Fréttablaðið - 27.03.2004, Page 9

Fréttablaðið - 27.03.2004, Page 9
17LAUGARDAGUR 27. mars 2004 ■ Afmæli Öllum boðið í heimsókn JÓN DIÐRIK JÓNSSON Forstjóri Ölgerðar Egils Skallagrímssonar sem mældist hæst í Íslensku ánægju- voginni þriðja árið í röð. Hver? Ég er kappsamur og tel mig vera hress- an, félagslyndan, heiðarlegan og skipu- lagðan. Hvar? Á Grjóthálsinum í Reykjavík, á skrifstofu Ölgerðarinnar. Hvaðan? Gaflari í húð og hár, þrjár kynslóðir í karllegg. Hvað? Áhugamál mín hafa mjög tengst vinn- unni, en eins og þátttakandi í fegurðar- samkeppni hef ég áhuga á ferðalögum. Einnig hef ég áhuga á hvað er að gerast í kringum mig og les mikið. Ég hef mikið gaman af sannsögulegum bók- um, bæði sögulegum og um nútímann. Einnig les ég mikið um stjórnmál og viðskiptabækur. Hvernig? Ég fylgist með, bæði með umræðu og lestri blaða og tímarita. Hvers vegna? Ég hef gaman af því að taka þátt í umræðu um það sem er að gerast og ég tel að hafi áhrif á líf mitt. Hvenær? Óreglulega og illa skipulagt og allt of sjaldan. ■ Persónan MARIAH CAREY Poppdívan er 34 ára í dag 999 kr. Sýpris 100 sm Blómstrandi páskar ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S B LO 2 41 65 03 /2 00 4 299 kr. Blómstrandi páskagreinar 2 stk. 699 kr. Begonía 299 kr. Páskaliljur í potti Keramikpottur fylgir ekki Öll glervara með 20% afslætti um helgina Páskar í gleri Aðeins 2 da gar Margir sem eru ekki aðblómstra í hinu almenna kerfi finna sig betur hér hjá okkur,“ segir Snorri Traustason, kennari í Waldorfskólanum Sólstöfum, sem er til húsa í Breiðholti að Hamra- bergi 12. Waldorfskólinn er einkarekinn grunnskóli og hóf starfsemi sína í Reykjavík árið 1994. Hann hefur starfað í Hraunbergi 12 síðastliðin fimm ár. Kennsluhættir þar eru um margt frábrugðnir því sem gengur og gerist í öðrum grunn- skólum. „Við leggjum mikla áherslu á að nýta skapandi eiginleika barnsins,“ segir Snorri, sem titlar sig Waldorfkennara eins og aðrir kenn- arar í þessum skóla, þótt hann beri formlega ábyrgð á rekstrinum eins og skólastjórar í öðrum skólum. „Við erum ekki með þetta venjulega 40 mínútna kennslu- stundaform, heldur kennum við sama námsefnið í þrjár til fimm vikur á hverjum degi í þrjár klukkustundir í senn.“ Skapandi starf er markvisst fléttað inn í námsferilinn og reynt að hafa jafnvægi milli „inn- öndunar og útöndunar“, eins og Snorri orðar það, þ.e. milli þess að taka inn námsefnið og svo að koma því frá sér með skapandi hætti. Sem stendur eru 33 nemendur í skólanum, og hefur fjöldinn hald- ist nokkuð jafn undanfarin ár. Margir nemendur stoppa þó ekki nema nokkur ár í Waldorf- skólanum, en um þriðjungur nem- enda er alla sína grunnskólatíð í þessum skóla. Í dag geta allir komið til þess að kynna sér starfið í þessum vinalega skóla á milli klukkan 11 og 16. ■ NEMENDUR Í WALDORFSKÓLANUM SÓLSTÖFUM Í dag er öllum áhugasömum boðið að kynna sér starfsemi Waldorfskólans í Breiðholti milli klukkan 11 og 16. Nám WALDORFSKÓLI ■ hefur starfað í Reykjavík frá árinu 1994. Þar er námstilhögun um margt frábrugðin því sem gerist í öðrum grunnskólum. Nemendur eru 33 á aldrinum 5 til 15 ára.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.