Fréttablaðið - 27.03.2004, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 27.03.2004, Blaðsíða 19
34 27. mars 2004 LAUGARDAGUR Þegar Marcel Proust lést árið1922 sagði náinn vinur hans í minningargrein að Proust hefði elskað tvær manneskjur á ævi sinni; móður sína og Céleste Al- baret, sem var ráðskona hans frá 1913 til dauðadags hans. „Það verða fallegu litlu hendurnar þín- ar sem munu loka augum mínum,“ sagði Proust eitt sinn við Céleste. Eftir dauða hans var Céleste margoft beðin um að tjá sig um samband þeirra en harðneitaði. Hún skipti skyndilega um skoðun 82 ára gömul, hálfri öld eftir dauða Proust. Hún sagði ástæðuna vera þá að svo margt ónákvæmt og rangt hefði verið skrifað um hann af fólki sem þekkti hann lítið eða alls ekkert. „Þegar herra Proust var á lífi gat ég aldrei logið að honum og ég ætla ekki núna að byrja að ljúga um hann því þá væri ég að ljúga að honum,“ sagði Céleste. Það kom í hlut blaða- mannsins George Belmont að vinna úr frásögn hennar. Í samein- ingu sköpuðu þau töfrandi bók, Monsieur Proust, sem kom út árið 1972 og hefur margoft verið endurprentuð. Bókin kom til dæm- is út í kilju í Bandaríkjunum síð- astliðinn október. Skrásetjarinn, Belmont, velur þá leið að leyfa rödd Céleste að njóta sín og blandar sér ekki í frá- sögnina. Það er hins vegar ljóst að hans hlutverk hefur verið að forma verkið og skapa því stíl. Það tekst honum á aðdáu- narverðan hátt og bæði Proust og Céleste birtast ljóslifandi á síðum þessarar merkilegu bókar. Lifði fyrir ritstörfin Céleste kynntist Proust í gegn- um eiginmann sinn sem ók leigu- bíl og var einkabílstjóri Proust. Céleste fór í sendiferðir fyrir Proust og varð loks ráðskona hjá honum. Hann var heilsuveill, þjáður af alvarlegum asma, og löngum rúmfastur. Á þeim tíma sem Céleste sinnti honum var hann að vinna í hinu mikla ævi- verki sínu Í leit að glötuðum tíma. Hann sagði Céleste að það væri skylda sín að skrifa bókina. „Ég hef ekki tíma fyrir neitt annað,“ sagði hann. Proust var kröfuharður hús- bóndi, það sem hann bað um varð hann að fá strax. Céleste lét sér á sama standa og sagði við hann: „Ef allir harðstjórar væru eins og þú væri veröldin paradís.“ Sam- band þeirra varð mjög innilegt. Proust var samkynhneigður en Céleste neitaði alla tíð að viður- kenna þá kynhneigð hans og sagð- ist aldrei hafa orðið vör við neitt sem benti til hennar. „Ég verð að hafa þögn og ró. Ég er kvæntur starfi mínu. Það eina sem skiptir máli eru skriftir mín- ar,“ sagði Proust við Céleste. „Ég hefði þarfnast konu sem hefði skilið mig og ég þekki bara eina konu sem það gerir. Þú ert eina manneskjan sem ég hefði getað kvænst. Þú ert sú sem hefði helst getað komið í staðinn fyrir mömmu.“ Samband Proust við móður sína var einstakt. Fimmtán árum eftir dauða hennar átti hann enn í erfiðleikum með að ræða um hana án þess að tárast. Hann sagði að ef hann gæti verið viss um að hitta hana aftur í öðrum heimi myndi hann vilja deyja strax. Brenndi minnisbækur Proust Céleste gerði sér fulla grein fyrir því að hann lifði fyrir skrift- irnar. Hann átti vini en Céleste sagði að Proust hefði látið marga halda að hann bæri til þeirra vin- áttu og væntumþykju þegar hann gat svo auðveldlega verið án þessa fólks. Hann hefði reyndar illa getað verið án Céleste og hann