Fréttablaðið - 28.03.2004, Qupperneq 49
49SUNNUDAGUR 28. mars 2004
STAÐAN Í ÚRVALSDEILDINNI
Arsenal 29 22 7 0 57–19 73
Chelsea 30 21 4 5 57–24 67
Man. Utd. 29 19 4 6 55–29 61
Liverpool 29 12 9 8 42–31 45
Newcastle 29 11 12 6 41–30 45
Birmingham 30 12 9 9 37–36 45
Aston Villa 30 12 7 11 38–35 43
Charlton 30 12 7 11 41–39 43
Fulham 30 11 7 12 42–40 40
Southamp. 30 10 9 11 30–28 39
Middlesbr. 30 10 8 12 35–39 38
Tottenham 30 11 4 15 40–47 37
Everton 30 8 10 12 36–41 34
Bolton 29 8 10 11 33–46 34
Man. City 30 7 10 13 41–42 31
Blackburn 30 8 7 15 42–48 31
Portsmouth 30 8 6 16 32–45 30
Leicester 29 5 12 12 39–52 27
Leeds 30 6 7 17 29–60 25
Wolves 30 5 9 16 26–62 24
* Þrjú neðstu liðin falla
MARKAHÆSTIR:
Thierry Henry, Arsenal 21
Alan Shearer, Newcastle 19
Ruud van Nistelrooy, Man. Utd 18
Louis Saha, Man. Utd 17
Mikael Forssell, Birmingham 16
Juan Pablo Angel, Aston Villa 13
Nicolas Anelka Man. City 13
Robbie Keane, Tottenham 12
Jimmy Floyd Hasselbaink, Chelsea 12
Les Ferdinand, Leicester City 11
Michael Owen, Liverpool 11
Robert Pires, Arsenal 11
James Beattie, Southampton 10
Paul Scholes, Man. Utd. 9
Andy Cole, Blackburn 9
LEIKIR Í DAG:
Bolton–Newcastle 13:00
Leicester–Liverpool 14:00
Arsenal–Man. Utd. 15:05
Hasselbaink heitur
á afmælisdeginum
Skoraði þrennu á síðustu 13 mínútunum og tryggði Chelsea 5–2 sigur á
botnliði Wolves. Birmingham burstaði Leeds 4–1.
FÓTBOLTI Hollendingurinn Jimmy
Floyd Hasselbaink hélt upp á 32 ára
afmælisdaginn sinn með eftir-
minnilegum hætti en hann skoraði
þrennu á síðustu 13 mínútum
leiksins sem tryggði liðinu 5-2 sigur
á Wolves og minnkaði jafnframt
forskot Arsenal á toppi ensku
úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu
niður í sex stig. Arsenal getur
reyndar aukið forskot sitt aftur í
dag er liðið mætir Manchester
United í stórleik umferðinnar.
Hasselbaink kom inn á sem vara-
maður í leiknum í gær þegar aðeins
hálftími var eftir og staðan 2–1
fyrir Wolves, sem er í neðsta sæti
deildarinnar.
Öll mörk Hollendingsins voru af
betri gerðinni en hann varð þriðji
útlendingurinn í sögu ensku úrvals-
deildarinnar til að skora 100 mörk.
Eiður Smári Guðjohnsen spilaði
fyrri hálfleik en var skipt út af í
hálfleik fyrir Damien Duff.
Leeds er í enn verri málum eftir
leiki gærdagsins en liðið tapaði þá
4–1 fyrir Birmingham, sem ætlar
ekki að gefa eftir í baráttunni um
fjórða sætið. Miðjumaðurinn Bryan
Hughes og Finninn Mikael Forssell,
sem er í láni frá Chelsea, skoruðu
báðir tvö mörk en það dugði ekki
Leeds að Mark Viduka kom liðinu
yfir á þriðju mínútu.
Charlton er hins vegar að gefa
eftir en 1–2 tap liðsins gegn Aston
Villa og sigur Birmingham þýddi að
bæði liðin komust upp fyrir
Hermann Hreiðarsson og félaga.
Þetta var annað tap Charlton í röð.
Nígeríumaðurinn Yakubu
Aiyegbeni tryggði Portsmouth
fyrsta útisigur tímabilsins, 1–2 á
Blackburn, en markið kom aðeins
átta mínútum fyrir leikslok.
Sigurinn kom liðinu upp úr fallsæti
en Leicester á leik inni. Tap
Blackburn sendir liðið í harða fall-
baráttu en það er nú aðeins stigi á
undan Portsmouth. ■
ÚRSLIT:
Birmingham–Leeds 4–1
0–1 Viduka (3.), 1–1 Hughes (12.), 2–1
Hughes (67.), 3–1 Forssell (69.), 4–1
Forssell (82., víti).
Blackburn–Portsmouth 1–2
0–1 Sheringham (17.), 1–1 Tugay (37.),
1–2 Yakubu (82.).
