Fréttablaðið - 20.02.2004, Side 13

Fréttablaðið - 20.02.2004, Side 13
13FÖSTUDAGUR 20. febrúar 2004 NÁTTÚRUVERND Sveitarfélög á Snæ- fellsnesi; Eyja og Miklaholtshrepp- ur, Grundarfjarðarbær, Helgafells- sveit, Snæfellsbær, Stykkishólms- bær, og Þjóðgarðurinn Snæfells- jökull hafa sameinast um þátttöku í verkefni sem miðar að alþjóðlegri vottun svæðisins sem sjálfbærs samfélags. Bæjarfélögin hafa ákveðið að starfa eftir staðli sem settur er fram af félaginu Green Globe 21. Á heimasíðu félagsins, sem hefur höfuðstöðvar í Ástralíu, kemur fram að 356 aðilar séu þátttakend- ur í verkefnum á vegum félagsins, þar af tuttugu á Íslandi. Guðrún Bergmann, sem er ann- ar af umsjónarmönnum verkefnis- ins, segir að kostnaður við að öðlast vottunina verði um átta til níu milljónir króna en árlegur kostnað- ur við að viðhalda henni verði á bil- inu fimm til sjö hundruð þúsund. Green Globe hefur mun meiri útbreiðslu á Íslandi en í nágranna- löndunum. Þannig er enginn sam- starfsaðili skráður í Danmörku, Finnlandi og Svíþjóð og aðeins tveir í Noregi. Í Bandaríkjunum eru þátttakendurnir tveir og sjö í Bretlandi. „Í rauninni verður Snæfellsnes- ið fyrsta samfélagið á norðurhveli jarðar sem fær þessa vottun,“ seg- ir Guðrún. Hún segir að áhersla samtak- anna hingað til hafi fyrst og fremst verið á þróunarlönd og fátæk ríki í Kyrrahafinu þar sem aðilar í ferða- þjónustunni hafi unnið mikinn skaða á umhverfinu. Þeir hafa lagt mjög mikla áherslu á að vinna í þróunarlöndum þar sem ferðaþjón- ustan hefur á margan hátt rústað samfélögunum,“ segir Guðrún. Hún segir forsvarsmenn Green Globe vera ánægða að fá tækifæri til þess að starfa hér á landi þar sem slíkur skaði hefur ekki átt sér stað. Ýmis fyrirtæki á sviði bænda- gistingar hafa tekið upp vinnuað- ferðir samkvæmt stöðlum Green Globe en Hólaskóli er opinber vott- unaraðili fyrir samtökin. Þá hefur hópferðafyrirtækið Guðmundur Tyrfingsson ehf. fengið fullgilda vottun félagsins. thkjart@frettabladid.is Sjálfsbjörg: Áhyggjur af heima- hjúkrun HEILSUGÆSLA Sjálfsbjörg, lands- samband fatlaðra, lýsir yfir þung- um áhyggjum af því ástandi sem ríkir í heimahjúkrun á Reykjavík- ursvæðinu, að því er segir í til- kynningu sem samtökin hafa sent heilbrigðisráðherra, forstjóra heilsugæslunnar og Miðstöð heimahjúkrunar. Samtökin benda á að fyrir liggi að fjöldi starfsmanna heima- hjúkrunar hafi ákveðið að leggja niður störf 1. mars næstkomandi vegna ágreinings við Heilsugæsl- una. Sjálfsbjörg krefst þess að þessu yfirvofandi ófremdar- ástandi verði afstýrt og farsæl lausn fundin á málinu. ■ GUANTANAMO-HERSTÖÐIN Bresku fangarnir á Guantanamo á Kúbu hafa aldrei verið dregnir fyrir rétt. Fangarnir á Guantanamo: Fimm Bret- um sleppt BRETLAND Fimm breskir ríkisborg- arar sem hafa verið í haldi í bandarísku herstöðinni í Guant- anamo undanfarin tvö ár fá frelsi á næstu vikum. Níu Bretar eru á meðal þeirra 600 meintu hryðju- verkamanna sem eru í haldi bandarískra stjórnvalda