Fréttablaðið - 26.03.2004, Page 37
28 26. mars 2004 FÖSTUDAGUR
Thierry Henry slær á efasemdaraddir:
Ekkert kæruleysi hjá Arsenal
FÓTBOLTI Thierry Henry, sóknar-
maður Arsenal, hefur enga trú á
að kæruleysi muni taka sér ból-
festu í liðinu það sem eftir lifir
af leiktíðinni.
Arsenal missti deildarmeist-
aratitilinn í fyrra til Manchester
United eftir að hafa gefið eftir á
lokakaflanum. Henry segir að
Arsenal hafi lært sína lexíu.
„Það er eitt af því sem við höf-
um gert á þessari leiktíð, við
tökum engu sem sjálfsögðum
hlut,“ sagði Henry. „Við verðum
að halda okkur á jörðinni og sjá
til þess að við höldum einbeit-
ingu fyrir seinni leikinn gegn
Chelsea í Meistaradeildinni.“
Henry er ekki sammála því
að gengi Arsenal standi og falli
með frammistöðu sinni og
þeirra Patricks Vieira og Ro-
berts Pires. „Við erum lið. Ég
veit að fólk segir að við séum
bara einn til tveir menn, en ég
er ósammmála því. Það sem hef-
ur gert gæfumuninn hjá okkur á
leiktíðinni er að þegar einhver
tekur af skarið og gerir góða
hluti eru allir hinir tilbúnir til að
berjast með honum,“ sagði
hann. ■
BJÖRGVIN VALINN Í STAÐ REYNIS
Reynir Þór Reynisson, mark-
vörður Víkings, hefur dregið
sig úr landsliðshópi Íslands fyr-
ir leikina gegn Frakklandi sem
háðir verða í lok mánaðarins.
Reynir á við meiðsli að
stríða og í stað hans hefur
markvörðurinn Björgvin Gúst-
avsson, sem leikur með HK,
verið valinn í hans stað.
FÓTBOLTI Lars Lagerbäck og
Tommy Söderberg tilkynntu á
fimmtudag hóp 23 leikmanna sem
mætir Englendingum á Nya
Ullevi í Gautaborg á miðvikudag.
Sjö leikmenn koma frá breskum
félögum. Henrik Larsson er ekki
þeirra á meðal þó svo að 110.000
Svíar, þeirra á meðal forsætisráð-
herrann Göran Persson, hafi beð-
ið hann að leika með landsliðinu
að nýju.
Leikur Svía og Englendinga er
liður í undirbúningi þjóðanna fyr-
ir Evrópumeistarakeppnina í
Portúgal í sumar en leikurinn er
einnig fyrri afmælisleikur Svía,
sem halda upp á 100 ára afmæli
knattspyrnusambands síns á
þessu ári. Seinni leikurinn verður
gegn Hollendingum í ágúst.
Leikurinn verður 20. viðureign
A-liða þjóðanna en snemma á síð-
ustu öld léku Svíar þrisvar við
áhugamannalið Englendinga og
einu sinni við Ólympíulið Breta.
Englendingar hafa forskotið í
viðureignum þjóðanna en þeir
hafa samt ekki unnið Svía síðan
1968. Síðan þá hafa Svíar sigrað
Englendinga þrisvar og sjö leikj-
um hefur lokið með jafntefli. ■
Sími 540 1900 www.krabbameinsfelagid.is
F
ít
o
n
/
S
ÍA
F
I0
0
8
9
9
6
– TIL STYRKTAR KRABBAMEINSFÉLAGINU
Í marsmánuði er hægt að leggja
Krabbameinsfélaginu lið í 38 verslunum
um land allt. Einnig er hægt að hringja
í styrktarsíma Krabbameinsfélagsins
907 5050 og verða þá 1.000 krónur
skuldfærðar af símareikningi.
THIERRY HENRY
Frakkinn snjalli í baráttu við Wayne Bridge
í jafnteflisleiknum gegn Chelsea í
Meistaradeildinni.
■ Handbolti
■ ■ LEIKIR
19.15 Grindavík og Keflavík leika í
Grindavík í undanúrslitum Inter-
sport-deildarinnar í körfubolta.
21.00 Þróttur R. leikur við KA í
Hagaskóla í 1. deild kvenna í
blaki.
21.15 HK og Þróttur N. keppa í
Digranesi í 1. deild kvenna í blaki.
■ ■ SJÓNVARP
14.25 UEFA-bikarkeppnin á Sýn.
Útsending frá leik Olympique
Marseille og Liverpool.
16.05 Olíssport á Sýn. Fjallað er
um helstu íþróttaviðburði heima
og erlendis.
16.35 Trans World Sport (Íþróttir
um allan heim) á Sýn.
17.30 Gillette-sportpakkinn á Sýn.
18.00 Alltaf í boltanum á Sýn.
18.30 Meistaradeild UEFA á Sýn.
Fréttaþáttur um Meistaradeild
UEFA.
19.00 Intersport-deildin í körfu-
bolta á Sýn. Bein útsending frá
þriðja leik Grindavíkur og Kefla-
víkur í undanúrslitum.
21.00 Supercross (RCA Dome) á
Sýn. Nýjustu fréttir frá heims-
meistaramótinu í Supercrossi.
22.00 Motorworld á Sýn. Kraftmik-
ill þáttur um allt það nýjasta í
heimi akstursíþrótta.
hvað?hvar?hvenær?
23 24 25 26 27 28 29
MARS
Föstudagur
SÆNSKI HÓPURINN
MARKVERÐIR
Andreas Isaksson (Djurgården)
Magnus Hedman (Ancona)
Magnus Kihlstedt (FC København)
AÐRIR LEIKMENN
Christoffer Andersson (Lillestrøm)
Mikael Dorsin (Strasbourg)
Erik Edman (Heerenveen)
Andreas Jakobsson (Brøndby)
Teddy Lucic (Bayer Leverkusen)
Olof Mellberg (Aston Villa)
Johan Mjällby (Celtic)
Michael Svensson (Southampton)
Marcus Allbäck (Aston Villa)
Anders Andersson (Belenenses)
Johan Elmander (NAC Breda)
Pontus Farnerud (Strasbourg)
Zlatan Ibrahimovic (Ajax)
Mattias Jonson (Brøndby)
Kim Källström (Stade Rennais)
Tobias Linderoth (Everton)
Fredrik Ljungberg (Arsenal)
Mikael Nilsson (Halmstad)
Anders Svensson (Southampton)
Christian Wilhelmsson (Anderlecht)
Svíar leika við Englendinga á miðvikudag:
36 ár frá enskum sigri
FREDRIK LJUNGBERG
Verður í liði Svía gegn
Englendingum.