Fréttablaðið - 27.03.2004, Síða 13

Fréttablaðið - 27.03.2004, Síða 13
■ Maður að mínu skapi 24 27. mars 2004 LAUGARDAGUR Gjörningaklúbburinn - Iceland-ic Love Corporation opnaði í gær einkasýningu í galleríinu Jack the Pelican í New York. Það er mikill heiður fyrir Gjörningaklúbbinn að vera boðið að sýna í galleríinu en það hefur verið talið með þeim fremstu í New York síðustu ár. Auk þess hefur klúbbnum verið boðið á svokallað Statements á listamessunni í Basel en þangað er aðeins boðið ungum og upprennandi listamönnum frá tuttugu galleríum víðsvegar að úr heiminum. Sirkustjald fyrir tvo Gjörningaklúbbinn skipa þær Sigrún Hrólfsdóttir, Eirún Sigurðardóttir og Jóní Jónsdóttir. Þær útskrifuðust allar úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1996 en hafa lagt stund á framhaldsnám í lista- skólum víðsvegar um Evrópu. „Okkur líst rosalega vel á sýninguna og þetta er meiriháttar project,“ sagði Jóní Jónsdóttir úr Gjörningaklúbbnum þegar Fréttablaðið náði tali af henni. Þá voru meðlimir Gjörninga- klúbbsins á fullu við að undirbúa sýninguna í Jack the Pelican sem er í Brooklyn-hverfinu í New York. Galleríið er ungt en hefur fengið mikil athygli síðustu ár og var meðal annars valið þriðja athyglisverðasta galleríið í New York af tískutímaritinu Vogue í fyrra. Jóní segir það mikinn heiður að vera boðið að halda sýningu í Jack the Pelican- galleríinu en þetta er fyrsta einkasýning klúbbsins í Bandaríkjunum. „Við ætlum að sýna tvö ljós- myndaverk sem eru ný af nálinni. Svo erum við með þrjá skúlptúra, sirkustjald fyrir tvo og eitt videóverk,“ segir Jóní. Fjárfesta frekar í list en bílum Það getur verið erfitt að lifa af listinni einni saman á Íslandi. Gjörningaklúbburinn fékk fyrir skömmu úthlutað listamanna- launum til sex mánaða sem gerir þeim kleift að starfa eingöngu við myndlist. Gjörningaklúbburinn hefur síðustu ár verið duglegur við sýningarhald erlendis en mikill verðmunur er á verkum þar miðað við hér heima. „Markaðurinn á Íslandi er mjög lítill og allt öðruvísi en hér. Það er kannski búið að ala fólk betur upp hér og það er allt annað viðhorf til listarinnar. Það eru fleiri hér sem fjárfesta frekar í list en bílum og sjónvörpum,“ segir Jóní. Aðspurð hvort sýningin í Jack the Pelican muni opna fleiri dyr fyrir Gjörningaklúbbinn sagði Jóní: „Miðað við hvernig Don Caroll talar gæti þetta skipt okkur miklu máli en sýningin er í New York og þar er bransinn hvað harðastur. Við höfum samt fengið mjög góða athygli í pressunni og það ætlar mikið af fólki að koma. En hvort eitthvað opnast í kjölfar- ið veit ég ekki. Við stöndum bara og föllum með sýningunni. Fólk virðist allavega vera hrifið og það er þegar farið að spyrjast fyrir um verð á verkunum.“ Gjörningaklúbburinn hefur verið starfræktur síðan 1996 og hefur sett upp gríðarlega margar sýningar. Meðlimir Gjörninga- klúbbsins vinna öll verkin í sameiningu þó þeir séu búsettir í sitthvoru landinu. „Allt sem við gerum er sameiginlegt. Hug- myndavinnan fer af stað og úr því verður verk,“ segir Jóní en meðlimir klúbbsins hafa stundum þurft að skiptast á hugmyndum og vinna verkin í gegnum netið sköm- mu fyrir sýningar. Þegar Fréttablaðið ræddi við Jóní voru stúlkurnar að leggja lokahönd á amerískan örn sem gerður er úr sokkabuxum. „Við stöndum allar þrjár saman við borð og erum að framleiða fjaðrir í vængi,“ sagði Jóní. Gleyma ekki Íslandi Gjörningaklúbbnum hefur einnig verið boðið að sýna á lista- messunni í Basel sem haldin er í júní ár hvert og er ein stærsta kaupstefna heims í myndlist. Statements er afmarkaður hluti kaupstefnunnar en þangað sækja hundruð gallería fyrir lis- tamenn sína. Aðeins tuttugu komast að á hverju ári. Gjörningaklúbburinn komst þar að í gegnum Eddu Jónsdóttur sem rekur galleríið i8. Þetta er í fyrsta sinn sem íslenskir myn- dlistarmenn taka þátt í Statements. Það verður í nógu að snúast hjá Gjörningaklúbbnum á árinu. Hann hefur þegar sýnt á samnor- rænni sýningu í Bahnof í Berlín og í Nútímalistasafninu í Varsjá í Póllandi. Fyrirhugaðar eru sýningar víðsvegar um Evrópu, þar á meðal verður Gjörninga- klúbburinn með einkasýningu í Gallerý Zink und Gegner í München. Klúbburinn hélt sýningu þar á síðasta ári ásamt japanska listamanninum Yoshitoma Nara. Íslendingar þurfa þó ekki að örvænta því Gjörningaklúbburinn verður með einkasýningu í Gallerí i8 í byrjun október. „Það verður einkasýning okkar á Íslandi í ár,“ segir Jóní. „Við vorum með einkasýningu í Nýlistasafninu í fyrra enda finnst okkur við bera skyldu til að sýna Íslendingum hvað við erum að gera.