á Kúbu. Fjölskyldur fanganna hafa þrýst á stjórnvöld í Bretlandi að beita sér fyrir því að þeim verði sleppt úr haldi. Samningaviðræð- ur við Bandaríkjastjórn hafa stað- ið yfir svo mánuðum skiptir. Jack Straw, utanríkisráðherra Breta, segir að það sé í höndum lögreglunnar að taka ákvörðun um það hvort mennirnir verði handteknir við komuna til Bret- lands. ■ Dani á Guantanamo: Sleppt úr haldi DANMÖRK, AP Danskur ríkisborg- ari, sem hefur verið í haldi banda- rískra stjórnvalda í Guantanamo- herstöðinni á Kúbu í tvö ár, verð- ur látinn laus. Forsætisráðherr- ann Anders Fogh Rasmussen til- kynnti á danska þinginu í gær að fanginn væri væntanlegur til Danmerkur þar sem samkomulag hefði náðst við bandarísk stjórn- völd. Per Stig Möller utanríkisráð- herra segir að ekki komi til greina að draga manninn fyrir rétt í Dan- mörku. Stjórnarandstaðan hefur varpað fram þeirri spurningu hvernig hafi verið hægt að halda manninum föngnum í tvö ár ef hann hefur ekki unnið sér neitt til saka sem hægt er að ákæra hann fyrir. ■ BÍLVELTA Á VESTURLANDSVEGI Bíll fór í gærmorgun út af Vest- urlandsvegi og valt. Þetta gerðist skammt frá bænum Brennustöð- um norður af Borgarnesi. Enginn slasaðist. SKEMMDARVERK Skemmdarverk voru unnin á bíl á Eskifirði í gær. Svo virðist sem bíl hafi verið bakkað á annan bíl og hann skemmdur. SAN FRANCISCO „Ég myndi segja við forsetann: Komdu og hittu þessi rúmlega 3.000 pör sem hafa bund- ist hvort öðru, heitið hvoru öðru ástríku ævilöngu sambandi með jafna réttarstöðu, sömu réttar- stöðu og hann og kona hans njóta,“ sagði Gavin Newsom, borgarstjóri í San Francisco, í við- tali við The New York Times. Newsom er maðurinn sem fyrir- skipaði að borgaryfirvöld skyldu gefa út hjúskaparleyfi til samkyn- hneigðra og standa fyrir brúð- kaupum. Ákvörðunina segist Newsom hafa tekið eftir að hann hlýddi á stefnuræðu George W. Bush Bandaríkjaforseta þar sem for- setinn lýsti andstöðu sinni við að samkynhneigðir einstaklingar fengju að ganga í hjónaband. „Ég sat þarna og klóraði mér í höfðinu, segjandi að þessi heimur sem hann væri að tala um væri ekki sá sem ég hefði vonast eftir þegar ég ólst upp. Mér fannst sumt af því sem hann sagði ala á óeiningu.“ Newsom segist styðjast við jafnréttisákvæði stjórnarskrár Kaliforníuríkis þegar hann leyfi hjónabönd samkynhneigðra. Hann stendur við ákvörðunina en er reiðubúinn að hlýða dómstólum ef þeir dæma hjónavígslurnar ólöglegar. ■ DÓMSMÁL „Sigur minn er ekki bara að hafa verið sýknaður í Hæstarétti heldur líka fyrir þjóðina því mér tókst að stöðva að íslensk flugfélög flyttu vopn til Íraks,“ segir Ástþór Magnús- son en hann var sýknaður af ákæru um að hafa dreift tölvu- pósti til fjölda fólks með til- hæfulausri viðvörun um sprengjutilræði gegn íslenskri flugvél. Ástþór var einnig sýkn- aður í Héraðsdómi Reykjavíkur. Í ákærunni segir að viðvörun- in hafi verið til þess fallin að vekja ótta um líf, heilbrigði og velferð manna. „Ég vildi verja mig sjálfur og því ekki rétt að ég hafi ekki vilj- að tjá mig frekar. Mér finnst forkastanleg vinnubrögð bæði í Héraðsdómi og í Hæstarétti og á skjön við mannréttindasáttmál- ann að ég hafi ekki fengið að verja mig sjálfur.