
jólaþorpið á Thorsplani í Hafnarfirði og
tekur nokkur lög fyrir gesti. Jólasveinn
mætir á svæðið.
16.00 Aðventuhátíð líknar- og vina-
félagsins Bergmáls verður haldin í
Háteigskirkju. Sigrún Hjálmtýsdóttir
syngur einsöng og Skagfirska
söngsveitin syngur undir stjórn Björg-
vins Valdimarssonar.
16.00 Jólasveinar, Augasteinn og
fræg mús með gítar þegar ljósin verða
tendruð á Óslóartrénu á Austurvelli.
20.00 Ljóðakvöld á Kaffi List.
Fram koma Bjarni Bernharður, Eiríkur
Örn Norðdahl, Kristian Guttesen, Kristín
Eiríksdóttir, Margrét Lóa Jónsdóttir,
Margrét Hugrún, Ófeigur Sigurðsson og
Óttar M.N.
20.00 Hrókur alls fagnaðar, HAF,
verður í Hlaðvarpanum. Vigdís Gríms-
dóttir, Linda Vilhjálmsdóttir, Unnur Þóra
Jökulsdóttir, Hlín Agnarsdóttir, Kristín
Helga Gunnarsdóttir, Elín Pálmadóttir,
42 7. desember 2003 SUNNUDAGUR
hvað?hvar?hvenær?
4 5 6 7 8 9 10
DESEMBER
Sunnudagur
Það er óneitanlega nýtt fyrirokkur að koma svona naktir
fram,“ segir Jóel Pálsson, sem í
dag ætlar að halda tónleika í Ný-
listasafninu ásamt félaga sínum,
Sigurði Flosasyni.
Báðir eru þeir saxófónleikar-
ar, og verða reyndar ekki naktir í
bókstaflegri merkingu, heldur
ætla þeir á þessum tónleikum að
standa tveir einir og spila á ýms-
ar stærðir og gerðir af saxófón-
um, flautum og klarínettum.
„Við verðum sem sagt með
engin önnur hljóðfæri til að styð-
ja okkur, hvorki píanó, bassa né
trommur né neitt annað,“ segir
Sigurður.
Þeir voru að senda frá sér ný-
stárlegan geisladisk, Stikur, og
ætla að kynna fyrir áheyrendum
verk af honum. Á diskinum eru
frumsamdir dúettar, þar sem
þeir leyfa sér að gera alls kyns
tilraunir með hljóðfærunum.
„Mikið af þessu eru hreinir
spunar sem verða að miklu leyti
til á staðnum,“ útskýrir Sigurður.
Hann segir ýmsar tegundir til
af spuna, og á plötunni beiti þeir
„mjög frjálsum spuna“ þar sem
mjög lítið er fyrirfram gefið.
„Við fylgjum ekki neinu
ákveðnu formi, hvorki hljóma-
grind né rytma né neinu öðru.
Það er bara frjálst fall. Við leggj-
um bara af stað og svo endar það
einhvers staðar.“
Þegar svona er spilað hafa
þeir ekkert að styðjast við annað
en tóneyrað og meðspilarann.
„Þetta er músík sem virkar
ekki endilega eins og djass á
alla,“ bætir Sigurður við. „Við
erum að einhverju leyti komnir
út fyrir allar skilgreiningar,
sumt af þessu hljómar kannski
eins og eitthvað allt annað. Þetta
gæti alveg eins verið nýklassísk
tónlist, ambient raftónlist eða
eitthvað allt annað.“
Þeir Sigurður og Jóel eru báð-
ir á því að aðsókn á djasstónleika
sé yfirleitt frekar góð hér á
landi.
