Fréttablaðið - 28.03.2004, Page 21

Fréttablaðið - 28.03.2004, Page 21
legir.“ Brynjólfur segir breyting- ar með tilkomu hlutabréfamark- aðar og frelsis í viðskiptalífinu í raun ótrúlegar á ekki lengri tíma. Hér hafi til dæmis fjármálalífið tekið stökk fram á við á tíu til fimmtán árum sem svari til aldar- þróunar nágrannaþjóða. „Mín reynsla er sú að við Íslendingar erum með eindæmum fljótir að aðlaga okkur. Sjáum til dæmis fjárfestingar okkar erlendis. Fyr- ir utan fiskvinnslufyrirtækin byrja þær ekki fyrr en fyrir tíu árum síðan. Auðvitað misstíga menn sig eitthvað og það er kannski gallinn við okkur Íslend- inga að við erum svo dómharðir við þá sem misstíga sig. Ef við lít- um í kringum okkur, þá voru Dan- ir komnir til Asíu fyrir síðustu öld og hafa yfir hundrað ára reynslu. Þeir hafa eflaust misstigið sig ein- vers staðar.“ Hversu fljót við erum að laga okkur að breytingum hlýtur að skipta verulegu máli fyrir fyrir- tæki eins og Símann. „Vissulega, ekki spurning,“ segir Brynjólfur. „Fjarskiptamarkaðurinn hefur vaxið meðal annars vegna nýj- ungagirni Íslendinga. Það fer ekk- ert á milli mála að farsímaeign og dreifing á háhraðaneti er óvíða meiri og hefur ekki byggst annars staðar upp á jafn skömmum tíma.“ Mannauður og fjárfesting Brynjólfur yfirgaf línur og veiðinet útgerðarinnar og sneri sér að símalínum og háhraðanet- um fjarskiptanna. Óneitanlega veltir maður því fyrir sér hvort ekki hljóti að vera mikill munur á þróun bæjarútgerðar í almenn- ingshlutafélag í sjávarútvegi og stærsta fjarskiptafyrirtæki lands- ins. „Að sumu leyti er ekki munur. Rekstur er rekstur og það eru sömu grundvallarþættir sem þarf að líta til. Ef ég velti fyrir mér muninum á Símanum og Granda þá er það tvennt sem er efst í huga – það getur verið að það eigi eftir að breytast – annars vegar að hér er ég í eldlínu markaðsmál- anna; í beinu sambandi við við- skiptavinina sem eru tvö hundruð þúsund. Hér þarf líka að afla við- skiptavina. Hitt er að Síminn er með tólf hundruð starfsmenn í vinnu. Ég finn að mannauðurinn og fjöldi starfsmanna þýðir að maður þarf að gefa þeim þætti mikla athygli. Í sjávarútvegi er mikil fjárfestingarþörf í skipum og tækjum. Ég lít svo á að það skipti jafn miklu máli hvort mað- ur er að fjárfesta í símstöð eða í fólki. Síminn byggir starfsemi sína á því að veita fólki þjónustu.“ Fjársvikin áfall Mannauður byggir á samvinnu og samvinna byggir á trausti. Trún- aðarbrestur varð í fyrirtækinu þegar upp komst að aðalgjaldkeri fyrirtækisins hafði dregið sér um- talsvert fé, 261 milljón króna. „Þetta var gríðarlegt áfall, bæði vegna þessa persónulega harm- leiks og þess áfalls sem varð á trausti. Í starfinu er það á þann veg að maður segir: Ég treysti þér starfsmaður. Ætli maður að hafa það á hinn veginn gengur það ekki. Í þessu tilfelli misnotaði viðkom- andi aðili það traust sem honum var sýnt hjá samstarfsfólki og yfir- mönnum.“ Brynjólfur segir að fyrir utan áfallið fyrir ímynd fyrir- tækisins hafi fjárdrátturinn verið gríðarlegt áfall fyrir samstarfsfólk gjaldkerans. „Þetta sama fólk lagði sig mest fram um að rannsaka og upplýsa málið fyrir efnahagsbrota- deild Ríkislögreglustjóra. Það var heldur ekki auðvelt fyrir starfs- fólkið. Það fór í gegnum sjálfsásök- un og spurði sig erfiðra spurninga um hvort það hefði átt að átta sig á hlutum sem voru að gerast. Síðasta sumar var því mjög erfitt fyrir þetta fólk, en það stóð sig með ein- dæmum vel.“ Brynjólfur segir að fjársvikamálið hafi verið dýr skóli, en allir vinnuferlar og öryggis- þættir voru endurskoðaðir í kjöl- farið. „Ég geri ekki ráð fyrir því að í viðskiptum eða lífinu almennt geti menn komið algjörlega í veg fyrir brot þegar brotaviljinn er jafn eindreginn og í þessu tilviki. Maður getur þó reynt að gera sitt besta til þess að koma í veg fyrir að brot af þessu tagi endurtaki sig og við erum að gera það.“ Hugmyndirnar í lögfræðideildina Síminn er sterkt fyrirtæki og skilar góðri afkomu. Tekjur fyrirtækisins jukust lítið milli síðasta árs og ársins 2002. „Það var mikill vöxtur á fjarskipta- markaðnum 1998 til 2000. Far- símavæðingin var í fullum gangi og hér spruttu upp nokkur farsímafyrirtæki. Síðan kom ákveðin lægð auk þess sem markaðurinn mettaðist.