Fréttablaðið - 12.02.2004, Page 41
41FIMMTUDAGUR 12. febrúar 2004
Re/max-deild kvenna:
ÍBV vann
toppslaginn
HANDBOLTI ÍBV vann Val 25-23 í
toppslag Re/max-deildar kvenna í
gær. Eyjastúlkur voru ávallt
skrefinu á undan og voru yfir í
hálfleik 11-10. Leikurinn ein-
kenndist af einstökum klaufaskap
beggja liða og fjölmörg mistök
voru gerð.
Anna Yakova var markahæst
hjá ÍBV með 8 mörk, Birgit Engl
skoraði 6, Guðbjörg Guðmanns-
dóttir skoraði 4, Sylvia Strass og
Anja Nielsen 3 og Alla Gorkorian
1. Julia Gantumirova varði 15 skot
í markinu. Sigurlaug Rúnarsdóttir
var markahæst hjá Val með 5
mörk. Drífa Skúladóttir, Gerður
Jónsdóttir og Díana Guðjónsdóttir
skoruðu 4 mörk. Bergljót Hans-
dóttir varði 11 skot í markinu. ■
Kvennakarfan:
Enn sigrar
Keflavík
KÖRFUBOLTI Keflavíkurstúlkur
treystu stöðu sína á toppi 1. deild-
ar kvenna í körfuknattleik í gær-
kvöld þegar þær lögðu Grindavík-
urstúlkur, 79-72, í Grindavík.
Heimastúlkur höfðu yfirhöndina
lengst af og leiddu með fimm stig-
um í hálfleik, 41-36. Þær leiddu
einnig eftir þriðja leikhluta, 63-56,
en þá fór Keflavíkurhraðlestin í
gang. Keflavíkurstúlkur fóru
hamförum í síðasta leikhluta,
unnu hann 23-9 og leikinn 79-72.
Birna Valgarðsdóttir átti frábær-
an leik í liði Keflavíkur, skoraði 36
stig og hitti úr 7 af 9 þriggja stiga
skotum sínum í leiknum. Erla Þor-
steinsdóttir skoraði 13 stig og
María Ben Erlingsdóttir skoraði
10 stig og hitti úr öllum fimm
skotum sínum. Kesha Tardy skor-
aði 37 stig fyrir Grindavík og tók
17 fráköst og Sólveig Gunnlaugs-
dóttir skoraði 11 stig.
KR-stúlkur unnu stórsigur á
ÍR, 83-49, í DHL-höllinni í gær-
kvöld. KR-stúlkur höfðu mikla
yfirburði allan tímann og höfðu 17
stiga forystu, 39-22, í hálfleik.
Munurinn á liðunum var þó ekki
svo gríðarlega mikill. Það eina
sem skildi liðin að var KR-ingarn-
ir Katie Wolfe og Hildur Sigurðar-
dóttir en þær voru algerir yfir-
burðaleikmenn á vellinum. Hildur
Sigurðardóttir skoraði 32 stig og
Katie Wolfe skoraði 20 stig auk
þess sem þær tóku báðar aragrúa
frákasta. Hólmfríður Sigurðar-
dóttir skoraði 11 stig og Tinna B.
Sigmundsdóttir skoraði 8 stig.
Kristín Þorgrímsdóttir skoraði 11
stig fyrir ÍR, Hrefna Dögg Gunn-
arsdóttir skoraði 9 stig og Eva
María Grétarsdóttir skoraði 7
stig. Með sigrinum komst KR í
annað sæti deildarinnar en ÍR-
stúlkur eru á botni deildarinnar. ■
Afríkubikarnum að ljúka:
Úrslitaliðin
klár
FÓTBOLTI Túnis og Marokkó mætast í
úrslitum Afríkubikarsins í fótbolta
á laugardag. Túnis vann Nígeríu 5-3
eftir vítaspyrnukeppni í undanúr-
slitum í gær.
Staðan eftir venjulegan leiktíma
var 1-1. Jay-Jay Okocha, leikmaður
Bolton, kom Nígeríu yfir úr víta-
spyrnu en Khaled Badra jafnaði
metin fyrir Túnis. Marokkó vann
Malí með fjórum mörkum gegn
engu í hinum undanúrslitaleiknum.
Youssef Mokhari skoraði tvö mörk í
leiknum en Youssef Hadji og Nabil
Baha skoruðu hin tvö. ■
BIRGIT
ENGL
Skoraði
sex mörk
fyrir ÍBV
gegn Val.
