Fréttablaðið - 27.03.2004, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 27.03.2004, Blaðsíða 4
6 27. mars 2004 LAUGARDAGUR GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 71,87 -0,42% Sterlingspund 130,89 0,38% Dönsk króna 11,76 -0,09% Evra 87,57 -0,10% Gengisvísitala krónu 122,28 -0,20% KAUPHÖLL ÍSLANDS Fjöldi viðskipta 459 Velta 7.763 milljónir ICEX-15 2.540 -0,46% Mestu viðskiptin Straumur Fjárfestingarbanki hf 697.457 Kaupþing Búnaðarbanki hf. 549.497 Pharmaco hf. 371.345 Mesta hækkun Opin Kerfi Group hf. 2,54% AFL fjárfestingarfélag hf. 2,04% Burðarás hf. 1,02% Mesta lækkun Líf hf -3,85% Pharmaco hf. -3,21% Sæplast hf. -2,73% ERLENDAR VÍSITÖLUR DJ* 10.233,2 0,1% Nasdaq* 1.972,2 0,3% FTSE 4.357,9 -0,4% DAX 3.822,6 0,3% NK50 1.465,0 -0,0% S&P* 1.109,0 -0,0% *Bandarískar vísitölur kl. 17.00 Veistusvarið? 1Hver er yfirmaður Alþjóðakjarnorku-málastofnunarinnar? 2Hávær deila hefur blossað upp íGarðabæ. Um hvað er deilt? 3Sveitaglíma Íslands hefst áLaugarvatni í dag. Hver er núverandi glímukóngur Íslands? Svörin eru á bls. 58 Nýjar hagtölur Hagstofunnar: Breyta ekki spá Seðlabankans EFNHAGSMÁL Már Guðmundsson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, segir nýjar tölur Hagstofunnar um hagvöxt ekki gera spá Seðla- bankans úrelta. Í spá Seðlabankans var gert ráð fyrir að hagvöxtur liðins árs væri 2,75% en Hagstofan gerir ráð fyrir að hagvöxtur hafi verið fjögur prósent. „Við höfðum þrjá ársfjórðunga síðasta árs þegar við gerðum spána. Við vorum ekki að spá fyrir um árið 2003, því það er liðið, heldur árin 2004 og 2005.“ Már segir hagvöxt- inn miðað við tölur Hagstofunnar í hærri kantinum miðað við það sem Seðlabankinn átti von á. „Það þýðir hins vegar ekki endilega að fram- leiðsluslaki í fyrra hafi verið samsvarandi minni, enda benda aðrar upplýsingar í þveröfuga átt.“ Már segir að þetta bendi hins vegar til þess að framleiðniaukn- ing síðasta ár, sem var að mati Seðlabankans mikil, hafi verið enn meiri. „Það þýðir að öðru jöfnu minni verðbólgu, þannig að það er ekki hægt að gefa sér það að þessar tölur hækki verðbólgu- spánna.“ Hann bendir á að lækkun gengis krónunnar síðan spáin var gerð skipti meira máli varðandi verðbólguspána en frávikið í áætlun bankans og Hagstofunnar varðandi hagvöxt í fyrra, enda hafi verið bent á það í Peningamálum Seðlabankans að hátt gengi skapaði óvissu varðandi spána. ■ BJÖRGUNARMIÐSTÖÐ Ný björgunar- miðstöð í Skógarhlíð var vígð í gær. Í miðstöðinni starfa allir þeir sem gegna lykilhlutverki í viðbún- aði landsmanna vegna hvers kyns slysa og náttúruhamfara, auk for- varnarstarfs. Rúmlega þrjú þúsund fermetr- ar hafa bæst við gömlu slökkvi- stöðina í Skógarhlíð og er hús- næðið nú helmingi stærri en áður. Aðstöðu í húsinu hafa slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, Slysa- varnafélagið Landsbjörg, 112, Rík- islögreglustjóri, fjarskiptamiðstöð lögreglu, Tetra Ísland og SHS fast- eignir. „Mér finnst til fyrirmyndar hvernig verið er að samnýta fé, Reykjavíkurborgar og sveitarfé- laganna á höfuðborgarsvæðinu annars vegar og hins vegar hjá rík- inu í þessari samvinnu,“ segir Þórólfur Árnason borgarstjóri um nýju björgunarmiðstöðina. Þórólf- ur segir mikið fé sparast þar sem hvert starf sem sparist á vaktstöð sé í rauninni fjögur stöðugildi því stöðuna þurfi að manna allan sólar- hringinn og í fríum. Að auki spar- ist tvö stöðugildi á bakvakt. Þannig gefist svigrúm til að hafa fleiri í beinum störfum hjá lögregl- unni og slökkvilið- inu. Þórólfur segir mikilvægt að starf- semi á vaktstöð sé lifandi, að þau tæki og tól sem eru til staðar séu í dag- legri notkun og hafi ekki verið geymd uppi í hillu þegar mikið liggur við. Kristbjörn Óli G u ð m u n d s s o n , framkvæmdastjóri Slysavarnafélags- ins Landsbjargar, segir Landsbjörg ekki vera með neina vaktstöð í dag en áður hafi þær verið tvær. Nú þurfi starfs- menn Landsbjargar aðeins að mæta á staðinn þegar þeirra sé þörf og í því sé mikill hagur. „Mér finnst skipta verulegu máli að þrjú