Fréttablaðið - 12.02.2004, Síða 43
Það kom snemma í ljós að KalliBjarni var mikið tónlistarefni.
Hann er með tónvissari mönnum
sem ég þekki. Málið var bara að
hann kæmi sér á framfæri. Og það
hefur hann svo sannarlega gert,“
segir Sigurjón Ingibjörnsson um
sinn gamla hljómsveitarfélaga
Kalla Bjarna en saman léku þeir í
hljómsveitinni Veridian Green.
Kalli Bjarni hefur rifjað upp
þann tíma þegar hann var í Veridi-
an Green og látið
hafa eftir sér að
hann hafi ein-
göngu sungið
bakraddir auk
þess að leika á
orgel. Fréttablað-
inu lék forvitni á
að vita hvort
menn þar á bæ
hefðu ekki tekið
eftir sönghæfi-
leikum Idol-
stjörnunnar.
„Jú, að sjálfsögðu, enda varð
hann fljótlega söngvarinn. Ég gekk
í Veridian Green sem gítarleikari
þegar hljómsveitin kom saman aft-
ur eftir nokkurt hlé. Við Kalli höfð-
um í millitíðinni stofnað hljómsveit
sem hét Bananas og í henni var
hann aðalsöngvarinn. Síðan var
ákveðið að endurvekja Veridian
Green árið 1995 og þá söng Kalli. En
því miður lifði hljómsveitin ekki
lengi og hætti störfum einu til
tveimur árum síðar.“
Hljómsveitin Veridian Green
fór nokkrum sinnum í hljóðver og
tók upp nokkur lög sem aldrei
voru gefin út. Meðal þeirra voru
tvö lög sem Sigurjón, eða Jónsi
eins og hann er jafnan kallaður, og
Kalli Bjarni sömdu í sameiningu.
„Þetta eru lögin Rosie og Singing
in the Sun. Það er aldrei að vita
nema ég og Kalli hittumst ein-
hvern tímann og rifjum upp lögin.
En Kalli ræður því algerlega.“
Jónsi leikur nú með hljómsveit-
inni Grænir vinir frá Suðurnesj-
um. Aðspurður segir hann það al-
gera tilviljun að græni liturinn sé
áberandi í nöfnum hljómsveit-
anna. „Grænir vinir hétu þessu
nafni áður en ég kom til sögunnar.
Þetta æxlaðist bara svona.“
En hvernig líst gömlum hljóm-
sveitarfélaga á frammistöðu Idol-
stjörnunnar? „Ég er afar stoltur
af honum og óska honum alls hins
besta. Þetta er hreinn og beinn
strákur og vonandi verður hann
það áfram.“ ■
43FIMMTUDAGUR 12. febrúar 2004
Fréttiraf fólki
Stundum fær maður tónlist uppí hendurnar sem er nær
ómögulegt að lýsa í orðum. Ég
ætla samt að reyna. Lhasa er
mjög sérstök kona. Hún er fædd í
Mexikó, uppalin í New York en
hefur búið lengi í Frakklandi.
Sem sagt veraldarvön stúlka sem
leyfir umhverfi sínu að sökkva
inn. Þannig eru áhrif frá öllum
þeim tónlistarsvæðum sem hún
hefur alist upp í.
Í fljótu bragði hljómar þetta
eins og blanda af Dead Can
Dance, Calexico og Tom Waits
sungið með sálarfullri röddu sem
svipar til Noruh Jones eða Billie
Holiday. Sungið er á spænsku,
frönsku og ensku. Þetta er svalur
alþjóðakokteill fyrir opið fólk og
þessi tónlist gæti hæglega endað í
einhverjum bíómyndum eða leik-
ritum. Líkist mörgu, en á sama
tíma engu.
Þetta er sterk tónlist, rík í
hefðinni, dáleiðandi, falleg og
tímalaus. Dimm rödd Lhasa er
dularfull og hún tjáir sig með
mikilli tilfinningu. Það er eigin-
lega bara ómögulegt að hlusta á
þetta án þess að heillast frá fyrstu
hlustun.
Ótrúlega góð leið til þess að
byrja tónlistarárið.
Birgir Örn Steinarsson
Umfjölluntónlist
LHASA:
The Living Road
Habla
vouz english?
LAST SAMURAI kl. 6 og 9 B i 14 ára
MADDITT kl. 6 M. ÍSL. TALI
ATH! miðaverð 500 kr.
HUNTED MANSION kl. 4.45 og 9
SÝND kl. 8 og 10.20 B i 14 ára
SÝND kl. 9
SÍMI 553 2075
SÝND kl. 5.40, 8 og 10.20 B i 16 ára
SÝND kl. 6.30 og 9 SÝND kl. 5 og 7 M. ÍSLENSKU TALI kl. 8 og 10.40 B i 14 áraMASTER & CO...
kl. 5.30 Allra síðasta sýningMONA LISA SÝND kl. 5.30, 8 og10.30 B i 16 ára
SÝND kl. 5.20, 8 og10.40 B i 16 ára
SÝND kl. 5.40, 8 og 10.20
TILNEFND TIL 4 ÓSKARSVERÐLAUNA
HHH Kvikmyndir.com
HHH H.J Mbl.
