Fréttablaðið - 07.12.2003, Síða 46
Ung ráð
■ Unga fólkið býr oft yfir opnum
og skemmtilegum skoðunum
um ýmis málefni.
Það getur verið skammsýni aðfórna langtímahagsmunum
fyrir skammtímahagsmuni,“ seg-
ir Þóranna Jónsdóttir um þá til-
hneigingu íslenskra fyrirtækja að
ráða mjög svipaða einstaklinga í
stjórnir sínar. Þóranna er ein sjö
kvenna frá Háskólanum í Reykja-
vík sem buðu sig fram til stjórnar-
setu, meðal annars til að kveða
niður þann orðróm að það væri
skortur á hæfum konum sem
hefðu áhuga á stjórnunarstörfum.
Allar hafa þær mikla þekkingu af
viðskiptum, reynslu af stjórnun-
arstörfum og flestar hafa áður
setið í stjórnum fyrirtækja.
Eins og komið hefur fram eru
aðeins um 5% stjórnarmanna fyr-
irtækja á aðalskrá Kauphallarinn-
ar konur, en erlendar rannsóknir
benda til að það sé hagkvæmara
fyrir fyrirtæki að vera með bland-
aðan hóp stjórnenda sem endur-
speglar hluthafa eða viðskipta-
vini. „Með blandaðan hóp er hann
mun líklegri til að skila hluthöfum
betri ávöxtun.“ ■
Rúmið mitt 46 7. desember 2003 SUNNUDAGUR
Ásta Ragnheiður Jóhannsdóttirhefur verið önnum kafin í
þinginu það sem af er desember
og svo verður áfram fram yfir
miðjan mánuð.
„Þetta lítur betur út en oft
áður en það má segja að störfin í
þinginu séu að verða fjölskyldu-
vænni en hér á árum áður þegar
maður var nánast fram á Þorláks-
messu,“ segir Ásta Ragnheiður
og bætir við að hún lifi dag fyrir
dag þessa dagana, „Eins og þetta
lítur út núna þá sé ég fram á
nefndarvinnu á mánudag og
þriðjudag. Við brjótum þá daga
upp með því að hittast saman
þingflokkurinn og borða saman
jólamat. Allir mæta með maka
sína og klæða sig upp og ég
hlakka mjög til að slaka aðeins á
í góðra vina hópi.
Á miðvikudag þá býður forseti
þingsins í mat á Hótel Borg og
segir Ásta alla jafna boðið upp á
hangikjöt. „Við reynum að hlaupa
út í hádeginu, borðum og syngjum
jólalög.“ útskýrir hún. Sjálf er
Ásta aðeins farin að kaupa jóla-
gjafir en um miðja viku ætlar hún
að reyna að taka vel til heima og
baka sörur. Ég geri það oftast en
baka að öðru leyti ekki mikið nú
orðið. Mér finnst líka skipta máli
að skreyta en ég hef ekki komist í
það enn. Ég hlakka til þess þegar
allt er orðið hreint og fínt, sörur á
borðum og aðeins komnar skreyt-
ingar,“ segir Ásta Ragnheiður. ■
Vikan sem verður
ÁSTA RAGNHEIÐUR
JÓHANNESDÓTTIR
■ hyggst gefa sér tíma um miðja viku
og baka sörur og laga dálítið til heima
og skreyta.
Rúmið mitt er eitthvað svaka fínt
úr Húsgagnahöllinni,“ segir
Steinn Ármann Magnússon. Hann
segir að það sé king size og lenti
hann í miklum vanda með að
koma því upp á loft á Öldu-
götunni þegar það var keypt.
„Það er gott fyrir bakið og ég veit
ekki betur en konunni líði vel í
því líka,“ segir Steinn Ármann.
Fréttiraf fólki
Bakar sörur og skreytir
Forsvarsmenn Olíufélagannafengu sannarlega jólabókina
sína í ár, þegar þeim var afhent síð-
ari hluta skýrslu Samkeppnis-
stofnunnar. Skýrslan er víst vegleg
eða um fimmhundruð blaðsíður og
ef að á að ná að lesa hana alla yfir
áður en andmælaréttur rennur út í
febrúar verða jólabækurnar líklega
að bíða betri tíma. Innan Sam-
keppnisstofnunar er víst gantast
með það að skýrslan sé á við góða
Harry Potter bók. Þá er bara að
vita hvort átt hafi verið við þykkt
eða hvort vísað sé til þess að hún
sé svona ævintýraleg.
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6:
1.
2.
3.
Tilvera.
Vítsisenglar.
Átta gata Buick.