gerði sér sjálfur fulla grein fyrir því. Áður en hann lést fól hann henni að brenna minnisbækur hans. Þær voru 32 og geymdu drög að æskuverkum hans og jafnvel heilu kaflana. Vinur Kafka, Max Brod, hafði vit á að óhlýðnast þegar Kafka skipaði honum að brenna handrit að óbirt- um verkum sínum en það hvarfl- aði ekki að Cé- leste að óhlýðn- ast húsbónda sín- um. Minnisbæk- ur Proust eru því að eilífu glataðar. Eftir dauða Proust sagði bróðir hans við Céleste: „Bróðir minn hefði lifað lengur ef hann hefði kosið að lifa eins og allir aðrir. En hann valdi sitt hlutskipti og hann valdi það vegna vinnu sinn- ar.“ Céleste sagði að eftir dauða hans hefði hún um tíma misst lífslöngun. „Ég hafði lifað í svo dásamlegum heimi með manni sem var svo einstakur að ég gat ekki vanist venjulegu lífi.“ Eftir dauða Proust rak hún lítið hótel í París ásamt eiginmanni sínum og dóttur. Árið 1981 var gerð þýsk kvikmynd um hana, Céleste. Céleste Albaret lést árið 1984, 92 ára gömul. Heimsblöðin New York Times og Le Monde birtu minningargreinar um hana. Í bók sinni um Proust segir Céleste um tíma sinn með rithöfundinum: „Ég þakka Guði fyrir þessi ár, ég hefði ekki getað látið mig dreyma um fallegra líf.“ kolla@frettabladid.is Fréttablaðið og Edda útgáfahafa ákveðið að hleypa af stokkunum ljóðasamkeppni, sem verður með nokkuð óvenjulegu sniði. Samkeppnin er ætluð öllum sem fæddir eru á árunum 1974- 2004 og er sannkallaður ljóðaslag- ur því skáldin etja kappi hvert við annað á síðum Fréttablaðsins dag- ana 16. til 23. apríl. Á lokadegin- um, þann 23. apríl, á afmælisdegi Nóbelsskáldsins og á alþjóðlegum degi bókarinnar, stendur einn sig- urvegari uppi sem lesendur Fréttablaðsins hafa kosið í síma- kosningu. Nóg er að senda eitt ljóð í keppnina en engin takmörk eru á því hve mörgum ljóðum hver og einn má tefla fram í slagnum. Það er tilgangslaust að flagga dul- nefni í þessari keppni: allir koma fram undir sínu rétta skáldanafni. Ætli viðkomandi sér að komast í úrslitakeppnina verður hann líka að vera viðbúinn því að sýna sitt rétta andlit. Skýrar reglur – vegleg verð- laun Reglurnar eru skýrar. Tekið er við ljóðum á tölvupóstfangið ljod@edda.is eða í umslagi merkt: Sigurskáldið, Suðurlandsbraut 12, 108 Reykjavík, til 6. apríl næst- komandi. Þriggja manna dóm- nefnd, sem í sitja fulltrúar Eddu útgáfu og Fréttablaðsins auk eins ákafs ljóðaunnanda sem fæddur er fyrir 1974, velur úr innsendu efni átta ljóð og ljóðskáld sem nú ganga til leiks í hinum eiginlega ljóðaslag. Hann hefst föstudaginn 16. apríl með því að Fréttablaðið birtir tvö ljóð og kynningu á tveimur skáldum. Undir hverju ljóði er símanúmer sem allir lesendur Fréttablaðsins geta hringt í og þar með valið sitt ljóð. Þegar úrslit liggja fyrir þann 19. apríl er hafist handa strax næsta dag með keppni í fjögurra ljóða úrslitum uns síðasta keppnin fer fram á sumardaginn fyrsta, 22. apríl. Daginn eftir, á degi bókar- innar, verður sigurskáldið síðan kynnt í Fréttablaðinu með pompi og prakt. Edda útgáfa veitir þeim skáldum sem komast í fjög- urra ljóða úrslit myndarleg bóka- verðlaun og gefur út sigurljóðið. Hvort sem menn yrkja rímað og stuðlað, frítt eða frjálst, hlekkjað eða laust er öll band- vídd samtímans velkomin í slag- inn. Það er líka til mikils að vinna. Í staðinn