Fréttablaðið - 20.02.2004, Blaðsíða 47
39FÖSTUDAGUR 20. febrúar 2004
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 8. gr. samþykkta félagsins.
2. Tillaga stjórnar um að félaginu sé heimilt að kaupa eigin hluti samkvæmt 55. grein
laga nr. 2 frá 1995 um hlutafélög.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Aðalfundur Samskipa hf. verður haldinn
þann 4. mars í Salnum, Kópavogi kl. 17.00.
Aðalfundur
Holtabakka við Holtaveg 104 Reykjavík Sími 569 8300 Fax 569 8327 samskip@samskip.is samskip.is
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, þurfa að berast stjórn eigi síðar
en sjö dögum fyrir aðalfund.
Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur mun liggja frammi á skrifstofu félagsins
sjö dögum fyrir aðalfund.
Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað við upphaf fundarins.
Stjórn Samskipa hf.
ar
gu
s
–
0
4-
00
86
FÓTBOLTI Jesper Grönkjær sló fyrst
í gegn á vinstri kantinum en hann
er óánægður með að fá aldrei að
spila sína uppáhaldsstöðu undir
stjórn Claudio Ranieri hjá Chelsea.
Þessi 27 ára danski miðjumaður
var óstöðvandi á vinstri vængnum
á fyrstu árum ferilsins, fyrst hjá
AaB í dönsku úrvalsdeildinni og
svo hjá Ajax í Hollandi þar sem
hann vakti athygli enska úrvals-
deildarliðsins Chelsea.
„Það hentar mér langbest að
spila á vinstri kantinum en ég hef
aldrei fengið tíma til að finna mig í
þeirri stöðu hjá Chelsea og eftir að
Damien Duff var keyptur hef ég
ekki fengið eitt einasta tækifæri
til að spila mína uppáhaldsstöðu.
Það er erfitt fyrir sjálfstraustið að
vera alltaf að spila úr sinni stöðu,“
segir Grönkjær sem er þekktur
fyrir að láta allt flakka en hann vill
þó ekki beina orðum sínum sem
gagnrýni á stjórann Claudio Rani-
eri. „Þegar ég spila á hægri
vængnum í fjögurra manna miðju
þá er ég alltof aftarlega til að geta
nýtt mínar bestu hliðar,“ segir
Grönkjær sem hefur enn ekki
skorað fyrir Chelsea í ensku úr-
valsdeildinni í vetur og hefur enn-
fremur ekki átt þátt í marki í 18
leiki í röð. Grönkjær hefur fengið
13 sinnum að byrja inn á en Eiður
Smári hefur byrjað inn á í aðeins
átta deildarleikjum í vetur. ■
Erfiður leikur framundan
Segir sitt um styrk Albana að þeir skuli vinna Svía, segir Ásgeir Sigurvinsson. Íslendingar leika við Albani í næsta mánuði.
FÓTBOLTI Mótherjar Íslendinga í
undankeppni HM 2006 áttu litlu
láni að fagna í vináttuleikjum á
miðvikudag. Svíar, Króatar,
Búlgarar og töpuðu en Ungverjar
unnu Armena 2-0 á átta landa móti
á Kýpur.
Ásgeir Sigurvinsson landsliðs-
þjálfari fylgdist með leik Króata
og Þjóðverja. „Króatarnir voru
sprækari fyrstu 25 mínúturnar en
Þjóðverjarnir náðu síðan betri
tökum á leiknum og skoruðu.
Króatarnir komu aftur inn í leik-
inn en Þjóðverjarnir náðu að
vinna. Í heildina var þetta mjög
jafn leikur og jafntefli hefði verið
sanngjarnt,“ sagði Ásgeir. „Króat-
ar leika hefðbundið 4-4-2 kerfi og
ekkert sérstakt sem kom á óvart í
því.“
Króatíska liðið var meðal ann-
ars skipað leikmönnum frá Stutt-
gart, Bayern, Bayer Leverkusen,
Monaco og Werder Bremen. Ás-
geir segir að samt hafi vantað
nokkra sterka menn í liðið vegna
meiðsla auk þess sem þjálfarinn
hafi prófað nýja leikmenn.
„Króatar eru með vel spilandi lið.
Þetta er líkamlega sterkt lið og
það kom mér á óvart að þeir voru
líkamlega sterkari en Þjóð-
verjarnir. Þeir voru að vinna
skallaboltana bæði í vörn og
sókn,“ sagði Ásgeir.
Albanir unnu Svía 2-1 í Tírana
en Svíar eru með Íslendingum í
riðli og Íslendingar leika vináttu-
leik við Albani í lok mars. „Alb-
anir eru í gríðarlegri sókn og mig
minnir að þeir hafi ekki tapað á
heimavelli í tvö ár,“ sagði Ásgeir.