B.Ö.S Fínasta skemmtun Fréttablaðið
HHH1/2 SV MBL
HHHH Kvikmyndir.com
HHHH ÓHT Rás 2
HHH1/2 HJ MBL.
✩✩✩✩ Kvikmyndir.com
HHH Kvikmyndir.com
Tilnefnd til
Óskars-
verðlauna
sem besta
teikni-
myndin
Frábær
mynd frá
Disney fyrir
alla fjöl-
skylduna
með tónlist
eftir Phil
Collins!
Charlize Theron
vann Golden Globe-
verðlaun fyrir besta
leik í aðalhlutverki
og myndin er
einnig tilnefnd
til Óskarsverðlauna
Su-do
airbrush
Su-do Loftdælur
Handtæki
Verkfæri
Varahlutir
Su-do Námskeið
Tattoo
Naglaskreytingar
Förðun
Brúnkumeðferð
Su-do Litir
Stenslar
Sótthreinsivökvi
Brúnkuefni
Su-do áralangar rannsóknir og reynsla HJÖLUR EHF
Hjallabrekku 1, Kópavogur
sími 588 8300
Einkaumboð
fyrir Su-do
á Íslandi
Leikarinn Colin Farrell rann ístiga hótelsins sem hann býr á
þessa dagana og
brákaðist illa á
fæti. Leikarinn
er staddur í
Bangkok á
Taílandi, við tök-
ur á Alexander.
Farrell þurfti
að fara með fót-
inn í gifs en
kláraði samt
þær tökur sem hann átti eftir á
tilsettum tíma.
Bandaríska kvikmyndaakadem-ían hefur skipað þeim sem
koma til með að vinna
til Óskarsverðlauna í
lok mánaðarins að fly-
tja stuttar þakkaræð-
ur. Með þessu er von-
ast til að hátíðin verði
styttri en hún hefur
verið síðastliðin ár.
Einnig verður lögð
aukin áhersla á alla
þá sem tilnefndir
eru.
Leikkonan Diane Keaton komblaðamönnum í Berlín í opna
skjöldu þegar hún brast í grát á
miðjum blaða-
mannafundi. Þar
var hún ásamt
Jack Nicholson
og Amöndu Peet
sem leika með
henni í mynd-
inni Somet-
hings Gotta
Give. Keaton
sagðist ekkert
skilja í spurn-
ingum blaðamanna og að henni
þætti uppákoman afar undarleg.
Jack var hinn mesti herramaður,
tók utan um vinkonu sína og
leiddi hana út.
Bassaleikarar New Order, Sto-ne Roses og The Smiths hafa
stofnað saman hljómsveit. Þeir
Peter Hook, Mani og Andy Ro-
urke ætla að gera plötu saman
en hafa ekki ákveðið hvort
hljómsveitin eigi að heita
Strax ljóst að Kalli
Bjarni væri efnilegur
Tónlist
SIGURJÓN INGIBJÖRNSSON
■ er gamall hljómsveitarfélagi
Idol-stjörnunnar Kalla Bjarna og
segist stoltur af kappanum.
SIGURJÓN INGI-
BJÖRNSSON
Spilaði með Kalla
Bjarna og er stoll-
tur af stráknum.
KALLI BJARNI OG JÓNSI Í VERIDIAN GREEN
Kalli Bjarni og Jónsi á tónleikum á Vopnafirði. „Myndin er náttúrlega barn síns tíma en
sýnir tíðarandann og stemninguna sem var á okkur,“ segir Jónsi.
Freebase eða Stalingrad. Platan
kemur út í apríl og á meðal
gestasöngvara á plötunni eru
Robert Smith úr The Cure, Dav-
id Sylvian og Will Oldham.
Plötufyrirtækið EMI hefur núbannað Jay-Z
að gefa út fyrir-
hugaða plötu
sína, The Gray
Album. Á plöt-
unni skellti
kappinn saman
lögum Bítlanna
af hvítu plöt-
unni við rappið
af svörtu plöt-
unni sinni.
Búið er að
pressa plöt-
una í 3000 ein-
tökum og seg-
ir Danger
Mouse, sem
stóð fyrir
endurhljóðblöndunum, að
aldrei hafi staðið til að gera fleiri
eintök.
Nicole Kidman lenti í fyrstaskipti í langan tíma í því að
vera neitað um hlutverk í
kvikmynd. Hún var að sækjast
eftir því að leika aðalhlutverkið í
nýjustu mynd leikstjórans Fern-
ando Meirelles, sem gerði síðast
City of God, en eftir fund með
honum sagði leikstjórinn hana
vera of gamla fyrir hlutverkið.
Hann vildi frekar fá bestu vin-
konu hennar Naomi Watts sem er
aðeins ári yngri. Naomi gat aftur
á móti ekki tekið hlutverkið að
sér þar sem hún er að fara leika í
King Kong.