Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.03.2004, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 26.03.2004, Qupperneq 10
10 26. mars 2004 FÖSTUDAGUR FÁNINN BRENNDUR Mótmælendur brenndu japanska fánann fyrir framan sendiráð Japans í Peking, höf- uðborg Kína. Fólkið mótmælti handtöku sjö Kínverja á á Diayou-eyju sem Japanar og Kínverjar hafa deilt um yfirráðin á. Eyj- an hefur verið undir stjórn Japans frá árinu 1972. Sálfræðiskýrsla um Ágúst Magnússon: Haldinn djúpstæðri barnagirnd DÓMSMÁL Ágúst Magnússon hefur greinst með djúpstæða, rótgróna barnagirnd (pedophilia) sem hefur þróast að minnsta kosti frá því hann var 13 ára gamall en Ágúst er 37 ára. Þetta kemur fram í niðurstöð- um sálfræðiskýrslu dr. Gunnars Hrafns Birgissonar sem greint er frá í dómi Héraðsdóms Reykjavík- ur. Þar segir að viðhorf Ágústs, kenndir og kynhegðun sé dæmi- gerð fyrir menn með barnagirnd á alvarlegu stigi. Það komi meðal annars fram í þrálátum kynórum og áráttu sem beinist mjög að klámefni og kynlífi með börnum, sérstaklega drengjum. Enn fremur segir að Ágúst hafi ekki stjórn á þessum hugsunum, kenndum og hegðun. Hann sé með persónu- leikaröskun sem einkennist af sterkri tilhneigingu til félagslegr- ar einangrunar. Í skýrslunni segir að Ágúst sé sérlundaður einfari sem skynji til- veru sína ólíkt öðrum og er nefnt sem dæmi um þetta að hann trúi því að ef barn horfi á kynfæri hans hljóti að felast í því kynferðislegur áhugi. Fyrir dómi staðfesti Gunnar Hrafn skýrslu sína og það að Ágúst greinist með alvarlega barna- hneigð og þráláta kynóra. Hann telur miklar líkur á að slík mál endurtaki sig ef Ágúst vinni ekki markvisst að sínum málum. Gunnar Hrafn segir hættu á að menn festist í minningum um fyrstu kynlífsreynslu sína og í til- viki ákærða hafi það verið með 6- 10 ára börnum. Sú meðferð sem gagnist best sé langvarandi með- ferð. ■ Ágúst Magnússon, 37 ára Reyk-víkingur, hefur verið dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir gróf og ítrekuð kynferðisbrot gegn sex drengjum og vörslu barnakláms sem innihélt meðal annars mynd- bönd með honum í kynferðisleg- um athöfnum með drengjum. Dómurinn var kveðinn upp í Hér- aðsdómi Reykjavíkur í gær. Samtals fóru drengirnir sex fram á 10,75 milljónir í miskabæt- ur en Ágúst var dæmdur til að greiða fimm þeirra samtals 1.750 þúsund krónur. Bótakröfu eins drengjanna, sem er misþroska, var vísað frá. Vegna félagslegra vandamála og misþroska drengs- ins taldi dómurinn erfitt að greina milli afleiðinga af háttsemi ákærða á drenginn og líðan hans fyrir brotið. Ágúst hefur ekki tek- ið ákvörðun um hvort hann muni áfrýja dómnum. Ágúst var sýkn- aður af kröfu ákæruvaldsins um að verða beittur öryggisráðstöf- unum að fangelsisvistinni lokinni. Ákæruvaldið fór fram á þetta þar sem það taldi hættu á því að Ágúst myndi brjóta áfram af sér eftir að hann yrði laus. Dómurinn taldi hins vegar með hliðsjón af vitnisburði sálfræðings að með sálfræðimeð- ferð í fang- elsinsu gæfist möguleiki á að breyta á ranghug- myndum Ágúst- ar. Gífurlegt magn klámefnis Upphaf málsins má rekja til þess að 28. apríl í fyrra barst lög- reglunni tilkynning um blygðun- arsemisbrot á netinu. Sá sem til- kynnti sagðist hafa fylgst með manni sem verið hefði að reyna að komast í samband við 13 til 18 ára gamla stráka á spjallrásum á net- inu. Tilkynnandinn sagðist vita um nokkurn fjölda stráka sem hefðu haft samskipti við manninn. Lögreglan tók skýrslu af dreng í maí sem lýsti ákærða sem lág- vöxnum, feitlögnum manni með gleraugu. Lögreglan rakti fljót- lega slóðina til Ágústs Magnús- sonar og var hann handtekinn 26. maí. Við húsleit heima hjá Ágústi fannst gífurlegt magn af klám- efni, tölvumyndum, myndböndum og hreyfimyndum vistuðum í tölvu, sem sýndi börn á kynferðis- legan og klámfenginn hátt. Einnig fannst klámefni í tölvu á vinnu- stað Ágústs. Á meðal þess sem fannst í tölv- um Ágústs voru skrár úr spjallforritum sem sýna samtöl hans við b ö r n o g u n g - linga. Þá fundust einnig skrár sem inni- héldu lista yfir nöfn barnaklámmynda sem virðast ganga manna á milli á skiptimörkuðum barnaklám- mynda á tilteknum spjallrásum á netinu. Ágúst tældi drengina til sam- neytis við sig á spjallrásum á net- inu þar sem hann notaðist meðal annars við dulnefnið „DolbyBoy“. Ágúst byggði með markvissum hætti upp trúnaðarsamband við drengi en misnotaði síðan traustið heiftarlega með grófum kynferð- isbrotum gagnvart þeim. Nýtti hann yfirburði sína á sviði aldurs og þroska gegn drengjunum sem höfðu ekki reynslu af kynlífi. Sagðist vera 14 ára stúlka Í einu tilfellanna var hann í sambandi við einn drengjanna í nokkra mánuði á spjallrás áður en þeir hittust. Samkvæmt drengn- um laug Ágúst því til að hann héti Tómas og væri 16 ára. Þeir hittust nokkrum sinnum og misnotaði Ágúst drenginn, sem þá var 13 ára, kynferðislega bæði á heimili sínu og í bíl sínum. Í dómnum kemur fram að þegar drengurinn var 16 ára sendi Ágúst honum tölvupóst þar sem hann segir að drengurinn sé 16 ára og að faðir hans ráði ekki lengur yfir honum. Í tölvupóstinum segir enn fremur: „[faðir þinn] gat það þegar þú varst 13 en ekki lengur. Auk þess gátum við farið á bak við það í þessi tvö ár.“ Í öðru tilfelli komst Ágúst í samband við einn drengjanna á spjallrás á netinu með blekking- um. Ágúst sagðist vera 14 ára stúlka og heita Stína. Síðan fékk hann drenginn til að senda sér nektarmyndir af sjálfum sér gegn því að hann sendi sjálfur nektar- myndir. Drengurinn sendi honum 44 myndir af sjálfum sér en fékk náttúrlega aldrei myndir til baka. Fyrir dómi sagðist Ágúst hafa gert þetta til þess að fá kynlífs- myndir sem hann gæti sjálfur notið. Batt fyrir augu drengs Ágúst notaði svipaða aðferð þegar hann tældi annan dreng. Hann komst í sam- band við hann á spjallrás og sagð- ist vera 14 ára stúlka og heita Stína. Sendi hann drengn- um skilaboð um að hann vildi eiga kynmök við hann. Drengurinn, sem taldi sig vera í sambandi við stúlku, ákvað að hitta stúlkuna. Þá fékk hann skilaboð um að „einhver gaur“ myndi sækja hann. Þessi „gaur“, sem var Ágúst, átti samkvæmt s t ú l k u n n i að vera með lista yfir það sem drengurinn átti að gera. Ágúst sótti síðan drenginn. Hann gaf honum fyrirmæli um að binda fyrir augun á sér, en það var sam- kvæmt Ágústi meðal fyrirmæl- anna á listanum frá stúlkunni. Síð- an ók Ágúst drengnum heim til sín þar sem hann misnotaði hann kyn- ferðislega og tók athæfið upp á myndband. Einbeittur brotavilji Í dómnum kemur fram að hin kynferðislega misnotkun sem Ágúst beitti drengina hafi valdið þeim sálrænu tjóni sem hafi haft alvarlegar afleiðingar fyrir sjálfsmynd þeirra og þroska, en nokkrir þeirra hafi upp- lifað mikla skömm og sektarkennd vegna brotanna. Dómurinn segir að þær aðferð- ir sem Ágúst beitti sýni einbeittan brotavilja hans í þeim tilgangi að fullnægja kyn- lífsórum sínum g a g n v a r t drengjunum. ■ – hefur þú séð DV í dag Mæðrastyrks- nefnd gefur útrunnin matvæli ÁGÚST MAGNÚSSON Ágúst er sagður sérlundaður einfari sem skynji tilveru sína ólíkt öðrum. Tældi drengi á Netinu Tæplega fertugur Reykvíkingur tældi til sín unga drengi á spjallrásum á netinu. Hann blekkti þá og misnotaði gróflega kynferðislega. Hann notaði dulnefnin „DolbyBoy“ og „Stína“ á spjallrásum. Fórnarlömb Ágústs DRENGUR FÆDDUR 1985 Brot framin frá árinu 1999 til 2002 Sýndi klámmyndir Hafði kynmök og munnmök við drenginn á heimili sínu og í bíl sínum Tók kynmök upp á myndband DRENGUR FÆDDUR 1986 Brot framin árið 2001 Sýndi klámmyndir Hafði kynmök og munnmök við drenginn á heimili sínu og í bíl sínum Tók kynmök upp á myndband DRENGUR FÆDDUR 1985 Brot framin árið 2002 Sýndi drengnum ósiðlegt athæfi Hafði kynmök og munnmök við drenginn á heimili sínu Tók kynmök upp á myndband DRENGUR FÆDDUR 1985 Brot framin árið 2002 Sýndi drengnum ósiðlegt athæfi Hafði kynmök og munnmök við drenginn á heimili sínu Tók kynmök upp á myndband DRENGUR FÆDDUR 1988 Brot framin árið 2002 Blekkti drenginn til að senda sér nekt- armyndir af sjálfum sér gegnum netið DRENGUR FÆDDUR 1988 Brot framin árið 2003 Sýndi klámmyndir Hafði munnmök við drenginn Tók athæfið upp á myndband KLÁMEFNI SEM GERT VAR UPPTÆKT 5.138 ljósmyndir vistaðar í tölvu 826 hreyfimyndir vistaðar í tölvu 54 geisladiskar fullir af klámefni 4 tölvudiskar með klámefni 13 myndbandsspólur með klámefni 8 mm myndband með klámefni 160 útprentaðar ljósmyndir (Mest af efninu sýnir börn á kynferðislegan og klámfengin hátt) Fréttaskýring TRAUSTI HAFLIÐASON ■ skrifar um kynferðisafbrotamál.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.