Fréttablaðið - 18.12.2003, Blaðsíða 62
Eina ósk
58 18. desember 2003 FIMMTUDAGUR
Þetta eru sundgleraugu meðstyrkleika í sundglerinu,“ segir
Sigurður Óli Sigurðsson, eigandi
gleraugnarverslunarinnar Ég C í
Kópavogi sem selur sundgleraugu
fyrir sjóndapra. „Þessi gleraugu
eru mjög sniðug fyrir fólk sem er
með háan styrkleika og notar þar af
leiðandi dýr gleraugu. Það er mikið
af steinefnum í heita vatninu sem er
notað í sundlaugunum og þá getur
myndast flekkur á gleraugun sem
þau nota dags daglega.“
Sigurður, sem hefur selt sund-
gleraugun frá 1996, segir ekki alltof
marga vita af sundgleraugunum þó
selur hann alltaf slatta af þeim á
hverju ári. Sundgleraugu fyrir sjón-
dapra kosta tæpar fjögur þúsund
krónur.
„Gleraugun endast ágætlega,“
segir Sigurður Óli. „Þau eru ekki í
súpergæðum en eru góð fyrir fólk
sem er mjög fjær- eða nærsýnt. Þau
þurfa þá ekki að nota gleraugun
sem þau nota dagsdaglega.“ ■
„Ef ég ætti eina ósk myndi ég
útrýma hungri og styrjöldum í
heiminum,“ segir Pétur Blöndal
þingmaður.
Hrósið
... fær Guðmundur Guðmundsson
landsliðsþjálfari fyrir að gefa
ungum og efnilegum handknatt-
leiksmönnum tækifæri með
landsliðinu.
Fréttiraf fólki
Sundgleraugu
fyrir sjóndapra
í dag
Dorrit bölvað
í Flugleiðavél
Ólafsvíkingurinn
keypti ekki
ástina
Davíð vill
drepa Saddam
Fallegt stálúr með
Sircon steinum
Kosið um jólalag ársins
Rás 2 og Skífan standa samanað jólalagakeppni sem hófst 1.
desember. Ríflega fjörutíu jólalög
skiluðu sér inn í keppnina og sex
þeirra voru valin til að keppa til
úrslita en lögin hafa verið í spilun
á Rás 2 að undanförnu.
Hægt er að kjósa í jólalaga-
keppninni með því að fara á
heimasíðurnar www.jol.is eða
www.ruv.is og á heimasíðu Rásar
2 er hægt að hlusta á öll lögin.
Mikill fjöldi hefur nú þegar kosið
í netkosningu og í gegnum Texta-
varpið en hægt er að kjósa á síðu
255.
Dómnefnd skipuð dagskrár-
gerðarfólki Rásar 2 hefur endan-
legt úrslitavald í keppninni ásamt
þeim atkvæðum sem falla í net-
kosningu. Dómnefndina skipa þau
Hrafnhildur Halldórsdóttir,
Guðni Már Henningsson og Freyr
Eyjólfsson.
Jólalag ársins verður gert op-
inbert á Rás 2 um hálffjögurleytið
á morgun en sigurvegarinn hlýtur
að launum PlayStation-leikja-
tölvu, ársmiða fyrir tvo í Sambíó-
in, úttekt í Skífunni og það er
aldrei að vita nema útgáfusamn-
ingur fylgi í kjölfarið á sigrinum.
■
HELGI HRAFN JÓNSSON
Er orðinn vel þekktur í djasssenunni í
Austurríki. Hann flytur frumsamið lag í
keppninni sem hann nefnir Jólalag.
ÞÓREY HEIÐDAL
Þekktust fyrir að syngja í undankeppni
Eurovision en nú syngur hún ásamt
Kungfú og þau flytja lagið Gemmér jól.
JOE JOE
Trúbadorast ósjaldan í Austurstræti og flyt-
ur jólalagið Jólasveinn í keppninni.
BUFF
Buffararnir er þekktir fyrir almennan hress-
leika og Jólaboð er framlag þeirra í jóla-
lagaflóruna.
BREIÐBANDIÐ
Hvað er það við jólin? nefnist jólalag
Breiðbandsins en það hljóta að vera með-
mæli með bandinu að það á rætur að
rekja til bítlabæjarins
Keflavíkur.
GUNNLAUG R. SIGURÐARDÓTTIR
Hún kemur frá Vestmannaeyjum og syngur
Jólastjörnuna. Lagið er eftir
Sigurð Óskarsson.
SUNDGLERAUGU MEÐ STYRK
Sundgleraugu fyrir sjóndapra hafa fengist
á Íslandi síðan 1996.
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Charles Cullen.
Gamli Lóðsinn.
It’s a Wonderful Life.
Lárétt: 1 þvaður, 5 málmi, 6 öfug röð, 7
tveir eins, 8 gerast, 9 í lagi, 10 bensínfyr-
irtæki, 12 verkfæri, 13 ónotaður, 15 tónn,
16 flenna, 18 stofnun.
Lóðrétt: 1 mjög reiða, 2 fataefni, 3
fimmtíu og einn, 4 tignarmaðurinn, 6 hlíf,
8 sjáðu til, 11 á heima, 14 blóm, 17 átt.
1
7 8
9
10 11
13
16 17
18
14 15
12
2 3 4
5 6
Lausn. Lárétt: 1bull,5ál,6sr, 7ll,8
ske,9ókei,10ob,12orf, 13nýr, 15mi,
16drós,18safn.
Lóðrétt: 1bálvonda,2ull,3li,4greifinn,
6skerm,8sko,11býr, 14rós,17sa.
Um fátt er meira rætt en viðtalsem þeir Sigmar Guðmundsson
og Kristján Kristjánsson áttu við
Davíð Oddsson forsætisráðherra í
Kastljósinu á dögunum. Þóttu þeir
óvenju beinskeyttir í spurningum
sínum og mun það hafa fallið í mis-
jafnan jarðveg í röðum harðra
Davíðssinna. Það sem menn hins
vegar gantast með á kaffistofum nú
er að Davíð notaði orðið förtidspen-
sjón „eins og Daninn segir“ um hið
umdeilda eftirlaunafrumvarp. Þeir
sem eru forframaðir í Danmörku
segja að orðið förtidspensjón þýði
örorkubætur þar í landi.