Charlton–Aston Villa 1–2
1–0 Cole (8.), 1–1 Vassell (24.), 1–2
Samuel (54.).
Chelsea–Wolves 5–2
1–0 Melchiot (4.), 1–1 Camara (23.), 1–2
Craddock (57.), 2–2 Lampard (70.), 3–2
Hasselbaink (77.), 4–2 Hasselbaink (87.),
5–2 Hasselbaink (90.).
Everton–Middlesbrough 1–1
1–0 Radzinski (78.), 1–1 Job (83.).
Man. City–Fulham 0–0
Southampton–Tottenham 1–0
1–0 Delap (64.).
ALLT VARÐ VITLAUST Á OLD TRAFFORD
Lauren, leikmaður Arsenal, tekur hér Phil Neville hjá Manchester United hálstaki.
FÓTBOLTI Það verður risaslagur í
ensku úrvalsdeildinni á Highbury
í dag þegar topplið Arsenal tekur á
móti Manchester United. Í fyrri
leik liðanna í september, sem
endaði með markalausu jafntefli,
fauk í menn, allt varð vitlaust inni
á vellinum og slagsmálin kostuðu
sex menn úr báðum liðum sektir
og leikbönn.
Uppþot varð í kjölfar þess að
Patrick Viera var rekinn út af í lok
leiksins og ekki batnaði ástandið
þegar Manchester United fékk
víti sem Ruud van Nistelrooy mis-
notaði. Í kjölfar loka flautsins
réðust þeir Martin Keown, Lauren
og Ray Parlour að van Nistelrooy,
sem þeir vildu meina að hefði látið
sig falla. Enska knattspyrnusam-
bandið dæmdi þá Keown, Lauren,
Parlour og Viera alla í bann og
þeir fengu auk þess sektir líkt og
þeir Ryan Giggs og Cristiano
Ronaldo hjá United.
Alex Ferguson, stjóri
Manchester United, vonast eftir
prúðmannlegri leik í dag.
„Þessi hegðun gerir engum
gott og síst leiknum sjálfum.
Framkoma Arsenal fór ekki
framhjá neinum í síðasta leik en
ég legg mesta áherslu á að mínir
menn hagi sér eins og menn í
leiknum. Ég vonast eftir að við
fáum svipaðan leik og milli
Arsenal og Chelsea í átta liða
úrslitum Meistaradeildarinnar á
dögunum. Þar lögðu menn sig
fram að spila góðan fótbolta og
þannig leik viljum við sjá á
Highbury,“ sagði Ferguson. ■
Risaslagur milli Arsenal og Man. Utd. í ensku úrvalsdeildinni á Highbury í dag:
Missa menn aftur stjórn á sér?
SÍÐUSTU LEIKIR LIÐANNA Í
ENSKU ÚRVALSDEILDINNI:
21. sept. 2004 Man. Utd.-Arsenal 0–0
16. apríl 2003 Arsenal-Man. Utd. 2–2
7. des. 2002 Man. Utd.-Arsenal 2–0
8. maí 2002 Man. Utd.-Arsenal 0–1
25. nóv. 2001 Arsenal-Man. Utd. 3–1
25. feb. 2001 Man Utd.-Arsenal 6–1
1. okt. 2000 Arsenal-Man. Utd. 1–0
24. jan. 2000 Man. Utd.-Arsenal 1–1
22. ágúst 1999 Arsenal-Man. Utd. 1–2
hvað?hvar?hvenær?
25 26 27 28 29 30 31
MARS
Sunnudagur
HASSELBAINK MEÐ ÞRENNU Á
SÍÐUSTU 13 MÍNÚTUNUM
Jimmy Floyd Hasselbaink fagnar hér einu
af þremur mörkum sínum sem tryggðu
Chelsea 5–2 sigur á Wolves í gær.
■ ■ LEIKIR
13.00 Stjarnan mætir ÍBV í deilda-
bikar kvenna í fótbolta. Spilað er í
Fífunni í Kópavogi.
17.00 Keflavík tekur á móti
Grindavík í undanúrslitum
Intersport-deildarinnar í körfu.
18.00 ÍA og Þróttur leika í Egilshöll
í deildabikar karla í fótbolta.
■ ■ SJÓNVARP
11.30 Boltinn með Guðna Bergs.
Allt um enska boltann frá ýmsum
hliðum og öll mörk gærdagsins
sýnd.
12.45 Leikur Bolton og Newcastle í
ensku úrvalsdeildinni í beinni á Sýn.
14.50 Risaslagur Arsenal og
Manchester United í ensku úrvals-
deildinni í beinni útsendingu á
Sýn.
16.55 Íslenski körfuboltinn. Leikur
Keflavíkur og Grindavíkur í
undanúrslitum Intersportdeildar
karla í körfubolta í beinni á Sýn.
19.30 The Players-golfmótið.
Bein útsendingu frá bandarísku
mótaröðinni í golfi á Sýn.