Fréttablaðið - 26.03.2004, Blaðsíða 24
26. mars 2004 FÖSTUDAGURfermingar
Öll flottustu
fermingarúrin
ÚR-SKART-GJAFAVARA
S. 552-4930
Maður er að opinbera trú sínameð fermingunni,“ segir
Hörður Morthens, sem fermist nú
á sunnudaginn í Seltjarnarnes-
kirkju. „Það fermast langflestir
strax á sunnudaginn, meira að
segja fyrir hádegi. Ég held að allir
hafi hlakkað svo til og ekki nennt
að bíða lengur,“ segir Hörður.
Hörður er trúaður og lætur
ferma sig þess vegna. „Og svo
kannski pínulítið út af gjöfunum.
Það væri ekki heiðarlegt að við-
urkenna það ekki,“ segir hann og
kímir aðeins. Hörður lítur á fyrst
og fremst á fermingar sem hefð
sem ágætt sé að halda í. „Ég held
að þetta sé bara eins og jólin.
Þetta er siður en skiptir ekki eins
miklu máli og í gamla daga þegar
fólk var tekið í fullorðinna
manna tölu.“
Hörður viðurkennir hins vegar
að hann hafi ekki verið nógu dug-
legur að fara í messur í vetur.
„Sunnudagsmorgnar eru vondur
tími. Þá vill maður sofa út.“
Fermingarveislan hans Harðar
verður á Hótel Sögu og hann á von
á rúmlega 60 manns. „Ég þekki
gestina misvel en hef talað við þá
flesta,“ segir hann meðan hann lít-
ur yfir getalistann. „Mamma er
aðallega í undirbúningnum. Ég
skrifaði gestalistann og vel kök-
una en mamma hefur meira vit á
mat en ég. Þetta verður allt voða
fínt, tígrisrækjur og svona.“
Hörður er á því að fermingar-
dagurinn sé stór dagur. „Þetta
gerist bara einu sinni. Þetta er
ekki eins og afmæli.“ ■
16
Almennt helgihald á sunnudög-um leggst af og sunnudaga-
skólinn er rekinn upp í rjáfur eða
niður í kjallara þær vikur sem
fermingar standa yfir. Því tel ég
fullkomlega eðlilegt að færa fer-
mingar yfir á laugardaga,“ segir
sr. Guðmundur Karl Brynjarsson,
prestur í Lindasókn í Kópavogi.
Hann fermir 77 börn þetta vorið í
tveimur athöfnum. Sú fyrri hefur
þegar farið fram og sú síðari er á
morgun. Engin kirkja er í Linda-
hverfi ennþá og því fær sr. Guð-
mundur Karl Hjallakirkju lánaða.
Þar starfaði hann áður en hann fór
til hinnar nýju Lindasóknar árið
2002 og er því hagvanur. En hann
kveðst ætla að halda þeim sið að
ferma á laugardögum þegar nýja
kirkjan rís. „Ég vona að helgihald-
ið verði lifandi og blómlegt og vil
hafa sunnudagana fyrir hefð-
bundnar guðsþjónustur því þó að
allir megi koma í fermingarmess-
ur mæta yfirleitt fáir ef þeir eru
ekki að fylgja einhverju barni,“
segir hann.
Sr. Guðmundur Karl er fyrsti
presturinn á höfuðborgarsvæðinu
til að taka upp laugardagsferm-
ingar en hann segir þær hafa ver-
ið prófaðar á Akureyri og einnig í
Útskálasókn. „Þetta fyrirkomulag
hefur verið nokkuð vinsælt enda
hefur það marga kosti að dreifa
fermingunum á laugardaga og
sunnudaga. Til dæmis auðveldar
það fólki að fá sali á leigu, en eins
og staðan er núna þarf það að
tryggja sér þá með árs fyrirvara,“
segir hann. Einnig bendir hann á
að aðrar kirkjulegar athafnir fari
oft fram á laugardögum, svo sem
skírnir og giftingar.
Þetta er annað vorið sem sr.
Guðmundur Karl undirbýr ferm-
ingarbörn í Lindahverfi. Hann
hefur lítið safnaðarheimili til af-
nota sem staðsett er á lóð fyrir
væntanlega kirkju. Það er merkt
með stórum stöfum og út við götu
er skilti með nafninu Uppsalir.
„Sumir halda að þetta sé flugelda-
sala og því reynum við að hafa
þetta greinilegt,“ segir klerkurinn
hlæjandi. ■
Sr. Guðmundur Karl fermir á laugardögum:
Vill hafa sunnudagana fyrir
hefðbundnar guðsþjónustur
SR. GUÐMUNDUR KARL
Segir laugardagsfermingar hafa
marga kosti.
HÖRÐUR MORTHENS
Hörður lítur á fyrst og fremst á fermingar sem hefð sem ágætt sé að halda í.
Hörður Morthens:
Gerist bara einu sinni