Fréttablaðið - 20.02.2004, Síða 54
Ég er alæta á öll fíkniefni ensíðustu tvö árin hef ég verið
að neyta contalgín, örvandi og
róandi lyfja,“ segir Ólafur Pétur
Pétursson, 25 ára fíkniefnaneyt-
andi. Ólafur byrjaði að drekka
áfengi 13 ára gamall líkt og
margir félagar hans. 16 ára var
hann byrjaður að sprauta sig.
Hann líkir fíkninni hjá sér við
Concorde-þotu að hrapa. Leiðin
niður var hröð og bein.
Ólafur segir líf sitt búið að
vera kvöl og pínu. „Frá þrettán
ára aldri hef ég annaðhvort ver-
ið á spítala, hjá lögreglunni, í
fangelsi eða á stofnunum. Dag-
arnir hafa snúist um að útvega
fíkniefni.“
Ólafur var staddur í Byrginu
þegar Fréttablaðið talaði við
hann og hafði einungis dvalið
þar í sólarhring. Hann var á
sterkum lyfjum til að koma í
veg fyrir fráhvarfseinkenni.
„Ég þrái að hætta en ég hræðist
fráhvarfseinkennin. Ég er búinn
að vera á contalgíni hátt í fjóra
mánuði upp á hvern dag. Frá-
hvörfin eru viðbjóðsleg og ekki
hægt fyrir leikmann að setja sig
í þau spor.“
Ólafur segir fíkla sífellt leita
eftir fyrstu vímunni sem endist
í langan tíma. „Víman í dag end-
ist mér í þrjár mínútur. Eftir sit-
ur maður flatur og bíður eftir
því að toppa á ný.“
Ólafur var nærri dauða en lífi
eftir að hafa neytt þess sem
fíkniefnaneytendur kalla affall.
Um er að ræða örvandi lyf sem
er látið gerjast í bómul við
stofuhita í nokkra sólarhringa.
Eitrið magnast upp á meðan og
þegar allt annað þrýtur er not-
ast við það. Ólafur féll í dá og
var haldið lifandi í öndunarvél í
þrjár vikur. Það þótti kraftaverk
að hann skyldi fá meðvitund á
ný. Óttast var að hann myndi
lamast fyrir neðan mitti og lá
hann ósjálfbjarga í tvo mánuði.
„Um leið og ég gat staulast á
fætur fór ég inn á klósett og
fékk mér rítalínsprautu. Ég
fékk móral og fór beinustu leið á
Vog og þaðan á Staðarfell. Ég
var edrú í fjóra mánuði og er
það lengsta tímabilið frá því ég
byrjaði að nota eiturlyf. Þremur
dögum eftir að ég kom út féll
ég.“ Ólafur var spurður hvort
þarna hefði hann náð botninum.
„Vissulega. En það dugði ekki
til. Ég hélt áfram. Kistubotn
sem liggur sjö fetum undir
moldu virðist vera takmarkið.“
Ólafur segist ekki óska nein-
um sömu örlaga. „Ég var um
daginn hjá vinkonu minni sem
er búin að vera morfínfíkill í
mörg ár og á ekki langt eftir
ólifað. Við sátum og spjölluðum
um að við óskuðum engum hlut-
skipti okkar. Meðan við ræddum
þetta sátum við sitt
með hvora sprautuna í
hendinni. Þetta er ekki
gert í neinni gleði. Það
er engin hamingja
fólgin í að vera fíkill.“
Ólafur á einn son
sem hann reynir að
hitta aðra hverja
helgi. Þá á hann fóst-
urdóttur en segist
sjá minna af henni
eftir að hafa slitið
samvistum við móð-
ur hennar. „Ég verð
að vera á am-
fetamíni eða vægu
morfíni til að geta
sinnt honum. Ef
ekki verð ég veik-
ur. Ég minnist þess
í einni sumarbú-
staðarferð að ligg-
ja ælandi allan
tímann.“
Ólafur segir
sjálfsfyrir l i tn -
ingu koma síðar í
m e ð f e r ð i n n i .
„Kvíði, ótti,
hræðsla og
skömm hellist yfir mann. Ég
þrái að lifa venjubundnu lífi.