atriði séu á hreinu við björgunaraðgerðir, hvaða nafni sem þær heita, svo þær takist vel. Í fyrsta lagi þarf hlutverk þeirra sem taka þátt í aðgerðunum að vera á hreinu. Þá þarf að vera að- gangur að tækjum og mannafla. Síðan þarf þekking og reynsla að vera til staðar,“ segir Hrólfur Jónsson slökkviliðsstjóri. Þá segir hann miklu skipta að stjórnstöðvar þeirra sem vinna að björgunarað- gerðum séu á sama stað. Þannig umgangist starfsfólkið daglega og viti því betur hvaða þekking sé til staðar og hvaða tækjum og tólum hver hefur um að ráða. hrs@frettabladid.is Vinstri grænir mótmæla einkavæðingu Símans: Jafnt aðgengi í hættu STJÓRNMÁL Þingflokkur Vinstri grænna mótmælir harðlega fyrir- hugaðri einkavæðingu Símans og telur að jöfnum aðgangi lands- manna að þjónustu verði stefnt í hættu. Flokkurinn segir Símann veita almannaþjónustu og því eigi hann að vera á forræði almanna- valdsins. Vinstri grænir benda á að fyrri tilraun ríkisstjórnarinnar til einkavæðingar á Símanum hafi mistekist hrapallega og skaðað fyrirtækið og reynslan af einkavæðingu annarra opinberra fyrirtækja almannaþjónustunnar hafi ekki verið góð. ■ MILLER SEGIR AF SÉR Leszek Miller tilkynnti í gær að hann léti af embætti forsætisráðherra Póllands daginn eftir að landið gengur í Evrópusambandið. Fyrr um daginn höfðu nær 30 þing- menn sagt sig úr flokki hans. Samkvæmt nýrri skoðanakönnun eru aðeins fimm prósent Pólverja hlynnt stjórninni. VOTTAR JEHÓVA BANNAÐIR Dómstóll í Moskvu, höfuðborg Rússlands, hefur bannað starf- semi Votta Jehóva í borginni. Saksóknarar sögðu trúfélagið kynda undir hatri og sundra fjöl- skyldum og fengu það bannað á grundvelli laga sem banna trúarhópa sem kynda undir hatur og óumburðarlyndi. Morðingi dæmdur: Ég var að fremja morð BRETLAND, AP „Halló, ég heiti Walker og ég var að fremja morð,“ sagði John Walker þegar hann hringdi í lögregluna í nóvember 2002 og tilkynnti að hann hefði myrt eiginkonu sína. Hann var í gær dæmdur til fjórtán ára fangelsisvistar þrátt fyrir að neita því við réttarhöldin að hann hefði framið morð með því að skjóta konu sína til bana við morgunverðarborðið. Verjandi Walkers bar því við að Glenda, kona mannsins til 40 ára, hefði ögrað honum með því að hóta að hafa af honum aleiguna við skilnað og snúa börnum þeirra gegn honum. Hún hafði þá komist að því að maður sinn héldi fram- hjá henni. ■ – hefur þú séð DV í dag Heiðveig segir alla líkmálssöguna í einkaviðtali DV Ný finnsk frímerki: Með mynd af sendanda HELSINKI, AP Þeir sem telja sig eiga fullt erindi á frímerki ekki síður en látnir merkismenn ættu, sumir hverjir í það minnsta, að fagna því finnska póstþjónustan hóf á föstu- dag sölu á frímerkjum sem eru prentuð eftir óskum viðskipta- vina. Viðskiptavinir geta nú látið prenta fullgild frímerki með myndum af sér, ástvinum eða gæludýrum. Finnski pósturinn hefur tekið upp á þessu til að ná árangri í samkeppninni við smáskilaboð í farsímum og tölvupóstskeyti. Tuttugu frímerki kosta rúmar 2.300 krónur og duga á hvert venju- legt bréf sem er sent innanlands. ■ ■ Evrópa MÁR GUÐMUNDSSON Aðalhagfræðingur Seðlabankans segir mis- mun í spá Seðlabankans og Hagstofunnar um vöxt landsframleiðslu ekki hafa áhrif á verðbólguspá bankans. Lykilmennirnir undir sama þaki Björgunarsveitin Skógarhlíð er heiti á nýrri björgunarmiðstöð. Innan veggja miðstöðvarinnar starfa þeir sem gegna lykilhlutverkum í við- búnaði landsmanna vegna hvers kyns náttúruhamfara og slysa. „Þannig umgangist starfsfólkið daglega og viti því bet- ur hvaða þekking sé til staðar og hvaða tækjum og tólum hver hefur yfir að ráða. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N FRÁ KYNNINGARFUNDI BJÖRGUNARMIÐSTÖÐVARINNAR Slökkvistöðin í Skógarhlíð hefur stækkað um rúmlega helming og er í dag um 6000 fermetrar. Reykjavíkurborg og sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu hafa samnýtt fé og er einungis ein vaktstöð vegna slysa, bruna og náttúruhamfara fyrir allt svæðið.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.