fyrir að ljóðun- um sé lagt inni á fáförnum netslóðum eða þau læst í tölvunni heima fær stærstur hluti þjóðar- innar nú að berja snilldina aug- um. Skáld 21. aldar, fólk undir þrítugu, fær nú tækifæri til að ganga fyrir alþjóð og hljóta aðdá- un hennar og hylli. ■ ■ Bækur Metsölulisti Bókabúða Máls og menningar, Eymundssonar og Pennans ALLAR BÆKUR 1. Skyndibitar fyrir sálina Barbara Berger 2. Uppeldisbókin Sus- an Mortweet / Edward R. Christophersen 3. Sálmabók Ýmsir höfundar 4. Lífshættir fugla Dav- id Attenborough 5. Orð í gleði Karl Sigurbjörnsson 6. Villibirta Liza Marklund 7. Öxin og jörðin Ólafur Gunnarsson 8. Svo fögur bein Alice Sebold 9. Þúsund hamingju spor JPV 10. Alkemistinn Paulo Coelho SKÁLDVERK - INNBUNDNAR BÆKUR 1. Sálmabók Ýmsir höfundar 2. Alkemistinn Paulo Coelho 3. Passíusálmar Hallgrímur Pétursson 4. Glæpur og refsing Fjodor Dostojevskí 5. Perlur í skáldskap Laxness Halldór Laxness 6. Þórbergur Þórðarson - stórbók Þór- bergur Þórðarson 7. Ljóðasafn Tómasar Guðmundssonar Tómas Guðmundsson 8. Smásagnasafn Halldórs Laxness Halldór Laxness 9. Perlur úr ljóðum íslenskra kvenna Ýmsir höfundar 10. Þjóðskáldin - stórbók Ýmsir höf- undar SKÁLDVERK - KILJUR 1. Villibirta Liza Marklund 2. Öxin og jörðin Ólafur Gunnarsson 3. Svo fögur bein Alice Seabold 4. Vetrardrottningin Boris Akúnin 5. Grafarþögn Arnaldur Indriðason 6. Mýrin Arnaldur Indriðason 7. Þetta er allt að koma Hallgrímur Helgason 8. Annað tækifæri James Patterson 9. Flateyjargátan Viktor Arnar Ingólfsson 10. Röddin Arnaldur Indriðason Listinn er gerður út frá sölu dagana 17.03.-23.03. 2004 í Bókabúðum Máls og menningar, Eymundssyni og Pennanum. BÓK VIKUNNAR The Master eftir Colm Tóibín. Þessi splunkunýja skáldsaga hefur vakið mikla athygli gagn- rýnenda, sem hafa borið verð- skuldað lof á hana. Aðalpersóna bókarinnar er rithöfundurinn Henry James. Hann er tilfinn- ingalega bældur og einangraður en sogar allt það markverðasta úr umhverfi sínu og annarra og nýtir í meistaraleg verk. Skáld- saga sem fer hægt af stað en nær síðan tangarhaldi á lesandanum. Í lokin kemst hann vart undan því að viðurkenna bókina sem meistaralega. Sigurskáld ið Fréttablað ið og Edda útgáfa hle ypa nú af stokkunum frumlegri ljóðasam- keppni. Hú n er ætluð öllum sem fæddir er u á árunum 1974-200 4. Átta ská ld, sem valin verða úr in nsendum ljóðum, et ja kappi h vert við an nað á síðu m Fréttablað sins dagan a 16. til 23 . apríl. Les endur velj a uppáhal dsljóðið si tt með símakosni ngu. Þann 23. apríl, á afmælisd egi Nóbels skáldsins o g alþjóðleg um degi bóka rinnar, sten dur einn s igurvegari uppi og fæ r hann veg leg verðlau n. Edda útgáfa og Fréttablaðið hafa ákveðið að efna til óvenjulegrar ljóðasamkeppni á síðum blaðsins: Leitað að ljóðskáldi Minningar ráðskonu Marcel Proust voru nýlega endurútgefnar í Bandaríkjunum. Í henni er að finna heillandi frásögn af samskiptum hennar við rithöfundinn. Céleste og Proust MONSIEUR PROUST Minningar Céleste Albaret um húsbónda hennar, Marcel Proust, komu fyrst út árið 1972 en voru endurútgefnar í Bandaríkjun- um í fyrra og eru heillandi lesning. MARCEL PROUST Sagt er að hann hafi elskað tvær konur um ævina, móður sína og ráðskonu sína, Céleste Albaret.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.