“ Ástþór segir það standa upp úr að honum hafi tekist að koma í veg fyrir að Flugleiðir færu að fljúga með vopn til Mið-Austur- landa í Íraksstríðinu. Hann seg- ir að eftir handtöku hans hafi verið byrjað að draga í land, sem sé gott því annars væru ís- lenskar flugvélar brennimerkt- ar og í hryðjuverkahættu. Ástþór segir forsvarsmenn friðarsamtaka grípa til ýmissa óhefðbundinna aðferða til að vekja athygli á málstað sínum. „Þær aðferðir sem ég hef notað, eins og með tómatsósuna, eru fermingardrengsaðferðir miðað við það sem harðir friðarsinnar eru að gera erlendis.“ ■ ÍRAKAR MÓTMÆLA Írakar mótmæla því að þeim var gert að flytja úr opinberum byggingum þangað sem þeir flúðu eftir að hús þeirra eyðilögðust í árásum Bandaríkjamanna. Svíi handtekinn í Þýskalandi: Njósnaði fyr- ir Ungverja ÞÝSKALAND Lögreglan í Þýskalandi hefur handtekið 64 ára sænskan ríkisborgara sem grunaður er um að hafa stundað njósnir fyrir ung- versku leyniþjónustuna í nítján ár, frá 1967 til 1986. Maðurinn var handtekinn á flugvellinum í Frankfurt en hann situr nú í gæsluvarðhaldi í Karlsruhe. Maðurinn hefur verið búsettur í Svíþjóð síðan árið 1956, þegar hann flúði frá Ungverjalandi. Hann hefur verið eftirlýstur í Þýskalandi í fjölda ára, sakaður um að hafa selt Ungverjum upp- lýsingar um bandaríska herinn. Meintur vitorðsmaður hans var handtekinn árið 1990 og dæmdur í ævilangt fangelsi. ■ ÁSTÞÓR MAGNÚSSON Ástþór segir aðferðir sínar vera eins og fermingar- drengja miðað við það sem friðarsinnar í öðrum löndum gera til að vekja athygli á málstað sínum. Dreifði tölvupósti með viðvörun um sprengjutilræði: Ástþór sýknaður í Hæstarétti Nýr borgarstjóri breytti landslaginu fyrir samkynhneigða: Forsetinn ætti að ræða við brúðhjónin BORGARSTJÓRI MEÐ HAMINGJU- SÖMUM BRÚÐHJÓNUM „Ég hef furðað mig á tali íhaldsmanna sem vilja neita fólki um réttindi en segjast samt vera íhaldsmenn. Mér finnst hræsnin í því ótrúleg,“ sagði borgarstjórinn í San Francisco. ■ Lögreglufréttir Snæfellssvæðið fyrst á norðurhveli jarðar Kostnaður við Green Globe-vottun sveitarfélaganna á Snæfellsnesi mun nema 8 til 9 milljónum í upphafi og svo 500-700 þúsundum á ári. Tutt- ugu aðilar á Íslandi taka þátt í verkefnum á vegum samtakanna. ÞÁTTTAKENDUR Í GREEN GLOBE-VERKEFNINU Guðbjörg Gunnarsdóttir, þjóðgarðsvörður í Snæfellsjökulsþjóðgarði, Óli Björn Gunnarsson, bæjarstjóri í Stykkishólmsbæ, Benedikt Benediktsson, sveitarstjóri í Helgafellssveit, Eyþór Björnsson, starfandi bæjarstjóri í Grundarfirði, Sturla Böðvarsson samgönguráðherra, Magnús Oddsson ferðamálastjóri, Guðbjartur Gunnarsson, sveitarstjóri í Eyja- og Miklaholtshreppi, og Kristinn Jónasson, bæjarstjóri í Snæfellsbæ.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.