Fréttablaðið - 26.03.2004, Qupperneq 8
8 26. mars 2004 FÖSTUDAGUR
■ Asía
Lítum okkur nær
„Ég held að Íslendingar ættu
frekar að hafa áhyggjur af inn-
lendri glæpastarfsemi en að fara
að búa til mafíuímynd á útlend-
inga hérlendis.“
Sigurður Þór Salvarsson, DV, 25. mars.
Jafnrétti kynjanna
„Reykjavík, sem hefur gumað
sig af því að vera höfuðborg jafn-
réttis á landinu, býr við mestan
launamun kynjanna. Enda eru
þar við lýði mestu umræðupóli-
tíkusar landsins og meira talað
en minna framkvæmt.“
Gunnar I. Birgisson. Fréttablaðið, 25. mars.
Annarra að meta
„Ég ætla ekki að leggja mat á
það hvort DV hafi farið rétt að
við birtingu umræddrar yfir-
heyrslu, það er annarra að
meta.“
Bryndís Hlöðversdóttir um birtingu lögregluskýrslu í lík-
fundarmálinu. Morgunblaðið, 25. mars.
Orðrétt
Reykjavíkurborg og Mosfellsbær undirrita samkomulag:
Bæjarkjarni á mörkum
sveitarfélaganna
SKIPULAGSMÁL Þórólfur Árnason,
borgarstjóri í Reykjavík, og Ragn-
heiður Ríkharðsdóttir, bæjarstjóri í
Mosfellsbæ, undirrituðu í gær sam-
komulag um uppbyggingu bæjar-
kjarna á mörkum sveitarfélaganna
tveggja. Í fréttatilkynningu frá
borgaryfirvöldum kemur fram að
markmiðið sé að styrkja byggð í
báðum bæjarfélögunum með sam-
ræmdu skipulagi á svæði sem nær
yfir Grafarholt, Keldnaland,
Keldnaholt, Blikastaðaland, Hamra-
hlíðarlönd og suðurhlíðar Úlfars-
fells.
Snemma árs 2001 ákváðu
Reykjavíkurborg og Mosfellsbær
að hefja samstarf um skipulag
svæðis við mörk sveitarfélaganna.
Árið 2003 var ráðgjafarþjónustunni
Nýsi hf. falið að vinna þróunaráætl-
un um uppbyggingu bæjarkjarna á
svæðinu og er þeirri vinnu nú lokið.
Sveitarfélögin munu sameiginlega
vinna að því að gera nauðsynlegar
breytingar á skipulagsáætlunum
þess svæðis sem þróunaráætlunin
nær til.
Stefnt er að því að öll ákvæði
þróunaráætlunar komi til fram-
kvæmda eigi síðar en árið 2024.
Þegar hefur verið skipaður stýri-
hópur til að hrinda áætluninni í
framkvæmd. ■
Synir stofnenda
reknir úr starfi
Ágreiningur milli eigenda Ásprents Stíls á Akureyri endaði með því að
ríkjandi meirihluti rak þrjá stjórnendur sem jafnframt eru minnihluta-
eigendur. Minnihlutaeigendurnir ætla að höfða mál.
VIÐSKIPTI Minnihlutaeigendur
prentsmiðjunnar Ásprents Stíls
hyggjast höfða mál til að rifta
samningum um sameiningu Ás-
prents og Stíls og taka aftur til
sín Ásprent, sem lagt var inn í
fyrirtækið. Minnihlutaeigend-
urnir eru bræður, en foreldrar
þeirra seldu sinn hlut við sam-
eininguna og fengu greitt í pen-
ingum. Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins telja minnihluta-
eigendurnir að rekstrarforsend-
ur Stíls við sameininguna hafi
ekki staðist og því beri að rifta
sameiningunni. Frá þeirra sjón-
arhóli er litið svo á að eigendur
Stíls, sem er fyrirtæki Baldurs
Guðnasonar, Sjafnar, hafi fjár-
hagsleg skammtímasjónarmið
að leiðarljósi. Sjónarmið Ás-
prentsbræðra lúti að langtíma-
hagsmunum fyrirtækisins, enda
hafi fjölskyldan byggt upp eina
af fjórum stærstu prentsmiðjum
landsins.