Mér finnst ég búinn með minn
skammt. Ég ætla að berjast
núna fyrir lífinu, hinn möguleik-
inn er dauðinn.“
Ólafur er sannfærður um að
honum sé ætlað eitthvert hlut-
verk. „Ég hef fengið fleiri tæki-
færi en aðrir og ætti að vera
dauður. Forvarnir eru mér ofar-
lega í huga. Ekki þetta
Hollywood-leikrit sem er sett á
sviði fyrir skólakrakka heldur
hinn kaldi raunveruleiki. Ég
man eftir þegar fíkill kom í skól-
ann minn Þarna stóð hann heil-
brigður og hraustur. Við tókum
ekkert mark á þessu. Ég vildi
helst hafa virkan fíkill með mér
inn í skólastofurnar titrandi og
skjálfandi og segja við krakkana
„Sjáið. Svona fer fyrir ykkur ef
þið prófið fíkniefni.“ ■
Hrósið 46 20. febrúar 2004 FÖSTUDAGUR
Sænski rithöfundurinn LizaMarklund hyggst skrifa alls
sex bækur í spennusagnaröðinni
um blaðamanninn Anniku Beng-
tzon. Þrjár þær fyrstu, Stúdíó
sex, Paradís og Sprengjuvargur-
inn, hafa þegar verið gefnar út á
íslensku af Máli og Menningu en
nú bregður svo við að fjórða
bókin, Villibirta, er gefin út af
ARI-útgáfu. Sú útgáfa er stofn-
uð af Önnu Ragnhildi Ingólfs-
dóttur, sem þýddi hinar bækurn-
ar þrjár, til þess að tryggja að
allar sex bækurnar verði gefnar
út á íslensku þannig að íslenskir
lesendur verði ekki skildir eftir
í miðjum klíðum.
„Ég vil halda áfram að þýða
hana og gefa út,“ segir Anna.
„Ég hef fengið útgáfuréttinn af
þessari bók og þeirri næstu; Úlf-
urinn rauði sem ég er byrjuð að
þýða. Mér fannst það óþægilegt
að þessi þekkti norræni höfund-
ur dytti niður hér á landi. Bæk-
ur Lizu hafa selst í yfir fimm
milljónum eintaka í 115 löndum
á 26 tungumálum og Úlfurinn
rauði hefur jafnvel selst betur.
Ég hef því engar áhyggjur af
þessari útgáfu. Bókin fór í allar
helstu bókabúðirnar síðasta
mánudag og ég er þegar farin að
fá aukapantanir, þannig að hún
selst. Mér fannst það líka tíma-
bært að gefa Villibirtu út núna
því hún er svo akkúrat í samtím-
anum. Bókin fjallar um það sem
er að gerast hjá okkur líka eins
og innherjaviðskipti og samein-
ingu fjölmiðlafyrirtækja. Liza
er fyrrum blaðamaður og hefur
mikla yfirsýn yfir þjóðfélags-
mál og er næm á mannlífið.“ ■
Bókaútgáfa
VILLIBIRTA
■ Þýðandinn gefur sjálfur út nýjustu
bók Lizu Marklund.
... fær Spaugstofan fyrir að koma
alltaf aftur.
Þýðandi gerist bókaútgefandi
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Við Bústaðaveg 151.
Guðmundur Þóroddsson.
Guðjón Hjörleifsson.í dag
Bruðl og sukk í
Íslandsheimsókn
Feðgarnir fengu
sér 163
milljónir
Blaðafulltrúi
í Litháen veit
meira en Inger
sýslumaður
Fíkillinn
ÓLAFUR PÉTUR PÉTURSSON
■ er 25 ára fíkniefnaneytandi.
Hann byrjaði 13 ára í neyslu og hefur
ekki stoppað síðan.
ANNA RAGNHILDUR INGÓLFSDÓTTIR
Hefur þýtt þrjár bækur eftir Lizu Marklund
fyrir Mál og menningu en
gefur þá fjórðu út sjálf.
1
7
8 9
10
11 13
16 17
18
14 15
12
2 3 4 5
6
Lárétt: 1rjóðar, 6 jól, 7uú,8ar, 9iðn,10áðu,
12aga,14hál,15um,16ar, 17arm,18fara.
Lóðrétt: 1rjál,2jór, 3ól,4auðugur, 5rún,9iða,
11pára,13amma,14haf, 17aa.
Lárétt: 1 sællegar, 6 hátíð, 7 í röð, 9 fag,
10 hvíldu, 12 bleytu, 14 sleip, 15 varð-
andi, 16 rykkorn, 17 handlegg, 18 halda á
brott.
Lóðrétt: 1 fitl, 2 hestur, 3 belti, 4 ríkur, 5
letur, 9 svelgur, 11 krassa, 13 ættingi, 14
sær, 17 tveir eins.
Lausn.
ÓLAFUR PÉTUR PÉTURSSON
Ljósmyndirnar eru fengnar úr
kvikmyndinni Rockville eftir Þor-
stein Jónsson kvikmyndagerðar-
mann. Myndin fer í sýningu í
mars. Í myndinni segir Ólafur
ásamt fleiri einstaklingum sögu
sína. Myndin er tekin yfir
þriggja ára tímabil.
Engin hamingja
fólgin í fíkn