HANDBOLTI KA-menn tryggðu sér
sæti í úrslitaleik SS-bikars karla í
handknattleik í gærkvöld þegar
þeir lögðu Víking að velli, 27-26, í
undanúrslitaleik liðanna á Akur-
eyri. KA-menn höfðu yfirhöndina
nær allan leikinn, leiddu með tveim-
ur mörkum, 13-11, í hálfleik og
höfðu síðan náð sjö marka forystu,
27-20, þegar fimm mínútur voru til
leiksloka. Þá misstu þeir tvo menn
af velli, Víkingar gengu á lagið,
skoruðu sex mörk í röð og minnk-
uðu muninn í eitt mark, 27-26. Þeir
fengu síðan tækifæri til að jafna
metin á lokasekúndunum en Hafþór
Einarsson, markvörður KA, varði
skot Þrastar Helgasonar. Andreus
Stelmokas var markahæstur hjá KA
með átta mörk, Jónatan Magnússon
og Einar Logi Friðjónsson skoruðu
sex mörk hvor og Arnór Atlason
skoraði fjögur mörk. Hafþór Ein-
arsson varði átján skot í marki KA
og átti fínan leik. Benedikt Jónsson
var markahæstur hjá Víkingum
með sex mörk, Bjarki Sigurðsson
skoraði fimm mörk, Tomas Kavoli-
us skoraði fjögur mörk og þeir
Andri Berg Haraldsson, Karl Grön-
vold og Brjánn Bjarnason skoruðu
tvo mörk hvor. ■
ANDREUS STELMOKAS
Andreus Stelmokas var markahæstur hjá
KA-mönnum í gærkvöld með átta mörk.
KA-menn komnir í úrslit SS-bikars karla:
KA marði Víking með einu marki
HANDBOLTI Það verða Framarar
sem mæta KA-mönnum í úrslita-
leik SS-bikars karla í handknatt-
leik eftir að þeir lögðu Valsmenn í
hörkuleik, 23-22, á Hlíðarenda í
gærkvöld. Það var Valdimar Þórs-
son sem skoraði sigurmark Fram-
ara sjö sekúndum fyrir leikslok.
Valsmenn höfðu yfir í hálfleik,
10-9, en frábær varnarleikur
Framara í síðari hálfleik ásamt
góðri markvörslu Egedius Pet-
kevicius lagði grunninn að sigrin-
um. Það fór lítið fyrir fallegum
sóknartilþrifum í leiknum en
varnarleikur beggja liða var stór-
fínn.
Guðlaugur Arnarsson, fyrirliði
Framara, var kampakátur þegar
Fréttablaðið ræddi við hann í
leikslok. „Það var gríðarlega öfl-
ugur varnarleikur og skynsamur
sóknarleikur sem gerði gæfumun-
inn í þessum leik. Við misstum
aldrei trúna á að við gætum unnið
þennan leik og það var mikilvægt.
Mér líst rosalega vel á að mæta
KA-mönnum í úrslitaleiknum í
Laugardalshöllinni. Það verður
hörkuleikur og við ætlum okkur
að sjálfsögðu sigur í þeim leik
eins og öðrum sem við spilum,“
sagði Guðlaugur.
Hjalti Gylfason var marka-
hæstur hjá Val með sex mörk,
Heimir Árnason og Baldvin Þor-
steinsson skoruðu fjögur mörk
hvor og Markús Máni Michaels-
son skoraði tvö mörk. Pálmar Pét-
ursson varði sextán skot í marki
Vals. Stefán Baldvin Stefánsson
og Jón Björgvin Pétursson voru
markahæstir hjá Fram með fimm
mörk, Valdimar Þórsson skoraði
fjögur mörk, Hjálmar Vilhjálms-
son og Arnar Þór Sæþórsson skor-
uðu þrjú mörk hvor og Martin
Larsen skoraði tvö mörk. Egedius
Petkevicius varði átján skot í
marki Fram ■
Undanúrslit SS-bikars karla í handknattleik:
Vörn Framara gerði gæfumuninn
VALDIMAR ÞÓRSSON
Framarinn Valdimar Þórsson brýst hér í
gegnum vörn Vals í leiknum á Hlíðar-
enda í gær og skorar sigurmark leiksins.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
PE
D
RO
M
YN
D
IR
FÓTBOLTI Brasilíumaðurinn Jun-
inho kom Middlesbrough yfir eft-
ir hálftíma leik og bætti öðru
marki við nokkrum mínútum síð-
ar, áhorfendum á Old Trafford til
mikillar skelfingar.
Hollenski markahrókurinn
Ruud van Nistelrooy minnkaði
muninn fyrir United skömmu
áður en flautað var til hálfleiks.
