Fréttablaðið - 20.02.2004, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Kvikmyndir 42
Tónlist 32
Leikhús 32
Myndlist 32
Íþróttir 38
Sjónvarp 44
FÖSTUDAGUR
● leiðin niður var hröð og bein
▲
SÍÐA 46
25 ára fíkill
Ólafur Pétursson:
● vatnsleikfimi ● kraftganga á hverjum degi
▲
SÍÐUR 28–29
heilsa o.fl.
Lungu kvenna
viðkvæmari en karla
Guðbjörg Sigurgeirsdóttir:
● til hnífs og skeiðar ● vínin▲
SÍÐUR 26–27
matur o.fl.
Fiskbúðin líka
veitingastaður
Ásmundur Karlsson:
ÚRVALSDEILDIN Í HANDBOLTA
Tveir leikir verða í úrvalsdeildinni í hand-
bolta karla í kvöld. ÍR og Valur mætast í
Austurbergi og KA og HK eigast við í KA-
heimilinu á Akureyri. Báðir leikirnir hefj-
ast klukkan 19.15.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
20. febrúar 2004 – 50. tölublað – 4. árgangur
ENGIN SKERÐING Heilbrigðisþjónusta í
Vestmannaeyjum verður ekki skert, að sögn
Jóns Kristjánssonar heilbrigðisráðherra. Hann
þingaði með Eyjamönnum í gær. Sjá síðu 2
INNKAUPASTJÓRINN ÁKÆRÐUR
Fyrrverandi innkaupastjóri Sölunefndar varn-
arliðseigna hefur verið ákærður fyrir fjárdrátt,
skjalafals, umboðssvik og rangfærslu skjala.
Ákæran er í 10 liðum og nemur fjárdrátturinn
fjórum milljónum.
Sjá síðu 4
BOÐAR HÖRKU Formaður Sjómanna-
sambandsins boðar hörku ef hreyft verður við
skattaafslætti sjómanna. Hann hafnar skiptum
á auðlindaskatti og sjómannaafslætti. Sjá
síðu 8
100 MILLJARÐA MÚR Öryggismúr Ísra-
ela á Vesturbakkanum verður rúmlega 700
kílómetra langur. Áætlaður kostnaður við
framkvæmdina er sem svarar til um 100 millj-
örðum íslenskra króna. Sjá síðu 10
VIÐSKIPTI KB banki er í viðræðum
um sölu á Steinhólum sem eiga
olíufélagið Skeljung. Félagið
varð til þegar bankinn ásamt
Burðarás og Sjóvá-Almennum
eignuðust Skeljung sameiginlega
að fullu. Samhliða því voru bréf
félagsins í Eimskipafélaginu,
Sjóvá-Almennum og Flugleiðum
seld. Bókfært verð Steinhóla er
3,5 milljarðar króna og vill bank-
inn samkvæmt heimildum fá
fjóra milljarða fyrir félagið. Inni
í félaginu eru miklar skuldir.
Gangi viðræðurnar upp má búast
við að salan náist öðru hvoru
megin við helgina.
Samkvæmt heimildum eru
meðal áhugasamra Pálmi Har-
aldsson í Feng sem hefur verið
umsvifamikill í fjárfestingum,
meðal annars í Norðurljósum,
móðurfélagi Fréttablaðsins. Aðrir
sem nefndir hafa verið til sögunn-
ar eru Sigurður Gísli og Jón
Pálmasynir. Einnig að Kristinn
Björnsson, fyrrverandi forstjóri
félagsins, hafi áhuga á félaginu.
Fleiri eru taldir koma til greina en
ekkert fékkst staðfest um hver er
í viðræðum við bankann.
Örvar Kjærnested hjá fyrir-
tækjaráðgjöf KB banka staðfesti
að bankinn ætti í viðræðum um
sölu á Steinhólum við ákveðin að-
ila. „Það hafa margir sýnt áhuga
en við ræðum við einn í einu,“ seg-
ir Örvar og vill að öðru leyti ekk-
ert tjá sig um gang mála. ■
52%74%
20. FEBRÚAR TIL 26. FEBRÚAR 2004birta
Vetrarhátíð í Reykjavík
Fæðupíramídi og
fæðuhringur
Stjörnuspá Birtu
Brynhildur segir fréttir úr
ástandinu
Öskudagur á næsta leiti
Verðlaunagáta
Sjónvarpsdagskrá
næstu7daga
vikulegt tímarit um fólkið í landinu
ÚTBREIDDASTA TÍMARIT LANDSINS - 96.000 EINTÖK
Dísa í World Class
Dansar
í gegnum lífið
NR. 7 . 2004
Dísa í World Class:
▲
Dansar í
gegnum lífið
birta
● fæðupíramídinn ● öskudagur
SNJÓKOMA EÐA ÉL Úrkoman færist
í aukana síðdegis á vesturhelmingi lands-
ins með heldur auknum vindi. Enn kaldara
á morgun. Sjá síðu 6.
Fylgir Fréttablaðinu dag
Ingvar Helgason:
Félagið selt
á næstu
dögum
ATHAFNALÍF Afkomendur Ingvars
Helgasonar, stofnanda bílaum-
boðsins Ingvar Helgason hf.,
selja alla hluti í félaginu ef end-
anlegir samningar nást á næstu
dögum. Sam-
kvæmt heim-
ildum Frétta-
blaðsins eru
einungis örfá
atriði sem
eftir á að
ganga frá
áður en kaup-
in ganga í
gegn.