“ Brynjólfur segir að ekki megi gleyma því að póst- og fjar- skiptalögin hafi verið sett til að koma á samkeppni. „Við höfum ekki haft það olnbogarými sem við helst hefðum viljað hafa. Ég gerði mér grein fyrir því í upp- hafi að ég yrði að umgangast lög og reglur eins vandlega og ég gæti, í þeirri von að með aukinni samkeppni gætum við öðlast meira olnbogarými. Umhverfið hefur verið dálítið heftandi fyr- ir ungt og duglegt sölufólk með góðar hugmyndir sem þarf að fara með þær í gegnum mig og lögfræðideildina til þess að at- huga hvort leyfilegt sé að hrinda þeim í framkvæmd.“ Brynjólfur segir þetta gilda um þá þætti þar sem Síminn hafi umtals- verða markaðshlutdeild. „Nú höfum við verðugan keppinaut sem er Og fjarskipti. Á síðasta ári voru þeir úrskurðaðir með umtalsverða markaðshlutdeild í farsíma- og samtengimarkaði. Í þessum nýlegu niðurstöðum fel- ast skilaboð um að Símanum sé nú fært að keppa við Og fjar- skipti á jafnréttisgrundvelli í ljósi þess að þeir hafi aukna burði til að keppa við Símann. Það er því einvörðungu á tal- símasviðinu sem við erum enn- þá undir eftirliti Póst- og fjar- skiptastofnunar og Samkeppnis- stofnunar.“ Vöxturinn að utan Brynjólfur segir að fyritækið kostnaðargreini hverja rekstr- areiningu og mikið eftirlit sé með því að kostnaður verði ekki færður á milli deilda. „Það er í lagi og bara hluti af því um- hverfi sem við búum við.“ Brynjólfur segir að eftirgjöf markaðshlutdeildar sé meðvit- uð. „Ég held að þetta verði það sem við sjáum á næstu árum. Hins vegar stefnum við að því að stækka markaðinn og bæta við virðisaukandi þjónustu.“ Takmarkað svigrúm á heima- markaði kallar á að litið sé í kringum sig. Síminn tók þátt í verkefni með fjárfestum undir forystu Björgólfs Thors Björg- ólfssonar að fjárfesta í búlg- örsku símafyrirtæki. „Stjórnin hefur tekið ákvörðun um að við setjum hluta af okkar fjármun- um og vonandi þekkingu og mannafla á erlenda markaði. Þarna verða menn náttúrlega að fara varlega. Í Búlgaríu njótum við þess að vinna með aðila sem þekkir mjög vel til í Búlgaríu. Við komum með þekkingu og ei- litla fjármuni og við skulum sjá hvernig það gengur. Það geta leynst syllur sem henta okkur, þar sem smæð okkar nýtur sín.“ Brynjólfur þekkir vel úr sjávar- útvegnum að Íslendingar hafa stundum reynst velkomnir þar sem menn hafa óttast yfirgang stórfyrirtækja og stórra þjóða. „Það eru líka aðilar sem hafa áhuga á að vinna með okkur, vegna þess að stór fyrirtæki úti í heimi hafa engan áhuga á þeim.“ Hann segist trúa því að hægt sé að nýta sér slíka mögu- leika. „Ég set tvímælalaust lið eignamegin sem heitir smæð landsins.“ Tónninn er varfærinn þegar hann talar um erlendar fjárfestingar, enda margir farið flatt á slíku. „Já, ég er varkár,“ viðurkennir hann og bætir við að þróunarsvið hafi verið sett á fót til þess að faglega yrði unnið og vandað í hvívetna til slíkra verkefna. Einkavæðing og vinnufriður Síminn er til sölu. Unnið er að áreiðanleikakönnun á fyrirtækinu á vegum Einkavæðingarnefndar. „Við komum ekki að ákvörðun um sölu fyrirtækisins. Það eru eig- endur bréfanna sem ráða því. Við viljum einbeita okkur að því að reka arðsamt fyrirtæki og gera það um leið eftirsóknarverðari fjárfestingarkost en við viljum ekki taka þátt í söluferlinu.“ Brynjólfur segist finna fyrir gríð- arlegum áhuga á fyrirtækinu bæði meðal innlendra og erlendra fjárfesta. „Mér þætti ekkert ólík- legt að kaupendur gætu orðið blanda innlendra og erlendra fjár- festa. Við höfum haldið okkur til hlés í söluferlinu og munum gera svo áfram en þetta er auðvitað spennandi fyrir okkur starfsmenn fyrirtækisins. Starfsfólkið hér hefur farið í gegnum ýmsar hremmingar og það væri ekki gott fyrir fyrirtækið ef salan mis- heppnaðist. Ég vona bara að hún heppnist. Þess vegna hef ég orðað þetta þannig; Gangi ykkur vel með söluna, en leyfið okkur að reka gott fyrirtæki í friði.” haflidi@frettabladid.is 21SUNNUDAGUR 28. mars 2004 ÁFALLIÐ „Ég geri ekki ráð fyrir því að í viðskiptum eða lífinu almennt geti menn komið algjörlega í veg fyrir brot þegar brotaviljinn er jafn eindreg- inn og í þessu tilviki. Maður getur þó reynt að gera sitt besta til þess að koma í veg fyrir að brot af þessu tagi endurtaki sig og við erum að gera það.“

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.