“ kristjan@frettabladid.is Fjögurra rétta matseðil og vínglas með hverjum rétti fyrir aðeins 8000 kr. Humar og reykt Klaustursbleikjameð lárperuturni, tómatsultu og sítrusvinaigrette. Vín: Eden Valley Riesling 2002 Smjörsteikt sandhverfa með kremuðu hestabauna ragú og beurre blanc. Vín: Chardonnay 2001 S teiktar nautalundir með kartöflummousseline, steiktum villisveppum, krydduðu uxabrjósti og madeirasósu. Vín: Futures Shiraz 2001 Sveskjusoufflé með súkkulaði-moussé manjari og heslihnetuís. Vín: The King 1995 Peter Lehmann dagar á Hótel Holti Víngerðarmaður ársins í heiminum 2003 Borðapantanir í s. 552 57 00 holt@holt.is laugardags- og sunnudagskvöld GJÖRNINGAKLÚBBURINN Sýning Gjörningaklúbbsins opnaði í gær og stendur yfir í mánuð. Stúlkurnar verða með gjörning á sunnudaginn og eru Bandaríkjamenn mjög spenntir yfir því. Verkefni Gjörninga- klúbbsins á árinu: 30. janúar Samnorræn sýning í Hamburger Banhof í Berlín 20. febrúar Nútímalistasafnið í Varsjá í Póllandi 27. mars Jack the Pelican í New York 20. apríl Alþjóðlegt leiklistar-, tónlistar- og myndlistar- festival í Rotterdam 16. júní Basel Artfair - Statements 11. júlí Musemu Dhondt - Dhaenes í Belgíu 5. október Einkasýning í gallerí i8 22. október Samsýning í Séringon í Frakklandi 15. nóv. Gallerí Zink und Gegner í München Myndlistakonurnar í Gjörningaklúbbnum hafa hlotið mikla athygli fyrir verk sín að undanförnu. Gjörningaklúbburinn meikar það í New York Vandfundið frelsi „Þær eru ótrúlegar og fólk er hrifið af verkum þeirra – í verkum þeirra er frelsi sem maður sér ekki víða,“ segir Don Caroll, eigandi Jack the Pelican, um sýningu Gjörningaklúbbsins. Caroll kynntist verkum klúbbsins í Þýskalandi og í kjölfarið bauð hann honum til sýningar í New York. „Í Þýskalandi voru allir að tala um Gjörningaklúbbinn og ég forvitnaðist svolítið um þær. Skoðaði meðal annars heimasíðuna þeirra og hafði síðan samband við þær. Þær eru lítið sem ekkert þekktar í New York en við von- umst til að breyta því. Þær hafa þegar fengið talsverða athygli og það birtist meðal annars grein um þær í New York Magazine. Fólk mun því komast að því hverjar þær eru.“ Caroll segir að Bandaríkjamenn séu spenntir yfir því að sjá gjörning klúbbs- ins sem verður í galleríinu hans á morgun. „Það er fullt af fólki sem er með gjörning og sýnir vídeóverk en það eru ekki margir sem hafa sömu sýn og þær,“ segir Caroll. Í byrjun ágúst ætlar Carol að halda samsýningu fyrir íslenska myndlistar- menn í Jack the Pelican en ekki hefur verið ákveðið hverjir sýna þar. „Það verður ábyggilega mjög skemmtilegt og við ætlum að reyna að fá spennan- di listamenn til að sýna. Það eru marg- ir íslenskir listamenn sem búa hér í New York en við ætlum einnig að reyna að finna einhverja á Íslandi,“ segir Don Caroll að lokum. Á VETRARHÁTÍÐ Gjörningaklúbburinn og slökkvilið Reykjavíkur sköpuðu sjónarspil á Vetrarhátíð í Reykjavík í byrjun árs. M YN D /ÁSLAU G SN O R R AD Ó TTIR Þykir vænt um fé sitt Sigurjón Jónasson bóndi á Lok-inhömrum við Arnarfjörð er maður að mínu skapi,“ segir Eva María Jónsdóttir sjónvarpskona. „Hann hugsar vel um skepnurnar sínar og ég hef heimsótt hann og þegið veitingar á hverju sumri frá árinu 1997. Hann hugsar einnig vel um gesti sína.“ Eva María kynntist Sigurjóni fyrir nokkrum árum þegar hún átti leið hjá bænum hans. Síðan þá hefur hún verið í jólakortasam- bandi við hann og heimsækir hann sem fyrr segir á hverju sumri. „Sigurjón var með dálítið af fé en hann er orðinn svolítið gamall og bærinn hans er orðinn af- skekktur. Hann býr núna á Þing- eyri en er enn með talsvert af fé,“ segir Eva María og bætir við að Sigurjón sé óvenju fjárglöggur maður. „Ég var einu sinni í réttum hjá honum og þá sá ég hvað hon- um þykir vænt um fé sitt. Hann talaði fallega við skepnurnar og þekkir hverja og einustu úr mik- illi fjarlægð. Hann talar líka fall- ega til þeirra og kvaddi þær allar sem fóru í sláturhúsið. Það var ógleymanlegt að sjá fyrir borgar- barn eins og mig,“ segir Eva María og bætir við að lokum. „Hann hefur mannkosti úr fortíð- inni sem eru enn í góðu gildi.“ ■ SIGURJÓN JÓNASSON Bóndi á Lokinhömrum við Arnarfjörð er maður að skapi Evu Maríu Jónsdóttur. EVA MARÍA JÓNSDÓTTIR Kynntist Sigurjóni fyrir nokkrum árum og reynir að halda sambandi við hann.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.