Fréttablaðið - 07.12.2003, Page 43
Rúna Tetzschner, Elísabet Jökulsdóttir og
Didda les upp. Eivör Pálsdóttir syngur.
■ ■ SÍÐUSTU FORVÖÐ
Í dag lýkur í Gerðarsafni, Kópavogi,
sýningu Sigríðar Jóhannsdóttur og
Leifs Breiðfjörð, Mannamyndir. Á sýn-
ingunni eru 21 veflistarverk sem Sigríður
og Leifur hafa unnið á undanförnum
árum. Klukkan 15 verða Sigríður og Leif-
ur með leiðsögn um sýninguna.
Í dag lýkur í Gerðarsafni, Kópavogi,
sýningunni Japönsk samtíma bygging-
arlist 1985-1996.
Sýningunni „Trompet úr járni og
veltuminkur“ með listamönnunum
Tuma og Pétri Magnússonum lýkur í
Gallerí +, Brekkugötu 35 á Akureyri.
Sýningu Ellýjar Halldórsdóttur,
„Þögn“, í Listasetrinu Kirkjuhvoli, Akra-
nesi, lýkur í dag.
Sýningu myndhöggvarans Harðar B.
Thors í Topphúsinu við Lækjargötu lýk-
ur í dag. Sýningin er á vegum gallerisins
Svarta Fiðrildið.
■ ■ MYNDLIST
Opnuð hefur verið í Nýlistasafninu
sýning í tilefni af 25 ára afmæli safns-
ins. Á sýningunni eru verk eftir nokkra af
félögum safnsins og ýmislegt sem end-
urspeglar sögu starfseminnar.
Í Listasafni ASÍ hefur verið opnuð
sýning á verkum Þórarins Óskars Þór-
arinssonar ljósmyndara. Heiti sýningar-
innar er „Þórarinn Óskar og hyski hans“.
Listasafn ASÍ er opið 13-17 alla daga
nema mánudaga.
Melkorka Þ. Huldudóttir er með
sýninguna „Myrkraverk“ í Kling & Bang
galleríi, Laugavegi 23.
Nú stendur yfir sýning Péturs Pét-
urssonar á 11 málverkum hjá Val-
myndum í Ármúla 8. Sýningin er opin á
opnunartíma Val-húsgagna og stendur
yfir út desembermánuð.
Egill Sæbjörnsson opnaði um síð-
ustu helgi sýninguna „Í garðinum“ í
Gallerí Hlemmi. Þar sýnir hann mynd-
bands- og tónverk auk ljósmynda og
teikninga sem ekki hafa verið sýnd áður.
Auk verka úr safneigninni standa nú
yfir þrjár sérsýningar í Safni, Laugavegi
37: Nýjar teiknimyndir eftir Lawrence
Weiner, Litir eftir Adam Barker-Mill og
kynning á verkum frá ferli listamannsins
Hreins Friðfinnssonar.
Sýning Leikminjasafns Íslands,
Frumherji og fjöllistamaður, Sigurður
Guðmundsson málari, verður opin í
gamla Góðtemplarahúsinu, Suðurgötu 7,
í Hafnarfirði (á bak við Þjóðkirkjuna) kl.
14-17 í dag. Aðgangur ókeypis.
Í Hafnarhúsinu stendur yfir sýning á
ljósmyndum Ólafs Magnússonar, sem
var hirðljósmyndari dönsku konungsfjöl-
skyldunnar á Íslandi. Þar er einnig
þemasýning úr verkum Errós í eigu
safnsins. Henni lýkur 3. janúar.
Olga Lúsía Pálsdóttir hefur opnað
sýningu á grafískum verkum sínum í
Mokkakaffi að Skólavörðustíg 3a. Yfir-
skrift sýningarinnar er: „Stjörnuspeki í
augum Olgu Lúsíu“. Sýningin stendur til
10. janúar.
Áskell Másson tónskáld heldur sýn-
ingu á tónverkum frá upphafi til enda í
galleríi Sævars Karls í tilefni af 30 ára
starfsafmæli sínu og 50 ára afmæli.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki síð-
ar en sólarhring fyrir birtingu.
SUNNUDAGUR 7. desember 2003 43
Mótettukórinn
á léttu nótunum
Við verðum með létta og mjögskemmtilega jólasöngva,
jólalög fólk þekkir vel en sum
þeirra í nýjum búningi,“ segir
Heimir Salvar Jónatansson, ten-
órsöngvari í Mótettukór Hall-
grímskirkju, sem í dag heldur
hina árlegu jólatónleika sína.
Kórfélagarnir eru reyndar
vanir því að glíma við ýmis stór-
virki tónbókmenntanna og hafa
stundum verið með heilu óratorí-
urnar á jólatónleikum sínum, en
þetta árið láta þeir sér nægja að
vera á léttu nótunum.
Elín Ósk Óskarsdóttir sópran,
sem hefur verið tilnefnd til Ís-
lensku tónlistarverðlaunanna fyrir
frammistöðu sína í óperunni
Macbeth, syngur einsöng með
kórnum og Björn Steinar Sólbergs-
son leikur á stóra Klaisorgelið.
Stjórnandi er Hörður Áskelsson.
„Þessir jólatónleikar eru fastur
punktur í starfi kórsins, ásamt vor-
tónleikunum,“ segir Heimir, sem
hefur sungið með Mótettukórnum
í fjórtán ár. ■
MÓTETTUKÓR HALLGRÍMSKIRKJU
Á jólatónleikum kórsins í dag syngur Elín Ósk Óskarsdóttir sópran.
ERPUR EYVINDARSON
Ég keyri nú lítið svo uppáhalds-rúnturinn minn er sennilega
bara labb,“ segir Erpur Eyvindar-
son. „Til dæmis pöbbarölt í Kópa-
vogi sem er mjög abstrakt en
engu að síður stórkostlegt. Maður
byrjar á Kaffi Borg og Catalinu í
Hamraborg, svo labbar maður
yfir dalinn á Players og spjallar
við mömmur kunningja sinna sem
eru þar afvelta af drykkju. Svo
Næturgalinn og loks Goldfinger.
Þetta eru miklar vegalengdir og
tekur örugglega um 14 klukku-
stundir.“
Rúnturinn