Fréttablaðið - 28.03.2004, Síða 1

Fréttablaðið - 28.03.2004, Síða 1
Íslendingar trúa á upprisuna MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Kvikmyndir 50 Tónlist 50 Leikhús 50 Myndlist 50 Íþróttir 47 Sjónvarp 52 SUNNUDAGUR HÁTÍÐARTÓNLEIKAR Hátíðartón- leikar verða í Hallgrímskirkju í dag í tilefni af boðunardegi Maríu. Meðal annars verður flutt kantatan Meine Seel erhebt den Herren og Magnificat – Önd mín lof- ar Drottin eftir J.S. Bach og Magnificat eft- ir D. Buxtehude. Flytjendur verða Mót- ettukór Hallgrímskirkju og Kammersveit Hallgrímskirkju ásamt einsöngvurum. Tónleikarnir hefjast klukkan 16. DAGURINN Í DAG VEÐRIÐ Í DAG 28. mars 2004 – 87. tölublað – 4. árgangur VIÐTAL „Andlát hennar lamaði mig um langt skeið. Við Guðrún Katrín vorum svo samhent, og svo miklir vinir og félagar, að það var mjög flókið að þurfa að takast einn á við tilveruna,“ segir hr. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, í viðtali við Fréttablaðið í dag. „Dorrit er sterk en líka mikið náttúrubarn og hún hefur sjarma, þannig að smátt og smátt tókst henni að takast á við þetta allt saman. Og eins og hún hefur sagt sjálf þá varð hún ekki bara ást- fangin af mér heldur líka af Ís- landi, náttúrunni og mannlífinu.“ Ólafur Ragnar hefur lýst því yfir að hann bjóði sig fram til end- urkjörs og ætlar að taka virkari þátt í þjóðfélagsumræðunni ef hann nær kjöri. „Við lifum á tím- um þar sem grundvallarspurning- ar um framtíð þjóða, áherslur þeirra og erindi eru orðnar meira knýjandi en áður var. Ýmis við- fangsefni og vandamál eru ekki hluti af dægurmálum eða hinni flokkspólitísku baráttu heldur snerta grundvallarþætti í þjóðfé- lagi og þjóðskipulagi. Ég tel eðli- legt að forsetinn komi að þessari breiðu og víðtæku samræðu, eink- um og sér í lagi vegna þess að hann getur af reynslu sinni miðlað ýmsu gagnlegu í þeirri umræðu,“ segir Ólafur Ragnar meðal annars en í viðtalinu talar hann um árin í embættinu og hlutverk forsetans. Sjá nánar síður 26-27 Upprisan er einn af umdeildustu atburðunum sem Biblían greinir frá. Samt trúa flestir Íslendingar á upprisuna samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins. Prestur segir það koma á óvart hversu margir eru trúaðir. SÍÐA 28–29 ▲ Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, í helgarviðtali við Fréttablaðið: „Andlát hennar lamaði mig“ Arnaldur Indriðason: Þýskt forlag vill verk í smíðum ÚTGÁFA Þýskt bókaforlag, Lübbe, hefur tryggt sér útgáfurétt að tveimur bókum sem Arnaldur Ind- riðason hefur í smíðum nú. Þá hefur forlagið keypt útgáfuréttinn að öll- um útgefnum bókum Arnaldar. Arnaldur hefur verið í upplestr- arferð um Þýskaland, en henni lauk í gær. Bækur hans njóta mikilla vin- sælda þar og var bókin Grafarþögn nýverið í fjórar vikur á lista yfir tíu söluhæstu kiljurnar í Þýskalandi. Bækurnar sem þýska forlagið hefur tryggt sér útgáfurétt á er skáldsaga Arnalds sem hefur vinnu- heitið Kleifarvatn og kemur út um næstu jól, svo og óskrifuð saga um lögreglumanninn Erlend. ■ M YN D /G VA MYNDARLEG SNJÓÉL Er að sjá við og yfir höfuðborginni. Napurt enda hiti nálægt frostmarki. Talvert hvasst með ströndum sunnan og vestan. Lægir á morgun. Sjá síðu 6. ▲ Latibær opnar bæjarhliðið Nú styttist óðum í að fyrstu þættirnir um Lata- bæ verði sýndir í Banda- ríkjunum. Tökur hafa staðið yfir síðustu daga. Fimm þættir tilbúnir en 35 eftir. Magnús Scheving útilokar ekki bíómynd. HR. ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON Talar um árin í embættinu og hlutverk forsetans í viðtali við Fréttablaðið í dag. SÍÐUR 24 og 25 ▲ Forstjóri Símans: Einkavæð- ing og vinnu- friður SÍMINN „Við viljum einbeita okkur að því að reka arðsamt fyrirtæki og gera það um leið eftirsóknarverðari fjárfestingarkost en við viljum ekki taka þátt í söluferl- inu,“ segir Brynjólfur Bjarna- son, forstjóri Sím- ans, í viðtali við Fréttablaðið í dag. Hann ræðir m.a. um neikvæða um- ræðu, áföll og sölu Símans. „Við höfum haldið okkur til hlés í söluferlinu og munum gera svo áfram en þetta er auðvitað spenn- andi fyrir okkur starfsmenn fyrir- tækisins. Starfsfólkið hér hefur far- ið í gegnum ýmsar hremmingar og það væri ekki gott fyrir fyrirtækið ef salan misheppnaðist. Ég vona bara að hún heppnist. Þess vegna hef ég orðað þetta þannig: gangi ykkur vel með söluna, en leyfið okkur að reka gott fyrirtæki í friði.“ Sjá nánar bls. 20-21 Fimmtíu ár eru liðin frá því að leikdómarar reykvísku blað- anna stofnuðu fyrsta stéttar- félag sitt, Félag íslenskra leik- dómenda. Um leið var ákveðið að stofna Silfurlampann, fyrstu viðurkenninguna sem veitt var reglulega fyrir afrek í ís- lenskum listum. Verðlaunaveitingar, glamúr og gleði BRYNJÓLFUR BJARNASON Forstjóri Símans vill frið til að gera gott fyrirtæki betra. SÍÐUR 32 og 33 NAUÐUNGARFLUTNINGAR Stjórn Styrktarfélags Heilbrigðisstofnunar Suður- nesja mótmælir harðlega síendurteknum nauðungarflutningum sjúkra aldraðra milli sveitarfélaga á Suðurnesjum. Mikill hiti er í fólki vegna málsins. Sjá síðu 2 GEGN DÓMAVENJU Frávísun miska- bótakröfu saksóknara fyrir hönd eins af sex fórnarlömbum nýdæmds barnakláms- manns er ekki í samræmi við fordæmi Hæstaréttar, segir Sif Konráðsdóttir hæsta- réttarlögmaður. Sjá síðu 4 VOPNUÐ RÁN Ræningi ógnaði starfs- manni 10-11 með sprautunál, sem hann sagði sýkta af lifrarbólgu C. Þá rændu tveir menn söluturn í Kópavogi vopnaðir járnrör- um. Sjá síðu 6 VERJANDI SADDAMS Nýráðinn verjandi Saddams Hussein, fyrrum einræð- isherra í Írak, á að baki æði skrautlegan feril. Verjandinn var persónulegur vinur fjöldamorðingjans Pol Pot og virðist þrífast á að verja illræmdustu glæpamenn verald- ar. Sjá síðu 8

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.