Fréttablaðið - 27.02.2004, Síða 37
Uppáhaldsmaturinn? Þetta ererfið spurning. Mér þykir all-
ur matur góður,“ segir Friðrik V.
Karlsson, matreiðslumeistari á
Friðriki V (lesist fimmta) á Akur-
eyri. Eftir smá umhugsun bætir
hann við: „Það er auðvitað alltaf
tilbreyting að bragða eitthvað
sem maður er ekki að fást við
sjálfur alla daga. Íslensk kjöt-
súpa er til dæmis rosalega góð.
Ég held bara að ég nefni hana
sem uppáhaldsmat.“
Friðrik hefur rekið veitinga-
staðinn Friðrik V í þrjú ár og lagt
mikla rækt við spænska og ítals-
ka matargerð úr íslensku hrá-
efni, eða eins og hann orðar það
sjálfur: „Íslenska eldhúsið á Frið-
riki V hefur tekið á sig ferskan
blæ Miðjarðarhafsins.“
Á sýningunni Matur 2004 mun
hann, í samstarfi við Karl K.
Karlsson heildverslun, sýna mat-
reiðslu á tapas-réttum og einföld-
um ítölskum réttum úr því hrá-
efni sem nú er í boði á Íslandi hjá
Karli K.
Að kvöldi fimmtu-
dags hefst síðan sam-
starf Humarhússins
og Friðriks V, þar sem
verður nýstárlegur
matseðill í anda Friðriks
V sem gengur undir nafninu
„Nýtt íslenskt eldhús“. Þar
verður einn færasti spænski
vínþjónn Spánar, Toni Batet,
sem Friðrik hefur kynnst á
flakki sínu á Spáni. Matseðill-
inn verður frá fimmtudags-
kvöldi til sunnudagskvölds. ■
Skemmtilegasta
veislan
27. febrúar 2004 15Matur 2004
Lilja Guðrún H. Róbertsdóttir
Besta veisla sem ég hef farið í er brúð-
kaupsveisla sem ég fór í á nýársdag.
Það var gifting í heimahúsi og lítil og
heimilisleg kökuveisla á eftir. Mér fannst
hún frábær. Ég fíla ekki stórar veislur.
Heiðursgesturinn:
Byrjaði í
uppvaskinu
Heiðursgestur hátíðarinnarMatur 2004 er hinn norski
snilldarkokkur Charles Tjessem,
sigurvegari Bocuse d’Or-keppn-
innar í Lyon í
Frakklandi í
fyrra. Sú keppni
er sú virtasta í
veröldinni og er
haldin annað
hvert ár.
Tjessem er frá
Sandnes og hóf
ferilinn í upp-
vaskinu á Hótel
Sverre 1985. Að
kokkanámi loknu
starfaði hann
meðal annars sem kokkur hjá
norsku landhelgisgæslunni og í
Barentshafinu og kveðst ekki hafa
viljað missa af þeirri reynslu. Síð-
an hefur hann numið og starfað
víða, mest þó í sínu heimalandi,
þar sem hann er meðal annars í
kokkalandsliðinu. ■
JÓHANNES NÚMASON
Mundar hamarinn um helgina.
Keppt í kjötskurði á
laugardag:
Afraksturinn
settur á
uppboð
Meðal þess sem keppt verður íá sýningunni Matur 2004
verður kjötskurður. Þar munda
bitvopnin nemar og sveinar í kjöt-
iðnaðarfræðum. Jóhannes Núma-
son, kjötiðnaðarmaður hjá Saltvík,
heldur utan um þessa keppni sem
háð verður á morgun, laugardag.
Nemarnir byrja kl. 11 og að sögn
Jóhannesar felst verkefni þeirra í
því að brytja niður lambsskrokk
og gera hann kláran í kjötborð
verslunar en mikil leynd hvílir
yfir verkefni sveinanna sem byrja
keppni kl. 14. „Það á að koma á
óvart, bæði þeim og áhorfendum,“
segir Jóhannes.
Að keppni lokinni um kl. 15.30
hefst uppboð á kjötinu og allur
ágóði rennur til Krafts, félags
ungs fólks sem greinst hefur með
krabbamein. Jóhannes bregður sér
þá í hlutverk uppboðshaldara og
sveiflar fundarhamri Félags ís-
lenskra kjötiðnaðarmanna. ■
Friðrik Karlsson, matreiðslumeistari á Friðriki V:
Íslensk kjötsúpa best
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
SIGURVEGARI
Charles Thessem
var kátur þegar úr-
slit úr Bocuse d’Or
voru kunngerð.
FRIÐRIK V. KARLSSON
Hefur flakkað um Ítalíu og Spán og
starfað þar á ýmsum stöðum.