Ásprent Stíll var í helmings-
eigu Stíls og Ásprents. Prent-
smiðjan Alprent sameinaðist fyr-
irtækjunum og var þá hlutafé
aukið. Sjöfn hélt 50% vægi með
kaupum á nýju hlutafé, en hlutur
bræðranna minnkaði í 33%. Síðan
þá hefur verið ágreiningur milli
eigenda. Fyrirtækið hefur gefið
út Dagskrána á Akureyri, sem
hefur verið einn öflugasti auglýs-
ingamiðil bæjarins og hryggjar-
stykki í starfsemi prentsmiðjunn-
ar. Hugmyndir voru uppi um að
stofna sérstakt útgáfufélag um
Dagskrána. Ásprentsfjölskyldan
var andvíg því og fallið var frá
þeim hugmyndum.
Baldur Guðnason, eigandi
Sjafnar, segir að ekki hafi verið
annað hægt en að segja bræðrun-
um upp þegar lá fyrir að þeir
færu í mál við fyrirtækið. Þeir
hafi verið helmingseigendur þeg-
ar ákvarðanir sem málsóknin
beinist að hafi verið teknar. „Þetta
snýst um ágreining um stjórn og
stefnu fyrirtækisins og það var
ljóst að sá ágreiningur yrði ekki
leystur.“ Hann segir því að leysa
verði ágreininginn í gegnum lög-
menn aðila eða fyrir dómstólum.
Eigendur Sjafnar gerðu minni-
hlutaeigendum tilboð um kaup á
minnihlutanum, en ákvæði um að
bræðurnir störfuðu ekki í prent-
iðnaði næstu sjö ár var óviðun-
andi að þeirra mati.
haflidi@frettabladid.is
ÚRBÓTA KRAFIST
Slökkviliðsmenn kröfðust betri vinnuað-
stæðna og lægri eftirlaunaaldurs.
Mótmæli í París:
Sprautað á
slökkviliðið
PARÍS, AP Franska óeirðalögreglan
sprautaði vatni á slökkviliðsmenn
til að dreifa þeim eftir að sumir
tóku að kasta reyksprengjum og
skjóta upp blysum í kröfugöngu
þar sem þeir fóru fram á að eftir-
launaaldur slökkviliðsmanna yrði
lækkaður úr 55 árum í 50.
Um 3.500 slökkviliðsmenn tóku
þátt í kröfugöngunni, sem fór í
fyrstu vel fram. Sumir slökkviliðs-
menn héldu á lofti eftirlíkingum af
líkkistum sem tákni um þá 235
slökkviliðsmenn sem létust við
störf sín á síðasta ári. Eftir að aðr-
ir fóru að láta ófriðlega lét óeirða-
lögreglan til skarar skríða. ■
147. AÐILDARRÍKIÐ Nepal gerist
aðili að Alþjóða viðskiptastofnun-
inni á fundi stofnunarinnar í
næsta mánuði. Nepal verður þá
147. ríki heims sem á aðild að
stofnuninni og fyrsta ríkið úr
hópi fátækustu ríkja heims til að
fá aðild að henni. 40% af 23 millj-
ón landsmönnum lifa af innan við
70 krónum á dag.
NÓBELSVERÐLAUNUM STOLIÐ
Þjófar brutust inn í safn í austurhluta
Indlands og höfðu á brott viðurkenn-
inguna sem Rabindranath Tagore
fékk þegar hann hlaut Nóbelsverð-
launin í bókmenntum árið 1913. Að
auki stálu þeir úri, málverkum og
öðrum verðlaunapeningum.
Vandi í Sjanghæ:
Ekki pláss
fyrir grafir
SJANGHÆ, AP Lengi hefur þrengt að
íbúum Sjanghæ í lifanda lífi en nú
er útlit fyrir að það þrengist enn
meira um þá eftir dauðann. Sam-
kvæmt nýrri skýrslu verður eftir
fimm ár ekkert pláss laust til að
grafa fólk.
Ár hvert látast álíka margir í
Sjanghæ og eru búsettir í Reykja-
vík, um 100.000 manns. 80%
þeirra eru enn lögð til hinstu hvílu
í grafhýsum sem taka mikið pláss.