Hundasnyrting
.Klipping.Þvottur.Klóklipping.Reyting
Hunda - spa
sími: 898 7770
Erna Andreassen
Faglærð
SJÖ REYNDAR KONUR BJÓÐA SIG TIL STARFA
Vilja kveða niður goðsögnina um að hæfar konur finnist ekki í stjórnunarstöður hérlendis.
Ég kynntist sunnudagssteik-inni í gegnum gamla konu
norður á ströndum,“ segir rithöf-
undurinn Elísabet Jökulsdóttir.
„Hún heitir Anna Jakobína Guð-
jónsdóttir og átti fjórtán börn og
þurfti því mikið að elda. Hún var
fegurst kvenna á ströndum í sínu
ungdæmi. Kærastinn minn var
einn af sonum hennar þegar ég
var um tvítugt og það voru mikil
forréttindi að vera inn á heimili
Önnu. Á sunnudögum láum við
kærustuparið í leti þar til steik-
arilmurinn fór að læðast um hús-
ið. Þegar við skreiddumst á fæt-
ur um hádegisbilið fengum við
lambalæri með öllu tilheyrandi.“
Elísabet segist vera góð í að
elda það sem hún kann. „Ég er
ekki mjög framúrstefnuleg í eld-
húsinu en ég kann að elda góða
kjötsúpu og lambalæri. Af því að
ég er kona fæ ég stundum svaka-
legan móral yfir því að standa
mig ekki betur en ég er eiginlega
búin að komast að því að það
væri einfaldast fyrir mig að eign-
ast mann sem kann að elda. „Ég
gæti sagt honum sögur á meðan.“
Elísabet virðist þrá að sjá
eldamennskuna í rómantísku
ljósi. „Í þau skipti sem ég hef
fundið fyrir verulegri löngun til
að elda er þegar ég fer á matar-
markaði í útlöndum. Þar sér mað-
ur fallega ávexti, grænmeti og
blóðugt kjöt sem hangir í loftinu.
Hér heima er allt vacuum-pakkað
ofan í frystikistum eða á bak við
gler en á mörkuðunum við
Miðjarðarhafið er maturinn eins
og lífið, hrár, blóðugur, litríkur
og ilmandi.“ ■
Sunnudagssteikin
ELÍSABET JÖKULSDÓTTIR
■ segist stundum vera með svakalegan
móral yfir því að vera ekki nýjungagjörn í
eldhúsinu en hefur komist að því að
einfaldast væri fyrir hana að eignast
mann sem kann að elda.
ÁSTA RAGNHEIÐUR
Hún hlakkar til að klæða sig upp og mæta með sinn mann í jólahlaðborð þingflokks
Samfylkingarinnar á mánudagskvöldið.
Sindri Eldon
17 ára, nemi í Borgar-
holtsskóla
Mér finnst fegurðarsamkeppnir frá-bærar þó ég nenni ekki að horfa
á þær. Ég var einmitt að tala um þetta
við félaga minn um daginn og komst
að þeirri niðurstöðu að allar keppnir
eins og hæfileikakeppnir og þess hátt-
ar snúast í raun og veru um fegurð.
Hvað eru músíktilraunir til dæmis ann-
að en fegurðarsamkeppni? Sumt fólk
getur líka lítið gert annað en að vera
fallegt og þá er um að gera að keppa í
því. En hver hefur sinn fegurðarsmekk
og því eru allir dómar í raun ósann-
gjarnir í fegurðarsamkeppnum.“
Diljá Mist Einarsdóttir
16 ára, nemi í Verzlun-
arskóla Íslands
Það er gaman að horfa á þær enmér finnst þær frekar niðurlægj-
andi. Það að blanda gáfum inn í þetta
gerir keppnina enn fáránlegri og ég
held að stelpurnar í Ungfrú
Ísland.is séu ekkert gáf-
aðri en annars staðar.
Það er ekki verið að
senda góð skilaboð til
ungra stelpna með
því að verðlauna
konur fyrir að
dilla sér á
sundbolum
og mér
finnst feg-
urðardísir
oft frekar
óspennandi
fyrirmyndir.“
Helgi Egilsson
17 ára nemi í Mennta-
skólanum í Reykjavík
Það er gaman að því hvað þetta erheimsku-
legt sjónvarps-
efni. Það er
skemmtilegra
að horfa á
konurnar en
þetta verður
sérstaklega
kjánalegt þeg-
ar karlmenn
eru að keppa í
þessu.“
Reiðubúnar í stjórnir fyrirtækja
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
Í KR-SVUNTUNNI
Elísabet skrifaði einu sinni sögu um móður íþróttadrengja sem barðist við löngun sína til að mæta í KR-svuntunni á völlinn.
Elísabet lét sér nægja að mæta í svuntunni út í búð.
Hrátt, blóðugt,
litríkt og ilmandi
Fegurðar-
samkeppnir
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T