Nýr eig-
andi verður
Ingvar Helga-
son Holding;
félag í eigu
B a l d v i n s
Guðnasonar, forstjóra Sjafnar
hf., Róberts Wessmann, for-
stjóra Pharmaco, Jóns og Sig-
urðar Gísla Pálmasonar í Hag-
kaup, Vátryggingafélags Ís-
lands og tengdra aðila og bíla-
leigunnar Avis.
Kristinn Þór Geirsson, sem
var framkvæmdastjóri Ís-
lenska útvarpsfélagsins sem
rekur Skjá einn, tekur við starfi
framkvæmdastjóra hjá Ingvari
Helgasyni ef kaupin ná fram að
ganga.
Magnús Ragnarsson, leikari
og viðskiptafræðingur, hefur
verið ráðinn framkvæmda-
stjóri Íslenska sjónvarpsfélags-
ins í stað Kristins og er þegar
tekinn til starfa. ■
Sænski píramídinn
svíkur gefin loforð
Forsvarsmenn SprinkleNetwork eru á vanskilaskrá í Svíþjóð með kröfu upp á
100 milljónir króna. Svíkja loforð um endurgreiðslur á Íslandi. Milljónatugir í
uppnámi. Svara ekki lögfræðingi lengur. Engin innribúð og afsláttarkort óvirk.
KB banki í viðræðum:
Hillir undir sölu Skeljungs
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
STEMNING Á SETNINGU VETRARHÁTÍÐAR Í gærkvöldi var svokölluð Vetarhátíð í Reykjavík sett. Það var Þórólfur Árnason borgar-
stjóri sem setti hátíðina en að setningu lokinni var farið í kyndlagöngu frá Bankastræti að Miðbakkanum þar sem haldin var leysigeisla-
sýning.
SÖLUKEÐJA Forsvarsmenn sænska
sölupíramídans SprinkleNetwork
hafa enn ekki staðið við loforð sem
þeir gáfu sölufólki sínu og fjárfest-
um um að þeir myndu endurgreiða
þeim sem vildu hætta og selja hluti
sína. Starfsemi Sprinkle á Íslandi er
í lágmarki og enn hefur ekki verið
komið á laggirnar svokallaðri innri
verslun sem átti að bjóða upp á
fjölda vöruflokka. Þá eru afsláttar-
kort fyrirtækisins
óvirk að mestu
leyti og því engin
velta. Heimildir
F r é t t a b l a ð s i n s
herma að hætta sé
við innri-búðina
sem aldrei varð
annað en hluti af
vöruskemmu í
Sundahöfn. Þess í stað hafi verið
boðað að Sprinkle ætlaði að auglýsa
í hring á Netinu eða með öðrum orð-
um birta 360 gráðu auglýsingar.
Eftir komu allra helstu forsvars-
manna Sprinkle til Íslands um miðj-
an nóvember var því lofað að staðið
yrði við skuldbindingar. Það hefur
enn ekki gerst að öðru leyti en því
að átta af þeim 30 manns sem kröfð-
ust endurgreiðslu hafa fengið sín
framlög að hluta til baka. Gylfi
Gylfason lögfræðingur þeirra sem
eiga kröfur á píramídann, segir að
talsmenn Sprinkle svari sér ekki
lengur. Hann telur vonlítið að fólkið
fái endurgreidda þá milljónatugi
sem það lét af hendi rakna í von um
skjótfenginn gróða.
Gylfi segir að svo virðist sem
fyrirtækið sé í miklum vanda í Sví-
þjóð þar sem gert hafi verið fjár-
nám hjá fyrirtækinu fyrir yfir 100
milljónir króna.
„Mér sýnist á öllu að þetta sé að
fara í þrot þarna úti. Þeir hafa
skrúfað fyrir greiðslur til fólks eft-
ir að nokkrir fengu greitt í desem-
ber. Nú er fólk að íhuga að kæra til
lögreglunnar í því ljósi að það er
ekkert að hafa,“ segir Gylfi.
Gylfi líkir þessu máli við svokall-
að CostCo mál þar sem maður var
dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir
að svíkja út 450 þúsund krónur með
því að bjóða lygilega ódýr raftæki.
Viðskiptavinir greiddu fimm þús-
und króna pöntunargjald fyrirfram
hjá fyrirtækinu CostGo. Gylfi segir
að mál Sprinkle sé ekki ólíkt þar
sem verið sé að selja eitthvað sem
ekki er til.
rt@frettabladid.is
Líkfundurinn í
Neskaupstað:
Hinn látni
hét Vaidas
Jucevicius
LÖGREGLUMÁL Líkið af manninum
sem fannst í höfn Neskaup-
staðar var af þrítugum litháísk-
um manni sem hét Vaidas
Jucevicius. Hann kom hingað
frá Kaupmannahöfn og átti
pantað far þangað aftur 6. febr-
úar. Endanleg staðfesting fékkst
á þessu þegar móðir hins látna
bar kennsl á hann af myndum
hjá lögreglu í Litháen.
Sjá nánar bls. 2
FORSVARSMENNIRNIR
Hópur fólks sótti að forsvarsmönnum
SprinkleNetwork þegar þeir komu til
Íslands í nóvember.
„Mér sýn-
ist á öllu að
þetta sé að
fara í þrot
þarna úti.
KRISTINN
GEIRSSON
Tilvonandi forstjóri
Ingvars Helgasonar hf.