Tilraunir stjórnvalda til að fá fólk
til að brenna lík látinna ættingja
hafa litlum árangri skilað. ■
ABIDJAN
Götur borgarinnar breyttust í vígvöll þegar
skotið var á fólk í kröfugöngu.
Friðurinn úti:
Skotnir í
kröfugöngu
FÍLABEINSSTRÖNDIN, AP Sextán mót-
mælendur féllu fyrir hendi örygg-
issveita stjórnvalda á Fílabeins-
ströndinni þegar skotið var á þátt-
takendur í kröfugöngu í Abidjan,
höfuðborg landsins, í gær.
Fjölmenni tók þátt í göngunni
þar sem þess var krafist að friðar-
samkomulagi sem náðist á síðasta
ári yrði hrundið í framkvæmd að
fullu. Samkomulagið batt enda á
níu mánaða borgarastríð en eftir
atburðina í gær drógu uppreisnar-
menn og helsti stjórnarandstöðu-
flokkurinn stuðning sinn við sam-
komulagið til baka. ■
– hefur þú séð DV í dag
Kári sótti 800
milljónir til Panama
þar sem 400
milljónir hurfu
Heilbrigðiseftirlitið í Garðabæ um hundamál á svæðinu:
Erfitt að finna góð afmörkuð svæði
GARÐABÆR „Við munum skoða
þessi mál almennt. Það er alltaf
verið að kanna hvaða afmörkuð
svæði kunni að henta til að sleppa
hundum lausum, en það hefur
reynst erfitt að finna viðunandi
lausn, sem allir geta sætt sig við,“
segir Guðmundur Einarsson, for-
stöðumaður heilbrigðiseftirlits
Garðabæjar.
Hundaeigendur eru felmtri
slegnir eftir að bóndinn að Páls-
húsum við Garðaveg á mótum
Garðabæjar og Hafnarfjarðar
skaut til bana hreinræktaðan
Boxer-hund, sem ásamt öðrum
hundum var að leika sér á svæð-
inu í fyrradag. Ranghermt var í
Fréttablaðinu í gær að bóndinn að
Dysjum II hefði drepið hundinn
og er beðist velvirðingar á þeim
mistökum. Drápið var kært til
lögreglunnar í Hafnarfirði sem
rannsakar nú málið, en hundarnir
höfðu hlaupið frá svæðinu við
eyðijörðina Bala í átt að Pálshús-
um og fleiri bæjum þar sem kind-
ur eru lausar.
„Það er mikilvægt að hunda-
eigendur axli ábyrgð og hafi
stjórn á sínum hundum. Það sem
gerðist þarna í fyrradag átti
ekki að geta gerst,“ segir Guð-
mundur. ■
NÝR BÆJARKJARNI
Nýja byggðin mun teygja sig yfir Grafarholt,
Keldnaland, Keldnaholt, Blikastaðaland,
Hamrahlíðarlönd og suðurhlíðar Úlfarsfells.
Norðurland:
Sjúkrahús
sýknað
DÓMSMÁL Fjórðungssjúkrahúsið á
Akureyri var í gær sýknað af
ákæru konu um að hafa brugðist
á rangan hátt við veikindum
hennar með þeim afleiðingum að
hún missti sjón á öðru auga.
Konan kærði sjúkrahúsið
fyrir að hafa ekki kallað til augn-
lækni þegar hún leitaði aðstoðar
eftir að hafa fallið í yfirlið og
misst tímabundið sjónina árið
1998.
Í niðurstöðu Héraðsdóms
Norðurlands eystra segir að úti-
lokað virðist að tilkvaðning
augnlæknis hefði bjargað kon-
unni frá blindu á öðru auga. ■
ÁGREININGUR EIGENDA
Baldur Guðnason er aðaleigandi Sjafnar, sem á helmingshlut í prentsmiðjunni Ásprenti
Stíl. Meirihlutinn sagði sonum stofnenda Ásprents upp vegna ágreinings. Synirnir vilja rifta
sameiningu Ásprents og Stíls.
HUNDSDRÁP
Bóndinn að Pálshúsum skaut og drap Boxer-hund sem hafði hlaupið frá eyðijörðinni Bala
í átt að bænum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
Úlfarsfell
Korpúlfsstaðir