„Það segir eitthvað um styrk Al-
bana að þeir skuli vinna Svía og
þetta segir að við eigum mjög
erfiðan leik framundan. Albanir
hafa alltaf átt tekníska og fljóta
leikmenn en það virðist sem
Hans-Petter Briegel hafi náð að
aga þá til og bætt varnarleikinn.“
Grikkir unnu Búlgari 2-0 í
Aþenu. „Grikkir eru með
sterkara lið og ég bjóst frekar við
sigri þeirra. Búlgarir eiga ungt
lið og marga unga og mjög efni-
lega leikmenn.“ Ásgeir segir að
það verði fróðlegt að fylgjast
með Búlgörum á EM í sumar en
hann býst við að hann og Logi
Ólafsson fari til Portúgals til að
fylgjast með mótherjum Íslands í
undankeppni HM.
Möltumenn eru í sama riðli og
Íslendingar í undankeppni HM.
Þeir unnu Moldóva og Eistlend-
inga en töpuðu fyrir Hvítrússum
á móti á Möltu sem lauk á mið-
vikudag. „Möltumenn unnu Eist-
lendinga létt en Eistlendingarnir
stóðu sig vel í riðlakeppni EM.
Það er eins og það sé orðin ein-
hver breyting á hugarfari þeir-
ra,“ sagði Ásgeir. ■
Lyfjamál Chambers:
Dæmt í
næstu viku
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR Dwain Cham-
bers, Evrópumeistari í 100 metra
hlaupi, fær að vita í næstu viku
hvort hann verði dæmur í
tveggja ára keppnisbann eftir
hafa fallið á lyfjaprófi.
Chambers var í gær yfir-
heyrður í sex klukkustundir af
meðlimum breska frjálsíþrótta-
sambandsins. Þar fékk hann að
gera grein fyrir máli sínu. Cham-
bers, sem er 25 ára, hefur neitað
að hafa tekið inn ólögleg lyf með
sinni vitneskju. Verði hann
dæmdur í bann ætlar hann að
reyna fyrir sér í amerískum fót-
bolta. ■
Haile Gebrselassie:
Ætlar að setja heimsmet
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR „Ég verð að sætta
mig við það að ég get ekki verið
bestur um alla framtíð,“ sagði
eþíópíski hlauparinn Haile Gebr-
selassie. „Enginn vill tapa og ég
vil vinna. En hvað get ég gert ef
eitthvað gerist eins og á heims-
meistaramótinu? Ég vil frekar
færa mig yfir í maraþonhlaupið
en tapa.“
Gebrselassie hefur sett sautján
heimsmet á ferlinum, innanhúss
og utan, unnið til tveggja gull-
verðlauna á Ólympíuleikum og
sigrað fjórum sinnum í 10.000
metra hlaupi á heimsmeistara-
móti. En nú er honum ógnað, eink-
um af Kenenisa Bekele sem sigr-
aði í 10.000 metra hlaupi á heims-
meistaramótinu í hyrra.
„Kenenisa er frábær íþrótta-
maður og hleypur mjög vel,“
sagði Gebrselassie. „Við æfum
saman svo hann þekkir veikleika
mína og taktík mjög vel. Það er
mjög erfitt að sigra hann.“
„Ég hleyp maraþonhlaup árið
2005 svo ég vil setja met í dag.
Það verður erfitt að sameina
maraþonhlaup of keppni innan-
húss,“ sagði Gebrselassie. Hann
keppir í tveggja mílna hlaupi í
Birmingham á Englandi í dag en
þar hefur hann þrisvar sett
heimsmet, í 2000 metra hlaupi
árið 1998, 5000 metra hlaupi árið
1999 og tveggja mílna hlaupi í
fyrra.
Gebrselassie kann því vel við
sig í Birmingham. „Áhorfendurn-
ir eru mjög sérstakir hér. Það er
einstakt hvernig þeir hvetja kepp-
endur og styðja þá,“ sagði Gebr-
selassie. „Það er mikil hvatning í
því að hlaupa fyrir framan slíka
áhorfendur.“
HAILE GEBRSELASSIE
Keppir í tveggja mílna hlaupi í Birmingham
frammi fyrir áhorfendum sem hann metur
mikils.
A-LANDSLEIKIR KARLA 2004
31. mars Albanía - Ísland vináttuleikur
28. apríl Lettland - Ísland vináttuleikur
30. maí Japan - Ísland vináttuleikur
5. júní England - Ísland vináttuleikur
18. ágúst ekki ákveðið vináttuleikur
4. sept. Ísland - Búlgaría undank. HM
8. sept. Ungverjal. - Ísland undank. HM
9. okt. Malta - Ísland undank.HM
13. okt. Ísland - Svíþjóð undank. HM
KRÓATÍA
Þjóðverjinn Christian Wörns reynir að stöðva Króatann Dado Prso í leik þjóðanna á miðvikudag.
FÆR EKKI AÐ SPILA SÍNA STÖÐU
Jesper Grönkjær er óánægður með að fá aldrei að spila sína uppáhaldsstöðu undir stjórn
Claudio Ranieri hjá Chelsea.
Jesper Grönkjær, félagi Eiðs Smára hjá Chelsea:
Ég sakna
vinstri kantsins