Fréttablaðið - 27.03.2004, Blaðsíða 37

Fréttablaðið - 27.03.2004, Blaðsíða 37
■ ■ LEIKIR  14.00 Haukar og KA eigast við í deildarbikarkeppni karla í fótbolta í Fíf- unni.  15.00 ÍS tekur á móti Keflavík í úr- slitum 1. deildar kvenna í körfubolta í Kennaraháskólanum.  16.30 Stjarnan og Valur eigast við í Ásgarði í RE/MAX-deild kvenna.  16.30 KA/Þór tekur á móti Gróttu KR á Húsavík í RE/MAX-deild kvenna.  16.30 FH mætir Fram í Kaplakrika í RE/MAX-deild kvenna í handbolta.  16.30 Eyjastúlkur taka á móti Haukum í RE/MAX-deild kvenna í hand- bolta. ■ ■ SJÓNVARP  10.15 NBA á Sýn. Viðureign New Jersey og Dallas.  11.45 Fákar á Sýn.  12.15 Enski boltinn á Sýn. Bein út- sending frá leik Birmingham og Leeds.  14.25 Þýski fótboltinn í Sjónvarpinu. Bein útsending frá leik Bochum og Schal- ke.  14.50 Enski boltinn á Stöð 2. Bein út- sending frá leik Chelsea og Wolves.  16.05 Inside the US PGA Tour 2004 á Sýn.  16.20 Íslandsmótið í handbolta í Sjónvarpinu.  16.35 Enski boltinn á Sýn.  18.20 Spænski boltinn á Sýn. Beint frá leik Real Sociedad og Deportivo.  21.30 Hnefaleikar á Sýn. Arturo Gatti og Gianluca Branco eigast við.  23.35 Hnefaleikar á Sýn. Bardagi Roy Jones Jr. og Antonio Tarver. 52 27. mars 2004 LAUGARDAGUR ANNIKA SÖRENSTAM Annika Sörenstam frá Svíþjóð fagnar sigri sínum á Safeway International-mótinu í LPGA-mótaröðinni í golfi um síðustu helgi. Sörenstam fór síðustu holuna á fugli. Golf hvað?hvar?hvenær? 24 25 26 27 28 29 30 MARS Laugardagur Íslandsmótið í borðtennis um helgina: Guðmundur stefnir á ellefta titilinn í röð BORÐTENNIS Íslandsmótið í borðtennis fer fram í Íþróttahúsi TBR við Gnoðarvog um helgina. Allt besta borðtennisfólk landsins mun leika á mótinu og mun Guðmundur E. Stephensen freista þess að vinna sinn ellefta Íslands- meistaratitil í meistaraflokki karla. Keppt verður í níu flokkum: Tvenndarkeppni, tvíliðaleik karla og kvenna, meistaraflokkum karla og kvenna, fyrsta flokki karla og kvenna og öðrum flokki karla og kvenna. ■ FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohnsen hefur skor- að 13 mörk fyrir Chelsea á leiktíðinni, síðast gegn Arsenal í Meistara- deildinni. Eiður hefur skorað sex mörk í úrvalsdeildinni, þrjú í Meistaradeildinni og tvö í bikarkeppninni. Hann hefur einu sinni skorað tvö mörk í sama leiknum en það var gegn Notts County í deildabikarnum. Eiður hefur verið sjóðheitur undanfarið og skorað í síðustu þremur leikjum sínum með Chelsea, en liðið mætir Wolves í dag. Eiður á enn töluvert í land með að jafna sína bestu leiktíð með Chelsea, sem var 2001/02. Þá skor- aði hann 23 mörk. Á síðustu leiktíð skoraði Eiður 14 mörk og vantar aðeins tvö í viðbót til að bæta þann árangur. ■ ■ Tala dagsins 13 GUÐMUNDUR STEPHENSEN Guðmundur verður á meðal keppenda á Íslandsmótinu í borðtennis um helgina. ERLA ÞORSTEINSDÓTTIR Skoraði 22 stig þegar Keflavík sigraði ÍS á miðvikudag. Úrslitakeppni 1. deildar kvenna: Von ÍS felst í sigri í dag KÖRFUBOLTI „ÍS þarf fyrst og fremst að fá meira út úr útlend- ingnum sínum,“ sagði Einar Árni Jóhannsson, aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla hjá Njarðvík og yfirþjálfari hjá yngri flokkum félagsins. „Hún hitti ekki vel gegn Keflavík og hefur ekki verið að hitta vel í undanförnum leikjum. Hjá ÍS skoraði aðeins einn leik- maður tíu stig en hjá Keflvík- ingum voru fleiri leikmenn virkir.“ ÍS og Keflavík leika í dag annan leik sinn í úrslitakeppni 1. deildar kvenna í körfubolta. Keflavík sigraði 80-56 í fyrsta leiknum á miðvikudag en það lið sem sigrar í þremur leikjum verður Íslandsmeistari. „Í sannleika sagt held ég að Keflavík klári þetta í þremur leikjum,“ sagði Einar. „Breiddin hjá þeim er meiri og styrkurinn undir körfun- ni meiri.“ Einar á von á hörkuleik því von ÍS í úrslitakeppninni felst í því að sigra í dag. „ÍS verður að halda Erlu Þorsteinsdóttur og Önnu Maríu Sveinsdóttur í skefjum og ná leiknum á sinn hraða. Þær þurfa að vera í bílstjórasætinu. Ef það tekst má búast við hörkuleik en ég á ekki von á að ÍS vinni Keflavík. Það verður ekki auðvelt að leika gegn sterku liði Keflavíkur sem hefur sjö leik- menn með mikla reynslu og unga og efnilega leikmenn á bekknum,“ sagði Einar Árni Jóhannsson. ■ ÆFA Á ELSTA VELLI HEIMS Ís- lenska U17 lið karla, sem keppir þessa daga á Englandi, æfir á Sandygate, heimavelli Hallam FC. Hallam var stofnað árið 1860 og er næstelsta fótboltafélag heims. Félagið hefur leikið á Sandygate frá stofnun og mun völlurinn vera elsti fótboltavöllur heims. Fyrsti leikurinn þar fór fram á annan í jólum árið 1860 og tapaði Hallam 2-0 fyrir Sheffield. Sextán leikmenn voru í hvoru liði í þá daga. RANIERI OG PETIT Á FÖRUM Frakkinn Emmanuel Petit segir að Claudio Ranieri hafi tilkynnt leikmönnum sínum að hann muni yfirgefa Chelsea í sumar. Petit, sem er 33 ára, segist einnig ætla að fara frá Chelsea. „Ég hefði viljað vera áfram hjá Chelsea og í London. Það var markmið mitt,“ sagði Petit, sem var keyptur frá Barcelona af Ranieri. „En vegna þess að þjálfarinn minn er á för- um hef ég ekki áhuga á að vera áfram hjá Chelsea.“ ALLARDYCE KÆRÐUR Enska knattspyrnusambandið hefur kært Sam Allardyce fyrir um- mæli hans í garð Mike Riley eftir úrslitaleik deildabikar- keppninnar. „Mér hefur aldrei líkað við Mike Riley sem dóm- ara. Hann hafði sigurinn af okk- ur. Við höfðum áhyggjur af hon- um fyrir leikinn og hann stóð undir væntingum,“ sagði Allar- dyce, sem ætlar að berjast með kjafti og klóm gegn kærunni. ■ Fótbolti

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.