Fréttablaðið - 27.03.2004, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 27.03.2004, Blaðsíða 22
Það er margt sem hafa þarf íhuga við kaup á notuðum bíl. Þegar bíll er keyptur milli- liðalaust af fyrri eiganda er frum- skilyrði að athuga hvort á bílnum séu veðbönd eða uppsöfnuð bifreiðagjöld. Þessar upplýsingar fást hjá tollstjóra og sýslumanni. Tilkynningu um eigandaskipti þarf að koma á næsta pósthús og borga þarf 2.330 kr. fyrir umskráningu. Það er samn- ingsatriði hvort seljandi eða kaup- andi fari með tilkynninguna. Gott er að bjóðast til að gera það, því þá er öruggt að hún komist til skila! Eigandaferil bíla er fróðlegt að skoða. Bílar sem hafa verið í eigu bílaleigu eða hafa komið við á upp- boðum tryggingafélaga, eru t.d. yfirleitt ódýrari. Þessir bílar þurfa ekki endilega að vera verri en þeir þurfa nákvæmari skoðun. Til að meta ástand bílsins sem stendur til að kaupa er öruggast að fara með bílinn í ástandsskoðun hjá skoðunarstöð og fá skýrslu um ástandið á honum. Það er líka mikilvægt að athuga hvernig bílaumboðið þjónustar viðkoman- di bílategund. Gott er að velja sér algenga bílategund því þá má búast við að aðgengi að varahlut- um sé gott. Í næsta pistli mínum mun ég halda áfram að fjalla um kaup á notuðum bílum og hvað vert er að hafa í huga í því sambandi. ■ 37LAUGARDAGUR 27. mars 2004 Vinnuvélanámskeið Kvöldnámskeið. Námskeiðsstaður, Þarabakki 3. 109 Reykjavík (Mjódd). Verð 39.900.- Upplýsingar og innritun í síma: 894-2737 Flest verkalýðsfélög styrkja nemendur á vinnuvélanámskeið, einnig atvinnuleysistryggingasjóður Vantar þig góð ráð? Sendu Jóni Heiðari póst á netfangið bilar@frettabladid.is Góð ráð JÓN HEIÐAR ÓLAFSSON ■ segir mikilvægt að skoða notaða bíla vel og vandlega. Kæri Jón! Hver eru helstu a triðin sem maður á að t ékka á þegar maður ka upir notaðan bíl? Ingunn Eigendasagan mikilvæg! ÓVENJULEG SJÓN Michael Schumacher heilsaði aðdáendum sínum úr MG-bíl áður en Formúluaksturinn hófst í Malasíu á dögunum. Schumacher ekur fyrir Ferrari eins og kunnugt er en kunni vel við sig í breska bílnum að því er virtist. Ég á bíl sem ég náði af systurminni með klækjum. Það er yfirleitt þannig í minni ætt að bræður reyna að stela jörðum af systrum sínum, en ég náði bíl, þessum líka indælis Toyota Corona, Four-Wheel-Drive!“ segir Árni Pétur Guðjónsson leikari. „Ég borgaði reyndar 100 þúsund kall og lofaði að vera duglegur að skutla mömmu,“ segir leikarinn og vill meina að díllinn væri góður ef mamma væri ekki svona ferðaglöð. „Ég átti hins vegar ekki bíl í nokkur ár. Ég hætti að reykja og drekka, en græddi engan pening á því. Svo lagði ég bílnum og flaut í peningum. En málið var auðvitað að systkini mín mörg áttu tvo bíla og ég var alltaf á einum þeirra.“ Árni Pétur hefur ekki hugmynd um hvað Toyotan hans er gömul, en hún er fjórhjóladrifin,“ segir hann enn til áréttingar. „Ég tippa á 13 ára.“ Árni Pétur byrjaði ekki að keyra fyrr en 35 ára, þó hann hefði tekið prófið mörgum árum fyrr. Hann segist samt vera eðal- bílstjóri. „Þegar ég fór að keyra aftur fékkst enginn upp í bílinn hjá mér nema litli bróðir, sem lét sig hafa það að fara með mér hring eftir hring í kringum Laugardalshöllina. Ég hef samt aldrei lent í neinum óhöppum að ráði, bakkaði kannski svolítið á á tímabili. En ég er vanur hjólreiðum og keyri eins og hjól- reiðamaður. Treysti engum.“ Flottast við bílinn finnst Árna Pétri að hann bilar aldrei. „7-9- 13!!! Svo er þetta station-bíll þan- nig að ég virka eins og fjölskyldu- maður á honum; er aðeins að villa á mér heimildir. Það kemst líka ótrúlegt magn af drasli í hann, föt til skiptanna, skjöl og pappírar og ekki má gleyma hvað hann er góður í snjó.“ edda@frettabladid.is ÁRNI PÉTUR GUÐJÓNSSON Segist vera mikill bílatöffari og eðalbílstjóri þrátt fyrir að hafa tekið langt hlé frá akstrinum á ákveðnu tímabili. Bíllinn minn: Vélaði bílinn af systur sinni SVAR: Umferð á móti veitir forgang. ■ Hvað þýðir skiltið? Brimborg: Frumsýnir Volvo Bílaumboðið Brimborg frum-sýnir tvo nýja Volvo-bíla um helgina í Reykjavík, í Reykjanesbæ og á Akureyri: Volvo S40 og Volvo V50. Við hönnun bílanna var gengið út frá grundvallargildum Volvo um öryggi, endingu og þeirri hugmyndafræði að hinn eiginlegi lúxus felist í vellíðan. Gagnrýnendur erlendra bílablaða eru á einu máli um að með Volvo S40 og V50 hafi Volvo tekist að smíða bíla sem eigi fullt erindi í samkeppnina við lúxusbíla. Stjórnborð bílsins hefur til dæmis vakið mikla athygli á sviði bílahönnunar. Volvo S40 og Volvo V50 er hægt að fá með 170 hestafla með 2,4 lítra vél. Einnig fást þeir 220 hestafla með 2,5 lítra vél. Opið verður alla helgina í Reykjavík, Reykjanesbæ og á Akureyri frá klukkan 12-16 báða dagana. Boðið verður uppá kaffi og kleinur. ■ Ráðstefna: Úti að aka Miðvikudaginn 31. mars næst-komandi verður haldið málþing um umferðarmálefni á vegum VÍS. Málþingið sem haldið verður á Nordica hóteli ber yfirskriftina „Úti að aka?“. Það stendur frá kl. 13:00-16:00. Á málþinginu verður sjónum beint að öryggi í umferð á þjóðveg- um landsins og þeirri staðreynd að alvarlegum slysum hefur fjölgað á þjóðvegum landsins. Leitast verður við að varpa ljósi á orsakir umferð- arslysanna og leitað svara við því hvernig hægt sé að auka öryggi í umferðinni. Meðal framsögumanna eru Ágúst Mogesen, framkvæmdastjóri Rannsóknarnefndar umferðaslysa og Ómar Ragnarsson fréttamaður sem ræðir um ferðir sínar um landið. Málþingið er öllum opið en mælst er til þess að áhugasamir staðfesti þátttöku á malthing@vis.is eða í síma 560-5226 fyrir kl. 14:00 þann 30. mars. ■ VOLVO S40 Lúxusbíll frumsýndur um helgina.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.