Fréttablaðið - 27.03.2004, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 27.03.2004, Blaðsíða 21
bílar o.fl. Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um al l t sem viðkemur bí lum Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: bilar@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is. Bíliðnadeild Borgarholtsskóla fær gjöf: Volkswagen til kennslu Hekla hf. ásamt Volkswagen-verksmiðjunum hafa fært bíliðnadeild Borgarholtsskóla að gjöf nýja bifreið af gerðinni VW T5 Multivan. Bifreiðin er sérstaklega ætluð til kennslu og mun væntanlega koma sér vel fyrir nám í bíliðnum. Hekla mun sjá til þess að kennarar bifreiðadeildar fái aðgang að kennslugögnum, mælitækjum og almennri fræðslu um bifreiðina. Þá munu Fræðslumiðstöð bílgreina hf. og Hekla hafa aðgang að bifreið- inni til námskeiðahalds. ■ GÓÐ GJÖF Finnbogi Jónsson afhenti bifreiðina fyrir hönd Heklu og sést hann hér til vinstri ásamt Ólafi Sigurðssyni, skólameistara Borgarholtsskóla, til hægri. Með hækkandi sól verðurumhirða bílsins meira áberandi í augum þeirra sem eru samferða þér á hraðbrautinni. Því er rétt að nota komandi góðviðrisdaga til allsherjar hreingerningar á bílnum, með tilheyrandi tiltekt innan dyra sem utan, og auðvitað glansandi bónhúð í lokin. Jósef Kristjánsson hefur rekið Bón og þvott hjá Jobba síðan 1982 og því kunnugur réttu handtökunum í hreinsun og bóni bíla. Jósef segir stöðugar breytingar eiga sér stað í biblíu bílaþvottamanna og alltaf að aukast hvers konar skrum í kringum bílaþvottavörur og bón. „En ég vísa út þeim sem koma með nýjar vörur sem þeir full- yrða að dugi í fleiri ár og allt upp í líftíma bílsins,“ segir Jósef og bætir við að saltið sem notað er á götur borgarinnar éti sig í gegn- um bónhúðina á örskotsstundu. „Þumalputtareglan er að bóna einu sinni í mánuði yfir vetrar- tímann og á tveggja mánaða fresti á sumrin. Annars er lakk orðið miklu harðara, viðkvæm- ara og þynnra en hér í eina tíð, og þannig hefur bökunartími lakks í bílaverksmiðjum minnkað úr 45 mínútum niður í 5 mínútur í dag.“ Jósef segir best að byrja vorhreingerninguna á því að bleyta lakkið með tjöruleysi og leyfa því að standa smástund áður en bíllinn er skolaður með rennandi vatni. Mikilvægt er að nota enga kústa á bílinn þar sem þeir rispa lakkið eins og sand- pappír. „Kústar eru það versta sem hægt er að nota á bílinn sinn. Lakkið er skemmt og matt eftir aðeins tvo þvotta í kústa- plönum borgarinnar.“ Næst er volgu vatni og græn- sápu blandað í fötu og bíllinn þveginn hátt og lágt með svampi. Nauðsynlegt er að skola tjöru- leysinn vel af bílnum áður til að losna við sand og annað rispuvaldandi. Að sápuþvotti loknum er bíllinn skolaður og þurrkaður með vaskaskinni, en Jósef segir áríðandi að þurrka bílinn þannig til að losna við kísilhringi í dropum sem annars myndu þorna á lakkinu og mynda bletti. Að þessu loknu er bíllinn tilbúinn í bón og smekksatriði hvaða bón menn velja. Mestu skiptir að bera bónið á með fram og aftur hreyfingum. „Alls ekki í hringi,“ segir Jósef og bendir á að þótt slíkt standi enn aftan á sumum brúsum sé það þá bón frá Ameríku eða Asíu. „Allt annað lakk er á bílum í Evrópu og allt önnur vinnubrögð sem gilda hér. Hringhreyfingar eru tuttugu ára gömul aðferð sem átti við gömlu akrýl-bónin. Bóna skal allan bílinn í einu og alls ekki stoppa á miðjum flöt.“ Næst eru föls hreinsuð með tjöruleysi, rúðuúði notaður til að hreinsa glugga að utan sem innan, og vínylhreinsir á mælaborð, stuðara, dekk, spegla og annað úr því efni. „Mattur vínyll fer á mælaborðið, því ef það glansar um of getur það speglast í rúðum og valdið vand- ræðum, en að utanverðu má nota meiri glans,“ segir Jósef og bætir við að þá sé ekkert eftir nema að ryksuga bílinn og þvo þurrkublöðin með tjöruleysi. Þess má geta að það tekur vanan mann um þrjá klukkutíma að þrífa bíl vandlega, og því gott að áætla góðan tíma í þrifin. thordis@frettabladid.is BÓNAÐ FRAM OG AFTUR Bannað að bera bílabón á lakkið með hringhreyfingum. GLJÁANDI STUÐARAR Á mælaborðið fer mattur vínylhreinsir, en að utan má gljáinn vera meiri. ENGA KÍSILHRINGI, TAKK Mikilvægt er að þurrka bílinn eftir þvott til að koma í veg fyrir kísilhringi eftir vatns- dropa. Vorhreingerning í bílnum: Þriggja tíma tiltekt og bíllinn sem nýr HREINIR GLUGGAR ÞÝÐA ÖRUGGARI AKSTUR Best er að hreinsa rúðurnar að innan og utan með gluggaúða eins og notað er á speglana heima. Ég fer mest eftir útlitinu á bílnum. Lillian Larsen. Eftir hverju ferðu þegar þú velur þér bíl?

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.