Ryan Giggs jafnaði metin fyrir
United um miðjan síðari hálfleik.
Það var síðan Joseph-Desire Job
sem skoraði sigurmarkið fyrir
Middlesbrough tíu mínútum fyrir
leikslok. Þar með er ljóst að
Arsenal heldur fimm stiga for-
ystu sinni á toppi deildarinnar.
Liverpool skaust í fjórða sæti
með 2-1 sigri gegn Manchester
City. Michael Owen kom heima-
mönnum yfir strax á þriðju mín-
útu en Shaun Wright-Phillips jafn-
aði fyrir City í upphafi síðari hálf-
leiks. Þetta var áttunda mark
kappans á þessari leiktíð. Steven
Gerrard kom Liverpoool yfir
tveimur mínútum síðar og þar við
sat.
Chelsea vann mikilvægan sig-
ur á Portsmouth 2-0. Scott Parker,
sem er nýkominn í raðir Chelsea
frá Charlton, skoraði sitt fyrsta
mark fyrir liðið í fyrri hálfleik og
varamaðurinn Hernan Crespo
innsiglaði sigurinn þegar skammt
var til leiksloka. Eiður Smári
Guðjohnsen var í byrjunarliði
Chelsea en var tekinn út af um
miðjan síðari hálfleik fyrir
Jimmy Floyd Hasselbaink.
Tottenham vann góðan 4-2 úti-
sigur á Charlton. Simon Davies
kom Tottenham fyrir á 10. mínútu
og Jermain Defoe bætti öðru
marki við skömmu fyrir leikhlé
með góðum skalla. Ledley King
skoraði þriðja mark Tottenham í
byrjun síðari hálfleiks en Graham
Stuart minnkaði muninn fyrir
Charlton skömmu síðar. Chris
Perry skoraði annað mark
Charlton þegar tíu mínútur voru
til leiksloka en Johnny Jackson
innsiglaði sigur Tottenham
skömmu fyrir leikslok. Hermann
Hreiðarsson spilaði allan leikinn
fyrir Charlton.
Aston Villa vann Fulham á úti-
velli með tveimur mörkum gegn
einu. Luis Boa Morte kom Fulham
yfir strax á fyrstu mínútu en Juan
Pablo Angel jafnaði aftur á 13.
mínútu. Darius Vassell skoraði
síðan sigurmarkið eftir hálftíma
leik. Þess má geta að Carlos
Bocanegra var rekinn út af í liði
Fulham um miðjan síðari hálfleik.
Birmingham vann góðan sigur
á Everton 3-0. Damien Johnson
skoraði fyrsta mark Birmingham
í byrjun leiksins og Stan Laza-
ridis bætti öðru marki við undir
lok fyrri hálfleiks. Finninn
Mikael Forssell skoraði síðan
þriðja og síðasta markið í byrjun
síðari hálfleiks.
Blackburn gerði 1-1 jafntefli
við Newcastle. Craig Bellamy
kom Newcastle yfir í byrjun síð-
ari hálfleiks en Jonathan Stead
skoraði jöfnunarmarkið þegar
skammt var til leiksloka. ■
JUNINHO
Skoraði tvö mörk fyrir Middlesbrough gegn United. Hér fagnar hann fyrra markinu.
STAÐAN
Arsenal 25 18 7 0 61
Man. United 25 18 2 5 56
Chelsea 26 17 4 4 55
Liverpool 25 10 8 7 38
Newcastle 25 9 11 5 38
Charlton 25 10 7 8 37
Aston Villa 25 10 6 9 36
Fulham 25 10 5 10 35
Birmingham 24 9 8 7 35
Bolton 25 8 10 7 34
Tottenham 25 10 3 12 33
Southampton 25 8 7 10 31
Middlesbrough 24 8 7 9 31
Blackburn 25 7 6 12 27
Everton 24 6 7 12 25
Man. City 25 5 9 11 24
Portsmouth 25 6 5 14 23
Leicester 25 4 9 12 21
Leeds 25 5 5 15 20
Wolves 25 4 8 13 20
ÚRSLIT Í GÆR
Birmingham - Everton 3-0
Blackburn - Newcastle 1-1
Charlton - Tottenham 2:4
Fulham - Aston Villa 1-2
Liverpool - Man. City 2-1
Man. United - Middlesbrough 2-3
Portsmouth - Chelsea 0-2
Óvænt tap United
á Old Trafford
Sjö leikir voru í enska boltanum í gærkvöld. Manchester United tapaði mikilvægum stigum í
toppslag deildarinnar þegar liðið tapaði 2-3 fyrir Middlesbrough á Old Trafford.
AP
/M
YN
D