„Menn virðast vera mjög opn-
ir fyrir nýrri músík og tilrauna-
starfsemi,“ segir Jóel, „sem er
gott og heldur okkur náttúrlega á
tánum líka.“ ■
Koma naktir fram
Ég viðurkenni það fúslega aðhingað til hef ég látið bresku
sveitina Elbow fram hjá mér fara,
af einhverjum ástæðum. Það er
alltaf einhver gullkorn sem renna
manni úr greipum, þannig er það
bara. Hef aldrei heyrt fyrri plötu
sveitarinnar, Asleep in the Back,
og þannig fæ ég nýju plötuna í
hendurnar án þess að hafa saman-
burðinn, sem er kannski bara
gott.
Ef fyrri platan er eitthvað í lík-
ingum við þessa, þá verð ég að
drífa mig út í búð til kaupa hana.
Það er nefnilega sama frá hvaða
sjónarhornið nýja platan Cast of
Thousand er skoðuð, hún er öll
jafn fín. Fullkomlega löguð eins
og glerkúla, og líklegast jafn brot-
hætt í fegurð sinni.
Tónarnir minna nokkuð á
Doves, Talk Talk og kannski örlít-
ið á Travis. Gospel-ið blandast
brit-poppinu í hálf dramatískum
en þó upplífgandi lögum. Eff-
emm poppurum gæti fundist
sveitin örlítið „skrýtin“... þrátt
fyrir að tónarnir séu mjög vina-
legir og „útvarpsvænir“ (bið um
betra orð, takk!). Söngrödd Guy
Garvey minnir svolítið á Peter
Gabriel og Sting, þótt ótrúlegt
megi virðast, á jákvæðan hátt.
Lagasmíðar eru sterkar og lag-
línur fáranlega grípandi. Það er
ómögulegt að heyra lög á borð við
opnunarlagið Ribcage, Fugitive
Model, Snooks (Progress Report)
og Grace Under Pressure án þess
að heillast með.
Fyrsta flokks popp fyrir þenkj-
andi fólk.
Birgir Örn Steinarsson
Umfjölluntónlist
ELBOW:
Cast of Thousands
Hmm.. já, takk
SIGURÐUR FLOSASON OG JÓEL PÁLSSON
Ókeypis er inn á tónleika þessara snjöllu saxófónleikara í Nýlistasafninu í dag, þar sem þeir leika á ýmis tréblásturshljóðfæri verk
af nýútkomnum diski sínum.
■ TÓNLEIKAR
Gísli Marteinn
í Fríkirkjunni í Reykjavík
Aðventukvöld í kvöld kl. 20.30
Árlegt aðventukvöld Fríkirkjunnar verður haldið í kvöld
sunnudagskvöld, 7. desember, klukkan 20.30.
Í dag er annar sunnudagur í aðventu en aðventan er helgur undirbúnings-
tími jólanna. Á aðventu reyna fjölskyldur að eiga sem flestar samveru-
stundir og undirbúa komu hátíðarinnar í anda og verki.
Það er góður siður að fjölskyldan öll, yngri sem eldri, komi saman á
aðventukvöld kirkjunnar og er jafnan þéttsetinn bekkurinn. Að þessu
sinni syngja þau Ragnar Bjarnason, Anna Sigríður Helgadóttir,
Fríkirkjukórinn ásamt Carli Möller og félögum.
Að sjálfsögðu verða sungnir léttir jólasöngvar í bland við hefðbundna sálma.
Sérstakur ræðumaður kvöldsins er Gísli Marteinn Baldursson sjónvarpsmaður.
Allir hjartanlega velkomnir í kirkjuna á fallega og hugljúfa kvöldstund
í hjarta borgarinnar.
Aðventan er dýrmætur tími, tími undirbúnings. Gefum okkur tíma til að setjast
niður og njóta samvista með hvert öðru. Látum ekki stressið ná tökum á okkur
til að jólahátíðin verði okkur hverju og einu hátíð ljóss og friðar.
Að morgni sama dags verður barna- og fjölskyldusamvera í Fríkirkjunni
klukkan 11.
Allir hjartanlega velkomnir.
Safnaðarstarf Fríkirkjunnar í Reykjavík,
Sr. Hjörtur Magni Jóhannsson
Hreiðar Örn Zoëga Stefánsson
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M